Morgunblaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 36
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
PÓLSKA tónskáldið Krzysztof Penderecki er
kominn hingað til lands og ætlar að stýra
Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Há-
skólabíói næstkomandi fimmtudag.
Flutt verða tvö verk úr smiðju Pendereck-
is, svokallaður Upprisukornsert sem saminn
var árið 2001 auk stutts strengjaverks sem
hann samdi árið 2005 í minningu Jóhannesar
Páls páfa II.
Auk þess verður sinfónía númer 4 eftir
Beethoven flutt á tónleikunum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Penderecki
sækir Ísland heim en hann stjórnaði Pólskri
sálumessu á Listahátíð árið 1988.
Þýskur einleikari
Guðný Guðmundsdóttir er fiðluleikari og 1.
konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Hún segir æfingar hafa gengið vel þó þær
hafi ekki staðið yfir lengi.
„Þessi venjulegi æfingatími byrjar á mánu-
dagsmorgnum og svo eru verkin flutt á
fimmtudögum,“ segir hún. „Penderecki hefur
verið við æfingarnar frá upphafi og það er
gaman að vinna undir hans stjórn.“
Guðný segir það sérstakt að starfa með
mönnum eins og honum sem eru löngu orðnir
goðsagnir í lifanda lífi. Flestir sem ná því að
teljast goðsagnir í tónlistarheiminum séu
löngu komnir undir græna torfu.
„Það kom upp skemmtilegt tilvik á æfingu
í vikunni þegar einn hljóðfæraleikaranna
kom með tillögu um smá breytingu og Pende-
recki tók vel í það og sagðist geta breytt þar
sem hann væri ekki dauður,“ segir Guðný.
„Við megum nefnilega aldrei hrófla við
verkum þeirra sem eru látnir.“
Flutt verða tvö verk úr smiðju Pendereckis
sem fyrr sagði. Skyldi mæða mikið á fiðl-
unum í verkunum?
„Nei, aldrei þessu vant þá erum við óvenju
mikið til hlés. Venjulega eru fiðlurnar á fullu
allan tímann en í þetta sinn þurfum við að
telja vel svo við komum inn á réttum stöð-
um,“ sagði Guðný að lokum.
Einleikari á tónleikunum er þýski píanist-
inn Florian Uhlig.
Goðsögn í lifanda lífi
Morgunblaðið/Ásdís
Maestro Krzysztof Penderecki segir liðsmönnum Sinfóníuhljómsveitarinnar til á æfingu.
|miðvikudagur|27. 9. 2006| mbl.is
Staðurstund
Ingveldur Geirsdóttir spáir í
vetrardagskrá Möguleikhúss-
ins, sem leggur áherslu á frum-
samið efni fyrir ungviðið.» 39
af listum
Bandaríski trommuleikarinn
Zoro heldur tvenna einleiks-
tónleika hérlendis, í kvöld og á
morgun.»39
tónlist
Sveinn Guðjónsson gefur Björg-
vini Halldórssyni fjórar stjörnur
fyrir fjölmenna tónleika sína í
Laugardalshöll.» 39
dómur
Nemendaleikhús LHÍ frumsýndi
spunaverkið Hvíta kanínu á
Litla sviði Borgarleikhússins
um helgina.» 38
leiklist
Þrjár stjörnur hvor fá kvik-
myndirnar Hverfispartí Dave
Chapelle og Þar sem sannleik-
urinn er grafinn.» 38
kvikmynd
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
KÖTTURINN Mosi er vafalaust
eitt kunnasta fress landsins. For-
sagan að frægð Mosa er sú að vor-
ið 2003 týndist hann uppi á Holta-
vörðuheiði eftir að bifreið, sem
hann var farþegi í, valt rétt við
vegarkantinn. Eins og sagt var frá
í fjölmiðlum á sínum tíma var hon-
um hins vegar bjargað eftir
margra vikna hrakningar á heið-
inni og komst hann í kjölfarið í
blíðar hendur starfsfólksins í Katt-
holti, slæptur og langsoltinn.
Nú hafa núverandi eigendur
Mosa gert skrautlegri æsku hans
skil á prenti. Það er húsbóndinn á
heimilinu, Halldór Guðmundsson,
sem semur textann í bókinni Sagan
af Mosa og hugprýði hans en ljós-
myndirnar sem síðurnar skrýða
eru að megninu til eftir hús-
freyjuna, Önnu Björns-
dóttur. Mosi hét reynd-
ar Moli þegar
ósköpin á Holta-
vörðuheið-
inni
dundu yfir en Anna og Halldór
ákváðu að gefa honum nýtt nafn til
þess að segja skilið við „minningar
um misblíð kjör sem kettlingur“,
að því er segir í formála bók-
arinnar. Þar segir einnig að undir
nýju nafni sé þriðja líf Mosa hafið.
Var tregur til að
fá nýjan kött á heimilið
„Mosi hefur það mjög fínt í dag,“
segir Halldór þegar hann er spurð-
ur út í líðan söguhetjunnar í sínu
þriðja lífi. „Hann er ótrúlega
skemmtilegur köttur. Hann er afar
„kúl“, svo maður bregði fyrir sig
nútímamáli, æðrulaus, blíður,
mannelskur og kelinn,“ bætir hann
við og segir að þegar maður sé
samvistum við ketti komi manni
ekkert á óvart að þeir hafi verið
tignaðir í Egyptalandi til forna.
Halldór og Anna eru engir
græningjar þegar kemur að katta-
málum en áður höfðu þau átt kött-
inn Snotru í átta ár. Hún varð
hvorki meira né minna en 23 ára
gömul og elsti köttur landsins á
þeim tíma.
„Ég var tiltölulega tregur að fá
kött aftur á heimilið því Snotra var
nýdáin. Ég vildi fá aðeins lengra
hlé á milli katta en konan sótti fast
að fá hann, sem varð svo úr. Ég sé
sko síður en svo eftir því og Mosi
þakkar Önnu á hverjum degi með
fölskvalausri ást sinni.“
Bókin er tileinkuð Kattholti, Sig-
ríði Heiðberg og öðru starfsfólki.
„Það er unnið frábært starf í Katt-
holti og af mikilli alúð. Okkur
fannst við hæfi, fyrst Mosi komst í
okkar hendur þaðan, að vekja at-
hygli á þeim góðu verkum sem þar
eru unnin.“
Í formálanum að bókinni við-
urkennir Halldór að þó frásögnin
byggist á þekktum staðreyndum úr
lífi Mosa sé engu að síður ýmsu
hnikað til og skáldað í eyður til að
þjóna ævintýrinu. „Hann hefur ver-
ið afar fámáll um dvölina á heiðinni
þannig að ég hef orðið að búa hana
svolítið til,“ upp-
lýsir Halldór.
„En hann hefur
ekki mótmælt
því sem þar seg-
ir þannig að það
gæti verið nærri
lagi.“
„Kúl“ og kelinn köttur á bók
Kötturinn Mosi lifði af margra vikna hrakningar á Holtavörðuheiði eftir að hafa lent í bílslysi. Nýir
eigendur Mosa hafa gert bók um svaðilfarir kisa sem þau tileinka Kattholti og starfsfólki þess
» „Hann hefur veriðafar fámáll um dvöl-
ina á heiðinni þannig að
ég hef orðið að búa hana
svolítið til.“
Tónlist | Sinfóníuhljómsveitin leikur undir stjórn Krzysztof Penderecki