Morgunblaðið - 29.09.2006, Side 35

Morgunblaðið - 29.09.2006, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 35 tveimur fyrir hjárennslisgöngin var farið í að steypa upp í raufar ofan við lokurnar og jarð- efnum rutt niður framan við lokurnar vatns- megin til að hindra leka inn í göngin. Næstu daga verður steyptur gríðarmikill 15 metra langur tappi inni í göngunum til að hindra að vatn úr lóninu sleppi inn úr þeim. Lónið fyllist fyrst við Kárahnjúkastíflu og svo teygir það sig inn fyrir vinnusvæðið, Sandfell og inn með lóninu langleiðina að jökli. Lónið fer að sleikja munna aðrennslisganganna sem liggja yfir í Fljótsdal um áramót, en fyrst og fremst mun dalbotninn fara undir vatn í vetur og fylling lónsins taka um ár. Fylgjast má með fram- vindu lónsfyllingarinnar af útsýnispalli á Sand- felli fram á næsta sumar, sem og af vegi inn með lónstæðinu austanmegin og langleiðina inn að Brúarjökli. Öllum helstu fram- kvæmdum við Kárahnjúkavirkjun lýkur um mitt næsta ár. Framundan er að ljúka heil- borun aðrennslisganga, en um 900 metrar eru nú óboraðir og búist við að því verki ljúki í næsta mánuði. Vinna við styrkingar og frá- gang í aðrennslisgöngum er þegar hafin. Þá verður steypukápa Kárahnjúkastíflu kláruð í nóvember. Auk frágangs verður unnið að Jök- ulsárveitu austan Snæfells næstu tvö árin, en hún miðlar vatni af Hraunasvæðinu. Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/RAX Í HNOTSKURN »Rennsli Jökulsár á Dal var í gær-morgun stöðvað við Kára- hnjúkastíflu og rennur áin nú frá Brú- arjökli inn í lónstæði Hálslóns. »Fólk ýmist fagnaði atburðinum ígær eða mótmælti honum, t.a.m. með kertafleytingu á Lagarfljóti og Ómar Ragnarsson sigldi bát sínum Örkinni við annan mann vestarlega í lónstæðinu. »Hálslón fyllist á einu ári og máfylgjast með framgangi þess frá tveimur stöðum við lónstæðið utan vinnusvæða. »Nokkrar dragár renna í farvegJöklu neðan Brúar á Jökuldal og mynda þannig myndarlega berg- vatnsá. »Framundan er að ljúka heilborunaðrennslisganganna yfir í Fljóts- dal, ljúka vatnskápu stíflunnar og frá- gangur og Jökulsárveita. Morgunblaðið/RAX Breyting Vatnsborð Hálslóns næst Kárahnjúkastíflu hafði stigið hátt í 15 metra um nónbil í gær. ENGRA mótmælenda varð vart í gærmorgun við Kárahnjúkastíflu þegar lokur voru settar fyrir Jökulsá á Dal og byrjað að fylla í Háls- lón. Ómar Ragnarsson sigldi þó örk sinni til mótmæla nokkru ofar í farvegi Jöklu innan lónstæðisins. Íbúar á Fljótsdalshéraði og í Fjarðabyggð flögguðu sumir hverjir í gær við hús sín til að fagna fyllingu Hálslóns. Aðrir mótmæltu ör- lögum Jöklu og virkjunarframkvæmdinni allri með því að kveikja á kertum með trega í hjarta og fasi við Lagarfljót í gærkvöld. Mót- mæli fóru einnig fram í Reykjavík á sama tíma og er jafnframt skemmst að minnast fjöl- mennra mótmælaganga í Reykjavík, á Egils- stöðum, Ísafirði og Akureyri fyrr í vikunni. Viðmælendum Morgunblaðsins hjá Lands- virkjun og Impregilo bar saman um að víst væri það mikið mál að stöðva rennsli vatns- falls, en það hefði verið fyrirséður hluti fram- kvæmdarinnar og því komið nokkuð á óvart hversu sterk viðbrögðin voru á síðustu vikum og dögum. Ólíkar kenndir hafa vísast bærst og bærast enn í brjósti margra Íslendinga gagnvart fyllingu lónsins í þessari mestu framkvæmd Íslandssögunnar, þar sem Jökla er orðið eitt gildishlaðnasta vatnsfall landsins fyrr og síðar. Jökla mun eftir þetta aðeins renna í sinn gamla farveg um yfirfall þá er lónið verður yfirfullt í góðum vatnsárum. Áin gildishlaðin Virkjunarsinnar flagga Hálslóni til heiðurs en mótmælendur trega Jöklu og tapaða náttúru Morgunblaðið/Brynjar Gauti Vatnsmyndun Ómar Ragnarsson og Völundur Jóhannesson sigldu milli Sauðár og Tröllagilslæks. Nýtt landslag Aurburður eftir Jöklu í tómum hjáveitugöngum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.