Morgunblaðið - 29.09.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 21
LANDIÐ
Siglufjörður | Verktakar Héðins-
fjarðarganga hafa gengið frá ganga-
munnanum í Skútudal í Siglufirði og
eru komnir nokkra metra inn í berg-
ið. Samgönguráðherra mun síðan
hefja gangagerðina formlega á
morgun með því að taka þátt í
sprengingu.
„Þetta er skemmtilegt verkefni og
það byrjar ágætlega,“ segir Magnús
Jónsson, verkefnisstjóri við gerð
Héðinsfjarðarganganna. Tékkneska
verktakafyrirtækið Metrostac as og
íslenska fyrirtækið Háfell ehf. vinna
verkið fyrir um það bil 5,7 milljarða
króna.
Göngin sem nú er byrjað á, milli
Siglufjarðar og Héðinsfjarðar, verða
um 3,7 kílómetrar að lengd. Undir-
búningur fyrir þau hófst í júní. Sam-
hliða vinnu við þau verða sprengd 6,9
kílómetra löng göng úr Ólafsfirði í
Héðinsfjörð. Undirbúningur fyrir
þau er hafinn og búast má við því að
sprengingar hefjist þar eftir um það
bil mánuð. Borun lýkur eftir um það
bil tvö ár en göngin verða ekki opnuð
formlega fyrr en undir lok árs 2009,
þegar öllum frágangi verður lokið.
Erfiðast að byrja
Nú vinna liðlega fjörutíu menn við
verkið Siglufjarðarmegin og á
Magnús von á að 40–50 menn verði á
báðum stöðum.
„Það er alltaf erfiðast að byrja,“
segir Magnús Jónsson um það
hvernig gengi. Í fyrstu sprengingum
er hver færsla, sem kölluð er, tekin í
tveimur til þremur sprengingum.
Sprengingar komast þó fljótlega á
fullan skrið.
Sprengingar að hefjast
í Héðinsfjarðargöngum
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Hálfnað er verk þá hafið er Bergið er boltað í gangamunnanum í Skútudal
og síðan er bergið sprautustyrkt. Bormenn eru búnir með fyrstu metrana.
Eftir Karl Sigurgeirsson
Hvammstangi | Sparisjóður Húna-
þings og Stranda er að flytja í nýja
starfsstöð á Hvammstanga. Nýja
húsnæðið er mun stærra og hent-
ugra og skapar sparisjóðnum ýmis
ný tækifæri.
Af þessu tilefni var starfsfólki,
iðnaðarmönnum og fleiri gestum
boðið til smá hófs í nýja húsnæðinu
sem er á Höfðabraut 6 á Hvamms-
tanga.
Páll Sigurðsson sparisjóðsstjóri
er bjartsýnn á framtíðarstöðu Spari-
sjóðsins. „Í nýju starfsstöðinni er
salur með fullkomnum fjarfund-
arbúnaði, sem mun nýtast starfsfólki
í ýmissi fræðslu og til að bjóða upp á
námskeið fyrir viðskiptavini, s.s. um
möguleika í rafrænni bankaþjón-
ustu. Við erum með samstarf við
Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna
(VSP), þar sem viðskiptavinum er
leiðbeint í verðbréfaheiminum.
Loks má nefna að sparisjóðurinn
er með formlegt samstarf við Spari-
sjóð Strandamanna og Sparisjóð
Vestfirðinga um ráðningu ráðgjafa,
sem er staðsettur á höfuðborg-
arsvæðinu. Í því samstarfi sé ég
mikla möguleika til framtíðar,“ sagði
Páll í samtali við Morgunblaðið.
Þreföldun húsnæðis
Starfsemi sparisjóðsins flytur nú
úr 200 fermetra starfsstöð í um 600
fm húsnæði á einu gólfi. Eldra hús-
næðið fullnægði ekki lengur kröfum
og óskum um bankastarfsemi, en
það var byggt fyrir Sparisjóðinn árið
1972. Stefnt er að sölu þess húss til
Fasteignafélagsins Borgar ehf. á
Hvammstanga, að því er fram kom
hjá Páli við athöfnina. Húsnæðið á
Höfðabraut 6 keypti Sparisjóðurinn
árið 2005 af Kaupfélagi V-Húnvetn-
inga, en þar hafði verið rekin bygg-
ingarvöruverslun Kaupfélagsins og
áður Verslun Sigurðar Pálmasonar.
Ellefu starfsmenn vinna við Spari-
sjóðinn, þar af einn í útibúi á Borð-
eyri. Innlán árið 2005 voru 3,1 millj-
arður og hagstæð afkoma sjóðsins
um 226,8 milljónir króna. Fyrri
hluta ársins 2006 er afkoman hag-
stæð um 172 milljónir eftir reiknaða
skatta.
Sparisjóðurinn, sem er að verða
níutíu ára, er eina bankastofnun hér-
aðsins og yfirtók hann innlánsdeild
Kaupfélagsins á liðnu ári. Páll sagði
þetta nýja húsnæði gefa mikla
möguleika á aukinni þjónustu við
viðskiptavini og á að geta veitt þeim
persónulegri þjónustu. Í apríl 2006
tók Sparisjóðurinn við umboði TM á
Hvammstanga og áform eru um
aukna þjónustu í framtíðinni.
Áform um að auka
þjónustu í framtíðinni
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Í stúkunni Páll Sigurðsson sparisjóðsstjóri ávarpar gesti við opnunar-
athöfnina. Stendur hann í gjaldkerastúku í nýja sparisjóðshúsinu.
»Páll Sigurðsson hefur veriðsparisjóðsstjóri frá í júlí
1995, en starfsmaður sjóðsins
frá í desember 1973. Hefur
hann unnið allan sinn starfs-
aldur við stofnunina.
Í HNOTSKURN
AUSTURLAND
Fjarðabyggð | Trúbadorahátíð Ís-
lands á nú fimm ára afmæli og
verður um helgina haldin á þrem-
ur stöðum í Fjarðabyggð.
Í kvöld hefst hátíðin í Mjóa-
firði, í Sólbrekku nánar tiltekið,
og treður þar upp Hlynur Ben
frá kl. hálfníu. Aðgangur á tón-
leikana er ókeypis og hægt er að
sigla með Fjarðaferðum frá Nes-
kaupstað kl. 20 og koma til baka
þangað um miðnætti. Þá tekur
við dagskrá í Egilsbúð með
frændunum Bjarna og Tryggva
Vilmundarsonum. Miðaverð á þá
tónleika er þúsund krónur en
frítt er fyrir gesti Mjóafjarð-
artónleikanna.
Á laugardag er fram haldið
með stórtónleikum í Egilsbúð sem
hefjast kl. 21.30 og fara fram á
tveimur sviðum. Heiðursgestur er
Bubbi Morthens og fram koma
m.a. Bjarni Tryggva, Einar Örn,
Ingvar Valgeirs, Garðar Garðars,
Hilmar Elmars, Andri götuspilari,
Tryggvi Vilmundar, Einar Þór,
Hlynur Ben, Gummi og Marinó.
Eftir miðnætti hefst „Október-
fest“ Egilsbúðar og stendur til
þrjú um nóttina.
Trúbadorahátíð Íslands 2006
lýkur á sunnudag á Brekkunni á
Stöðvarfirði kl. 21, þar sem Hilm-
ar Garðarsson trúbador tekur
lagið.
Nánari upplýsingar má fá á
vefnum www.egilsbud.is.
Trúbadorahátíð Íslands hefst í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Innlifun Bubbi Morthens er heið-
ursgestur Trúbadorahátíðarinnar.
Seyðisfjörður | „Íslendingar hafa
löngum verið andlega sinnaðir og
segja má að flestir hafi áhuga á þýð-
ingu drauma,“ segir Aðalheiður
Borgþórsdóttir á Seyðisfirði, en Sál-
arrannsóknafélag Seyðisfjarðar
stendur fyrir ráðstefnunni Á sveimi
um helgina. „Við þekkjum öll ein-
hverja sem séð hafa svipi, flestir
þurfa sálarró, slökun og frið og nán-
ast allir eru forvitnir um þessi
málefni.“
Ráðstefnan hefst í dag og stendur
fram á sunnudag og á hún að vera í
senn vettvangur ýmiss konar
fræðslu en ekki hvað síst samveru.
Aðalheiður segir einnig tilgang
hennar að kynnast hvað önnur félög
og einstaklingar eru að gera og til
þess að hafa almennt gaman af.
Spennandi og vísindalegt þing
Dr. Erlendur Haraldsson prófess-
or, dr. Björg Bjarnadóttir sálfræð-
ingur og Þórhallur Guðmundsson
miðill eru meðal þeirra er halda fyr-
irlestra á ráðstefnunni. Boðið verður
upp á jóga og kynningar á starfsemi
einstaklinga og félaga víða af land-
inu. „Þingið verður í senn faglegt og
vísindalegt, umræður verða ríkur
þáttur í dagskránni og gamanmálum
verður skotið inn á milli. Þinginu er
ætlað að ná til almennings með því
að fá upp á borðið fjölbreyttari um-
ræðu um efni sem ofangreindir fag-
menn hafa rannsakað. Þingið verður
umfram allt spennandi og skemmti-
leg samvera,“ segir Aðalheiður og
bendir á að kraftur og dulúð í hinum
einstaka fjallasal Seyðisfirði sé frá-
bær umgjörð um góða samveru.
Nánari upplýsingar um ráðstefn-
una má sjá á vefnum seydisfjordur-
.is.
Á sveimi á Seyðisfirði
Ráðstefna um andleg málefni –
vettvangur fræðslu og samveru
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Yfirskilvitlegt Horft verður í dulda
heima á Seyðisfirði um helgina. SENDUM Í PÓSTKRÖFU
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í , Skólavörðustíg 16
Borgartúni 24 - Hæðarsmára 6
Fjarðarkaupum
Lífsinslind í Hagkaupum
Heilsuhúsið Selfossi
Spektro
Multivítamín, steinefnablanda
ásamt spirulinu, Lecthini,
Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum
Ein með öllu