Morgunblaðið - 29.09.2006, Side 43

Morgunblaðið - 29.09.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 43 ✝ Erla KristínSigurðardóttir fæddist á Akureyri 4. júní 1931. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 18. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Lovísa Ágústa Pálsdóttir og Pálmi Steingrímsson. Kjörforeldrar Erlu Kristínar voru Steinunn Valdi- marsdóttir og Sig- urður Gíslason í Hvammi í Hrís- ey. Hinn 7. nóvember 1953 giftist Erla Kristín Jó- hanni Sigurbjörns- syni og bjuggu þau allan sinn búskap í Hrísey. Börn þeirra eru Sigurður, f. 8. júní 1953, Steinunn, f.12. júlí 1954, Sól- veig, f. 1. júní 1957, Lovísa, f. 13. júní 1959, Jóhann Pétur, f. 7. febrúar 1963 og Þröstur, f. 7. ágúst 1969. Barna- börnin eru 18 og barnabarnabörn 3. Útför Erlu Kristínar verður gerð frá Hríseyjarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku mamma. Þá er komið að kveðjustund. Það er vissulega óvænt að standa í þessum sporum nú eftir stutt veik- indi hjá þér. Þó við eigum öll að heita full- orðin og vitum að dauðinn er óum- flýjanlegur er eins og maður sé aldrei tilbúinn til að takast á við hann þegar á reynir. Góðar minningar frá liðnum ár- um koma upp í hugann á þessari stundu, minningar frá bernskuár- um okkar og einnig síðar. Þú varst ein af þeim mæðrum sem lengst af varst heimavinnandi eins og svo margar mæður á þeim tíma voru, enda var gott að koma heim og hafa þig til staðar þegar við vorum börn. Síðan liðu árin og við fluttum að heiman eitt af öðru og að lokum voruð þið pabbi orðin tvö eftir. Þú fylgdist alltaf vel með þínu fólki, börnum, ömmubörnum og lang- ömmubörnum. Þú gladdist þegar allt var í lagi en hafðir áhyggjur ef eitthvað bjátaði á einhver staðar. Það verður skrítið að koma í Hólabrautina og sjá þig ekki í horninu þínu með handavinnuna þína, en minningarnar lifa og þær munum við geyma um ókomin ár. Elsku mamma, við systkinin vilj- um þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Hvíl í friði og megi guð geyma þig. Mamma mín, ég minnist þín að morgni dags er sólin skín og sendir birtu á sæ og jörð og sveipar stafagulli fjörð. Þú straukst mér í bernsku um brá, blítt og hlýtt varð allt að sjá, allt svo hljótt og undur rótt þá yfir færðist nótt. Mig þú signdir mjúkri hönd, myrkrið hvarf í draumalönd. Tilveran eitt ljúflingslag leikur í minni sérhvern dag. Þau eru liðin þessi ár, og þínar hafa lokast brár. Í mínum huga ertu enn, að þér hændust dýr og menn sem ekki mikils máttu sín. Svo minnast vil ég alltaf þín. (Helga Finnsdóttir) Börnin þín. Elsku amma, mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum frá mér til þín. Ég á svo margar góðar minn- ingar um þig í húsinu ykkar í Hrís- ey. Þegar við sátum ég, þú og mamma, og gerðum handavinnuna okkar og spjölluðum saman um allt milli himins og jarðar. Mér fannst alltaf svo notalegt þegar ég sat hjá þér við stóra gluggann og við horfðum á fólkið sem labbaði framhjá. Þú sagðir mér hvað fólkið hét, því þú þekktir næstum alla í eyjunni. Mér er svo minnisstætt að þú gafst okkur krökkunum alltaf kringlu og mjólk áður en við fórum að sofa. Það tilheyrði þegar maður kom til ykkar í Hrísey. Ég mun geyma allar góðu minningarnar um þig í hjarta mínu og ég mun hugsa til þín hvern dag til æviloka. Ég kveð þig með þessum sálmi, elsku amma mín. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (Valdimar Briem.) Þín Karitas. Kveðja til fóstursystur Erla, góða Erla! ég á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kveldljóð, því kveldsett löngu er. Úti þeysa álfar um ísi lagða slóð. Bjarma slær á bæinn hið bleika tunglskinsflóð. Erla, hjartans Erla, nú ertu þæg og góð! Hart er mannsins hjarta, að hugsa mest um sig. Kveldið er svo koldimmt, ég kenndi í brjósti um mig. Dýrlega þig dreymi og drottinn blessi þig. (Stefán frá Hvítadal) Ég votta Jóa, börnum, tengda- börnum, barnabörnum og barna- barnabörnum dýpstu samúð mín. Friðrik. Það er bæði ljúft og skylt að minnast elskulegrar mágkonu, Erlu Sigurðardóttur frá Hrísey, sem lést á sjúkrahúsi í Reykjavík 18. sept. sl. eftir stutta sjúkdóms- legu. Hún hafði lengstum verið heilsuhraust og þrekmikil og því komu veikindi hennar og andlát okkur að óvörum. Nú er hún horfin úr þessu jarðlífi og hennar er sárt saknað af fjölskyldu, vinum og vandamönnum. Hugurinn líður hálfa öld aftur í tímann og rúmlega það þegar þau kynntust, Jóhann bróðir og Erla. Hún vann þá við verslunarstörf á Akureyri. Þá hafði hún lokið námi frá Húsmæðraskólanum á Ísafirði og tekið gagnfræðapróf frá Gagn- fræðaskóla Akureyrar. Erla vann sig inn í hug og hjörtu okkar, hún var hlý og yfirlætislaus í framkomu en grunnt á glaðværð- inni. Hún var kjördóttir og einka- barn foreldra sinna, heiðurs- hjónanna Steinunnar Valdimarsdóttur og Sigurðar Gíslasonar í Hvammi í Hrísey. Á því heimili ríkti gestrisni og góð- vild og það var einstaklega skemmtilegt að heimsækja þau. Það sama má segja um heimili Erlu og Jóhanns. Erla og Jóhann stofnuðu heimili í Hrísey og bjuggu þar alla tíð. Fyrstu misserin í Hvammi í skjóli foreldra hennar og þar fæddust fyrstu börnin. Þau komu sér upp eigin húsi sem þau kölluðu Sól- vang. Það var stutt á milli Sól- vangs og Hvamms og mikill sam- gangur. Erla var mikil húsmóðir og bjó fjölskyldunni fallegt heimili. Hún var mikil handavinnukona, saumaði út og heklaði hvenær sem hún átti frjálsa stund. Jóhann stundaði sjómennsku og útgerð og það gefur auga leið að mikil ábyrgð hefur hvílt á Erlu þegar hann var fjarverandi vegna starfa sinna. Árin liðu og þau keyptu sér stærra hús þar sem heimili þeirra hefur staðið síðustu áratugina. Börnin urðu sex, þau uxu úr grasi og fóru að heiman og stofn- uðu eigin fjölskyldur. Öll eru þau dugnaðar- og myndarfólk. Þau eru öll búsett fjarri heimabyggð nema tveir synir sem eru búsettir með sínar fjölskyldur í Hrísey og starfa við útgerðina með föður sínum. Við minnumst heimsóknanna til þeirra hjóna gegnum tíðina. Það var alltaf tilhlökkunarefni að hitta þau og frændfólkið í Hrísey. Okkur er efst í huga síðasta heimsóknin á 75 ára afmælisdegi Erlu 4. júní sl. Dæturnar og fjölskyldur komu úr Reykjavík og það var útbúin veg- leg veisla í tilefni dagsins. Erla var glöð og kát og naut dagsins umvaf- in ástvinum sínum. Það var fagurt veður þennan sumardag og hann verður okkur ógleymanlegur. Við sendum kærum bróður og fjölskyldu hans hugheilar samúð- arkveðjur. Þórunn og María Sigríður. Elsku Erla. Með söknuð í hjarta kveðjum við þig í dag en varðveitum minningu um ljúfa konu sem vakti yfir vel- ferð allra. Minningar mínar um þig eru samofnar æskuminningum um Hrísey og heimsóknum til ykkar Jóa frænda. Það var alltaf svo spennandi að fara út í Hrísey, einhver ævintýra- ljómi yfir öllu. Keyra út á Ár- skógssand, taka ferjuna út Hrísey – stundum kljást við sjóhræðslu – stíga svo á land á þessa fallegu eyju þar sem kyrrðin og frelsið rík- ir. Heimsækja Erlu, Jóa frænda og öll frændsystkinin mín. Flest eru þau eldri en ég og voru því miklar fyrirmyndir í einu og öllu. Siggi með sín hlýju en glettnu augu eins og Jói frændi. Systurnar Steina, Solla og Lovísa, sem líkt og mamma þeirra voru alltaf að búa til eitthvað fallegt í höndunum. Ljúfmennið Jóhann Pétur sem stundum reyndi að koma allskyns furðusögum úr eyjunni inn í höf- uðið á mér og vissara var að taka sögurnar trúanlega. Þröstur litli frændi, yngstur þeirra systkina, sem fór að stunda sjóróðra korn- ungur. Ég man ekki hvað hann var gamall þegar hann byrjaði að róa, kannski 12 ára, en ég man að hann átti að halda sig rétt við land í sjónlínu við eldhúsgluggann henn- ar Erlu sem fylgdist vökulum aug- um með litla stráknum sínum. Ég minnist ferðar með Erlu út í Hvamm til foreldra hennar, Stein- unnar og Sigga, þar sem hún sinnti veikri móður sinni. Eftir að Stein- unn féll frá tóku þau Erla og Jói föður hennar undir sinn verndar- væng. Þannig minnist ég Erlu, ákveðinnar í fasi með sínar skoð- anir og meiningar á málunum, en ávallt með hugann við alla. Vakin og sofin yfir stóru fjölskyldunni sinni. Elsku Jói frændi, Siggi, Steina, Solla, Lovísa, Jóhann, Þröstur, tengdabörn og barnabörn. Við mæðgur sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Blessuð sé minning Erlu. Rósa og dætur. Erla Kristín Sigurðardóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, RANNVEIG EIÐSDÓTTIR, Borgarhóli, Svalbarðseyri, verður jarðsungin frá Svalbarðskirkju laugardaginn 30. september kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Heimahlynningu á Akureyri njóta þess. Karl Á. Gunnlaugsson, Oktavía Jóhannesdóttir, Birna Gunnlaugsdóttir, Stefán Einarsson, Hreinn Gunnlaugsson, Elsa Valdimarsdóttir, Eiður Gunnlaugsson, Sigríður Sigtryggsdóttir, Hildur Eiðsdóttir, Eiður Eiðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HÖRÐUR SIGURJÓN KRISTÓFERSSON bifvélavirkjameistari, Kópavogsbraut 1b, verður jarðsunginn föstudaginn 29. september. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið eða SOS barnaþorp. Pálína Stefánsdóttir, Valborg Harðardóttir, Eggert Jóhannsson, Kristín Harðardóttir, Bjarni Halldórsson og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG BJARNADÓTTIR sjúkraliði, Rofabæ 45, Reykjavík, sem andaðist á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 21. september, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 3. október kl. 13.00. Elsa Þ. Axelsdóttir, Pálmi Ólason, Björk Axelsdóttir, Jón S. Pálsson, Þyri Axelsdóttir, Ásgeir Guðnason, Davíð Axelsson, Selma K. Albertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR, Granaskjóli 12, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 2. október kl. 15:00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Parkin- son-samtökin. Guðmundur Pétursson, Þórunn Kristjánsdóttir, Ingibjörg Pétursdóttir, Einar Gylfi Jónsson, Sigurður Pétursson, Hansína Hrönn Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HENNING ÞORVALDSSON húsasmíðameistari, Hamrabyggð 14, Hafnarfirði, andaðist á heimili sínu sunnudaginn 24. september. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 2. október kl. 13:00. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins, sími 540 1900. J. Steinunn Alfreðsdóttir, Jóna Júlía Henningsdóttir, Adólf Adólfsson, Henning Henningsson, Ása Karin Hólm, Þorvaldur Jón Henningsson, Henný Jóna, Vigfús, Arnar Hólm, Lovísa Björt og Hilmar Smári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.