Morgunblaðið - 27.09.2006, Síða 17
gistingar og Póstinn. Í staðinn
eignast Janusarverkefnið birting-
arréttinn á 20 ljósmyndum frá
hverjum þáttakanda, og af þeim
fær hver kostenda allt að 3 myndir
frá hverjum keppenda til eigin
nota.
„Koma ljósmyndaranna hingað
núna er eins konar tilraun, og upp-
hafspunktur verkefnisins, og von-
um við að Stolt Janusar muni í
framhaldinu vinda upp á sig. Sýn-
ishorn af afrakstri verkefnisins
verður hægt að nálgast á heima-
síðu og hægt en örugglega mun
hróður verkefnisins breiðast út og
ljósmyndarar geta sótt um að taka
þátt.“
Blaðamaður sest stuttlega niður
með ljósmyndurunum og virðast
allir hafa sögu að segja eftir viku-
flakk um Ísland. Nýsjálend-
ingurinn Carlo Van Roer líkti Ís-
landsdvölinni við að koma aftur á
æskuslóðir á meðan hin kanadíska
Constance Williams talar um
undarlegan einmanaleika sem sótti
að henni þar sem hún stóð and-
spænis jökulflæmi eða gnæfandi
fjalli.
Hin rússneska Yulia Tsibina lýs-
ir því hvernig hún hafi þurft að
þreifa á jurtum og lækjarsprænum
til að fullvissa sig um að hún væri
ekki stödd í sviðsmynd kvik-
myndar þar sem hún var innan um
fjöll og vötn, Norðmaðurinn Sven
Bringsdal segir frá því hvernig
hann upplifði sterk tengsl við sam-
eiginlegar víkingarætur Íslendinga
og Norðmanna og hinni amerísku
Jill Freedman þykir mest um vert
hversu gott fólk varð á vegi henn-
ar á Íslandi.
Öll eru þau sammála um að ferð-
in hafi verið vel þess virði, og flest
þeirra segjast ólm að koma hingað
aftur.
Ljósmyndun | Hópur erlendra ljósmyndara myndaði Ísland fyrir Stolt Janusar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 17
MENNING
OLE Togeby, prófessor í
dönsku máli við Árósarháskóla,
heldur fyrirlestur við Háskóla
Íslands á fimmtudaginn klukk-
an 16.30 í stofu 111 Aðalbygg-
ingar. Togeby mun fjalla um
kennslu ritmáls í dönskum
menntaskólum og tök danskra
menntaskólanema á ritmáli.
Sjónarmið hans hafa oft vakið
athygli í dönskum fjölmiðlum
þar sem hann hefur verið mjög gagnrýninn á
þessa hlið móðurmálskennslunnar sem og stúd-
entsprófið. Fyrirlesturinn verður fluttur á dönsku
og nefnist „Skriftlig sprogfærdighed hos danske
gymnasieelever“.
Fyrirlestur
Ritmálskennsla í
dönskum skólum
Ole Togeby
Í TILEFNI viku sí-
menntunar eru bóka-
safnsskírteini ókeypis í
öllum söfnum Borg-
arbókasafns. Tilboðið
gildir til 30. september.
Í Borgarbókarsafni
eru um 490.000 bækur
og tímarit auk geisla-
diska, myndbanda og margmiðlunarefnis. Útláns-
staðir safnsins eru sjö. Auk þess rekur safnið
bókabíl með viðkomustaði víðs vegar um borgina.
Þá eru Bókasafnið í Mosfellsbæ og Bókasafn Sel-
tjarnarness samstarfssöfn Borgarbókasafns.
Safnkosturinn er allur skráður í tölvukerfi safns-
ins, Gegni.
Bókasöfn
Ókeypis
bókasafnsskírteini
PÓLSKA tónskáldið Krzysztof
Penderecki er staddur á Ís-
landi um þessar mundir og
mun m.a. stjórna flutningi Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands á
tveimur af hans eigin verkum í
Háskólabíói á morgun, fimmtu-
dag.
Í dag klukkan 15 mun
Penderecki, sem var gestur
Listahátíðar í Reykjavík árið
1988, hins vegar halda stutta
kynningu á eigin tónlist á vegum tónlistardeildar
Listaháskóla Íslands að Sölvhólsgötu 13.
Fyrirlesturinn er öllum opinn meðan húsrúm
leyfir.
Fyrirlestur
Penderecki kynnir
eigin tónlist
Krzysztof
Penderecki
LJÓSMYNDARARNIR sem tóku þátt í verkefninu eru misfrægir, en hafa
allir atvinnu sína af ljósmyndun. Hópurinn var á einu máli um að þátttaka
þeirra í verkefninu Stolt Janusar hefði verið ákaflega gefandi persónulega
og áhugaverð reynsla frá listrænu sjónarmiði.
Atvinnuljósmyndarar
Á DÖGUNUM var frumsýnd ný
teiknimynd eftir sögunni um Pétur
og úlfinn í Royal Albert Hall í Lond-
on. Um er að ræða hálftíma langa
mynd, gerð af bresku kvikmynda-
gerðarkonunni Suzie Tepletin, sem
vann Bafta-verðlaunin árið 2002
fyrir stuttmynd sína Hundur (Dog).
Einhverju hefur verið bætt við
upphaflegu söguna um hinn hug-
rakka Pétur sem fangar úlfinn óg-
urlega.
Pétur og úlfurinn er eftir rúss-
neska tónskáldið Sergei Prokofiev.
Verkið var samið árið 1936 og hef-
ur allt fram til dagsins í dag verið
eitt þekktasta klassíska verkið sem
samið er fyrir börn.
Pétur og
úlfurinn á
hvíta tjaldið
Bafta-verðlaunahafi
að baki myndinni
RÁÐAMENN í Kasakstan eru ugg-
andi yfir þeirri mynd sem dregin er
upp af landinu í nýjustu kvikmynd
breska grínistans Sacha Baron Co-
hen. Í myndinni, sem heitir Borat:
Cultural Learnings of America for
Make Benefit Glorious Nation of
Kazakhstan, bregður Cohen sér í
hlutverk Borats Sagdiyevs, inn-
fædds sjónvarpsmanns sem fer til
Bandaríkjanna til að kynna sér siði
og venjur heimsveldisins. Myndin
er í heimildamyndastíl og gerir Co-
hen óspart grín að viðmælendum
sínum um leið og hann bregður upp
skældri mynd af Kasakstan þar sem
einfeldingurinn Borat er karl-
remba af verstu gerð. Borat birtist
fyrst í sjónvapsþætti Ali G, en Ali G
er einnig tilbúningur Cohens.
Borat veldur
usla „heima“
Í ÁLYKTUN fundar
Félags íslenskra org-
elleikara, FÍO, innan
Organistadeildar FÍH,
sem haldinn var í safn-
aðarheimili Háteigs-
kirkju í gær, er lýst yf-
ir fullum stuðningi við
Hilmar Örn Agn-
arsson, dómorganista í
Skálholti, og störf hans
í þágu Skálholtsstaðar
og Þjóðkirkjunnar.
Stjórn Skálholts hefur
sagt Hilmar Erni upp
störfum sem kunnugt
er.
Í ályktuninni segir:
„Fundurinn mótmælir harðlega
þeirri ákvörðun stjórnar Skálholts
að segja Hilmari Erni Agnarssyni
dómorganista upp störfum og þeim
vinnubrögðum sem við-
höfð voru við uppsögn-
ina. Þá skorar fund-
urinn á biskup Íslands,
hr. Karl Sigurbjörns-
son, að beita sér fyrir
því að deilan vegna
uppsagnar Hilmars
Arnar Agnarssonar,
dómorganista í Skál-
holti, verði leyst á far-
sælan hátt.
Fundurinn fer fram
á að Þjóðkirkjan fylgi
eigin starfsmanna-
stefnu.
Enn fremur beinir
hann þeim tilmælum til
félagsmanna sinna, að þeir gangi
ekki í störf Hilmars Arnar Agnars-
sonar á meðan deilan um uppsögn
hans er óútkljáð.“
Guðmundur Sigurðsson, organisti
og félagi í FÍO, segir að fundur verði
með stjórn organistafélagsins, söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar og bisk-
upi Íslands á morgun. „Við beinum
því til biskups að hann komi með
lausn á þessu máli sem verði farsæl
fyrir Hilmar,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segir að í annarri
grein starfsmannastefnu Þjóðkirkj-
unnar segi að í Þjóðkirkjunni skuli
viðhafðir góðir og gildir stjórn-
unarhættir. Þar ríki jákvætt viðhorf
til starfsmanna og gagnkvæmt
traust milli stjórnenda og starfs-
fólks. Stjórnendur sýni starfsfólki
traust, tillitssemi og hreinskilni.
„Það hefur að okkar mati einfaldlega
ekki verið farið eftir starfsmanna-
stefnunni í þessu máli þar sem allar
ákvarðanirnar eru teknar einhliða af
stjórn Skálholts.“
Tónlist | Organistafélagið styður dómorganista í Skálholti
Fundað með biskupi
um lausn deilumálsins
Hilmar Örn Agnarsson
STJÓRN Myndstefs, Myndhöfund-
arsjóðs Íslands, ásamt Lands-
banka Íslands mun í nóvember
veita heiðursverðlaun fyrir af-
burða framlag til myndlistar eða
framúrskarandi myndverk eða
sýningar. Koma allir myndhöf-
undar til greina við úthlutun
verðlaunanna en miða skal við að
verkin hafi verið birt eða gefin út
um það leyti sem verðlaunin eru
veitt eða á árunum þar á undan.
Allir félagsmenn
Myndstefs mega tilnefna
Heiðursverðlaunin nema
1.000.000 kr. og mun afhending
þeirra fara fram við hátíðlega at-
höfn í Listasafni Íslands.
Sérstök úthlutunarnefnd mun
velja listamenn út hópi tilnefn-
inga og síðan ákveða hver þeirra
hljóti verðlaunin. Stjórn Mynd-
stefs leitar eftir tilnefningum frá
stjórnum aðildarfélaga samtak-
anna, en ennfremur hafa allir fé-
lagsmenn Myndstefs rétt til þess
að tilnefna listamenn til þessara
verðlauna.
Á heimasíðu Myndstefs er sér-
stakt eyðublað og geta þeir sem
vilja komið tilnefningum sínum á
framfæri á því eyðublaði í tölvu-
pósti eða með öðrum hætti til
stjórnar Myndstefs. Óskað er eftir
því að rökstuðningur fylgi til-
nefningum.
Frestur til tilnefninga rennur
út 15. október næstkomandi.
Myndstef óskar
eftir tilnefningum
Verðlaun að andvirði einnar
milljónar króna afhent í nóvember
www.myndstef.is
»11 ljósmyndarar frá jafn-mörgum löndum ferðuðust
um Ísland og ljósmynduðu það
sem fyrir augu þeirra bar.
»Um er að ræða upphafið aðverkefninu Stolt Janusar
sem vonir standa til að ferðist
land úr landi.
»Dómnefnd velur bestumyndir hvers ljósmyndara
og haldin verður sýning á bestu
verkunum.
»Vonir standa til að gefa útbók á 5 ára fresti þar sem
bestu ljósmyndunum frá 5 lönd-
um verður safnað á einn stað.
Í HNOTSKURNEftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
ÞAÐ ER ekki annað á þeim að
heyra en vistin hafi verið góð á Ís-
landi. „Þessu verður best líkt sem
andlegri för,“ segir Maxmo Sal-
vaggio frá Ítalíu þegar hann er
beðinn að lýsa uplifun sinni af Ís-
landi, en hann er einn af 11 ljós-
myndurum sem dvalið hafa hér á
landi í tæpa viku og ljósmyndað
fyrir verkefnið Stolt Janusar.
Um er að ræða listaverkefni
sem Rafn Rafnsson, framkvæmda-
stjóri framleiðslufyrirtækisins
Base Camp, er einn af upphafs-
mönnunum að, en Base Camp sér
um skipulagningu viðburðarins.
„Hugmyndin er sú að fá hóp
ljósmyndara til að mynda sama
landið á sama tíma, hver á sinn
ólíka hátt,“ útskýrir Rafn. „Ætl-
unin er að Ísland verði aðeins
fyrsta landið af mörgum sem Stolt
Janusar tekur fyrir, og að á næsta
ári muni annar hópur ljósmyndara
heimsækja annað land, og þannig
koll af kolli ár hvert.“
Rafn segir dómnefnd fimm
manna velja úr þeim myndum sem
ljósmyndararnir taka á ferðum
sínum, og er í kjölfarið haldin sýn-
ing á bestu myndunum: „Síðan
hyggjumst við gefa út bók á 5 ára
fresti þar sem safnað væri á einn
stað bestu myndunum sem teknar
hafa verið í 5 löndum.“
Stolt Janusar útvegar ljósmynd-
urunum farkost og gistingu, m.a.
með liðsinni styrktaraðila á borð
við Bílaleigu Akureyrar, Bænda-
Ólík sýn á sama land á sama tíma
Morgunblaðið/Eyþór