Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÚ ER komið að ögurstund í byggingarsögu Kárahnjúkavirkj- unar þar sem söfnun vatns í Hálslón hefst að öllum líkindum næstu daga. Í tæp 8 ár hefur VG barist fyrir sjálfbærri atvinnu- og orkustefnu, en framkvæmd á borð við Kárahnjúkavirkjun er ósamrýmanleg slík- um áherslum. Þegar hér er komið sögu er fróðlegt fyrir fólk að sjá hvernig flokkurinn og einstakir félagar á hans vegum hafa með öllum tiltækum ráðum reynt að koma í veg fyrir skaðann:  Des. 1998 á Lands- ráðstefnu til undirbún- ings stofnunar VG: Að horfið verði frá ein- stefnu stóriðjuáforma, umhverfis- stefna íslenskra stjórnvalda verði endurskoðuð og að fram fari mat á umhverfisáhrifum Fljótsdalsvirkj- unar.  Júní 1999 á Alþingi: Að fram fari mat á umhverfisáhrifum Fljótsdals- virkjunar.  Okt 1999: Að stofnaður verði Snæfellsþjóðgarður, sem nái til Eyjabakka og Vesturöræfa.  Okt 1999: Að öll áform um virkj- anir í þágu stóriðju verði lögð til hliðar og að teknir verði upp grænir þjóðhagsreikningar svo meta megi fórnarkostnað náttúruverðmæta í samhengi við efnahagslegan ávinn- ing.  Okt. 1999: Að átak verði gert í byggðamálum með sjálfbæra at- vinnustefnu að markmiði.  Apríl 2000: Að stóriðjuáformum verði slegið á frest og hraðað vinnu við rammaáætlun um nýtingu vatns- afls- og jarðvarma. Einnig að teknar verði upp viðræður við Austfirðinga um átak í atvinnumálum og lagt um- talsvert fé í nýsköpun og samgöngu- bætur á svæðinu.  Apríl 2000: Að háskólanám í dreifðum byggðum verði eflt og byrjað á Austurlandi.  Okt. 2000: Að Eyjabakkar verði settir á skrá Ramsar-samningsins um alþjóðlega mikilvæg votlendis- svæði.  Nóv. 2000: Að fram fari sjálfstætt mat á umhverfisáhrifum þjóðgarðs á svæðinu norðan Vatnajökuls sam- hliða mati á umhverfisáhrifum Kára- hnjúkavirkjunar.  Des. 2000: Að Reykjavíkurborg láti framkvæma sjálfstætt arðsem- ismat fyrir Kárahnjúkavirkjun og varað við því að borgin gangist í ábyrgð vegna fjármögnunar virkj- unarinnar.  Apríl 2001: Að flutn- ingur vatnsfalla milli vatnasviða verði bann- aður.  Apríl 2001: Að inn- leidd verði sjálfbær orkustefna þar sem varúðarsjónarmið verði höfð að leiðarljósi við alla orkuöflun.  Okt. 2001: Að horfið verði frá stóriðjustefn- unni og þess í stað unnið út frá sjálf- bærri orkustefnu og hófsamri orku- nýtingu til margháttaðra þarfa vaxandi þjóðar.  Okt. 2001: Að efnt verði til átaks til að treysta byggð og efla atvinnulíf á landsbyggðinni og byrjað verði á Austurlandi.  Jan. 2002: Að fram fari þjóðar- atkvæðagreiðsla um framtíð hálend- isins norðan Vatnajökuls.  Feb. 2002: Að leynd verði aflétt af raforkuverði frá Kárahnjúka- virkjun.  Mars 2002: Að frumvarpi ríkis- stjórnarinnar um Kárahnjúkavirkj- un verði vísað frá Alþingi.  Jan. 2003: Að Reykjavíkurborg ábyrgist ekki lán Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar.  Jan. 2003: Að Akureyrarbær ábyrgist ekki lán Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar.  Jan. 2003: Að fram fari þjóðar- atkvæðagreiðsla um byggingu Kára- hnjúkavirkjunar.  Feb. 2003: Að frumvarpi ríkis- stjórnarinnar um álverksmiðju á Reyðarfirði verði vísað frá Alþingi.  Mars 2003: Að álverksmiðja á Reyðarfirði verði ekki reist nema að undangenginni þjóðaratkvæða- greiðslu um Kárahnjúkavirkjun.  Apríl 2003: Að ríkisstjórnin lag- færi ófullnægjandi tilhögun skatt- greiðslna og skattskila vegna virkj- unarframkvæmdanna við Kára- hnjúka.  Okt. 2003: Að Jökulsá á Fjöllum verði friðlýst frá upptökum til ósa, m.a. til að varna því að einhver upptakakvísla hennar verði tekin með í Kárahnjúkavirkjun.  Nóv. 2003: Að hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar sé lögð til grundvallar allri ákvarðanatöku í samfélaginu.  Maí 2004: Að Ísland fái varanlega undanþágu frá raforkutilskipun ESB um samkeppni á raforku- markaði.  Mars 2005 í stjórn Landsvirkj- unar: Að gert verði nýtt áhættumat vegna nýrra upplýsinga um jarð- fræði í lón- og stíflustæði við Kára- hnjúka og jafnframt að viðbragðs- áætlun verði endurnýjuð.  Ágúst 2005 í stjórn Landsvirkj- unar: Að sérfræðingar kynni sér hliðstæðar stíflur og Kárahnjúka- stíflu í Brasilíu og Leshoto, hvað far- ið hafi úrskeiðis þar við fyllingu í miðlunarlón og síðan fari fram endurmat á áhættunni af fyllingu í Hálslón.  Ágúst 2006: Að nú þegar fari fram óháð og gagnsæ rannsókn á þeirri áhættu sem tekin er með byggingu virkjunarinnar áður en byrjað verður að safna vatni í Háls- lón.  Ágúst 2006: Að þingflokkar á Alþingi, stjórnarformaður Lands- virkjunar, forsætisráðherra, borgar- stjórinn í Reykjavík og bæjarstjóri Akureyrarbæjar lýsi sig reiðubúna til að fresta fyllingu Hálslóns.  Ágúst 2006: Að Akureyrarbær beiti sér fyrir því að fyllingu Háls- lóns verði frestað þar til óháð hættu- mat liggi fyrir.  Sept. 2006: Að Reykjavíkurborg beiti sér fyrir því að fyllingu Háls- lóns verði frestað þar til óháð hættu- mat liggi fyrir. Hvað sem Kárahnjúkavirkjun líð- ur heldur baráttan áfram. Þrjú ný álversverkefni eru á teikniborðinu. Við vinstri-græn teljum því brýnna en nokkru sinni að allir, sem vilja standa vörð um náttúru landsins, taki höndum saman og segi; hingað og ekki lengra. Setjum náttúruna í fyrsta sæti. Baráttan heldur áfram Kolbrún Halldórsdóttir skrifar um baráttu VG gegn stóriðju »… er fróðlegt fyrirfólk að sjá hvernig flokkurinn og einstakir félagar á hans vegum hafa með öllum tiltæk- um ráðum reynt að koma í veg fyrir skað- ann. Kolbrún Halldórsdóttir Höfundur er þingmaður fyrir VG og á sæti í umhverfisnefnd Alþingis. Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000 Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500 www.terranova.is Terra Nova býður einstakt tækifæri til að njóta haustsins við góðan að- búnað í þessari skemmtilegu borg á frábærum kjörum. Tallinn býður allt það helsta sem fólk sækist eftir í borgarferð; fallegar byggingar, ótel- eljandi veitingastaði, fjörugt nætur- líf, úrval verslana og mjög gott verðlag. Gisting á frábærum kjörum á Hotel Domina Inn Llmarine, ný- tískulegu og fallegu fjögurra stjörnu hóteli með góðum aðbúnaði og þjónustu. Fjölbreytt gisting í boði. frá Kr.39.990 M.v. 2 í herbergi í 4 nætur á Hotel Domina Inn Ilmarine **** með morgunverði, 18. október. Netverð á mann. Tallinn 18. október Glæsileg helgarferð frá kr. 39.990 Hotel Domina Inn Ilmarine **** - SPENNANDI VALKOSTUR UNDARLEG umræða hefur átt sér stað varðandi hugtakið „gift- ing“ eða hjúskapur á undanförnum mánuðum. Það sem vekur mesta undrun er óttinn eða van- þekking þeirra aðila opinbers valds og kirkjunnar manna hvað varðar upphaf þess gjörnings er kallast gifting. Í orð- inu gifting, hjúskapur eða hjónaband hefur falist frá örófi alda ákveðin varnartaktík þjóðfélags eða þjóð- flokka til að minnka líkur á of nánum blóðtengslum aðila er hlutu samþykki til samfara. Ástæðan var viss þekking sem forfeður okkar höfðu aflað sér, að of náin blóðtengsl leiddu í mörgum tilvikum til alvarlega bæklaðra afkomenda. Þegar þessi upp- götvun hafði verið gerð var komið á kerfi þar sem for- ystumenn þjóðflokks eða þjóðfélags urðu að samþykkja hinn svonefnda hjúskap. M.ö.o. að gefið var út opinbert samfaraleyfi til handa tilteknum einstaklingum. Þeir máttu eignast afkvæmi sem ekki yrði þjóð- flokknum óþarfa byrði. Á það skal bent sérstaklega að uppgötvun þessi var gerð áður en trúarbrögð fóru að hafa áhrif á gerðir manna. Er þetta ein af skynsemisákvörð- unum manna varðandi samskipta- reglur samfélagsins eins og öll boðorðin tíu, sem voru skyn- samlegar reglur í samskiptum manna og eiga að falla undir laga- setningu þess tíma en ekki trúar- brögð. Kristnir menn hafa til- einkað sér þessa fornu speki sem gott samskiptaform sem var til löngu áður nokkrum datt í hug trúarbrögð sem hafa hlotið heitið Kristin trú. Þetta leiddi af sér kerfi hjá kristnum mönnum þar sem lýsa þurfti með aðilum er hugðust stofna til hjúskapar. Var það skylda almennings að upplýsa um of náin tengsl aðila sem gátu leitt til synjunar á opinberu samfarleyfi til handa viðkomandi aðilum. Með vísan til uppruna og til- gangs hins svonefnda hjónabands er það all- undarleg krafa þeirra sem vilja fá inngöngu í þetta ríkjandi kerfi gagnkynhneigðra þótt þeirra xx-farir hafi ekkert að gera með samfarir. Samkynhneigðir eiga nú að finna eitt- hvert annað form á sína sambúð til að fá samþykki stjórnvalda til sinna xx-fara þar sem ljóst er að hvað varðar viðhaldi á mannkyni hafa þeirra farir ekkert sammerkt með samförum og strangt til tekið engin þörf á afskiptum þess opinbera nema ef vera skyldi einhver fjár- hagsleg tengsl vegna skattastefnu stjórn- valda. Ekki er gert ráð fyrir að þeirra xx- farir leiði til þess að getnir verði alvarlega bæklaðir einstaklingar sem yrðu baggi á sam- félaginu en jafnframt skal hugleiða að tilvist mannkynsins verður skammvinn ef xx-farir verða ríkjandi sam- félagsform á jörðinni. Í ljósi ofanritaðs er allt það fjaðrafok og ásakanir á hendur stjórnvöldum og kirkju af hálfu samkynhneigðra óskiljanlegt og ættu þeir aðilar er hallast að því sambúðarformi að huga alvarlega að einhverju sambærilegu hugtaki og hjónabandi sem þeir geta sætt sig við með tilliti til þeirra sam- búðar sem á ekkert skylt við hjónaband eða samfarir karls og konu. Vonandi verða þessar línur til þess að augu samkynhneigðra opnist og þeir leiti að lausn sem ekki leiðir til skaða á því alda- gamla formi opinbers sam- faraleyfis sem hefur reynst mann- kyninu allvel. Gifting og samkynhneigð Kristján Guðmundsson fjallar um giftingu og samskipti fólks Kristján Guðmundsson » Vonandiverða þessar línur til þess að augu samkyn- hneigðra opnist og þeir leiti að lausn sem ekki leiðir til skaða á því aldagamla formi opinbers samfaraleyfis sem hefur reynst mann- kyninu allvel. Höfundur er fyrrverandi skipstjóri. ÉG LEGG til að hætt verði við íbúðabyggingar í Norð- lingaholti og að þær byggingar sem komnar eru verði minnis- merki framtíðarinnar um for- áttuheimsku í mannvirkjagerð. Ástæðan er auðvitað hin gríðar- lega hætta á hraunrennsli frá þekktum gosstöðvum ofan Reykjavíkur og sjónmengun frá Heiðmörk. Að auki fer þarna óspillt náttúra undir húsbygg- ingar og ekki er á það bætandi í útþenslu höfuðborgarinnar. Hverfið kallar á miklu lengri samgönguleiðir með tilheyrandi mengun frá útblæstri bíla. Það er komið nóg af húsbyggingum í Reykjavík og kominn tími til að byggja upp í loft, 15–20 hæðir annars staðar í borginni, til að eyðileggja ekki fleiri náttúru- gersemar. Skýrslum um hugsanlegt hraunrennsli og öskufall í efri byggðum Reykjavíkur hefur verið stungið undir stól eða í besta falli ræddar í lokuðum hópi sérfræðinga sem stjórn- málamenn taka ekkert mark á. Lágmarkskrafan er sú að fram fari hlutlaus úttekt á búsetuskil- yrðum í Norðlingaholti sem von- andi tekur ekki nema 5–10 ár en afla má tekna til greiðslu hús- næðislánanna með túristaheim- sóknum í draugahverfið á með- an. Björn S. Lárusson Hættum við bygg- ingar í Norðlinga- holti í Reykjavík Höfundur er íbúi á Reyðarfirði. vaxtaauki! 10%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.