Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
BabySam
óskar eftir starfsfólki í almenna afgreiðslu.
Sjá nánar á babysam.is
Umsóknir sendist á babysam@babysam.is
Lýsi hf. óskar eftir
starfsmanni á lager
og í útkeyrslu
Óskum eftir að ráða röskan og ábyggilegan
starfskraft á lager og í útkeyrslu.
Upplýsingar gefur Snorri í síma 525 8113 eða
sendið fyrirspurnir á snorri@lysi.is.
Lýsi hf.,
Fiskislóð 5-9.
www.lysi.is
Sölumaður fasteigna
Sérhæfð fasteignasala
Sérhæfð fasteignasala í Reykjavík óskar að
ráða sölumann til starfa fljótlega. Mjög áhuga-
verður vinnustaður, góð vinnuaðstaða og mikil
sala. Umsækjandi þarf að vera með góða
reynslu í fasteignasölu. Farið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir sem tilgreina menntun og starfs-
reynslu leggist inn á auglýsingadeild Mbl. eða
á box@mbl.is fyrir 3. október nk. merktar:
„F — 19080“.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi
15, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 5. október 2006 kl. 9.30
á eftirfarandi eignum:
Áshamar 67, 218-2549, 020103, samkvæmt kaupsamningi, þingl.
eig. Freydís Fannbergsdóttir, gerðarbeiðandi eMax ehf.
Bárustígur 11, 218-2624, samkvæmt kaupsamningi, þingl. eig. Lant-
erna ehf., gerðarbeiðendur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og Olíufé-
lagið ehf.
Bárustígur 11, 218-2625, þingl. eig. Dominik Lipnik, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður.
Brekastígur 23, 218-2884, 010101, þingl. eig. Michelle Rose Dianne
Gaskell, gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær.
Brekkugata 1, 218-2910, 010201, þingl. eig. Karl James Gunnarsson,
gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær.
Heimagata 35, 218-3844, þingl. eig. Pétur Erlingsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður.
Herjólfsgata 5, 218-3880, þingl. eig. Magnús Þór Magnússon, gerðar-
beiðandi Íbúðalánasjóður.
Kirkjubæjarbraut 11, 218-4358, þingl. eig. Andrés Sigmundsson,
gerðarbeiðendur Dagsbrún hf. og Íbúðalánasjóður.
Vestmannabraut 49, 218-5007, þingl. eig. Guðný Svava Gísladóttir,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
26. september 2006.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Boðaslóð 7, neðri hæð, 218-2723, þingl. eig. Ágúst Ómar Einarsson,
gerðarbeiðendur Innheimtustofnun sveitarfélaga og Íbúðalánasjóður,
miðvikudaginn 4. október 2006 kl. 14:00.
Foldahraun 39, 218-3446, þingl. eig. Gunnar Jónsson, gerðarbeiðandi
Sparisjóður Vestmannaeyja, miðvikudaginn 4. október 2006
kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
26. september 2006.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
mánudaginn 2. október 2006 kl. 13.00:
Fossvegur 21, 0201, fastanr. 213-0213, þingl. eig. Eva Birgitta Karls-
dóttir og Baldur Jörgen Daníelsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
26. september 2006.
Guðgeir Eyjólfsson.
Til sölu
Atvinnutækifæri
Til sölu fyrirtæki í innflutningi, heildsölu og
smásölu. Góð álagning. Falleg, hrífandi og
auðseljanleg vara. Verð ca 12 m. Svar merkt:
„Uppgrip“ sendist á netfang: galle@isl.is
Tilkynningar
Borgarbyggð
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Borgarbyggðar 1997-2017, færsla þjóð-
vegar 54 við Engjaás í Borgarnesi.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með
tillögu að breytingum á aðalskipulagi Borgar-
byggðar 1997-2017 samkvæmt 2. mgr. 17. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Í breytingartillögunni felst að Snæfellsnesveg-
ur (nr. 54) frá hringtorgi á Hringveginum og
að mörkum þéttbýlisuppdráttar aðalskipulags-
ins er færður. Eldra vegstæði verður að hluta
fellt niður. Vegna færslunnar breytist lögun
og stærð landnotkunarreita á svæðinu þannig
að athafnasvæði stækkar og aðlagast nýju veg-
stæði og reitur fyrir blandaða landnotkun at-
hafnasvæðis- og verslunar- og þjónustusvæðis
minnkar lítillega og aðlagast vegstæðinu.
Breyting á aðalskipulagi verður til sýnis á skrif-
stofu Borgarbyggðar frá 27. september 2006
til 25. október 2006. Frestur til að skila inn at-
hugasemdum rennur út 9. nóvember 2006.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breyt-
ingartillöguna fyrir tiltekinn frest telst samþykk-
ur henni.
Borgarnesi, 21. september 2006.
Forstöðumaður framkvæmda-
sviðs Borgarbyggðar.
Félagslíf
HELGAFELL 6006092719 IV/V
Fjhst.
GLITNIR 6006092719 I Fjhst.
I.O.O.F. 9 18709278½
I.O.O.F. 7 1879277½ Rk.
I.O.O.F. 7 1879277½ I.O.O.F. 18 1879277/30 Rk.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Raðauglýsingar sími 569 1100
✝ Ásmundur Ey-steinsson fædd-
ist á Höfða í Þver-
árhlíð 28. október
1919. Hann andaðist
á Dvalarheimili
aldraðra í Borgar-
nesi 14. október síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Sigríður
Halldórsdóttir frá
Síðumúlaveggjum
og Eysteinn Dav-
íðsson frá Karls-
brekku í Þverárhlíð.
Bróðir Ásmundar
var Daníel, f. 24. janúar 1915, d.
16. október 2005, og hálfsystkini
hans, börn Sigríðar og Magnúsar
Rögnvaldssonar frá Höfða í Þver-
árhlíð, fyrri manns hennar, eru
Halldóra, f. 9. októ-
ber 1898, Þorvald-
ur, f. 23. nóvember
1900, Þorgerður, f.
2. júní 1903, Jón
Bjarni, f. 9. mars
1905, Bergþór, f. 5.
apríl 1907, María, f.
8 desember 1909 og
Guðrún, f. 18. júní
1911. Þau eru öll
látin.
Ásmundur bjó
með bróður sínum
Daníel á Högnastöð-
um í Þverárhlíð þar
til hann fluttist á Dvalarheimilið í
Borgarnesi.
Ásmundur verður jarðsunginn
frá Borgarneskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 11.
Vorið 1955 þegar ég var 10 ára
gamall fór ég í sveit til frænda minna
á Högnastöðum, Eysteins afabróður
míns og sona hans tveggja, Daníels
og Ásmundar. Þá opnaðist mér kaup-
staðarstráknum nýr heimur. Sveita-
lífið heillaði mig og þá sérstaklega
hestarnir. Við Eysteinn gamli urðum
mestu mátar og hann var óþreytandi
við að kenna mér og svara öllum mín-
um spurningum. Af þeim feðgum öll-
um lærði ég mikið. Mikið var rætt um
búskap almennt og vel fylgdust þeir
með öllum fréttum og því sem var að
gerast með þjóðinni. Þeir feðgar allir
höfðu mikið jafnaðargeð, töluðu aldr-
ei illa um aðra, kvörtuðu aldrei um
eigin hag eða yfir eigin heilsu, en oft
var rætt um tíðarfarið almennt og
heyskaparhorfur, veðrið og slíkt.
Milli okkar Ása, sem nú er fallinn
frá, myndaðist fljótt sérstakt sam-
band sem staðið hefur í yfir 50 ár.
Minni og glöggskyggni Ása var slíkt
að hann bar höfuð og herðar yfir alla
aðra sem ég hef hitt á lífsleiðinni. Af
þeim sökum var hann löngum að að-
stoða bændur í nágrannasveitum við
að smala, marka og taka af. Ég fór
snemma að reyna að komast sem oft-
ast með honum í þessar ferðir og
tókst það alloft, sérstaklega ef ég tal-
aði við Eystein fyrst. Ási á Glað er
hinn fullkomni íslenski smali og fjár-
maður í mínum augum. Ási var nokk-
urs konar „superstar“ í mínum aug-
um og hefur alltaf verið það síðan.
Við höfum farið margar ferðir saman
í gegnum tíðina, að skoða hross og
víðar. Í öllum þessum ferðum hefur
Ási ávallt verið foringinn, ég hef fylgt
með. Og fyrir það er ég mjög þakk-
látur því það fá ekki allir tækifæri til
að kynnast slíkum manni. Hér á ég
ekki eingöngu við sérgáfu hans held-
ur einnig þau gildi í lífinu sem ég
lærði af honum. Blessuð sé minning
hans og þeirra feðga allra.
Magnús Torfason.
Þverárrétt á síðustu öld 20-25 þús-
und fjár, mikill mannfjöldi.
Einn er sá maður sem hlýtur að
vekja athygli þeirra sem ekki þekkja
til, hann er dökkur á brún og brá,
meðallagi á hæð. Hann þekkir hvert
mark á svæðinu og þó víðar væri leit-
að. Þarna var á ferðinni Ásmundur
Eysteinsson, ókrýndur konungur
allra markglöggra manna á Íslandi.
Stóðrétt, villt hrossin koma af af-
rétti, sum folöldinn fædd á fjalli, eng-
inn hefur séð þau. Hann gengur um
með staf sinn og bendir á hverja
skepnuna eftir aðra, þessi í þennan
dilk, þessi á folald frammi í safngirð-
ingu, látum hana bíða, allt gengur
upp að lokum.
Ókunnugir sem ekki þekktu til
spyrja í forundran hvernig er þetta
hægt, hverskonar galdramaður er
þetta. Heimamenn tóku þessu eins
og sjálfsögðum hlut, reynslan hafði
margsannað það að honum var
treystandi. Það fór saman óvenju
skörp sjón, minni með afbrigðum og
rík athyglisgáfa.
Mér er nær að halda að hann hafi
ekki þurft að sjá skepnu nema einu
sinni til að þekkja hana aftur. Um Ás-
mund spunnust auðvitað þjóðsögur,
sumar sannar, aðrar ýktar eins og
gengur. Fullyrt er að hann hafi þekkt
hvert mark í 5-6 sýslum.
Eins var með ættfræði sem lengi
hefur verið nokkurs konar þjóðar-
íþrótt íslendinga, þar var ekki komið
að tómum kofunum kjá honum.
Annar maður gat sér óvenjulega
frægð á þessu sviði Hjörleifur Sig-
fússon Skagfirðingur (Marka Leifi).
Þeir Ásmundur hittust einu sinni.
Hjörleifur hafði þau orð um Ásmund
að hann væri óvenjulega efnilegur á
þessu sviði. Þessir tveir menn þekktu
fjár- og hrossamörk um hálft Ísland.
Margar sögur eru til um Ásmund,
ein er sú að hann gekk eitt sinn á
Baulu þar sést vítt yfir, m.a. ofan í
Miðdali. Sjónaukinn var með í ferð-
inni. Ásmundur sér þar rauðskjóttan
hest, „þarna á ekki að vera rauð-
skjóttur hestur, það er enginn rauð-
skjóttur hestur til þarna“. Nokkru
síðar var auglýstur rauðskjóttur
óskilahestur á þessu svæði.
Maður einn ætlaði að taka upp
mark, hann lagði það fyrir Ásmund
eins og venja var.
Jú, þetta er óhætt, þetta mark er
ekki á þessu svæði hér. (þ.e. Borgar-
firði) ég veit af því norður í Ljósa-
vatnsskarði. (Suður Þingeyjarsýsla).
Hann var ekki með neina markaskrá
í höndunum þegar hann sagði þetta.
Í vafaatriðum var oftast leitað til
Ásmundar að skera úr, einhverjum
hefur vafalaust þótt þetta óvenjulegt
þar sem Ásmundur var einn að eig-
endum fjár á þessu svæði, en menn
vissu að enginn var til þess hæfari.
Eitt er víst að mörg skepnan hefði
ekki ratað í hendur eiganda síns ef
ekki hefði komið til óvenjuleg glögg-
skyggni hans.
Við fráfall þessa óvenjulega manns
hafa orðið kaflaskil í réttarhaldi í
Þverárrétt.
Kristján F. Oddsson.
Ásmundur
Eysteinsson
MINNINGAR
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minningar-
greinunum.
Undirskrift | | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir | Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á mynda-
móttöku: pix@mbl.is og láta um-
sjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar