Morgunblaðið - 29.09.2006, Síða 42

Morgunblaðið - 29.09.2006, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hlín Magn-úsdóttir fæddist á Króki í Selárdal í Arnarfirði 7. maí 1921. Hún andaðist á LSH við Hring- braut 27. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Hildur Bjarnadótt- ir, f. 1892, d. 1939, og Magnús Krist- jánsson, f. 1888, d. 1966. Hún ólst upp í Reykjavík hjá föð- urömmu sinni Berg- ljótu Sigurðardóttur og föð- ursystkinum, þeim Sigríði, Ingibjörgu, Marteini og Valdi- mari, en dvaldi á sumrin hjá for- eldrum sínum í Langabotni í Geir- þjófsfirði. Systkini hennar eru: Auður, Guðrún, Björn, Sverrir, Hrefna (tvíburasystir Hlínar), Kristján, Valdimar, Gísli, Kristín gift Tore Skjenstad, hún á tvo syni frá fyrra hjónabandi, þá Inga Tandra og Úlf Teit Traustasyni, 4) Margrét Hlín, hún eignaðist þrjú börn, stúlkubarn, f. 2. desember 1975, d. 19. janúar 1976, Hlín og Alexander Huga með Leifi Jóels- syni. Stjúpdóttir Hlínar, dóttir Sveins frá fyrra hjónabandi með Andreu Davíðsdóttur, er Hrafn- hildur, gift Sigurði Magnússyni, þau eiga sex syni, Magnús, Andrés Örn, Sigurð Braga, Jóhannes, Davíð Rúnar og Jón Bjarka. Af- komendur Hlínar og Sveins eru samtals fimmtíu. Eftir lát Sveins hélt Hlín heimili með Margréti yngstu dóttur sinni og börnum hennar. Utan heimilis starfaði Hlín lengst af við sauma- skap, einnig á Borgarspítalanum við ræstingar og í býtibúri, en síð- ustu starfsár sín vann hún á leik- skóla. Hún söng einnig í kórum, lengst í kirkjukór Kópavogskirkju. Hlín verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. og Vésteinn. Eftirlif- andi eru Guðrún, Hrefna, Kristín og Vésteinn. Hlín giftist 17. júlí 1942 Sveini Jónssyni, f. 9. október 1910, d. 9. nóvember 1977 . Foreldrar hans voru Júlíana Sveinsdóttir, f. 1884, d. 1967, og Jón Sigfússon Berg- mann, f. 1874, d. 1927. Hlín og Sveinn bjuggu í Reykjavík og Kópavogi og eign- uðust fjórar dætur. Þær eru: 1) Bergljót Svanhildur, gift Kjartani Sigurjónssyni, þau eiga þrjá syni, Svein, Sigurjón og Sindra Pál, 2) Guðrún Arnhildur, gift Valdimari Þorsteinssyni, þau eiga fimm börn, Svein Kára, Pétur Hrafn, Þorstein Braga, Guðrúnu Tinnu og Ingu Hlín, 3) Sigríður Hulda, Við fráfall tengdamóður minnar leita minningarnar á hugann. Nú eru þau umskipti orðin að hún hefur kvatt þetta jarðneska líf og gengið á vit annars og æðra tilveru- stigs laus við þjáningarnar. Hlín var af þeirri kynslóð sem ólst upp á fyrri hluta síðustu aldar en bernskustöðvar hennar voru í Reykjavík hjá föðurömmu sinni og föðursystkinum. Hún dvaldist þó gjarnan á sumrin hjá foreldrum sín- um í Langa-Botni í Geirþjófsfirði. Það var gaman að ræða við hana um bernsku- og æskuár hennar og fá þar með innsýn í þá veröld sem var. Þegar ég kom inn í fjölskylduna 1962 bjuggu þau hjónin í Lindar- hvammi 11 í Kópavogi en það hús höfðu þau byggt af mesta dugnaði, því fylgdi stór lóð en þau hófust strax handa við að rækta hana og fegra. Garðurinn var þeirra líf og yndi og samhent hlúðu þau að jurt- unum og glöddust yfir því að sjá þær dafna og þroskast. Ekki voru það einasta jurtirnar sem döfnuðu og þroskuðust í Lind- arhvammi, dæturnar áttu þarna sín bernsku- og æskuár, en þeim bjuggu þau hjón gott heimili með góðum bókakosti, þar var sungið og spilað og hlustað á tónlist en þau hjónin voru bæði miklir listunnend- ur. Á síðustu árunum í Lindar- hvammi lagðist skuggi yfir til- veruna, Sveinn missti heilsuna og erfiðlega gekk að ná endum saman fjárhagslega. Því var gripið til þess ráðs að selja húsið. Þar með fór garðurinn góði og sá gleðigjafi sem garðræktin hafði verið þeim hjón- um. Eftir að Sveinn lést hélt Hlín heimili með Margréti yngstu dóttur sinni og átti stóran þátt í uppeldi barna hennar, svo að segja mætti að hún hafi alið upp tvær kynslóðir. Hlín var listhneigð og eftir hana liggja nokkur myndverk sem prýða heimili dætra og barnabarna falleg vatnslita- og olíumálverk sem bera vott um hæfileika sem vert hefði verið að rækta betur en til þess gafst ekki tími eða tækifæri í önn daganna. Alltaf var skemmtilegt að ferðast með henni og fylgjast með hve hún naut hverrar stundar, eink- um þegar hún dáðist að skrautjurt- um og gróðri í hlýrri löndum að ógleymdum listasöfnunum og kirkj- unum. Einnig vakna minningar um ýmis ferðalög innanlands og hvað henni var eiginlegt að laga sig að öll- um aðstæðum, fannst alltaf gaman og alltaf var veðrið gott þótt rigndi og blési, það fannst henni bara hressandi, upplifði allt sem ævin- týri. Dvölin í Súðavík í fyrrasumar, rétt áður en hún veiktist, er ljúf í minningunni. Hún var þar á heima- velli, vestfirska náttúrufegurðin var henni inngróin frá blautu barnsbeini og allt var gott og skemmtilegt jafnt söngur mófuglanna sem mávagargið en ekki síst að stunda spilamennsku með langömmubörnunum. Hún var lengst af heilsuhraust þar til í desember 2005 að hún greindist með sjúkdóm þann sem nú hefur lagt hana að velli eftir erfiða baráttu. Alltaf skyldi hún kveðja okkur er við í fjölskyldunni heim- sóttum hana, með sinni vanalegu umhyggjusemi: „Farið þið nú var- lega og Guð blessi ykkur.“ Nú lifir aðeins minningin eftir og þakklætið fyrir samfylgdina ásamt voninni um endurfundi í blómagarði eilífðarinnar. Kjartan Sigurjónsson. Ég man öll kvöldin með þér sem þú stóðst við gluggann, stundum tímunum saman, og horfðir á lit- brigði himnanna mála sig rólega í svefn. Slokknandi ljós þeirra kveikti nýja og nýja gleði í augum þínum, undur eins og í augum lítilla barna að horfa á jólatré skreytt, kvöld eftir kvöld, ár eftir ár. Þau eru nú slokknuð og horfin, lit- brigði ótal kvölda, fjólubláir, „lilla- bláir“ eins og þú kallaðir það, bleikir og jafnvel þessir undarlegu appels- ínugulu glampar sem blikuðu svo skært eins og þeir héldu að það væri að koma dagur og þeir væru dýrasta roðagull dögunarinnar. Þeir eru nú allir slokknaðir, litir ótal kvölda, en gleðin í augum þínum, þegar þú tókst við þeim eins og þessi gjöf frá Guði sem þeir voru, slokknar aldrei. Brosin á vörum þínum þegar þú tókst við gjöfum skapara þíns, brosin í augum þínum, bjartari og fegurri en allir litir himnanna, roðagylltir, bleikir, fjólubláir, lillabláir, purpura- litir, bláir, gylltir, þau slokkna aldrei, brosin þín. Þau munu lifa og lýsa í minningum okkar sem elskuðum þig, þau munu loga þar glatt og hlýja okkar um hjartaræturnar að eilífu. Og það sem þau kenndu mér, þessi bros, það mun aldrei slokkna, fölna, visna né deyja. Þau kenndu mér að kunna að meta það sem virkilega skiptir máli í líf- inu. Þau eru líka horfin ofan í moldina, öll blómin þín sem þú hafðir sérstaka hæfileika til að hlú að og láta blómstra. Þú gast komið til blómum frá heitu löndunum og látið vaxa og dafna í eldhúsgluggum á Íslandi. Garðar þínir voru alltaf fullir af blómum og berjum. Þær eru kannski horfnar núna pelígóníurnar þínar og rósirnar og öll hin blómin sem þér þótti svo vænt um, en gleði þín yfir þeim, brosin þín hlýju, þegar þú samgladdist þeim yfir blómstrum þeirra, vinanna þinn blómanna sem þú talaðir stundum við, því þú kunnir að meta þau, þau slokkna aldrei né deyja, blómstrandi brosin þín lifa með okkur öllum sem elskuðu þig og halda áfram að springa út að eilífu. Sólin sest á hverju kvöldi. Stjörn- urnar hverfa að morgni. En birtan og ylurinn frá brosum þínum, rödd- inni þinni, hlátri þínum, augum þín- um hverfur okkur aldrei. Það er svo margt sem þú kenndir mér að meta sem hefur gert líf mitt ríkara. Tónlist, söngur, leikur, upplestur ljóða, dans, náttúran, matargerð, mannlífið. Og þú kenndir mér fal- legar bænir. Þú hafðir mikla og margvíslega hæfileika og náttúru- lega leik- og sönggleði. Að heyra þig syngja var ógleymanlegt. Oft söngstu „Suður um höfin“. Þú syng- ur enn. „Þú alltaf munt lifa og aldrei bresta þau bönd sem bundið þig hafa við himnanna sólgyllta strönd.“ Þú lifir í mér og þinn söngur lifir í mínum söng. Hann deyr aldrei söngurinn þinn. Ég man eftir öllum yndislega matnum sem þú eldaðir. Við höfum nú tekið af öllum borðunum og jóla- kertin eru brunnin niður en ylurinn sem var handan við hitann af jóla- steikinni þinni, hrísgrjónagrautn- um, hverju sem það var, stórt og há- tíðlegt eða „smærra“ en engu að síður verðmætara, kærleikurinn sem þú bjóst matinn handa okkur til með, hann mun áfram brenna í hjörtum okkar, rýma fagurlega við bjarta, heita daga, þegar þú verður með okkur í anda á gleðistundum og ylja okkur eigi síður á einmanaleg- um köldum kvöldum. Kærleikurinn sem matur og drykkur er borinn fram með, hverf- um ekki með matnum og drykknum sjálfum. Kakóbollarnir klárast á köldum vetrarkvöldum en ylurinn í hjartanu verður alltaf eftir. „Drekk- ið að þessu vatni og yður mun aldrei framar þyrsta“ sagði hann sem breytti vatni aftur í kærleika. Ég þakka Guði fyrir að hafa verið samferða þér á kvöldi lífs þíns og fá að fylgjast með þínum fallegu lit- brigðum á leið þinni inn í hvíldina. Og ég veit að ömmusólin hans Guðs er ekki sest. Hún lýsir hinum megin og ef ég bara loka augunum finn ég að hún er þarna ennþá. Lífslista- maðurinn hefur lokið sýningu sinni og tjaldið er fallið. Sólin lýsir áfram hinum megin við næturtjöldin. Og ég veit að hvíldin þín verður full af kátínufullum dansi og angan blóma. Og ég mun alltaf vera vinur vina þinna. Hlín Leifsdóttir Okkur langar í örfáum orðum að kveðja vinkonu okkar Hlín Magn- úsdóttur. Við kynntumst Hlín í gegnum dóttur hennar og vinkonu okkar, en fljótlega eftir góða við- kynningu fórum við að taka upp á því að halda svokölluð drottningar- boð. Í því fólst að við buðum mæðr- um okkar sem allar þrjár voru ekkj- ur til margra ára, í flottan mat. Þar tjölduðum við öllu sem til var að gera þeim eftirminnilega kvöld- stund. Þetta féll í mjög góðan jarð- veg hjá drottningunum okkar og ekki varð gleðin minni þegar tvær þeirra áttuðu sig á því að þær höfðu unnið saman í Belgjagerðinni í gamla daga og var margt spjallað um margar skemmtilegar uppákom- ur og ýmislegt frá æskuárunum. Hlín var ávallt hæg og ljúf í við- móti og hún svo sannarlega naut þess að vera í góðra vina hópi, njóta ljúfra veitinga og tónlistar. Þessi boð héldu áfram í mörg ár og alltaf jafn ánægjuleg. Hlín hafði einstakt yndi af blómum og gróðri yfirleitt og við munum alltaf eftir því þegar hún og Sigríður Hulda vinkona okk- ar komu gangandi sumarkvöld eitt er sól skein í heiði að Hlín segir um leið og hún bendir á blómabeð með mörgum blómstrandi valmúum, „nei, sjáiði hvernig valmúinn skelli- hlær í sólinni“. Þetta var svo lýsandi fyrir Hlín og þá innilegu gleði sem gróðurinn gat veitt henni. Síðasta minning sem við höfum um Hlín er að hún var að segja okkur frá til- hlökkun sinni yfir að flytja á Hrafn- istu í Reykjavík en þar hafði hún fengið inni og ætlaði að flytja innan skamms. „Þar er nefnilega svo góð gluggakista að ég get haft blóm í glugganum.“ Við hétum því þá að færa henni pottablóm í glugga- kistuna í innflutningsgjöf. Ekkert varð af því þar sem hún lést áður, en við sjáum hana vel fyrir okkur dansa við Svein manninn sinn í blómagarði himna eins og Sigríður Hulda sagði þegar hún tilkynnti okkur lát móður sinnar. „Nú er hún mamma farin að dansa við pabba í rósagarðinum í paradís“. Blessuð sé minning Hlínar. Við hjón vottum af- komendum samúð okkar. Halldór og Hulda. Hlín Magnúsdóttir REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Ástkær móðir okkar, ANNA M. G. SUMARLIÐADÓTTIR, Borg í Garði, verður jarðsungin frá Útskálakirkju laugardaginn 30. september kl. 13.00. Halldór, Gylfi, Tómas og Kristjana Þorsteinsbörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR KRISTINSSON fyrrv. kaupmaður, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 24. september verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni í dag, föstudaginn 29. september, kl. 11.00. Erna Haraldsdóttir, John Moore, Sigrún Magnúsdóttir, Jón Helgason, afabörn og langafabörn. Elskuleg eiginkona mín og systir okkar, LAUFEY BJARNADÓTTIR frá Dalsmynni, Kjalarnesi, andaðist þriðjudaginn 5. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Grundar fyrir góða umönnun hin síðustu ár. Guðjón Kr. Einarsson, systkini hinnar látnu. Elskulegur sonur minn, eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, ODDUR SIGURÐUR INGVARSSON, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 13. september. Útför hans fór fram í Brejning, Jótlandi, Danmörku, föstudaginn 22. september Soffía Axelsdóttir, eiginkona, börn, tengdabörn og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.