Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 30
Eftir Steingrím Sigurgeirsson
sts@mbl.is
Hreindýraveiðitímabilinu er nú lokið og allmörg tonnin af kjötisem bíða í frystikistum og frystihólfum eftir því að lenda ápönnunni eða fara í ofninn. Íslenskt hreindýrakjöt á skiliðeðalvín og fá vín eiga betur við þetta kjöt en þau frá Bor-
deaux. Hér eru nokkur góð Bordeaux-vín sem fáanleg eru í vínbúð-
unum. Einkunnir vínanna taka líkt og ávallt mið af verði þeirra.
Chateau Haut-Ballet Canon-Fronsac 2002. Liturinn djúpur og
dökkur, eikin svífur yfir vænum sólberjaávexti. Öflugt, en hreint og
beint og aðgengilegt. 1.990 krónur. 16/20
Chateau Pibran 2001 er vín frá Pauillac á Médoc-skaganum.
Blek, blýantsydd og pennastokkur í bland við svalan sólberjaá-
vöxt og jarðveg. 3.490 krónur. 16/20
Chateau Agassac 2001 er aðgengilegt og þægilegt Médoc-
vín. Dökkur nánast sveskjuþurrkaður ávöxtur í bland sem og
súkkulaði og kaffikeimur í nefi. Mjúkt og þægilegt en þó með
góðri fyllingu. Tilbúið til neyslu en má geyma í 2–3 ár. Góð kaup.
2.690 krónur. 17/20
Les Tourelles du Longueville 2002 er „annað“ vín Chateau
Pichon-Longueville Baron. Þetta er stífur og tignarlegur Pauil-
lac, með þrumutannínum í bland við sólberjaávöxt og mikla eik.
Þarf umhellingu 2–3 tímum áður en vínið er borið fram og mun
halda áfram að batna við geymslu næstu fimm árin hið minnsta.
Mjög góð kaup. 2.960 krónur. 19/20
Chateau Cantenac Brown 2001 er eitt af stóru víngerðarhús-
unum í Margaux. Klassískt í uppbyggingu með meðaltannínum
og farið að sýna þroska, berjaávöxturinn (kirsuber og sólber) og
blóm smám saman að víkja fyrir jarðbundnari ilm og reyk.
Langt og slípað í lokin. 3.790 krónur. 18/20
Brio du Cantenac Brown 2002 er svo „annað“ vín frá
toppvíngerðarvínhúsi í Margaux. Kaffi og vindlakassi í bland við
sólberjaávöxt með byrjandi þroska. Einstaklega aðgengilegt og
drykkjarvænt. Mikið fyrir peninginn. 2.590 krónur. 18/20
Það fær svo eitt rauðvín frá Bourgogne að fljóta með í lokin,
enda geta þau ekki síður fallið vel að villibráðinni. Domaine
Pierre Guillemot Savigny-Les-Beaune Les Grands Picotons
2002 (hefur nú leyst 2001 af hólmi í hillunum) er vel gerður og dæmi-
gerður Búrgundari með rauðum og svörtum skógarberjum, kryddjurtum og
rósum í bland við vanillu. Sýrumikið með ágætum þéttleika og lengd. 2.190
krónur. 17/20
matur
30 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Ég hef nokkrum sinnumfjallað um Austur-Indíafjelagið við Hverfis-götu í gegnum árin.
Enda rík ástæða til. Ekki einungis
sú að Austur-Indíafjelagið hefur
nánast frá opnun verið einn af mín-
um uppáhaldsveitingastöðum held-
ur einnig vegna þess að staðurinn
hefur verið í stöðugri þróun og end-
urnýjun. Þrátt fyrir að hafa hitt á
ansi góða formúlu í upphafi hefur
Austur-Indíafjelagið verið á stöð-
ugri siglingu fram á við. Ég held að
það sé óhætt að fullyrða að leitun sé
að jafngóðum indverskum veitinga-
stað – og þá er ég ekki einungis að
tala um Ísland. Jafnvel þegar mat-
urinn er borinn saman við bestu ind-
versku veitingastaði London (eða
Dehli) þarf Austur-Indíafjelagið
ekkert að skammast sín. Þvert á
móti.
Þróun staðarins hefur verið í átt
að hágæða veitingastað á öllum
sviðum. Frá því að vera einfaldur og
kósí indverskur staður yfir í að vera
glæsilegur staður með smart inn-
réttingum og einstökum indversk-
um fornmunum sem veggjaprýði.
Það er meira lagt upp úr öllu en í
upphafi, ekki bara í eldhúsinu held-
ur einnig í innréttingum og borð-
búnaði. Vissulega endurspeglast
það einnig í verðlagi staðarins.
Hann er ekki lengur ódýr, en samt
sem betur fer ekki heldur mjög dýr.
Matseðillinn er nú tvískiptur.
Annars vegar eru réttir úr tandoor-
ofni og hins vegar réttir héðan og
þaðan af Indlandi, sem endurspegla
ágætlega þá breidd sem landið hef-
ur upp á að bjóða í kryddnotkun og
matargerð. Úr tandoor-ofninum
komu t.d. risarækjur tandoori
jhinga, rauðar af kryddinu og mild-
ar í bragði eftir að hafa legið í jóg-
úrtlegi fyrir eldun. Sóma sér vel
með blönduðu smátt skornu græn-
meti og hrísgrjónum.
Lambarétturinn gosht kalimirchi
brakandi heitur á laukbeði en kjötið
engu að síður ekki gegnumeldað.
Kryddblandan alveg hreint stór-
kostleg í bland við lambið, pipar,
chili ásamt garam masala og borið
fram með kóríandersósu. Einhver
skemmtilegasta útgáfan af lamba-
kjöti sem ég hef fengið lengi, hrein-
asta unun að borða það og ég vil
ganga svo langt að segja að þetta sé
einhver besti réttur sem staðurinn
hefur boðið upp á frá byrjun.
Annar lambaréttur sem varð fyrir
valinu gat ekki verið ólíkari. Kaja
Gosht Masala er dæmigerður norð-
ur-indverskur réttur sem byggist
meira á sósunni en kjötinu. Hún er
þykk og bragðmikil, rjómakennd
með flóknu kryddblöndubragði.
Ekki síður ljúffeng en fyrri réttur-
inn.
Sömuleiðis í þykkri sósu var suð-
ur-indverski kjúklingarétturinn
malabar kozhi curry þar sem kórí-
ander og karrílauf gefa tóninn í
bland við sæta kókosmjólk og
greinilegt en hófstillt chili.
Hrísgrjón koma með öllum rétt-
um en einnig er eiginlega skylda að
panta sér naan-brauð úr tandoor-
ofninum (sem ég get fullyrt eftir að
hafa ferðast víða um Indland að sé
óvíða betra en á Austur-Indía-
fjelaginu) og raitu jógúrtsósu.
Góður staður fyrir hópa
Þjónustan á Austur-Indíafjelag-
inu er alla jafna mjög góð og skil-
virk. Máltíð þarna er hvað skemmti-
legust ef hópur borðar saman
þannig að hægt er að panta sem
flesta rétti. Þeir koma ekki á diskum
heldur í sérstökum ílátum á borðið
og síðan skammta menn sér að vild á
diskinn. Ef svo ólíklega vill til að of
mikið hefur verið pantað og ein-
hverjir afgangar eru eftir á borðinu
er ekkert mál að biðja starfsfólkið
um að pakka matnum inn og njóta
svo áfram af honum daginn eftir.
Vínlistinn hefur löngum verið ein-
hver veikasta hlið staðarins og svo
er enn þótt glösin séu betri en þau
voru. Hann samanstendur fyrst og
fremst af nýjaheimsvínum úr þrúg-
unum Chardonnay og Cabernet,
sem eiga svo sem sæmilega við mat-
inn en eru innbyrðis mjög lík.
Á móti má svo sem segja að ind-
verskir vínlistar eru alla jafna mjög
óspennandi. Það væri þó kannski
ástæða til að hafa svo sem eitt ind-
verskt vín á matseðlinum? Sum
þeirra, s.s. frá vínhúsinu Sula, eru
alveg hreint boðleg og gætu verið
skemmtilegt inlegg.
p.s. Þess má geta að Austur Indía-
fjelagið hefur um nokkurt skeið ver-
ið með einfaldara útibú ofar á
Hverfisgötunni sem heitir
Austurlandahraðlestin og hefur nú
annað verið opnað í Hlíðarsmára í
Kópavogi.
Morgunblaðið/ÞÖK
Indverskt Þegar maturinn er borinn saman við bestu indversku veitingastaði í London (eða Dehli) þarf Austur-Indíafjelagið ekkert að skammast sín. Þvert á móti.
Steingrímur Sigurgeirsson
gagnrýnir veitingastaðinn
Austur-Indíafjelagið sem er við
Hverfisgötuna.
Bordeaux fyrir
hreindýrakjötið
» Íslenskt hrein-
dýrakjöt á skilið eð-
alvín og fá vín eiga bet-
ur við en frá Bordeaux.
Austur-Indíafjelagið
Hverfisgötu 56
Pöntunarsími: 552 1630
Okkar indverska gersemi