Morgunblaðið - 29.09.2006, Síða 22

Morgunblaðið - 29.09.2006, Síða 22
|föstudagur|29. 9. 2006| mbl.is daglegtlíf Daglegt líf brá sér í Hús- dýragarðinn þar sem bý- flugnabændur héldu fyrir skömmu uppskeruhátíð. » 28 daglegt Friðarsinninn dr. Simon Fulder hefur skrifað 14 bækur um náttúrulyf og heildrænar lækn- ingar. » 29 heilsa Edda Jónasdóttir bauð til sín í mat óperusöngvurum sem syngja í Brottnáminu úr kvennabúrinu. » 24 matur Það passar ekki hvaða vín sem er með ljúffengri hreindýra- steik. Steingrímur Sig- urgeirsson velur vínið. » 30 vín Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Frístundirnar snúast að mestu um íþróttir ogfjölskylduna enda hef ég verið að veltast ííþróttum og félagsstarfi alla mína ævi. Ég eralinn upp í ungmennafélagsanda austur á Sel- fossi og fór sjálfur að stunda íþróttir mjög ungur. Ég byrjaði svo 14 ára gamall að þjálfa yngri krakka í frjáls- um íþróttum og hef verið að því undanfarin þrjátíu ár. Núna er ég að þjálfa hjá ÍR þegar ég er ekki í vinnunni og það gerir konan mín, Þórdís Gísladóttir, einnig. Við erum með stærsta unglingahóp landsins í frjálsum íþróttum. Dæturnar tvær, Hanna og Helga, eru báðar að æfa frjálsar íþróttir og ég monta mig gjarnan af því að það sé bara einn tugþrautamaður á Íslandi, Jón Arnar Magnússon, sem hafi náð betri árangri en ég,“ segir Þráinn Hafsteinsson, íþróttafræðingur og frístundaráð- gjafi í Breiðholti. Þráinn hefur síðustu daga verið að vinna að undirbúningi Breiðholtshátíðar, sem halda á með pomp og prakt á morgun, en það er í fjórða skiptið sem slík hátíð er haldin. Breiðholt er stærsta íbúahverfi Reykjavíkur með um 22 þúsund íbúa. Þar eru fimm grunnskólar, fjórtán leikskólar, þrjú íþróttafélög og þrjú frístundaheimili svo eitthvað sé nefnt. „Við hjónin erum bæði mjög áhugasöm um uppeldi og allt það sem snýr að uppbyggingu ungs fólks almennt,“ segir Þráinn spurður út í áhugasviðið. „Góður þjálfari á fyrst og fremst að vera fyrirmynd þeirra, sem hann er að þjálfa. Hann á að vera góður í samskiptum og hann á að geta sett sig í spor þeirra, sem hann er að vinna með. Hann þarf auðvitað líka að hafa góða þekkingu á þeirri íþrótt, sem hann er að þjálfa þótt persónulega telji ég leiðtogahæfileikana og mannlegu samskiptin mikilvæg- ari þætti en tæknihlið íþróttarinnar þegar unnið er með börn og unglinga. Langbest hefur okkur reynst að setja skýrar og ákveðnar reglur með krökkunum sjálfum. Þegar sá rammi er skýr þarf hvorki að beita viðurlögum né hörku. Ég legg mikið upp úr því að virkja börnin til að byggja upp í þeim ábyrgðartilfinningu. Þau eiga ekki einvörðungu að þurfa að taka við boðum.“ Á Breiðholtshátíðinni munu tólf ára börn úr grunn- skólum Breiðholts afhenda borgarstjóra tillögur sínar að Betra Breiðholti, sem þau hafa verið að vinna með að undanförnu. Haldið var barnaþing fyrir nemendur 6. bekkjar í gær þar sem unga fólkið fjallaði um efni er tengist mannlífi og umhverfi þeirra. „Börnin hafa verið að velta því fyrir sér hvað þau geti gert fyrir hverfið sitt til að bæta það. Það er margt skemmtilegt sem kemur út úr svona vinnu. Það getur verið allt frá því að einsetja sér að vera duglegur í skólanum og góður við vini sína og fjölskyldu upp í það að taka þátt í alls konar starfi í hverfunum og ganga vel um,“ segir Þráinn. Áhugasöm Haldið var barnaþing fyrir nemendur 6. bekkjar í gær þar sem unga fólkið fjallaði um efni er tengist mannlífi og umhverfi þeirra. Leggur mikið upp úr að virkja börnin Morgunblaðið/Ásdís KJÖT í káli, eða „får i kål“, er óumdeilanlegur þjóð- arréttur Norðmanna. Í gær var opinber hátíðardagur réttarins. Af því tilefni voru Norðmenn hvattir til að bjóða vinum og vandamönnum til þessarar súpukjöts- veislu auk þess sem veitingastaðir víðs vegar um landið höfðu réttinn á matseðlinum í gær. Uppskriftin er enda einföld því aðeins þarf fimm hrá- efni í réttinn, sem skipar svipaðan sess hjá Norð- mönnum og íslenska kjötsúpan hjá okkur. „Får i kål“ 1½ kg súpukjöt 1½ kg hvítkál 4 tsk. heill pipar 2 tsk. salt 3 dl vatn Skiptið hvítkálinu í báta. Leggið kjöt og kál til skiptis í pott og stráið salti og pipar á milli laganna. Hellið vatni yfir og látið suðuna koma upp. Kjötið er látið malla á vægum hita í 1–2 tíma eða þar til það er orðið mátulegt. „Får i kål“ er framreitt rjúkandi heitt á heitum disk- um. Þeir sem vilja jafna soðið geta stráð svolitlu hveiti (1–2 msk.) á milli laganna. Og þá er bara að prófa. Kjöt í káli Þjóðarréttur Norðmenn gæddu sér á súpukjöti í gær. Besti tími dagsins: Milli hálfsjö og átta því þá er maður svo frískur og tilbúinn í daginn. Best að borða: Dísulasagna heima í eldhúsi. Haustgangan: Elliðaárdalurinn. Uppáhaldssundlaugin: Breiðholtslaugin. Fallegasti staðurinn: Ásbyrgi. Þráinn mælir með *Tilboðsverð 2006 nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. www.nicorette.is *Tilboðsverð 2006 S e p t. 2 0 0 6 Nicorette Fruitmint Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. www.nicorette.is Nýttbragð sem kemurá óvart 25% afsláttur * Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. www.nicorette.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.