Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 10
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÉG TEL samningaviðræður síð- ustu mánaða hafa leitt til góðrar nið- urstöðu fyrir báðar þjóðir. Íslend- ingar eru sem fyrr traustir bandamenn okkar innan Atlants- hafsbandalagsins (NATO) og við munum eftir sem áður standa við ábyrgð okkar á vörnum landsins en það byggist á því tvíhliða samkomu- lagi sem þjóðirnar tvær hafa gert milli sín. En þar er um að ræða ein- stakt samkomulag af hálfu okkar Bandaríkjamanna sem við höfum ekki gert við neitt annað NATO- ríki.“ Þetta segir Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, sem leiddi viðræðurnar fyrir hönd bandarísku samninganefndarinnar að undanskildum tæknilegum út- færsluatriðum samningsins sem voru á ábyrgð Thomas Hall, eins af aðstoðarvarnarmálaráðherrum Bandaríkjanna. Í hverju felst samkomulagið ná- kvæmlega með tilliti til varna Ís- lands? „Í samráði við íslensk stjórnvöld höfum við þróað varnaráætlun. Þú verður að afsaka að ég get auðvitað ekki farið nákvæmlega í saumana á því hvað felst í þeirri áætlun því það er eðli slíkra áætlana að þær eru trúnaðarmál. Ég get þó sagt þér að varnaráætlunin byggist á hreyfan- leika bandaríska heraflans, bæði hermanna, annarra starfsmanna og hergagna. Við munum æfa viðbragð- sáætlun okkar hér í framtíðinni auk þess sem við munum halda áfram að ræða við íslensk stjórnvöld um ná- kvæmari útfærslu áætlunarinnar,“ segir Carol van Voorst og leggur mikla áherslu á að varnaráætlunin verði sífellt virk og í þróun. „Áætl- unin er þannig ekki eitthvert plagg sem við munum stinga ofan í skúffu í því skyni að gleyma því þar. Þetta er virk áætlun sem verður þróuð til framtíðar í nánu samstarfi við óskir og þarfir íslenskra stjórnvalda.“ Verðum komin um hæl Getur íslenska þjóðin þá andað léttar fullviss um að við séum vernd- uð samkvæmd samningi við Banda- ríkin? „Samkvæmt varnarsamningnum frá 1951 hafa Bandaríkin borið ábyrgð á vörnum Íslands frá því áð- ur en ég fæddist. Ég er sannfærð um að báðir aðilar eru sammála um að samkomulag þjóðanna hafi virkað sem skyldi. Ég er ekki í neinum vafa um að samband þjóðanna heldur áfram að styrkjast í náinni framtíð og ábyrgð okkar á vörnum Íslands hefur ekkert breyst. Við teljum okk- ur bera ábyrgð á vörnum Íslands.“ Nú þegar orrustuþoturnar fjórar eru farnar af landi brott er ljóst að Ísland er ekki með jafn öflugar loft- varnir og var. Er það viðunandi að Ísland sé eina ríkið í NATO án loft- varna? „Það eru margar leiðir til þess að tryggja loftvarnir. Það er ekkert sem segir að eina leiðin til að tryggja loftvarnir Íslands sé að þoturnar séu hér á landi. Eins og ég nefndi áðan er bandaríski herinn afar hreyfan- legur og hefur skamman viðbragðs- tíma. Skyldi óvissuástand skapast á Íslandi sem kallar á loftvarnir verð- um við komin um hæl.“ Þú segir að þið getið brugðist hratt við. Hversu skammur getur þessi viðbragðstími orðið? „Ég get því miður ekki farið út í slík smáatriði.“ Felur í sér heildarpakka skuldbindinga og markmiða Í samkomulaginu sem kynnt var í dag [þriðjudag] er kveðið á um aukið samstarf milli íslenskra öryggis- stofnana og samsvarandi bandaríska stofnana. Getur þú útlistað nánar hvað felst í þessu samkomulagi? „Hin hefðbundna skilgreining á þeim ógnum sem steðjað gætu að Ís- landi fólu áður í sér að her annars lands myndi ráðast hér inn í landið. Við vitum öll að í breyttum heimi hefur ógnin breyst og birtist t.d. í hryðjuverkaógninni og auknu fíkni- efnasmygli og mansali, sem við þurf- um að geta brugðist við, enda getur ríki stafað töluverð ógn af slíku. Markmið okkar er að auka samstarf- ið við Ísland á hinum ýmsu sviðum til þess að geta brugðist við þessu. Þannig er ráðgert að auka og styrkja samstarfið á sviði löggæslu og landamæraöryggis til þess að hamla gegn og verjast ógnum sem steðja að báðum ríkjum frá alþjóð- legum hryðjuverkum. Við sjáum líka fyrir okkur aukið samstarf milli bandarísku strandgæslunnar og Landhelgisgæslunnar með æfing- um, þjálfun og starfsmannaskipt- um,“ segir Carol van Voorst og ítrekar að einnig sé ráðgert að fram fari gagnkvæm upplýsingamiðlun. Bendir hún á að samstarf landanna á fyrrnefndum sviðum hafi aukist á síðustu misserum en að gera megi mun meira og segir hún samkomu- lagið sem kynnt var í gær forsendu þess að hægt sé að efla þetta sam- starf. Að lokum, nú er ljóst að með sam- komulaginu mun Ísland taka við öll- um eignum bandaríska hersins en á móti skuldbinda sig til þess að ann- ast alla hreinsun á svæðinu annars vegar með tilliti til mengunar og hins vegar þess hvaða byggingar þarf að rífa. Telur þú þetta vera sanngjarnan samning fyrir báðar þjóðir eða kemur önnur betur út en hin í þessum skiptum? „Að mínu mati er þetta algjörlega sanngjarnt samkomulag fyrir báðar þjóðir, sem félagaþjóðir og banda- menn. Við höfum lagt mikla vinnu á okkur á síðustu mánuðum til þess að komast að samkomulagi sem fæli í sér nokkurs konar heildarpakka skuldbindinga og markmiða sem tryggja báðum þjóðum trausta og örugga stöðu. Með tilliti til eigna og umhverfis höfum við eftir fremsta megni reynt að vera góðir ráðsmenn, ef svo má að orði komast, á varnarliðssvæðinu sem við höfum haft til umráða. Líkt og gildir með flestallar aðrar þjóðir höfum við á umliðnum áratugum orðið sífellt betur meðvituð um gildi þess að ganga vel um,“ segir Carol van Voorst og bendir á að samkomu- lagið felur í sér að Íslendingar og Bandaríkjamenn muni hafa samráð ef vitneskja kemur fram um að heil- brigði og öryggi manna sé í hættu vegna umhverfismengunar einhvern tíma á næstu fjórum árum. „Komi eitthvað slíkt í ljós munum við aftur setjast að samningaborðum og ræða úrlausnir. Þetta er sem sagt opið til viðræðna.“ „Ábyrgð okkar á vörnum Íslands hefur ekkert breyst“ Morgunblaðið/Golli Sátt Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, telur samn- ingaviðræður sl. mánaða hafa leitt til góðrar niðurstöðu fyrir báðar þjóðir. 10 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ VARNARSAMNINGUR ÍSLANDS OG BANDARÍKJANNA FORMENN stjórnarflokkanna, Geir Haarde forsætis- ráðherra og Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og starf- andi utanríkisráðherra, áttu fund með utanríkis- málanefnd Alþingis eftir hádegi í gær og greindu þeir henni frá niðurstöðum varnarviðræðna Íslendinga og Bandaríkjamanna áður en þær voru gerðar heyr- inkunnar á fjölmennum blaðamannafundi í Þjóðmenn- ingarhúsinu. Vel virtist fara á með þeim Jóni Sigurðs- syni og Össuri Skarphéðinssyni að fundi utanríkismálanefndar loknum. Fundinn sátu einnig meðal annarra þeir Steingrímur Sigfússon, Vinstri- hreyfingunni – grænu framboði, og framsóknarmenn- irnir Hjálmar Árnason og Jón Kristjánsson. Ekki lýstu þó allir sömu ánægjunni með niðurstöðuna. Morgunblaðið/Kristinn Af einum fundi til annars Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ Bráðnauðsynlegt að stofna félag um rekstur svæðisins ÁRNI Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir menn þar hafa vænst svipaðrar niðurstöðu og nú væri komin fram varðandi afhend- ingu flugvallarins en þetta væri í samræmi við frá- gang slíkra mála annars staðar samkvæmt þeim upplýsingum sem þau hefðu aflað sér, eins og til dæmis í Þýska- landi og Japan við svipuð umskipti. „Ég held við getum verið ánægð með það líka að við höldum öllum bún- aði til þess að sinna rekstri flugvall- arins og fáum hann á mjög hagstæð- um kjörum. Það er líka í þessu samkomulagi að það verði stofnað fé- lag um umsjón með þessu verkefni ut- an flugrekstrarsvæðisins og ég tel vera mjög mikilvægt að það félag fari strax af stað,“ sagði Árni. Hann sagðist myndu hafa áhyggjur af því ef af einhverjum ástæðum drægist að stofna slíkt félag. Nú væri uppi bráðabirgðastaða og það yrði væntanlega Flugmálastjórn sem héldi utan um starfsemina, en það væri mjög mikilvægt að verkefnið kæmist strax í hendur þess aðila sem ætti að sinna og ljúka því, þ.e. hreins- un svæðisins, formi á leigu eða sölu eigna, heildarskipulagningu þess, möguleika á rekstri þar o.s.frv. „Það má ekki dragast hjá ríkinu að klára þetta mál. Ég tek eftir að það er ekki búið að gera það, en það er sagt að það verði gert. Þetta er stórt mál,“ sagði Árni ennfremur. Ýmsir möguleikar fyrir hendi Hann sagðist telja, miðað við þessa niðurstöðu, að það væru mjög góðar aðstæður til þess að byggja upp ný at- vinnutækifæri í kringum flugvöllinn. Það væri til dæmis ekki um það að ræða að svæðið væri tekið frá fyrir mögulegar heræfingar. Það væri búið að skila svæðinu og það væri að stærstum hluta ætlað til annarra nota, sem annaðhvort tengdust al- þjóðaflugvellinum eða annarri at- vinnuuppbyggingu. Þau hafi verið já- kvæð varðandi þessar breytingar og telji ýmsa möguleika fyrir hendi. Árni ítrekaði aðspurður að það væri bráðnauðsynlegt að stofna félag sem héldi utan um framhaldið. Reynsla annarra þjóða sýndi það og þau vonuðust til þess að sveitarfélögin á svæðinu ættu hlut að þessu félagi. Þannig hefði það verið erlendis og þau hefðu góðar vonir um að ríkis- stjórnin hefði uppi þær fyrirætlanir. Árni Sigfússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.