Morgunblaðið - 27.09.2006, Síða 8

Morgunblaðið - 27.09.2006, Síða 8
Auglýst eftir framboðum til prófkjörs í Reykjavík Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins fyrir alþingiskosningarnar næsta vor fari fram 27. og 28. október næstkomandi. Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti. a) Gerð er tillaga til yfirkjörstjórnar innan ákveðins framboðs- frests sem yfirkjörstjórn setur. Tillagan er því aðeins gild að hún sé bundin við einn flokksmann. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri tillögum en hann má fæst kjósa í prófkjörinu. Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum í kjördæminu. b) Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum skv. a-lið. Hér með er auglýst eftir tillögum að framboðum til prófkjörs, sbr. a-lið hér að ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu alþingiskosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðis- menn, búsettir í Reykjavík, skulu standa að hverju framboði og enginn flokks- maður getur staðið að fleiri framboðum en 10. Tillögum að framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu æviágripi, helst á tölvutæku formi, til yfirkjörstjórnar á skrifstofu Varðar – Fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík í Valhöll, Háaleitisbraut 1, eigi síðar en kl. 17.00, 6. október 2006. Eyðublöð fyrir framboð og æviágrip er hægt að fá á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins eða á heimasíðu flokksins www.xd.is 8 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Það væri kannski billegast fyrir ríkið að flytja þessa fáu kofa sem enn er búið í bara upp á draumstað mr. Sandmanns. VEÐUR                   !   "# $! %!!  !  &' ( ) * ! '' '- '. '' '/ '' /. /- '' '/ ./ 0 1! ) % 0 1! 0 1! 1! 1! 1! 1! )*1! )*1! 1!  )# + !  ,- .  ' / ! ! 0     +-  ! !   /' // /2 /- /3 /( /2 /3 '' /3 /- 1!   *%   )*1! 0 1!   *%   1! 0 1! 1! "1 2  !     1  3    2- 2  4! 1! & 5# )67! 8 !!) /4 ( - 5 /4 6/ . ( /4 /2 /2 0 1! 1! 1! 7 0 1! 0 1! 1! ) % 1! 1! 0 1! 9! : ;                               ! "#   #   : #  !* )        !  <2   < #  <2   < #  <2   !   89    ;= -         /   : )    *   ; 7  %      . (  <6    (6/.8 %    ; 7      < /4  <   /46/-8      7; 7  %    6   - //  => *1  *?    "3(4> ><4?"@A" B./A<4?"@A" ,4C0B*.A" '.4 <.2 4;5 4;< (.( /4.5 /42 --. /<-- /54( 2-5 /'/- '4-' ''-4 /.'' /(4/ 5'< 5.4 5/. 2-< /3// /3/- /(-( /(</ /3'' .;5 ';4 /;' ';4 4;3 4;2 4;< 4;2 .;< /;( /;. /;( 4;<            Kárahnjúkavirkjun er umdeildframkvæmd og umræðan hefur teygt sig út fyrir landsteinana. Það verður þó að teljast óvænt að æðri máttarvöld kjósi að blanda sér í deil- una.     Hildur EirBolladóttir, sóknarprestur í Laugarneskirkju, gagnrýndi Kára- hnjúkavirkjun harðlega í pre- dikun dagsins á Ríkisútvarpinu. Hún rifjaði upp sögu Auðunarstofu á Hólum í Hjaltadal sem reist var á 14. öld, en rifin í harðindum og notuð í eldivið.     Síðan velti hún fyrir sér tilfinn-ingum fólks þegar það liti Kára- hnjúkavirkjun eftir ótilgreindan tíma. Auðunarstofa hafi þó ekki ver- ið nema eitt hús, Kárahnjúkar séu h.v. heilt landsvæði, heilög sköpun guðs. Erfitt væri að sætta sig við að nokkrir menn gætu ákveðið að eyði- leggja stórt og fullkomið sköpunar- verk sem fáir hefðu séð. Og ekki væru álíka harðindi í dag sem rækju fólk til framkvæmdanna heldur kvíði og þrælslund í þjónustu við Mamm- on.     Þetta er ansi einhliða afstaða ogframsetning. Er það skoðun kirkjunnar að þeir sem aðhyllast virkjun séu haldnir „kvíða og þræls- lund“?     Ef gengið er út frá því að Kára-hnjúkar séu sköpun Guðs má þá ekki ætla það sama um önnur land- svæði, til dæmis Skólavörðuholtið? Mikil andstaða var við byggingu Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti á sínum tíma. Er jörðin í heild ekki sköpunarverk Guðs og betra að byggt sé á vatnsorku en kjarnorku?     Sóknarpresturinn segir að kirkjangeti hvorki litið undan þegar fólk tapi fyrir sjálfu sér né þegar það bregðist Guði eða hvað öðru. Eru virkjanasinnar að bregðast Guði? Er þetta ekki bara skoðun eins sókn- arprests og engin ástæða til að blanda Guði í málið? STAKSTEINAR Hildur Eir Bolladóttir Kvíði og þrælslund? SIGMUND SAMKVÆMT upplýsingum frá Flugmálastjórn voru 44.600 snerti- lendingar á Reykjavíkurflugvelli árið 2005. Um er að ræða 60% aukningu frá árinu 2004 og 107% aukningu frá árinu 2000 en það ár var kosið um framtíð flugvallarins í Vatnsmýri. Sumarið 1999 kynnti Sturla Böðv- arsson, samgönguráðherra, að áformað væri að lögð yrði ný flug- braut í nágrenni höfuðborgarinnar til að taka við æfingaflugi en hann gat engu lofað um hvenær eða hvar henni yrði valinn staður. Með þessu vildi hann koma til móts við vilja íbúa í ná- grenni flugvallarins sem hefðu kvart- að undan ónæði af flugvellinum. Franz Ploder, þáverandi formanni ís- lenskra atvinnuflugmanna, leist afar illa á þessa fyrirætlan og sagði m.a. að öryggi flugnema væri stefnt í hættu með því að láta þá æfa sig á „lendingarbraut uppi í sveit“, fjarri slökkviliði og sjúkrahúsum. Árið 2003 lagðist Flugráð gegn því að nýr völlur yrði byggður fyrir snertilendingar en þess í stað yrði leitað leiða til þess að koma æfing- unum fyrir annars vegar á Keflavík- urflugvelli og hins vegar að hluta af þeim fjármunum sem fyrirhugað var að verja í æfingaflugvöll yrði varið til að endurbæta Sandskeiðsflugvöll og er raunar gert ráð fyrir að þeirri upp- byggingu ljúki næsta vor. Árið 2005 voru snertilendingar á Reykjavíkurflugvelli 45.612, þær voru um 28.600 árið 2004, 38.800 árið 2001 en 22.000 árið 2000. Á Keflavík- urflugvelli voru tæplega 34.000 snertilendingar árið 2005, álíka margar og á árunum 2001–2004. Árið 2000 voru snertilendingar þar um 22.600, að því er segir í Flugmálum. Mikil aukning snertilendinga Snertilendingar á Reykjavíkurflugvelli tvöfalt fleiri í fyrra en árið 2000 BRYNDÍS Ísfold Hlöðversdóttir, 29 ára verslunar- kona, sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinn- ar í Reykjavík vegna alþingis- kosninganna í vor. Bryndís Ísfold situr nú í fram- kvæmdastjórn flokksins og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum hans. Meðal annars var hún formaður jafnréttisnefndar Reykja- víkurborgar á síðasta kjörtímabili og situr nú í mannréttindanefnd. Þá var hún formaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík 2003. Einnig sat Bryndís Ísfold í fyrsta ráðskonuráði Femínistafélags Ís- lands. Bryndís Ísfold rak eigin verslun á Laugaveginum og stundar nú nám í viðskipta- og stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Í fréttatilkynningu segir Bryndís Ísfold að hún leggi áherslu á nýjar leiðir í atvinnusköpun, jafnrétti og fjölskylduvænna samfélag. Hún er gift Torfa Frans Ólafssyni, framleiðslustjóra hjá CCP hf. Þau eiga einn son. Stefnir á 6. sæti í Reykjavík Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.