Morgunblaðið - 29.09.2006, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
GEIMVÍSINDAMENN binda mikl-
ar vonir við rannsókn gervihnattar-
ins Solar-B sem Geimrannsókna-
stofnun Japans hefur skotið á loft.
Markmiðið er að rannsaka seg-
ulsvið sólar sem breytist stundum
með firnamiklum sprengingum, eða
sólgosum. Orkan sem leysist þá úr
læðingi samsvarar tugum milljóna
vetnissprengna á nokkrum mínút-
um.
Geimvísindamenn vona að rann-
sóknin leiði í ljós hvað það er sem
kemur þessum sólgosum af stað og
geri þeim kleift að sjá hegðun sól-
arinnar betur fyrir.
Meira á mbl.is/itarefni
/ & 0( &
&
& & &
1
/ & 2( 324,
5 4& 65
3
&
4& 65 &
&
67683
9
&
&3 :; &
:; & & !"#$%!&''&((&&$
)'& *
+!&',)
/
< =>##
4 2:76 9 6&
6
1
? 9 6
4
2:76
-&'-#$
) '$&'.!&
,
9
6
( 3 & & 6&
&
* &
9
&
4
4
@&
4 &
(
&
!"
#$
! % &
A 4
0
/
4
B4 4C3
< ="#83!&
%9
=$#38 < ="3D Gervihnöttur rann-
sakar upptök sólgosa
MARÍA Fjodorovna keisaraynja,
dönsk móðir síðasta keisara Rúss-
lands, var lögð til hinstu hvílu við
hlið sonar síns og eiginmanns í
grafhvelfingu undir gólfi dóm-
kirkju í Sankti Pétursborg í gær, 87
árum eftir að keisaraynjan flúði frá
Rússlandi vegna byltingar bolsé-
víka.
Kista keisaraynjunnar var flutt
með skipi frá Danmörku og kom til
Rússlands á þriðjudag, nákvæm-
lega 140 árum eftir að hún kom
þangað fyrst.
Kistan er hér látin síga í hvelf-
ingu Romanov-keisaraættarinnar
undir dómkirkjunni í Sankti Pét-
ursborg. Keisaraynjan hvílir við
hlið sonarins, Nikulásar II., og eig-
inmannsins, Alexanders III., eins og
hún óskaði eftir.
Eftir að keisaraynjan var lögð til
hinstu hvílu fór fram minning-
arathöfn undir stjórn Alexei II.
patríarka. Meðal viðstaddra voru
Friðrik, krónprins Dana, og eig-
inkona hans, María prinsessa.
Dagmar Danaprinsessa fæddist
árið 1847, breytti nafni sínu og
gekk í rússnesku rétttrún-
aðarkirkjuna þegar hún giftist
keisaranum.
Reuters
Keisaraynja Rússa
lögð til hinstu hvílu
STJÓRNVÖLD í Grikklandi reiða
sig nú á að smygl og vændi rétti
efnahag landsins við þar sem þessi
ólöglega starfsemi verður tekin
með í reikninginn þegar lands-
framleiðslan er metin.
Evrópusambandið hefur lagt fast
að grísku stjórninni að laga fjár-
lagahallann og hún hefur því gripið
til þess ráðs að fella hluta svarta
hagkerfisins inn í hagtölur. Við það
eykst landsframleiðslan a.m.k. um
10%, að sögn Manolis Kontopyrak-
is, yfirmanns grísku hagstofunnar.
„Í endurskoðaðri landsfram-
leiðslu verður tekið tillit til fjár-
muna frá ólöglegri starfsemi, svo
sem peninga frá tóbaks- og áfeng-
issmygli, vændi og peningaþvætti,“
sagði hagstofustjórinn. Áætlað er
að landsframleiðslan í Grikklandi
verði um 194 milljarðar evra í ár.
Svarta hagkerfið er talið nema um
40–60 milljörðum evra á ári.
Smygl og vændi
auki hagvöxt
í Grikklandi
Denver. AFP. | Vopnaður maður, sem
tók tvær stúlkur í gíslingu í skóla í
bænum Bailey í Colorado í Banda-
ríkjunum í fyrradag, skaut aðra
stúlkuna og síðan sjálfan sig.
Maðurinn, sem er 53 ára, tók í
fyrstu sex stúlkur í gíslingu en
sleppti fljótlega fjórum þeirra. Mun
hann hafa beitt suma gíslana kyn-
ferðislegu ofbeldi af einhverju tagi.
Kvaðst hann vera með sprengju
auk annarra vopna og hleypti af
nokkrum skotum er hann kom inn í
Platte Canyon-framhaldsskólann.
Maðurinn var að sögn mjög æst-
ur og hótaði að vinna stúlkunum
mein. Þegar hann vildi ekki lengur
ræða við lögregluna var ákveðið að
láta til skarar skríða gegn honum.
Skaut hann þá aðra stúlkuna og
sjálfan sig.
Skaut nemanda
og sjálfan sig
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
AÐ minnsta kosti 15 manns féllu í
sjálfsmorðsárásum og öðru ofbeldi í
Bagdad í gær. Svo virðist sem skæru-
liðar hafi aftur komið sér fyrir í borg-
arhverfum, sem Bandaríkjamenn
töldu sig hafa „hreinsað“, jafnvel með
þegjandi samþykki íraskra lögreglu-
manna.
Tveir íraskir lögreglumenn létu líf-
ið í bílsprengingu í einu hverfi sjíta og
sjö manns féllu og 35 særðust í tveim-
ur árásum í miðborg Bagdad. Árásir
og mannfall voru einnig í öðrum
hverfum.
Haft var eftir ónefndum leyniþjón-
ustustarfsmanni í gær, að vopnaðir
hópar væru aftur búnir að koma sér
fyrir í hverfum, sem áttu að hafa verið
„hreinsuð“ í miklum aðgerðum
bandarískra og íraskra hermanna
fyrir skemmstu. Verst af öllu þykir
þó, að írösku lögreglusveitirnar, sem
gæta hverfanna, virðast hafa sam-
starf við dauðasveitirnar. Lík manna,
sem oft hafa verið pyntaðir hroðalega,
finnast nú á hverjum morgni í þessum
hverfum.
Þeim Írökum, sem neyðst hafa til
að flýja heimili sín vegna átakanna á
milli trúflokkanna, súnníta og sjíta,
fjölgar daglega og er nú áætlað, að
þeir séu um fjórðungur milljónar,
40.000 fjölskyldur. Er þá aðeins mið-
að við formlega skráningu hjá innan-
ríkisráðuneytinu og líklegt, að raun-
verulegar tölur séu miklu hærri. Í
júní síðastliðnum var talið, að um
18.000 fjölskyldur hefðu hrakist frá
heimili sínu, í júlí 27.000 og 40.000 nú.
Fram kemur í nýrri könnun, sem
háskólinn í Maryland í Bandaríkjun-
um hefur látið gera í Írak, að 78%
telja, að vera bandarískra hermanna í
landinu geri ástandið verra en ella. Þá
hefur stuðningur landsmanna við
árásir á bandaríska hermenn aukist,
er nú 61% en var 47% í janúar síðast-
liðnum.
Eru þessar niðurstöður líkar þeim í
könnun, sem bandaríska utanríkis-
ráðuneytið gekkst fyrir og greint var
frá í The Washington Post.
Vaxandi ofbeldi í
skjóli lögreglunnar
Um 250.000 manns, 40.000 fjölskyldur, hafa hrakist frá
heimili sínu vegna blóðugra átaka milli trúflokkanna í Írak
Reuters
Endalaus harmur Konur gráta ástvini sína, sem féllu í loftárás Bandaríkja-
manna á hús í borginni Baquba síðastliðinn miðvikudag.
Í HNOTSKURN
» Engin áreiðanleg tala ertil yfir þá óbreyttu borg-
ara, sem fallið hafa í Írak síð-
an í innrásinni í landið í mars
2003. Margt bendir þó til, að
hún sé að nálgast 50.000.
» Bandaríkjamenn hafa númisst rúmlega 2.700 her-
menn í Írak.
» Fátt bendir til, að Banda-ríkjamenn geti farið frá
Írak „með reisn“ á næstunni.