Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 48
Morgunblaðið/Kristinn
„Í MÍNUM villtustu draumum
hefði ég aldrei getað ímyndað
mér að hér myndi mæta fjöldi á
við kvennafrídaginn, en það gerð-
ist,“ sagði Ómar Ragnarsson við
Morgunblaðið eftir að fjölmenn-
um mótmælafundi gegn Kára-
hnjúkavirkjun lauk á Austurvelli
í gærkvöldi.
Talið er að á milli tíu og tólf
þúsund manns hafi lagt mál-
staðnum lið með göngu niður
Laugaveg og í kjölfarið safnast
saman á Austurvelli. Mótmæl-
endur báru kyndla og hvít bönd
til merkis um frið og sátt við
samviskuna og kynslóðir fram-
tíðar og að sögn Ómars mátti
merkja mikinn samhug í fólki.
„Ég líkti þessu við fimmtán lotna
bardaga þar sem við lægjum í
gólfinu í sjöundu lotu. Við ættum
eftir að fá talið upp í tíu, standa
upp og klára bardagann. Það eru
átta lotur eftir, það eru átta mán-
uðir til kosninga þannig að bar-
daginn er aðeins hálfnaður,“
sagði Ómar sem telur að á þeim
tíma megi enn hleypa úr Hálslóni
án þess að varanlegar skemmdir
hljótist af.
Göngur voru einnig haldnar á
Akureyri, Ísafirði og Egilsstöð-
um og samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu var alls staðar margt
um manninn.
Samstaða Vigdís Finnbogadóttir fagnar Ómari vel að lokinni athöfn.
„Bardaginn
er aðeins
hálfnaður“
Tíu til tólf þúsund manns gengu gegn
Kárahnjúkavirkjun í gærkvöldi
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Í HNOTSKURN
»Á morgun er áætlað aðhefja fyllingu Hálslóns.
Það mun að öllum líkindum
fyllast til hálfs í vetur en að
fullu næsta sumar.
»Bréf með ákalli til þingsog ríkisstjórnar um þjóð-
arsátt var afhent embættis-
manni Alþingis í gærkvöldi.
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 270. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Norðaustan 5–
13 m/s, dálítil súld
eða rigning norð-
an- og austan-
lands, annars þurrt að kalla.
Hlýjast á SV-landi. » 8
Heitast Kaldast
13°C 4°C
MAGNÚS Stefánsson
félagsmálaráðherra
lagði ásamt dómsmála-
herra fram tillögu á rík-
isstjórnarfundi í gær
þess efnis að hafin yrði
vinna við gerð aðgerða-
áætlunar vegna ofbeld-
is á heimilum og kyn-
ferðislegs ofbeldis gegn
konum og börnum. Að
sögn Magnúsar tekur áætlunin til næstu
fimm ára og er ráðgert að hún kosti í heild
140 milljónir króna. Segir hann stefnt að
því að auka fyrirbyggjandi aðgerðir sem
stuðla að opinni umræðu um ofbeldi gegn
börnum og kynbundnu ofbeldi og viðhorfs-
breytingum í þjóðfélaginu.
Magnús segir ráðgert að styrkja starfs-
fólk stofnana í því að sjá einkenni ofbeldis
hjá þolendum og tryggja að þeir fái viðeig-
andi aðstoð. Einnig sé mikilvægt að rjúfa
vítahring ofbeldis með því að styrkja með-
ferðarúrræði fyrir gerendur. | 4
Vinna gegn
ofbeldi
Aðgerðaáætlun gegn
heimilisofbeldi
Magnús Stefánsson
INGIMAR Sigurðsson, formaður skipu-
lagsnefndar Seltjarnarness, skýrði frá því
á fundi Sjálfstæðisfélags Seltjarnarness í
gærkvöldi að nefndin hefði fyrr um daginn
samþykkt að hafna hugmyndum arkitekta-
stofunnar arkitektur.is og fasteignafélags-
ins Klasa um byggingu 3.500–4.000 manna
byggðar á landfyllingum út af Bakka-
granda við sunnanvert Seltjarnarnes.
Hugmyndin vakti hörð viðbrögð íbúa
Seltjarnarness sem höfðu m.a. miklar
áhyggjur af fuglalífinu á Bakkatjörn en
fuglarnir leita í æti út í flóann. Íbúar benda
á að Nesið sé fullbyggt og að ekki sé með
góðu móti hægt að koma fleiri íbúðum þar
fyrir án þess að það skapi mikinn umferð-
arþunga sem aðkomuleiðirnar tvær í bæ-
inn muni á engan hátt bera. | 18
Hafna hug-
mynd um
landfyllingu
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Sturlu Böðvars-
sonar samgönguráðherra að þegar yrði hafinn undirbúningur að útboði á rík-
isstyrktu áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Landsflug til-
kynnti í síðustu viku að félagið myndi hætta áætlunarflugi á leiðinni og var
síðasta ferðin farin á sunnudag. Vegagerðinni hefur þegar verið falið að hefja
undirbúning að útboðinu, en gera má ráð fyrir að útboðsferlið taki sex til sjö
mánuði og verður við útboðið tekið mið af reglum sem gilda á Evrópska efna-
hagssvæðinu.
Ríkisstjórnin samþykkti jafnframt tillögu Sturlu um að hafnar yrðu við-
ræður við flugrekstraraðila um að taka að sér áætlunarflug milli lands og Eyja
gegn fjárhagslegum stuðningi þar til samið yrði um flugið til lengri tíma í kjöl-
far útboðsins. Segir Sturla mikilvægt að samgöngur komist á aftur. | 12
Morgunblaðið/Jim Smart
Flug til Eyja ríkisstyrkt ÍSLENSK erfðagreining (ÍE) hefur
höfðað mál í Bandaríkjunum gegn
fimm fyrrverandi starfsmönnum fyr-
irtækisins og Barnaspítala Fíladelfíu-
borgar fyrir stuld og misnotkun á eig-
um félagsins og margvísleg brot á
ráðningarsamningum. Þeim er m.a.
gefið að sök að hafa á ólögmætan hátt
afritað og sent frá fyrirtækinu upp-
lýsingar um viðskiptaleyndarmál, við-
skiptasamninga, hugbúnað og gögn í
eigu ÍE. Starfsmennirnir fimm, sem
allir létu af störfum hjá ÍE í sumar,
eru Hákon Hákonarson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar,
ÍE, Struan Grant, fyrrverandi verk-
efnisstjóri í erfðarannsóknum, Robert
Skraban, fyrrverandi starfsmaður í
viðskiptaþróunardeild, Jonathan
Bradfield, sem vann við erfðarann-
sóknir, og Jesus Sainz sem starfaði við
lífupplýsingadeild fyrirtækisins. ÍE
fer fram á tafarlaust lögbann á störf
fimmmenninganna við nýstofnaða
miðstöð fyrir hagnýtar erfðamengja-
rannsóknir við Barnaspítala Fíladelfíu
enda sé henni ætlað að vera í beinni
viðskiptalegri samkeppni við ÍE.
Í tilkynningu ÍE kemur fram að við
rannsókn málsins hafi komið í ljós að í
lok síðasta árs hafi Hákon Hákonar-
son gengið frá samningi við barnaspít-
alann vestra um að veita umræddri
miðstöð forstöðu. Þá liggi einnig fyrir
að a.m.k. þrír hinna hafi þegar hafið
störf á sama vettvangi og rökstuddur
grunur sé um að stjórnendur spítalans
hafi haft fulla vitneskju um hina
meintu ólögmætu gagnasöfnun.
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður
Jesus Sainz, segir Sainz ekki starfa
fyrir umræddan spítala og búið sé að
sanna að hann hafi ekki afritað gögn
ÍE. Þetta viti stjórnendur ÍE en engu
að síður sé hann ákærður til jafns við
hina starfsmennina fjóra.
ÍE höfðar mál gegn fimm
fyrrum starfsmönnum
Taldir hafa afritað gögn og miðlað upplýsingum um
viðskiptaleyndarmál til keppinautar ÍE í Bandaríkjunum
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Starfa | 4
♦♦♦