Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Seltjarnarnes | Íbúar á Seltjarnar- nesi velta örugglega mjög fyrir sér þessa dagana hugsanlegri landfyll- ingu út af Bakkagranda. Viðmæl- endur Morgunblaðsins, sem búa í næsta nágrenni við umrædda land- fyllingu, eru á einu máli um að Sel- tjarnarnesið sé gott eins og það er og nógu stórt. Hlúa að því sem fyrir er Katrín Pálsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, býr á Nesbala 114. Hún segir að persónu- lega lítist sér ekki á stækkunina og þrjár ástæður mæli gegn henni. „Í fyrsta lagi er ekki gert ráð fyrir neinni nýrri aðkomuleið inn í bæinn með þessari nýju teikningu. Eins og er er mikill þungi á þessum tveimur aðkomuleiðum sem eru inn í bæinn og ég sé ekki að við þolum meiri byggð bara þess vegna. Í öðru lagi held ég að þetta skaði fuglalífið á Bakkatjörn mjög mikið því fuglarnir leita í æti út í flóann. Í þriðja lagi bý ég hérna meðal annars vegna þess að ég vil búa á svona litlum einöngruðum stað en samkvæmt hugmyndunum er verið að tala um að nær tvöfalda íbúafjöld- ann. Mín skoðun er sú að við eigum að sætta okkur við að Nesið er full- byggt og við eigum bara að fara að hlúa að því sem fyrir er, ljúka við að laga götur og gangstéttir og bæta skólana og svo framvegis. Ég hef velt þessum hugmyndum heilmikið fyrir mér og ekki séð neitt jákvætt við þær.“ Frekar á Lönguskerjum Steingrímur Ellingsen býr á Nes- bala 126. Hann segir að fyrir nokkr- um árum hafi íbúar Seltjarnarness barist fyrir friðun vestursvæðisins og hann hafi staðið í þeirri trú að þá hafi náðst sátt um að Nesið væri full- byggt. Þá hafi komið fram skýrsla um náttúrufar á Seltjarnarnesi þar sem ýmsir fræðimenn hafi gert ýt- arlega úttekt á Seltjarnarnesi. „Ég sé ekki að þessar hugmyndir um landfyllingu samræmist einu eða neinu í skýrslunni,“ segir hann. Steingrímur bætir við að mógrafir séu í Bakkavíkinni og hann geti ekki ímyndað sér að menn ætli að fylla upp í þær. Eins sjái hann ekki fyrir sér hvernig það fari saman að koma upp einhverjum síkjum eins og þekkist t.d. í Amsterdam og að við- halda strandlengjunni, sem sé á náttúruminjaskrá, fuglalífinu og al- mennri náttúruvernd. „Ef menn eru svona áfjáðir í að fylla þarna upp má benda á að Seltjarnarneskaupstaður hefur lýst því yfir að hann eigi Löngusker. Þar má þá huga að land- fyllingu með íbúðarbyggð í huga og halda flugvellinum í Vatnsmýrinni.“ Út úr korti Framlagðar hugmyndir ganga út á að reisa um 3.500 til 4.000 manna byggð á landfyllingu. „Þetta er alveg út úr korti,“ segir Örn Baldursson sem býr á Nesbala 118. „Þessu fylgir mikil sjónmengun og margra ára rask auk þess sem bæjarfélagið er nógu stórt.“ Walter Lentz býr í Steinavör 2 og er á sama máli. „Það er nóg af landi fyrir byggð annars staðar,“ segir hann. „Hérna er falleg náttúra og ég vil ekki eyðileggja hana með því að klína einhverri byggð ofan í hana auk þess sem svæðið er fullbyggt. Ég vil ekki að þetta verði eins og í stórborg.“ Seltjarnarnes- ið nógu stórt Morgunblaðið/Ásdís Náttúra Kylfingurinn Walter Lentz bendir á svæðið þar sem gert er ráð fyrir landfyllingunni. Árni Halldórsson sýnir Leifi Gíslasyni og Þórdísi Jónsdóttur hvernig hann vill hafa golfvöll á hugsanlegri landfyllingu. Íbúar í nágrenni við hugsanlega landfyllingu andvígir hugmyndinni HEIÐRÚN Sigurðardóttir, Íslands- meistari frá Akureyri, varð í 10. sæti á heimsmeistaramóti kvenna í hreysti (fitness) sem haldið var á Spáni um síðustu helgi. „Þetta er gífurlega sterkt mót og árangur Heiðrúnar því mjög góður,“ sagði Sigurður Gestsson, þjálfari Ís- landsmeistarans, í samtali við Morg- unblaðið. „Aðildarþjóðir á mótinu eru 174 og á þetta mót kemst aðeins besta fitnessfólkið frá hverju landi. Aðrir fá ekki aðgang.“ Keppt er í stærð- arflokkum á mótinu, Heiðrún keppti í flokki þeirra sem eru hærri en 1,64 metrar. Þátttakendur í þeim flokki voru 34 að þessu sinni. Anna Bella Markúsdóttir frá Selfossi keppti einnig á mótinu, í flokki þeirra sem eru 1,64 m á hæð eða minni, en hún komst ekki í hóp efstu 15. Sigurður segir samt að hún sé betri núna en í fyrra þegar hún varð í níunda sæti á mótinu. Sigurður tekur senn við þjálfun Önnu Bellu. Næsta verkefni Heiðrúnar er Norðurlandamót í Svíþjóð í næsta mánuði og svo bikarmót í Reykjavík í byrjun nóvember. Heiðrún í 10. sæti á heimsmeistaramótinu Heiðrún Sigurðardóttir AKUREYRI LENGING flugbrautarinnar á Ak- ureyrarflugvelli er forgangsmál við næstu endurskoðun samgönguáætl- unar, að mati aðalfundar Eyþings, sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu. „Lenging flugvallarins er for- senda fyrir áætlunar- og fraktflugi frá Akureyri til annarra landa. Reynslan hefur sýnt að lítið má útaf bera til að fella þurfi niður milli- landaflug til Akureyrar. Nauðsyn- legt er að bæta allan aðbúnað við flugvöllinn svo öryggi í innanlands og millilandaflugi sé tryggt. Það er ferðaþjónustu og atvinnulífi á Norð- urlandi ómetanlegt að hafa kost á beinu millilandaflugi til Akureyrar,“ segir í samþykkt aðalfundar Ey- þings. Á fundinum var einnig samþykkt ályktun um mikilvægi þess að þyrlu- björgunarsveit verði staðsett á Ak- ureyri, en fundurinn segir það gríð- arlega mikilvægt öryggisatriði. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir norð- an- og austanvert landið og hafsvæð- ið út af því enda um stórt svæði að ræða og getur nálægð við þyrlu- björgunarsveit skipt miklu máli á ög- urstundu,“ segir í ályktunni. Eyþing ítrekaði enn og aftur mik- ilvægi þess að miðstöð innanlands- flugs verði áfram staðsett í Reykja- vík. „Aðalfundurinn varar við þeim hugmyndum sem uppi hafa verið um að leggja niður flugsamgöngur við höfuðborgina. Aðalfundurinn bendir á að mikilvægt er að tryggja öllum íbúum Íslands greiðan aðgang að þeirri fjölbreyttu þjónustu og menn- ingu sem landsmenn hafa byggt upp um land allt. Nýleg skoðanakönnun sýnir að mikill meirihluti notenda innanlandsflugsins mun ekki nýta sér innanlandsflug, verði völlurinn lagður niður.“ Þá fagnar aðalfundurinn „þeirri góðu vinnu sem Greið leið ehf. hefur unnið við undirbúning Vaðlaheiðar- ganga. Fundurinn ítrekar nauðsyn þess að taka Vaðlaheiðargöng inn á samgönguáætlun og hvetur stjórn- völd til þess að ganga sem fyrst til samninga við Greiða leið ehf. svo vinna við göngin geti hafist árið 2007.“ Að lokum má nefna að Eyþing var- ar við hugmyndum um að hætta beinum lánveitingum Byggðasjóðs og telur að með því muni aðgangur fyrirtækja á landsbyggðinni að láns- fjármagni þrengjast verulega. Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum Lenging flugbrautar- innar er forgangsmál Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Nógu löng! Arngrímur Jóhannsson flýgur á listflugvél sinni fram úr Ford GT-sportbíl þegar hann var kynntur á Akureyrarflugvelli í sumar. Ómetanlegt að hafa kost á beinu millilandaflugi Í HNOTSKURN »Mikið öryggisatriði aðþyrlubjörgunarsveit verði staðsett á Akureyri. »Varað við hugmyndum umað leggja Reykjavíkur- flugvöll niður. »Ómetanlegt að hafa kost ábeinu millilandaflugi. ÁRNI Halldórsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Ness, segir að verði hug- mynd um landfyllingu að veruleika sé gert ráð fyrir nær tvöföldun íbúa á Seltjarnarnesi. Það þýði að auka verði aðstöðu til tómstunda í sama hlut- falli og þá verði meðal annars gerð krafa um níu holu golfvöll á uppfylling- unni. Arkitektastofan arkitektur.is hefur kynnt nýstárlegar hugmyndir um stækkun Seltjarnarness þar sem yrði 3.500 til 4.000 manna byggð á 40 ha landfyllingu út af Bakkagranda. Þar er m.a. gert ráð fyrir 15 ha íþrótta- svæði, íþróttamannvirkjum, framhaldsskóla, grunnskóla, leikskóla, stór- verslun, verslunum, menningar- og stjórnsýsluhúsi og bátahöfn. Tæplega 600 manns eru í Nesklúbbnum og segir Árni Halldórsson að að- staðan sé löngu sprungin. „Landfylling á svæðinu er í góðu lagi svo fram- arlega sem gert er ráð fyrir golfvelli í skipulaginu,“ segir Árni. Hann vill tvöfalda núverandi golfvöll og fá þannig 18 holu völl á svæðið til að íbú- arnir geti í auknum mæli stundað þessa vinsælu íþrótt í heimabyggð. „Við erum bara með níu holu völl og það myndi passa að hafa annan níu holu völl hringinn í kring yst á hugsanlegri landfyllingu. Þá væri kominn 18 holu golfvöllur sem sárvantar á Nesinu.“ Vill golfvöll á landfyllingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.