Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 6

Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef- ur dæmt hálffimmtugan karlmann, Eduardo Useda Correa, í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun á fimmtán ára gamalli stúlku í október 2005. Dómurinn komst að þeirri niður- stöðu að þrátt fyrir neitun ákærða í fyrstu og síðan minnisleysi hans um atburði mætti leggja til grundvallar vitnisburð stúlkunnar um það sem átti sér stað á heimili hans umrætt kvöld. Þótti sannað að Correa hefði með ofbeldi þröngvað stúlkunni til holdlegs samræðis á heimili hans og kærasta hennar umrætt sinn þar sem Correa neytti aflsmunar en hún hvorki gat spornað við verknaðinum né veitt mótspyrnu þar sem hún var lömuð af hræðslu og fraus. Frásögn stúlkunnar í Barnahúsi svo og and- legt ástand hennar þegar lögregla kom á staðinn og þegar hún kom á neyðarmóttökuna þóttu styðja það að hún hefði verið svo hrædd að hún hefði ekki getað varið sig. Með hliðsjón af aldursmun Correa og fórnarlambsins svo og að hann er stærri og sterkari og var talsvert drukkinn var það mat dómsins að ekki léki á því neinn vafi að Correa hefði neytt aflsmunar til að ná fram vilja sínum. Var hann einnig dæmd- ur til að greiða stúlkunni 700 þúsund krónur í miskabætur auk sakar- kostnaðar. Ástríður Grímsdóttir héraðsdóm- ari dæmdi málið. Verjandi var Sig- urður Sigurjónsson hrl. og sækjandi Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari hjá ríkissaksóknara. 2½ árs fangelsi fyrir nauðgun Engin vitni voru að glæpnum en stúlk- an talin trúverðug fyrir héraðsdómi Í HNOTSKURN »Ákærði og stúlkan voruein til frásagnar um það sem gerðist. Dómurinn taldi litlar líkur á því að stúlkan hefði strax að kynmökum loknum reynt að vernda sönn- unargögn sem hún gerði með því að þurrka sæði í húfuna sína sem lá við hliðina á henni í sófanum ef hennar samþykki hefði legið fyrir. Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is AFKOMA sveitarfélaganna í heild batnaði verulega á árinu 2005 miðað við fyrra ár. Afkoman er þó mjög mismunandi eftir einstaka sveitar- félögum, einkum þó hvað snertir Reykjavíkurborg annars vegar og þorp sem eru með íbúafjölda á bilinu 400 til 4.000 manns hins veg- ar. Þetta kemur fram á minnisblaði Gunnlaugs Júlíussonar, sviðsstjóra hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, en upplýs- ingunum var dreift á þingi sam- bandsins sem nú stendur yfir á Ak- ureyri og byggja þær á upplýsingum frá nánast öllum sveit- arfélögum í landinu um afkomuna á síðasta ári. Þannig kemur fram að skatt- tekjur sveitarfélaga í heild jukust um 13,1% milli ára og námu 93,8 milljörðum króna og þjónustutekjur jukust um tæpan fjórðung og námu 24 milljörðum króna. Samtals voru tekjur sveitarfélaga í fyrra þannig tæpir 118 milljarðar króna sem jafn- gildir tæplega 16% aukningu milli ára. 15% hækkun launagreiðslna Fram kemur einnig að launa- greiðslur sveitarfélaga hækkuðu um tæp 15% milli ára og að annar rekstrarkostnaður jókst um 6%. Samanlagt voru rekstargjöld sveit- arfélaganna á síðasta ári þannig 104 milljarðar á árinu 2005 og hækkuðu um 10 milljarða króna eða um 11%. Fram kemur að afkoma Reykja- víkurborgar sker sig nokkuð úr af- komu annarra sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu. Þannig er afkoman neikvæð þegar tekið hefur verið tillit til fjárfestinga og nemur fjárþörf borgarinnar fimm milljörð- um króna á síðasta ári af þeim sök- um. Afkoman er ágæt á höfuðborg- arsvæðinu að öðru leyti, en hún er þó sýnu lökust í sveitarfélögum með 400–4.000 íbúa, sem standa utan þeirra svæða þar sem þensla hefur verið undanfarið. „Í þeim er haldið uppi almennri velferðarþjónustu og þau leitast við að vera ekki eftirbátar stærri sveit- arfélaga í þeim efnum. Á hinn bóg- inn hefur íbúum víða fækkað í þess- um sveitarfélögum og atvinnulífið veikst sem hefur í för með sér að af- koma þeirra og fjárhagur hefur veikst. Þau þensluáhrif sem hafa verið í samfélaginu á undanförnum árum hafa heldur ekki náð til þess- ara sveitarfélaga hvað varðar tekju- hliðina en launakröfur þar eru áþekkar því sem gerist á þenslu- svæðum samfélagsins,“ segir enn- fremur í minnisblaðinu. Verulega betri afkoma sveitarfélaga árið 2005 Mjög mismunandi afkoma eftir stærð sveitarfélaga Fjölmenni Af fundi Sambands ís- lenskra sveitarfélaga á Akureyri. SLÖKKT var á götuljósum og víða í fyrirtækjum og heimilum í tilraun til að myrkva höfuðborgarsvæðið, Reykjanesbæ og Akranes í 30 mín- útur í gærkvöldi. Var þetta gert í til- efni opnunar Alþjóðlegu kvik- myndahátíðarinnar í Reykjavík. Forsvarsmenn kvikmyndahátíð- arinnar tóku upp hugmynd Andra Snæs Magnasonar um að myrkva borgina, sem hann setti fram í bók sinni Draumalandið, og unnu hug- myndinni brautargengi. Andri Snær var sjálfur viðstaddur opnun kvikmyndahátíðarinnar í miðborg Reykjavíkur og sagði hann í samtali við Morgunblaðið – eftir að kveikt hafði verið á ljósastaurum á ný að talsvert hefði verið af upp- lýstum húsum í miðbænum, auk þess sem umferðin hefði ekki hjálpað. „Þetta var mjög flott en ég held að það hafi skipt miklu máli hvar fólk var. Það má eiginlega líta á þetta sem nokkurs konar generalprufu, það gleymdist að slökkva ljósin í nokkrum fyrirtækjum niðri í bæ og líka í alþingishúsinu,“ sagði Andri Snær. Mikil umferð í myrkrinu Þótt margir tækju þátt í myrkv- uninni var þó talsvert af heimilum og fyrirtækjum upplýst, auk þess sem umferðin lýsti upp helstu um- ferðargötur. Ský huldu himininn að mestu á höfuðborgarsvæðinu en margir fengu sér göngutúr til að njóta myrkursins. Eitthvað var þó einnig um að fólk fengi sér bíltúr í myrkrinu, og segir varðstjóri lögreglunnar í Reykjavík að á meðan á myrkvuninni stóð hafi fólk fráleitt farið að óskum um að halda kyrru fyrir og njóta myrkurs- ins, og á stórum umferðaræðum hafi umferðin verið eins og á föstudags- eftirmiðdegi, og mikið ljós fylgt bíl- unum. Ekki hafði þó verið tilkynnt um nein óhöpp til lögreglu í myrkr- inu skömmu fyrir miðnætti í gær. Einnig segir lögreglan að ung- lingahópar hafi safnast saman víða, sérstaklega í úthverfunum, auk þess sem mikið hafi borið á flugeldum og margar kvartanir borist vegna þeirra enda ekki vel til fallið þegar nágrannar vildu njóta myrkursins að sprengja flugelda rétt á meðan myrkvunin stóð. Ljósin slökkt á suðvesturhorninu Morgunblaðið/Ómar Fleyttu kertum Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, Jón Ásgeir Hreinsson og Lilja Björk Jónsdóttir bjuggu sig undir að fleyta kertum á Tjörninni í myrkrinu. Morgunblaðið/ÞÖK Ljós Áður en ljósin voru slökkt var Reykjavík uppljómuð að venju. Frá Perlunni mátti sjá yfir borgina og yfir á Akranes í fjarskanum. Morgunblaðið/ÞÖK Myrkur Eftir að slökkt hafði verið á götuljósunum lagðist myrkrið yfir. Íbúarnir slökktu flestir ljósin, bæði í borginni og á Skaganum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.