Morgunblaðið - 29.09.2006, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
VÍÐSJÁ, þáttur um menn-
ingu og listir á dagskrá Rásar
eitt, hefur nú verið í loftinu í
10 ár. Hann er sendur út alla
virka daga milli klukkan 17
og 18.
Í þættinum er fjallað um
menningu á breiðum grund-
velli, innan lands og utan.
Fylgst er með viðburðum á
listasviðinu, leikhúsi, bókmenntum, tónlist og
myndlist auk þess sem fjallað er um hugmynda-
strauma og margt fleira sem lýtur að menning-
arástandi samtímans.
Umsjónarmenn þáttarins eru Eiríkur Guð-
mundsson og Guðni Tómasson.
Útvarpsþáttur
Menningarþáttur-
inn Víðsjá 10 ára
TVENNIR tónleikar verða á
Broadway um helgina þar sem
fram kemur hljómsveitin Á
móti sól. Í fararbroddi verður
Magni Ásgeirsson, sem gerði
garðinn frægan í Rockstar Su-
pernova-raunveruleikaþætt-
inum í Los Angeles. Með
Magna og hljómsveitinni kem-
ur auk þess fram söngkonan
Dilana sem hafnaði í 3. sæti í
sama raunveruleikaþætti. Magni varð sem kunn-
ugt er í 4. sæti. Fyrri tónleikarnir verða annað
kvöld og seldust miðar á þá upp á 2 tímum. Þá
verða aukatónleikar haldnir á sama stað annað
kvöld á milli kl. 19 og 21.
Tónleikar
Magni og Dilana
með Á móti sól
Dilana
FERNIR tónleikar verða á
Jazzhátíð Reykjavíkur í kvöld.
Tore Brunborg-Sunna Gunn-
laugs kvartett ríður á vaðið á
Q-bar kl. 17. Íslensk-finnski
kvintettinn Dialect verður á
Nasa kl. 20.30. Tónlist Dialect
sækir áhrif í strauma og stefn-
ur innan djassins, allt frá main-
steam yfir í framúrstefnu. Að
þeim loknum stígur á svið
Nasa kvintett gítarleikarans Ásgeirs Ásgeirs-
sonar. Hálftíma fyrr, eða kl. 22, verður pólskur
djass með tríói Andrzej Jagodzinsky í Þjóðleik-
húskjallaranum. Annað kvöld verða síðan tón-
leikar Kurt Elling í Austurbæ.
Djasstónleikar
Tríó, kvartettar
og kvintettar
Ásgeir Ásgeirsson
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
NÝHAFIÐ starfsár Íslensku Óper-
unnar virðist ætla að vera fjölbreytt.
Bjarni Daníelsson óperustjóri segir
áherslurnar í rekstri Óperunnar í
vetur í sjálfum sér ekki breyttar en
að þeim sé smá saman að takast að
vera með fleiri járn í eldinum. „Við
erum áfram með samning við ríkið
sem gerir ráð fyrir tveimur venjuleg-
um óperuuppfærslum á ári og tveim-
ur samstarfsverkefnum. Stærsta
samstarfsverkefni okkar á þessu ári
er við Strengjaleikhúsið en við mun-
um setja upp Skuggaleik, nýja Ís-
lenska óperu, í samstarfi við það. Hitt
samstarfsverkefnið er uppsettning á
Cavaleria Rusticana með Óperukór
Hafnafjarðar. Óperustúdíó Íslensku
óperunnar, sem er samstarfsverkefni
við fjölmarga tónlistarskóla, verður
nú í fjórða skipti, en það samstarf
hefur þróast mjög skemmtilega og
styrkt sig listrænt. Minni samstarfs-
verkefni eru svo við Kammersveitina
Ísafold og nýstofnaða antíkhljóm-
sveit sem heitir Camerata Dramma-
tica. Við rekum líka Óperudeiglu Ís-
lensku Óperunnar sem er vettvangur
til nýsköpunnar og tilraunastarfs.
Hádegistónleikarnir halda síðan
áfram í vetur.“ segir Bjarni og bætir
við að tilgangurinn með þessari fjöl-
breyttni sé m.a. að höfða til sem
flestra. „Ef við sinnum ekki bæði for-
tíð, nútíð og framtíð er hætta á að
formið staðni og við með því. Auðvit-
að sýnum við klassísku meistara-
verkin sem óperuhefðin snýst um en
við viljum líka gagnvart listamönnum
og áhorfendum fást við nýrri verk
sem eru öðruvísi upp byggð og gera
aðrar kröfur. Síðan reynum við að
stuðla að því að það komi ný íslensk
verk fram á sjónarsviðið.“
Betri fjárhagsstaða
Aðspurður út í fjármagn Óperunn-
ar segir Bjarni það aðallega koma frá
ríkinu eins og áður. „Reksturinn
gengur út á það að nýta sem best
ríkisstyrkinn sem er lang stærsta
uppspretta fjár hjá okkur. Síðan
fáum við peninga fyrir miðasölu og
erum í samstarfi við fyrirtæki at-
vinnulífsins. Á seinustu árum hefur
okkur tekist að laga fjárhagsstöðu
Óperunnar verulegu, við erum ekk-
ert að velta meiri fjármunum en áður
en starfsemin er stöðugri.“
Engir söngvarar hafa verið fast-
ráðnir hjá Óperunni undanfarin tvö
ár en draga mun til tíðinda í því í vet-
ur. „Á sínum tíma var tekin sú
ákvörðun að ekki yrðu fastráðnir
söngvarar nema þeir myndu sinna
bitastæðum hlutverkum aftur og aft-
ur og næsti söngvari sem uppfyllir
þessi skilyrði kemur hingað til starfa
um áramótin og er ráðinn til tveggja
ára, en það er Ágúst Ólafsson, barí-
tón. Ég býst ekki við að það verði
ráðist aftur í að hafa kjarnahóp
söngvara fyrr en verkefnum fjölgar,
ég veit ekki hvenær það verður en
framtíðardraumar okkar snúast um
nýtt óperuhús í Kópavogi,“ segir
Bjarni.
Tónlist | Bjarni Daníelsson óperustjóri um veturinn hjá Íslensku óperunni
Með fleiri járn í eldinum
Óperan Bjarni Daníelsson óperustjóri segir fjölbreytni einkenna starfið.
ÞEGAR Bob Dyl-
an var unglingur
árið 1959 og
gekkst ennþá við
nafninu Robert
Zimmerman tók
hann upp ásamt
Ric Kangas fé-
laga sínum í smá-
bænum Hibbing í
Minnesota nokk-
ur lög á segulband Kangas. Kangas
getur prísað sig sælan að hafa ekki
hent upptökunum af samspili
þeirra félaga því þrjú lög sungin af
Dylan og eitt þar sem hann leikur á
gítar hafa varðveist á böndunum.
Nú er búist við að upptökurnar
seljist á uppboði í næsta mánuði í
Dallas á um 100.000 dollara, eða
nálægt 7 milljónir ÍSK. Kangas
sagði í samtali við Daily Tribune í
Hibbing að hann hefði geymt seg-
ulböndin í ferðatösku allan þennan
tíma. Hann hlustaði ekki á upptök-
urnar fyrr en hann fann segul-
bandstæki á bílskúrsútsölu nýlega
sem gat spilað þessi gömlu segul-
bönd. Kangas sagði kunningja sín-
um frá þessu og þannig vildi til að
sá þekkti framkvæmdastjóra Dyl-
ans, Jeff Rosen. Í fyrstu var Rosen
vantrúaður á frásögnina en hlust-
aði að lokum á upptökurnar sem að
endingu voru notaðar í heimildar-
mynd Martins Scorsese um Bob
Dylan, No Direction Home. „Marg-
ir sem sáu heimildarmyndina
spurðu mig út í þessa tónlist,“ segir
Kangas, sem í millitíðinni hefur lát-
ið gera tæknilega betrumbætta út-
gáfu af upptökunum. „Ég hafði
ekki grænan grun um að upptök-
urnar væru svona mikilvægar. En
það hefur komið í ljós að þetta eru
einhver fyrstu lögin sem tekin eru
upp með Bob.“
Lögin fjögur sem hafa varðveist
síðan 1959 eru I Got á New Girl,
The Frog Song, Like a Rolling
Stone og I Wish I Knew.
Þrjú gömul
lög með
Dylan fundin
Upptökurnar gætu
selst á 7 milljónir kr.
Bob Dylan
- taktu mark á sérfræðingum
GOLFÚTSALA 20% - 70% AFSL.
GOLFSETT
½ Golfsett í poka frá kr. 13.740
Heilt golfsett í poka frá kr. 20.720
FATNAÐUR
Pro Quip Silk Touch Regngalli
Besti gallinn skv. Todays Golfer
Jakki aðeins kr. 11.120
Buxur aðeins kr. 7.840
KERRUR/POKAR
Rafmagnskerra kr. 18.650
Golfkerrur frá kr. 2.960
Þriggja hjóla frá kr. 5.625
Golfskór 20 - 50% afsl. Verð frá kr. 2.900
Golfboltar 20 - 30% afsláttur
af öllum golfboltum.
Titleist, Top Flite o.fl.
Kerrupoki kr. 6.650
Standpoki kr. 7.630
BARNA/UNGLINGA
GOLFSETT
í poka verð frá kr. 7.920
Pútter frá kr. 1.520
Járn frá kr. 900
Tré frá kr. 1.400
HOWSON
verð frá
kr. 13.900
HIPPO
verð frá
15.900
LYNX 30% Afsláttur
FRÁBÆRT VERÐ Á
VÖNDUÐUM JÁRNASETTUM
DAGSKRÁ: Föstudag 29. sept.
HÁSKÓLABÍÓ Salur 1
Kl. 18.00 Whole New Thing
Kl. 20.20 Falling
Kl. 22.25 Princess
HÁSKÓLABÍÓ Salur 2
Kl. 18.00 Balordi
Kl. 20.00 Lights in the Dusk
Kl. 22.00 Free Radicals
HÁSKÓLABÍÓ Salur 3
Kl. 18.00 The Powder Keg
Kl. 20.00 Exotica
Kl. 22.00 Russian Arc
HÁSKÓLABÍÓ Salur 4
Kl. 20.00 Northern Skirts
TJARNARBÍÓ
Kl. 12.08 East of Bucharest
Kl. 14.00 Euphoria
Kl. 16.00 Taxidermia
Kl. 20.00 Sherrybaby
Kl. 22.00 El Topo
Kl. 00.25 Holy Mountain
TENGLAR
..............................................
www.filmfest.is
Kvikmyndahátíð
í Reykjavík
Fréttir á SMS