Morgunblaðið - 29.09.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 19
SAUTJÁNDA starfsár Sinfóníu-
hljómsveitar áhugamanna hefst
næstkomandi sunnudag með tón-
leikum í Seltjarnarneskirkju þar
sem hljómsveitin minnist þess að
250 ár eru liðin frá fæðingu Wolf-
gangs Amadeusar Mozarts. Á tón-
leikunum verða flutt tvö verk;
hljómsveitarsvítan Mozartiana eftir
Tsjækovskí, en hún var samin í
minningu Mozarts, og 8. sinfónía
Beethovens sem er talinn frægasti
nemandi Mozarts. „Mozartiana er
svíta skrifuð í anda Mozarts, við höf-
um ekki flutt hana áður en hún er
mjög áheyranleg og skemmtileg. 8.
sinfónía Beethovens er síðan mjög
vel þekkt og vinsæl, en við höfum
spilað hana einu sinni áður,“ segir
Páll Einarsson formaður stjórnar
Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna.
Aðspurður hvort það sé ekki kom-
ið nóg af afmælistónleikum til heið-
urs Mozart segir Páll að það sé aldr-
ei hægt að fá of mikið af Mozart.
„Hann er í miklum metum hjá okkur
og það er líklega ekkert tónskáld
sem við höfum spilað jafn mikið eft-
ir.“
Páll segir starfsárið fara vel af
stað hjá Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna. „Við byrjuðum að æfa í lok
ágúst og þetta er fyrsta uppskera.
Næstu tónleikar verða svo eftir sex
vikur og á þeim frumflytjum við m.a
verk eftir Oliver Kentish stjórnenda
hljómsveitarinnar.“
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
var stofnuð árið 1990 og er skipuð
fólki sem flest hefur langt tónlistar-
nám að baki en hefur atvinnu af öðru
en hljóðfæraleik.
Tónleikarnir fara fram í Seltjarn-
arneskirkju sunnudaginn 1.október
kl. 17:00.
Áhugamenn
minnast Mozarts
Morgunblaðið/Kristinn
Mozart Sinfóníuhljómsveit áhugamanna spilar í minningu Mozarts.
NÝLEGA var annar af höfundum
lagsins „Itsy Bitsy Teenie Weenie
Yellow Polka Dot Bikini“ ranglega
sagður látinn í ýmsum fjölmiðlum
eftir að AP-fréttaveitan hafði skýrt
frá andláti hans. Misskilningurinn
kom upp eftir dauðsfall manns sem
hafði talið eiginkonu sinni trú um að
hann væri höfundurinn að laginu.
Að sögn ekkju Pauls Van Valken-
burgh, Rose Leroux, hafði eigin-
maður hennar haldið því fram, í þau
fjörutíu ár sem þau voru gift, að
hann hefði samið lagið undir nafninu
Paul Vance, en síðar selt réttinn að
höfundarlaunum sem ungur maður.
Að sögn frú Leroux var hún miður
sín yfir að komast að hinu sanna í
málinu eftir allan þennan tíma.
Á fréttavef BBC er haft eftir hin-
um eiginlega Paul Vance að síminn
hafi ekki stoppað undanfarna daga
þar sem fólk haldi að hann hafi safn-
ast til ferða sinna. Vance, sem í dag á
keppnishesta, sagði ennfremur að
tveir hesta sinna hefðu verið dregnir
til baka úr keppni á miðvikudaginn
af sömu sökum.
Peningauppspretta
Vance samdi lagið á sínum tíma í
félagi við Lee Pockriss. Það var
Brian Hyland sem upprunalega
söng lagið inn á plötu en í þeirri út-
gáfu komst það á topp bandaríska
smáskífulistans árið 1960. Síðan þá
hefur „Itsy Bitsy Teenie Weenie
Yellow Polka Dot Bikini“ hljómað í
myndum á borð við Sister Act 2 og
Revenge of the Nerds 2.
„Lagið er peningauppspretta,“
sagði Vance og reiddi fram sönnun
um viðtöku höfundarlauna.
Ótímabær
dánarfregn
BANDALAG íslenskra listamanna
(BÍL) boðar til almenns fundar í
Norræna húsinu á morgun, laugar-
daginn 30. september, kl. 14.00. Yfir-
skrift fundarins er: „Hvar er ís-
lenskt sjónvarp?“ og er markmiðið
að vekja fólk til vitundar um inn-
lenda dagskrárstefnu í sjónvarpi.
Ágúst Guðmundsson, forseti BÍL,
setur fundinn, en auk hans taka til
máls Dagur Kári Pétursson, Kristín
Helga Gunnarsdóttir, Kristín
Jóhannesdóttir, Ólafur Haukur
Símonarson, Sigurbjörg Þrastar-
dóttir og Sigurjón Kjartansson.
Þorsteinn Guðmundsson les úr
Roklandi eftir Hallgrím Helgason
undir yfirskriftinni „Kona deyr við
skjáinn“. Jakob Frímann Magnús-
son flytur verk, ásamt söngvara, er
nefnist „Táknmynd nútímans í ís-
lensku sjónvarpi?“ og Ómar og Ósk-
ar Guðjónssynir leika nokkur þekkt
kynningarstef úr bandarískum sjón-
varpsþáttum. Fundarstjóri verður
Margrét Bóasdóttir, ritari BÍL.
Hvar er
íslenskt
sjónvarp?
♦♦♦