Morgunblaðið - 29.09.2006, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ANDRÚMSLOFTIÐ var þrungið spennu þeg-
ar lokur hjárennslisganganna vestan við Kára-
hnjúkastíflu runnu niður um hálfníuleytið í
gærmorgun og vörnuðu Jöklu rennslis fram
Jökuldal til ósa. Um hundrað manns voru við-
staddir atburðinn í þokusudda, m.a. starfs-
menn Landsvirkjunar og Impregilo, fjölmiðla-
fólk og landeigandi Brúar á Jökuldal.
Greiðlega gekk að renna lokunum fyrir vatns-
elginn, en farvegurinn var þar um 12 metra
djúpur. Mátti sjá hvernig kólgugrátt lygnt
vatnið safnaðist framan við Kárahnjúkastíflu
og hækkaði vatnsborð í lónstæðinu stig af
stigi, hraðast framan við stífluna fram undir
hádegi og alls um eina þrjátíu metra í gærdag.
Jökla í uppáhaldi vegna kraftsins
Jökla hefur einatt verið í uppáhaldi hjá
vatnamælingamönnum vegna hins gríðarlega
krafts síns, þrátt fyrir að vera hvorki lengsta
né mesta jökulá landsins. Sjá mátti heima-
menn og aðkomufólk hvarvetna við farveg
Jöklu virða fyrir sér hvernig vatnsborðið smá-
lækkaði, en til marks um hraða árinnar frá
Kárahnjúkastíflu til sjávar tók það dropa í
efsta lagi árinnar um 20 klukkustundir að
renna frá stíflunni til árósa. Nánast ekkert
vatnsmagn kemur nú í árfarveginn á kaflanum
frá stíflustæðinu að Brú á Jökuldal, en eftir
það renna nokkrar dragár í hann og mynda
einhvers staðar á milli 50 og 60 rúmmetra
meðalrennsli alls við ósa.
Ómar Ragnarsson sté um borð í örk sína um
2 km ofan við Kárahnjúkastíflu í gærmorgun
og lónaði þar á meðan hjárennslisgöngunum
var lokað. Honum var meinað að sigla niður
ána innan vinnusvæðisins við Ytri-Kárahnjúk,
en segist nú kvikmynda hið deyjandi lífríki
þegar náttúrumyndir hverfi og vatnið taki
hvern fossinn á fætur öðrum. Hann sagði dag-
inn einn hinn dapurlegasta í sögu þjóðarinnar
og með þessu gengið freklega á hlut ófæddra
Íslendinga. „Hér eru að hefjast mestu mögu-
legu umhverfisspjöll, óafturkræf, sem orðið
hafa í þessu landi. Mátt hefði fá orku á skap-
legri hátt og spjöllin því unnin að þarflausu.“
Heilborun aðrennslisganganna yfir í
Fljótsdal lýkur í næsta mánuði
„Slagurinn er rétt að byrja, því nú er að
hefjast kapphlaup erlendra þjóða sem stúta ís-
lenskri náttúru svo þær geti varðveitt sína“
heldur Ómar áfram og segir enn hægt að
hætta við og fram væru komnar hugmyndir
um aðra nýtingu mannvirkjanna við Kára-
hnjúka sem þyrfti að ræða áfram.
Eftir að búið var að renna stállokunum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gleði Agnar Olsen, Sigurður Arnalds, Gianni Porta og Jóhann Kröyer fagna áfanganum.
Morgunblaðið/RAX
Vegferð Jökla rennur frá Brúarjökli í suðvestri að Ytri Kárahnjúk þar sem hún brýtur á stíflunni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Krafti Jöklu veitt í Hálslón
Fjöldi fólks við Kárahnjúka og á Jökuldal fylgdist með jökulvatninu sjatna og Hálslóni skapast hægt
en örugglega þegar lokum var rennt fyrir hjáveitugöng Jökulsár á Dal vestan við Kárahnjúkastíflu
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Lokað fyrir Lokum var rennt fyrir hjáveitugöng Jöklu. Ekki svipur hjá sjón Jökulsprænan ein eftir af Jöklu í nú manngengum botni Hafrahvammagljúfurs.