Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Slökkvum ljósin og
horfum á stjörnurnar
ámorgun klukkan 22:00
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
33
95
0
09
/2
00
6
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins (ESB) tilkynnti í gær að
Búlgaría og Rúmenía gætu fengið að-
ild að sambandinu 1. janúar næst-
komandi en með ströngustu skilyrð-
um sem sett hafa verið til þessa fyrir
inngöngu í sambandið.
Jose Manuel Barroso, forseti fram-
kvæmdastjórnarinnar, sagði að lönd-
in tvö hefðu komið á nægum umbót-
um til að geta fengið aðild að ESB.
Framkvæmdastjórnin ákvað að
mæla ekki með því að inngöngu land-
anna tveggja yrði frestað um eitt ár,
eins og hún hafði heimild til að gera.
Þess í stað ákvað hún ýmsar ráðstaf-
anir til að tryggja að nýju aðildarríkin
uppfylltu skilyrði sambandsins.
Strangt eftirlit
Evrópusambandið hyggst m.a.
hafa strangt eftirlit með því að stjórn-
völd í Búlgaríu og Rúmeníu nái ár-
angri í baráttunni gegn spillingu og
skipulögðum glæpasamtökum.
Bæði ríkin þurfa einnig að koma á
fót sérstökum stofnunum til að
tryggja að landbúnaðarstyrkir ESB
verði ekki misnotaðir, ella verður
fjórðungur styrkjanna felldur niður.
Þá eiga löndin yfir höfði sér útflutn-
ingsbann vegna búfjársjúkdóma.
Ráðamenn í löndunum tveimur
fögnuðu ákvörðun framkvæmda-
stjórnarinnar en viðurkenndu að þau
ættu enn langt í land með að koma á
nauðsynlegum umbótum.
Barroso sagði í fyrradag að óráð-
legt væri að veita fleiri löndum aðild
að Evrópusambandinu nema sam-
komulag næðist um stjórnarskrár-
sáttmálann sem Frakkar og Hollend-
ingar höfnuðu í þjóðaratkvæða-
greiðslum í fyrra.
Sérfræðingar töldu þó líklegt að
hægt yrði að veita Króatíu aðild að
sambandinu án mikilla breytinga á
stjórnkerfi sambandsins.
Samþykkt á leiðtogafundi
Leiðtogar aðildarríkja Evrópusam-
bandsins koma saman í næsta mánuði
til að samþykkja inngöngu Búlgaríu
og Rúmeníu formlega.
Þjóðþing fjögurra ríkja – Frakk-
lands, Þýskalands, Danmerkur og
Belgíu – hafa ekki enn samþykkt inn-
göngu Rúmeníu en búist er við að þau
leggi blessun sína yfir hana fyrir leið-
togafundinn.
Ströng skilyrði sett
fyrir stækkun ESB
Reuters
Fegnir Forseti Rúmeníu, Traian
Basescu (t.h.), og forsætisráðherra
landsins fagna ákvörðun ESB.
Í HNOTSKURN
» Búlgaría og Rúmeníaverða meðal fátækustu að-
ildarríkja Evrópusambands-
ins. Fjöldi íbúa landanna
tveggja er um 6% af íbúafjölda
ESB-ríkjanna en verg lands-
framleiðsla aðeins 1% af fram-
leiðslu ESB-landanna.
» Verg landsframleiðsla áhvern landsmann er um
þriðjungur af meðaltali ESB.
» Eftir stækkunina verðaaðildarríki ESB orðin 27.
London. AFP. |
Þriggja ára gam-
all drengur fór
nýlega inn á
eBay-uppboðs-
vefinn, ýtti á alla
réttu takana og
keypti sér notað-
an, japanskan bíl,
safnaraeintak.
Foreldrar
drengsins, John
og Rachel Neal, vissu ekki hvaðan á
þau stóð veðrið þegar eBay sendi
þeim skeyti og óskaði þeim til ham-
ingju með að keypt bílinn, bleikan
Nissan Figaro, fyrir um 1,2 millj. ísl.
kr. Þá upplýsti strákurinn, að hann
hefði keypt bílinn.
Rachel, móðir drengsins, segir, að
þrátt fyrir ungan aldur kunni hann á
tölvu en hún telur, að hún hafi skilið
lykilorðið að eBay eftir í tölvunni.
Faðir drengsins hringdi strax í
fyrirtækið, sem hafði auglýst bílinn,
og sem betur fer „fyrir fjárhag heim-
ilisins“ kunnu menn þar á bæ að
meta grínið. Riftu þeir sölunni strax
og sögðust mundu auglýsa aftur.
Þrevetur
og keypti
bíl á eBay
Gripurinn Bleikur
Nissan Figaro.
STARFSMAÐUR í bækistöð fyrir týnd gæludýr,
skammt fyrir utan Beirút í Líbanon, sinnir nokkrum
vinum sínum. Bandarísk samtök sendu flugvél eftir
nokkur hundruð dýrum þegar dýravinasamtök í Líb-
anon höfðu ekki undan en fjöldi dýra hefur lent á ver-
gangi í kjölfar stríðsins í sumar. Einkum er um að ræða
hunda og ketti og fá þeir samastað í Utah.
Ráðamenn Ísraela sögðust í gær vona að síðustu her-
menn þeirra færu frá Líbanon í vikunni en í síðasta lagi
rétt eftir helgina.
Reuters
Fjórfættir á flótta
ÞIÐ eruð núna framtíðin, gerið hana
eins góða og þið getið,“ sagði Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands og
leiðtogi Verkamannaflokksins, í
klukkustundarlangri ræðu sinni á
flokksþingi í Manchester en Blair
hyggst láta af forystu á næsta ári.
Hann kom víða við í síðustu ræðu
sinni sem leiðtogi, viðurkenndi að
erfitt væri að „sleppa takinu“ en það
væri samt rétt ákvörðun og nú yrðu
flokksmenn að sameinast. Ráðherr-
anum, sem er 53 ára, var ákaft fagn-
að, einkum í lokin.
Blair tók við 1994 og leiddi flokk-
inn til sigurs í þrennum þingkosn-
ingum. En hann hefur verið hart
gagnrýndur síðustu árin. Fyrir
nokkrum vikum var jafnvel talið lík-
legt að efnt yrði til mótframboðs
þegar á þessu ári enda þótt Blair
væri búinn að segja að hann myndi
hætta á næsta ári. Er einkum kennt
um óvinsældum Íraksstríðsins en
einnig er Blair sakaður um að hafa
nýtt sér með ófyrirleitnum hætti
fjölmiðla. Vinstrisinnar í flokknum
geta auk þess ekki fyrirgefið honum
að hafa fært flokkinn til hægri.
Blair notaði tækifærið til að verja
stefnu sína undanfarinn áratug og
taldi upp margt sem hefði áunnist,
efnahagurinn væri mun öflugri og
stórátak hefði verið gert í félagsmál-
um. Hann sagði að nú yrðu Bretar að
takast á við vandamál alls heimsins,
ekki bara eigin mál.
Eiginkona Blairs, Cherie, heyrðist
segja: „Það er lygi“ er hún hlýddi á
ræðu Gordons Browns, fjármálaráð-
herra og líklegs arftaka Blairs, í
fyrradag. Forsætisráðherrann gerði
grín að málinu í ræðu sinni. „Ég þarf
a.m.k. ekki að vera hræddur um að
hún hlaupist á brott með gaurnum í
næsta húsi,“ sagði Blair en bústaðir
ráðherranna eru hlið við hlið.
„Erfitt að
sleppa takinu“
Reuters
Kátur Tony Blair lék á als oddi þeg-
ar hann ávarpaði flokksmenn.
Síðustu leiðtogaræðu Blairs vel tekið
á flokksþingi Verkamannaflokksins
Genf. APF. | Sviss er nú í efsta sæti á
lista World Economic Forum, WEF,
yfir samkeppnishæfi ríkja. Skipuðu
Finnar það á síðasta ári en þeir eru
nú í öðru sæti. Bandaríkin, sem voru
í öðru sæti fyrir ári, eru nú í því
sjötta og Ísland, sem var í sjöunda
sæti í fyrra, fellur niður um jafn-
mörg sæti og lendir nú í því 14.
Listinn að þessu sinni yfir efstu
ríkin er þannig, að Sviss efst, þá
Finnland, Svíþjóð, Danmörk og
Singapúr. Bandaríkin eru í því sjötta
og síðan koma Japan, Þýskaland,
Holland, Bretland, Hong Kong og
Noregur í því 12. Í því 13. er Taívan
og Ísland í því 14.
Könnun WEF er byggð á viðtölum
við 11.000 frammámenn í viðskipta-
lífinu í 125 löndum og í þeim er meðal
annars fjallað um þjóðhagfræði, nýj-
ungar, tæknivæðingu og gæði og
skilvirkni opinberra þjónustustofn-
ana er sérstaklega metin.
Það, sem mestu veldur um, að
Bandaríkin skuli falla niður um
nokkur sæti, er áhyggjur af fjármál-
um ríkisins. Eins og fyrr eru Norð-
urlöndin meðal efstu ríkja.
Ísland úr 7.
í 14. sæti á
lista WEF
JAPANSKA þingið kaus í gær Shinzo
Abe, forsætisráðherra landsins, í stað
Junichiro Koizumi sem nú lætur af
störfum. Abe, sem er 52 ára gamall,
verður yngsti forsætisráðherra Jap-
ans frá því í seinni heimsstyrjöld.
Abe skipaði í gær konu í embætti
ráðherra efnahagsmála og ákvað að
lækka laun sín og ráðherra í ríkis-
stjórninni um 30% til að ganga á und-
an með góðu fordæmi um fjárhags-
legt aðhald. Abe sagði í ræðu sinni að
það væri grundvallaratriði fyrir Jap-
ana að halda góðum tengslum við
Bandaríkjamenn.
Abe tekur
við í Japan
♦♦♦