Morgunblaðið - 29.09.2006, Side 24

Morgunblaðið - 29.09.2006, Side 24
matur 24 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ E dda Jónsdóttir kynnt- ist töfraheimi elda- mennskunnar í Bandaríkjunum, en þangað fór hún sem skiptinemi á unglingsárum og seinna til búsetu. „Evrópubúar hafa svo staðlaða mynd af matarmenn- ingu Bandaríkjanna. Flóran þar er einstök og eins langt frá einsleitri hamborgaraímyndinni og hægt er að hugsa sér. Gróskan þar er svo mikil og skemmtileg,“ segir Edda sem hefur lengi safnað bandarísk- um matreiðslubókum. „Ég les þær mér til ánægju en þær elstu eru ekki myndskreyttar eins og tíðkast í dag,“ segir hún brosandi en Edda leyfir ímyndunaraflinu oft að leika lausum hala í matargerðinni. „Ég fæ oft hugmyndir í bókum og blöð- um og ég hef alla tíð verið óhrædd við að bæta við og breyta. Elda- mennska er svo skapandi iðja, það er svo skemmtilegt þegar brögð eru í tafli.“ Gestgjafi að eðlisfari Edda er selskapskona með smit- andi hlátur og það kemur ekki á óvart að hún hefur gaman af því að vera í hlutverki gestgjafans. „Matur og fólk, það eru mínar ær og kýr og ég hef gert ýmislegt til þess að sam- eina þetta tvennt. Mér finnst ynd- islegt að bjóða fólki heim í mat en mér finnst líka gaman að kenna. Ég hef bæði skrifað í tímarit og eins haldið námskeið fyrir smærri hópa eins og saumaklúbba í konfektgerð og fleiru. Það er afskaplega gefandi og skemmtilegt. Það er líka ágætt mótvægi við aðalstarf mitt en ég vinn á markaðssviði Íslensku óp- erunnar. Og það voru einmitt nokkrir söngvarar í nýjustu sýningu Óper- unnar, Brottnáminu úr kvenna- búrinu eftir W.A. Mozart, sem voru svo lánsamir að fá boð hjá Eddu fyr- ir eina æfinguna. „Nei, þeir slógu hendinni ekkert á móti því. Óperu- söngvarar eru miklu sælkerar,“ seg- ir hún og hlær. „Bjarni Daníelsson óperustjóri var meira að segja svo vinsamlegur að gefa mér frí einn eftirmiðdag til þess að undirbúa og elda fyrir matarboðið.“ Ævintýri í Blöndu Matreiðslan er ástríða Eddu og augljóst að hún leggur metnað sinn í hana. Matseðillinn í boðinu var fjöl- breyttur eins og tónlistin í Brott- náminu, sem samsett er úr mörgum stílum og straumum sígildrar tón- listar á tímum Mozarts. Hráefni Eddu er þjóðlegt en útfærslan langt frá sunnudagssteikinni sem landinn á að venjast. „Ég réð mig sem kokk í veiðihús í Blöndu í Langadal í sum- arfríinu og fékk margar góðar hug- myndir þar. Þetta var dýrlegur tími í draumastarfi,“ segir hún og brosir út að eyrum. „Ég eldaði, fékk aðstoð við að skræla kartöflurnar og þurfti ekki að vaska upp. Yndislegt og allt öðruvísi en starf mitt hjá Óperunni sem er samt líka skemmtilegt. En hvílík vinnutörn! Það er enginn hefðbundinn matmálstími hjá laxveiðimönnum. Hádegismaturinn var tvíréttaður en hann snæddu þeir um tvöleytið. Þríréttaður kvöldmatur var svo borinn fram þegar nálgaðist miðnætti. Ég vann sextán tíma á dag í sumarfríinu mínu, svaf sex til sjö tíma á nóttu þessar fjórar vikur sem ég dvaldi við Blöndu en það er svo skrítið að ég kom endurnærð til baka. Á hverjum morgni þegar ég vaknaði hlakkaði ég til eldamennskunnar og að kynnast nýju og skemmtilegu fólki. Þetta var skemmtileg vertíð.“ Í huga Eddu tengist matur skemmtilegri samveru og jákvæðri stemmningu. „Vissulega huga ég að hollustunni og línunum en finnst í góðu lagi að gera sér öðru hvoru dagamun og nota smjör og rjóma,“ segir Edda sem fengið hefur við- urnefnið óperukokkur og kímir bara við því. Lax í dill- og sojasósu Fyrir 4–6 sem forréttur 500–700 g laxaflök, skorið í bita og kælt ½ bolli ólífuolía ¼ bolli sojasósa 1⁄8 bolli sítrónusafi 2–4 msk. ferskt dill eða ½–1 tsk. þurrkað negull, malaður ruccola-salatblöð eða spínat sem meðlæti Blandið ólífuolíu, sojasósu og sí- trónusafa saman ásamt dilli og neg- ul. Látið laxinn liggja í kryddleg- inum í nokkra tíma. Takið smávegis af kryddleginum frá til þess að bera fram með réttinum. Bakið síðan lax- abitana í ofni við 180°C í 15–20 mín- útur. Berið fram með ruccola- salatblöðum eða spínati.  Í boðinu var rétturinn borinn fram sem kaldur forréttur með mel- ónum og salati en hann er einnig mjög góður sem heitur aðalréttur. Edda mælir með Raimat Char- donnay-hvítvíni með réttinum. Lambalæri með myntusósu lambalæri maldonsalt svartur pipar hvítlauksrif Kryddið lærið eftir smekk og stingið í það hvítlauksrifjum. Setjið lærið í steikarfat og steikið í ofni við 200°C í 20 mínútur. Lækkið hitann þá niður í 140°C í u.þ.b. 45 mínútur. Skerið lærið niður í þunnar sneiðar. Gott er að láta lærið standa í 20–30 mínútur áður en það er skorið. Myntusósa 1 bolli hvítvínsedik 6 msk. sykur ¼ bolli mynta, söxuð Sjóðið edik og sykur saman við vægan hita í u.þ.b. 8–10 mínútur eða þar til blandan er orðin að sírópi. Hrærið af og til í blöndunni á með- an. Kælið sírópið í u.þ.b. fimm mín- útur og setjið þá myntuna út í það. Best er að saxa myntulaufin rétt fyrir notkun svo þau tapi ekki bragði. Sósan er borin fram við stofuhita.  Myntusósan er skemmtileg til- breyting frá brúnu sósunni, einföld og góð. Edda mælir með rauðvíninu Raimat Abadia með lambasteikinni. Kartöflumús Fyrir 4 1 kg bökunarkartöflur 300–400 g sætar kartöflur 2–4 msk. piparrót 1 dós sýrður rjómi salt og pipar Sjóðið kartöflurnar og búið til kartöflumús. Blandið piparrótinni saman við og saltið og piprið eftir smekk.  Sem tilbrigði má einnig nota Morgunblaðið/ÞÖK Matarást Söngvararnir kunnu vel að meta kræsingarnar. F.v. Finnur, Jamie, Angela, Bjarni óperustjóri, Edda óperukokkur, Katharina, Bjarni Thor og Snorri. Söngelskir sælkerar Morgunblaðið/ÞÖK Lax Kryddlögurinn, sem inniheldur meðal annars dill og sojasósu, gælir við bragðlaukana. Söngvarar Íslensku óp- erunnar gættu þess vel að vera ekki numdir á brott úr matarboðinu hennar Eddu Jónsdóttur, enda af miklu að missa. Í matarbúrinu hennar finna jafnt söngelskir sem laglausir ljúffengar kræsingar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.