Morgunblaðið - 27.09.2006, Síða 20
Morgunblaðið/Kristinn
Kortasafn Heiðrún og Hermann Kári við brot af öllum þeim fjölmörgu póstkortum
sem þeim hafa borist í póstkortaskiptum. Kortið með hænu í skóm er í uppáhaldi.
Átímum tölvupósta og gsm-síma er orðið sjald-gæft að fá sendingu í póstinum á gamla mát-ann. Og það er svo spennandi að vita aldreihvenær eða hvaðan næsta kort kemur. Það
getur verið frá Malasíu, Japan eða Rússlandi eða hvaða
öðru landi sem er í heiminum. Hér á bæ liggur því á
hverjum degi þessi tilhlökkun í loftinu um hvort okkur
berist kort,“ segir Heiðrún Hlín Guðlaugsdóttir, sem
ásamt sex ára syni sínum, Hermanni Kára, tekur þátt í
póstkortaskiptum, þar sem fólk um víða veröld sendir
hvert öðru póstkort með einhverjum texta, fróðleik og
skemmtilegheitum eða hverju því sem það langar að
segja frá. „Kortin sem Hermann Kári fær eru oftast með
myndum af einhverjum teiknimyndafígúrum en ég fæ
frekar myndir af einhverju sem einkennir það land sem
kortið kemur frá. En sumir búa kortin til sjálfir og Her-
mann Kári fékk til dæmis eitt frá gamalli konu í Banda-
ríkjunum sem tók mynd af fugli úti á verönd hjá sér og
bjó til kort úr því. Kort með Múmínálfunum eru mjög
vinsæl en Finnar eru duglegastir allra þjóða að senda
kort. Sumir innan kortaskiptanna fara að skrifast meira
á og verða góðir vinir.“
Spjallrás er á netinu í tengslum við þessi póst-
kortaskipti og þar lætur fólk vita þegar það hefur
fengið kort og tjáir sig um það.
„Við erum örfá sem tökum þátt í þessu hér á
landi og erum þar af leiðandi mjög eftirsótt í þess-
um skiptum. Póstkort frá Íslandi eru nánast gulls
ígildi innan þessa hóps og ég er ákaflega stolt af
því að geta sent þessi fallegu landslagskort sem
til eru hér,“ segir Heiðrún sem hefur sent yfir
hundrað póstkort frá því hún byrjaði í janúar á
þessu ári og henni hafa borist álíka mörg kort.
Hermann Kári hefur fengið um sextíu kort og
stöðugt bætist í safnið.
Ætli okkur
berist kort í dag?
|miðvikudagur|27. 9. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Það getur reynst erfitt að
hætta þegar maður hefur einu
sinni gengist undir fegrunar-
aðgerð. »22
fegurð
Það getur skipt öllu fyrir lífs-
gæði Alzheimersjúklings
hvernig aðstæður og umhönn-
un hann býr við. »22
heilsa
Heilsurækt á að efla okk-
ur líkamlega, andlega og
félagslega, segir Gígja
Gunnarsdóttir. »23
hreyfing
NÝ rannsókn hefur leitt í ljós að starf-
semi hátækniglæpamanna beinist nú
einkum að heimilistölvum, að því er fram
kemur í frétt á vef breska ríkisútvarps-
ins, BBC.
Tölvuöryggisfyrirtækið Symantec seg-
ir rannsókn sína hafa leitt í ljós að tölvu-
glæpamenn herji nú aðallega á heim-
ilistölvur til að „fiska eftir auðkennum“
eigendanna í sviksamlegum tilgangi.
Auðkennisveiðar á netinu („phising“ á
ensku) fara oft þannig fram að fólk fær
tölvupóst frá að því er virðist lögmætu
fyrirtæki, banka eða netverslun. Fólkið
er beðið um að staðfesta auðkenni á borð
við bankareikningsnúmer, notandanafn
og aðgangsorð eða lykilorð og markmið
glæpamannanna er að nota þessar upp-
lýsingar til að svíkja út fé.
Fjölgað um 80% á einu ári
Symantec segir að slíkum tölvupóstum
hafi fjölgað um rúm 80% á einu ári. Yfir
157.000 mismunandi tölvupóstar hafi
verið sendir í þessum tilgangi á fyrri
helmingi ársins.
Að sögn fyrirtækisins hafa skipulögð
glæpasamtök mikinn áhuga á auðkenn-
aveiðum á netinu og þau beita háþró-
uðum aðferðum til að ná sem mestum ár-
angri.
Þrjótarnir rótfiska á netinu
Morgunblaðið/ÞÖK
Netþjófar Fiskað er eftir kennileitum í heimilistölvum í æ ríkara mæli.
Davíð Hjálmar Haraldsson lifir fullkomnu lífi, næstum því:
Ég lifi við tölvur og tækni,
tengdur við heiminn með vef
og er heppinn með heimilislækni.
Hann ræður næstum við kvef.
Hjálmar Freysteinsson er ekki heimilislæknir nafna
síns, þó að báðir séu búsettir á Akureyri. Hjálmar segir
langt síðan hann hafi ort svona gáfulega vísu:
Af langri reynslu lært ég hef
þá læknisfræði,
að það sem læknar þrálátt kvef
er þolinmæði.
Jakob Sigurjónsson á Hóli kann ráð við kvefi:
Hafirðu bæði hósta og kvef,
haltu ráðin mín.
Í dýsætu kaffi, dökku ég hef,
dálítið brennivín.
Helgi Zimsen klykkir út með:
Ef að kvefið fer ei fet
fölur ert sem slytti;
baun af kaffi í bolla set
barmafullt af spritti.
pebl@mbl.is
Af kvefi
VÍSNAHORNIÐ
Í TENGSLUM við póstkortaskiptin hefur
tuskudýrið og fulginn Kíwí lagt af stað
frá Nýja Sjálandi og ferðast um allan
heim og staldrar við á hverjum stað í
tvær vikur. Von er á honum til Heiðrúnar
eftir nokkrar vikur og þá mun hún fara
með hann og sýna honum helstu staði,
t.d. Gullfoss og Geysi og taka af honum
myndir þar. Þessar myndir ásamt frá-
sögn af heimsókninni sendir Heiðrún svo
til konu þeirrar á Nýja Sjálandi sem kom
þessum óvenjulega ferðamann af stað út í
heim.
Kiwi
lukkudýrið
www.postcrossing.com
Ævintýri Kíwis eru skráð á slóðinni hans:
http://Kiwis-grand-world-advent-
ure.blogspot.com/
Vladka Malá segir pílates æf-
ingakerfið, sem nýtur mikilla
vinsælda nú um stundir, vera
sniðið að þörfum allra.» 22
pílates