Morgunblaðið - 27.09.2006, Síða 40

Morgunblaðið - 27.09.2006, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Risaeðlugrín © DARGAUD Risaeðlugrín © DARGAUD PÉSI. KANNTU KÓNGULÓARLEIKINN? ? SJÁÐU! SVONA. VILTU PRÓFA? NEI, NEI. EN MÉR SÝNIST KÓNGULÓIN VILJA LEIKA SÉR GOTT! ÉG LÍKA HOBB! !!!??? HIHI, FRÁBÆRT! ERTU VISS UM AÐ ÞÚ VILJIR EKKI? JÁ, EN KÓNGULÓIN VILL VIRKILEGA LEIKA SÉR Í... ÉG HELD ÞÁ BARA ÁFRAM HVAÐ Í... ÉG VAR AÐ REYNA AÐ SEGJA ÞÉR ÞAÐ AÐ KÓNGULÓIN VILL LEIKA SÉR Í MÚMÍULEIKNUM... HANN ER GÓÐ AÐFERÐ TIL ÞURKUNAR OG GEYMSLU ÞróunarsamvinnustofnunÍslands (ÞSSÍ) stendur áfimmtudag fyrir málstofuum rannsóknir íslenskra háskólanema á vettvangi heilbrigð- isverkefnis ÞSSÍ í Malaví, og á föstudag fyrir ráðstefnu um heil- brigðisþjónustu í fátækum löndum. ÞSSÍ nýtur liðsinnis heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, læknadeildar Háskóla Íslands og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við framkvæmd dagskrár fimmtu- dagsins og föstudagsins, en Geir Gunnlaugsson barnalæknir er einn skipuleggjenda ráðstefnunnar: „Í málstofunni á fimmtudag munu ís- lenskir háskólanemar kynna nið- urstöður sjö rannsóknarverkefna sem þeir hafa framkvæmt í tengslum við verkefni ÞSSÍ í Apa- flóa (Monkey Bay) í Malaví. Þessi verkefni snerta m.a. mæðravernd og fæðingarhjálp, meðferð veikra nýbura og veikra barna, bólusetn- ingar og framkvæmd forvarn- araðgerða í afskekktum þorpum,“ útskýrir Geir. „Á málþinginu munu fara fram umræður með þátttöku erlendra gesta og fjallað um hvern- ig nýta má niðurstöður rannsókn- anna til að bæta gæði starfs heilsu- gæslunnar og ÞSSÍ á svæðinu.“ Ábyrgð heilbrigðisvísinda Virtir erlendir fyrirlesarar munu taka þátt í ráðstefnu föstudagsins um heilbrigðisþjónustu í fátækum löndum: „Vonir okkar standa til að með ráðstefnunni styðjum við vax- andi umræðu um þróunaraðstoð hér á landi, sérstaklega með tilliti til aðstoðar á sviði heilbrigðismála,“ segir Geir. „ÞSSÍ hefur stutt heilsugæslustarfið á Apaflóa- svæðinu frá árinu 2000 og er ráð- stefnan haldin bæði til að ræða heil- brigðismál á fátækum svæðum al- mennt, en sjónum sérstaklega beint að verkefninu í Apaflóa og skoðað hvað hefur verið unnið síðastliðin 6 ár, hvar við stöndum og í hvaða samhengi verkefnið er unnið. Sér í lagi verður hugað að þúsald- armarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem snerta heilbrigðisþjónustuna beint, þ.e. lækkun mæðra- og barnadauða, og ná stjórn á út- breiðslu alnæmis, malaríu og berkla.“ Ráðstefnan hefst kl. 9 og verður dagskrá hennar fram til hádegis helguð hlutverki og ábyrgð heil- brigðisvísinda, og helstu áskor- unum á fátækum svæðum Afríku og Evrópu: „Við höfum meðal annars fengið til okkar sem gestafyrirles- ara Luís Sambo, framkvæmda- stjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar fyrir Afríkusvæðið. Einnig mun brasilíski læknirinn Cesar G. Victora fjalla um mæðra- og barnadauða, en hann er heims- þekktur fræðimaður á sínu sviði,“ segir Geir, en aðrir fyrirlesarar fyr- ir hádegi eru Siv Friðleifsdóttir, Stefán B. Sigurðsson, Guðjón Magnússon og Jónína Einarsdóttir. „Eftir hádegi verður fjallað um framkvæmd heilbrigðisverkefna, og verkefni ÞSSÍ í Malaví skoðað sérstaklega, og í lok ráðstefnunnar mun Lars Smedman skoða þróun heilsu barna í Svíþjóð í sögulegu samhengi, en mikilvægt er að hafa í huga að þróun heilbrigðismála krefst bæði tíma og þolinmæði svo greina megi jákvæðan afrakstur þegar fram líða stundir.“ Aðrir fyr- irlesarar í seinni hluta ráðstefn- unnar eru Geir Gunnlaugsson, Wesley O.O. Sangala og Einar Magnússon. Í lok ráðstefnunnar verður efnt til almennrar umræðu fyrirlesara og ráðstefnugesta. Málþing fimmtudagsins fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Ís- lands og varir frá 13 til 17. Ráð- stefna föstudagsins er haldin í Öskju og stendur frá 9 til 17. Öll dagskrá er á ensku, en aðgangur er ókeypis og öllum heimill og skrán- ing óþörf. Þróunarstarf | Málþing á fimmtudag í Þjóð- minjasafni, ráðstefna á föstudag í Öskju  Geir Gunn- laugsson fæddist 1951. Hann lauk læknaprófi frá HÍ 1978 og dokt- orsprófi og mast- ersnámi í lýð- heilsufræðum 1997 frá Karol- inska Institutet í Stokkhólmi. Geir starfaði m.a. í Gí- neu-Bissá á árunum 1982–1985 og 1993–1998 og hefur starfað sem ráðgjafi fyrir ÞSSÍ. Hann er nú for- stöðumaður Miðstöðvar heilsu- verndar barna. Geir er kvæntur Jónínu Einarsdóttur dósent og eiga þau þrjá syni. Heilbrigðisþjónusta í fátækum löndum MUNCH-safnið í Ósló mun í dag leyfa safngestum að berja augum málverkin Ópið og Madonnu eftir Edvard Munch sem lögregla end- urheimti á dögunum. Vopnaðir ræningjar stálu verk- unum í ágústmánuði 2004. Enn er eftir að lagfæra verkin, en ekki voru unnar meiri háttar skemmdir á þeim í vörslu ræn- ingjanna. Vatnsskemmdir eru á neðra vinstra horni Ópsins og hægri hlið Madonnu hefur rifnað eitthvað, auk þess sem tvö göt eru á handlegg kvenmynd- arinnar. Reuters Stolna Ópið og Madonna aftur til sýnis í Osló

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.