Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Slökkvum ljósin og
horfum á stjörnurnar
á morgun klukkan 22:00
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
39
50
09
/2
00
6
%
&'(
)
)
*+&,
-./
)
)
0.0 12/ &#$
)
)
12/ 34
)
)
50,/ -#6 7#
)
)
! "#
"$%
&
! "
.89 :#; $
.< 8 $
.# :#; $
.9# :#; $
=94 :#; $
->" $
*? :#; $
:< > $
3;@ > $
?> A< $
2 < $
2#8 *# $
(B* .<8 ( #<
& C= *! $> $
D $
#
" $ %
,E $
*< :#; $
F= : $
58 <8 :#; $
G ! $
+H 4 $
<4 $
&$' " ()
&< I< &< 9$
("* +
50,J
&
9$9
= H
H 9$9
C
C
C
C C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
K )L
C
C
K C)L
K )L
K )L
C
K C)L
K )L
C
K )L
K )L
K )L
K )L
C
C
C
C
C
C
C
C
K )L
F <9;
+<># <# M
3; &<
$ $
$
$ $
$ $ $ $$ $ $
$ $
$
$ C
C
$ C
C
$ C
$
C
C
C
; @"$ $
.+F$ N .< *!4<
9;
C
C
C
C
C
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands hækkaði um 0,6% í gær í
6.275 stig. Verslað var með hluta-
bréf fyrir rúman 7,1 milljarð, mest
með bréf Landsbankans fyrir rúma
2,1 milljarð. Gengi bréfa Dagsbrúnar
hækkaði um 4,7% og bréfa Lands-
bankans um 3,5%. Gengi bréfa
Kaupþings lækkaði um 0,35%.
Gengi íslensku krónunnar styrkt-
ist um 0,7% í gær og stendur geng-
isvísitalan nú 122,55 stigum.
Bandaríkjadollarinn kostar rétt rúm-
ar 70 krónur, evran 88,9 og pundið
132,7 krónur.
Gengi bréfa Dags-
brúnar hækkaði mestFÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur hafið undirbúning að lagabreyt-
ingu sem heimila mun Íbúðalánasjóði
að setja á fót fjármögnunarkerfi á
heildsölustigi. Magnús Stefánsson fé-
lagsmálaráðherra kynnti þessi áform
á fréttamannafundi í gær en þau
byggjast á tillögum stýrihóps sem þá-
verandi félagsmálaráðherra setti á fót
í febrúar sl.
Heildsölufjármögnunarkerfið
verður rekið sem sjálfstæð rekstrar-
eining innan Íbúðalánasjóðs og verð-
ur fjármagnað með útgáfu svokall-
aðra sérvarinna skuldabréfa. Þessi
fjármögnun yrði án ríkisábyrðar, en
að sögn Sigurjóns Arnar Þórssonar,
formanns stýrihópsins, tryggir þessi
aðferð að fjármögnunarkerfið fái
sama lánshæfismat og sömu kjör á
markaði og Íbúðalánasjóður nýtur nú
með ríkisábyrð. Magnús Stefánsson
segir að ríkisstjórnin hafi veitt félags-
málaráðuneytinu umboð til þess að
hefja smíði frumvarps um almenna
löggjöf um útgáfu slíkra skuldabréfa.
Stýrihópnum var gert að vinna að
tillögum um uppbyggingu nýs Íbúða-
banka í formlegu samráði við hags-
munaaðila, en ekki náðist samkomu-
lag við fulltrúa banka og sparisjóða
um fyrirkomulag slíks banka. Magn-
ús segir þó alla aðila hafa verið sam-
mála um mikilvægi þess að almenn
löggjöf verði sett um sérvarin skulda-
bréf.
Heildsölu íbúðabanki
Í fréttatilkynningu frá félagsmála-
ráðuneytinu segir að ef vel takist til
við uppbyggingu fjármögnunarkerf-
isins gæti það verið vísir að fjármögn-
unarleið fyrir Íbúðalánasjóð þar sem
unnt yrði að afla fjár án ríkisábyrgð-
ar.
Í gegnum tíðina hafa gagnrýnend-
ur Íbúðalánasjóðs einna helst beint
spjótum sínum að ríkisábyrgð sjóðs-
ins og er hún m.a. sögð stríða gegn
reglum EES-samningsins.
Tillaga stýrihópsins um heildsölu
íbúðabanka, sem ekki náðist sam-
komulag um við fulltrúa banka og
sparisjóða, kveður á um að íbúða-
bankinn myndi sinna fjármögnun
íbúðalána sem síðar yrðu veitt í gegn-
um banka og spairisjóði. Afgreiðsla
og útlánastarfsemi til einstaklinga
yrðu hins vegar alfarið í höndum
banka og sparisjóða.
Í Vegvísi Landsbankans segir að í
fljótu bragði virðist sem þessar tillög-
ur hópsins gangi í meginatriðum út á
að hverfa aftur til fyrra fyrirkomu-
lags á fasteignalánamarkaði og ekki
sé sjálfgefið að bankarnir fallist á að
gerast afgreiðsluaðilar fyrir nýjan
banka. Tillögurnar séu því ekki líkleg-
ar til sátta.
Í bréfi Magnúsar Stefánssonar,
sem birt er í Morgunblaðinu í dag,
segir hann hins vegar mikilvægt að
nú verði settur punktur aftan við þær
vangaveltur sem verið hafa um fram-
tíð Íbúðalánasjóðs.
Stofnun heildsölubanka á
íbúðalánamarkaði í bígerð
Morgunblaðið/Sverrir
Án ríkisábyrgðar Kerfið yrði fjármagnað með útgáfu sérvarinna bréfa.
Í HNOTSKURN
» Félagsmálaráðuneytiðvinnur nú að lagabreyt-
ingu sem mun heimila
Íbúðalánasjóði að setja á fót
fjármögnunarkefi á heild-
sölustigi.
» Bankar og sparisjóðirmunu í kjölfarið geta
fjármagnað íbúðalán sín í
gegnum fjármögnunarkerfi
Íbúðalánasjóðs.
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
TILTRÚ neytenda á horfum í efna-
hagsmálum hefur vaxið á ný sam-
kvæmt væntingavísitölu Gallup sem
birt var í gær. Vísitalan stendur nú í
119,6 stigum en fór lægst í 88,1 stig í
júlímánuði. Vísitölugildi yfir 100
stigum táknar að fleiri neytendur
séu bjartsýnir en svartsýnir.
Þeir neytendur sem telja að efna-
hagsástandið verði betra eftir sex
mánuði en nú, eru ívið fleiri en þeir
sem telja að ástandið muni versna.
Í Morgunkorni Greiningar Glitnis
segir að neytendur virðist hafa tekið
gleði sína að nýju þrátt fyrir geng-
isfall, verðbólguskot og útlit fyrir
minnkandi vöxt hagkerfisins.
„Erfitt er að finna góða skýringu á
aukinni bjartsýni neytenda í ljósi
þess geysilega viðskiptahalla og ann-
arra birtingarmynda ójafnvægis
sem einkenna hagkerfið um þessar
mundir og krefjast leiðréttingar,“
segir í Morgunkorni Glitnis.
Bjartsýni eykst
Neysla Bjartsýni eykst þrátt fyrir
gengisfall og verðbólguskot.
● NÚ ÞEGAR aðeins þrír dagar eru
eftir af þriðja fjórðungi ársins hefur
úrvalsvísitalan hækkað um 14,6%
eða 801 stig það sem af er fjórð-
ungnum. Vísitalan hefur nú hækk-
að um rúm
19,3% frá
lægsta gildi
innan árs-
ins, eða frá
27. júlí, en
þá stóð hún
í 5.258,5
stigum.
Í hálffimmfréttum Kaupþings
banka kemur fram að hækkun vísi-
tölunnar á þessu tveggja mánaða
tímabili hefur fyrst og fremst verið
borin uppi af verðhækkun bank-
anna þriggja en vægi þeirra í vísi-
tölunni er rúmlega 63% og því ræð-
ur verðþróun þeirra mjög miklu um
þróun Úrvalsvísitölunnar.
Hlutabréf bankanna hafa hækk-
að á bilinu 19% til 33% á þessu
tímabili en þar af hefur Landsbank-
inn hækkað mest en Kaupþing
banki minnst. Af öðrum félögum
sem hafa dregið vagninn síðast-
liðna tvo mánuði má nefna FL
Group sem hefur hækkað um rúm-
lega 50%, Bakkavör Group sem
hefur hækkað um rúmlega 25% og
Alfesca um rúmlega 27%. Önnur
félög í Úrvalsvísitölunni hafa hækk-
að minna en vísitalan á umræddu
tímabili, að því er segir í hálffimm-
fréttum.
Miklar hækkanir bank-
anna drógu vagninn
● ATORKA Group, móðurfélag, var
rekin með 4,9 milljarða króna
hagnaði fyrir skatta á fyrstu sex
mánuði ársins á móti 418 millj-
ónum á sama tímabili í fyrra. Hagn-
aður fyrir skatta á öðrum ársfjórð-
ungi nam rúmum milljarði á móti
214 milljóna tapi í fyrra. Arðsemi
eigin fjár Atorku á ársgrundvelli var
um 95% en eigið fé í lok júní nam
15,9 milljarðar og eiginfjárhlutfall
var tæp 49%.
Atorka Group er fjárfestingafélag
en í eignasafni þess er m.a. Jarð-
boranir og Promens auk fyrirtækja
á heilbrigðis- og fyrirtækjamarkaði.
Magnús Jónsson, forstjóri Atorku,
segir í tilkynningu félagsins, að af-
koman á fyrri árshelmingi hafi verið
góð og sérstaklega þegar tekið sé
mið af ytri aðstæðum á hlutabréfa-
mörkuðum. Hann segir að Atorka
muni í auknum mæli horfa til fjár-
festinga í félögum sem starfa á
vaxtarmörkuðum sem tengist hnatt-
rænni þróun.
Mikil umskipti hjá
Atorku Group
SAMTÖK banka og verðbréfafyr-
irtækja (SBV) fagna þeirri vinnu
sem viðskiptaráðherra hefur sett af
stað um varin skuldabréf enda mik-
ilvægt að íslenskur fjármálamark-
aður sé ekki eftirbátur annarra
landa í þeim efnum. En að öðru
leyti eru samtökin ósammála þeirri
stefnu sem kemur fram í áliti stýri-
hópsins. Að mati samtakanna
hindra tillögur stýrihópsins eðli-
lega samkeppni á íbúðalánamark-
aði og beinast frekar að ríkisvæð-
ingu á húsnæðislánamarkaði.
Þvert á nútímaleg viðhorf
„Það er þvert á nútímaleg viðhorf
um hlutverk ríkisins í atvinnulífi að
það skuli halda sig fjarri mörk-
uðum þar sem samkeppni ríki, sbr.
þær alvarlegu ábendingar sem al-
þjóðlegar stofnanir og matsfyr-
irtæki hafa sett fram undanfarin
misseri um óeðlileg ríkisafskipti á
íslenskum húsnæðislánamarkaði,“
segir í tilkynningu Samtaka banka
og verðbréfafyrirtækja.
Þar er bent á að stýrihópurinn
hafi þannig lagt upp með að nýr
sjóður yrði ekki eiginlegur heild-
sölusjóður heldur ríkisbanki á fjár-
málamarkaði sem veitti lán gegn-
um dreifinet banka og sparisjóða.
„SBV harma þessa niðurstöðu
stýrihópsins og viðbrögð ráðherra.
Eðlilegra hefði verið að fara að til-
lögum SBV og leggja grunn að var-
anlegri uppbyggingu íbúða-
lánakerfis á Íslandi.“
Hindrar
samkeppni