Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 49

Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 49 Þrír Frakkar náðu að landa næsta öruggum sigri í Bikarkeppn- inar með 175 gegn 71 í úrslitaleik gegn Hermanni Friðrikssyni. Sveit Hermanns gaf reyndar leikinn eftir 3 lotur þegar munaði 104 impum. Spilarar í sveit Þriggja Frakka voru Kristján Blöndal, Ísak Örn Sigurðsson, Ómar Olgeirsson, Steinar Jónsson, Stefán Jónsson og Valur Sigurðsson. Kristján, Ómar, Steinar og Stefán eru að vinna sinn fyrsta bikarmeistaratitil. Bridsfélag Selfoss og nágrennis Starfsemi vetrarins hófst með að- alfundi 22. september. Stjórnin var endurkjörin og skipa hana því Garðar Garðarsson formaður, Kristján Már Gunnarsson gjaldkeri, Ólafur Steinason ritari, Gunnar Þórðarson varaformaður, Björn Snorrason meðstjórnandi og Brynj- ólfur Gestsson meðstjórnandi. Eftir fundinn var spilaður 11 para tvímenningur. Efstu pör urðu: Björn Snorrason – Kristján M. Gunnarss. 33 Anton Hartmannss. – Pétur Hartmannss.16 Össur Friðgeirss. – Guðm.Þór Gunnarss. 14 Gísli Hauksson – Magnús Guðmss. 5 Nánar má finna um gang mála á heimasíðu félagsins www.bridge.is/ bsel. Næst verður spilaður eins kvölds tvímenningur, fimmtudagskvöldið 28. september kl. 19:30 í Tryggva- skála. Spilarar eru hvattir til að dusta rykið af spilunum og mæta galvaskir til spilamennsku. Síðan tekur við 3 kvölda butlertvímenn- ingur sem nefndur er Málarabutler- inn. Hann verður spilaður 5., 12. og 19. október. Gullsmárinn Bridsdeild FEBK Gullsmára spil- aði tvímenning á 11 borðum mánu- daginn 25. september. Miðlungur 220. Beztum árangri náðu í NS: Ernst Backmann - Birgir Ísleifsson 279 Halldóra Thoroddsen - Hlaðgerður Snæ- björnsdóttir 250 Kristinn Guðmss. - Guðm. Pálsson 240 Páll Ólason - Elís Kristjánsson 235 AV Guðm. Magnúss. - Leifur Jóhanness. 279 Haukur Guðmss. - Björn Björnsson 254 Jón Stefánsson - Eysteinn Einarsson 250 Þorgerður Sigurgeirsóttir. - Stefán Frið- bjarnarson 242 Spilað mánu- og fimmtudaga. Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins FYRSTA spilakvöld hjá Brids- deild Breiðfirðingafélagsins á þessu hausti var sunnudaginn 24/9. Spil- aður var tvímenningur á átta borð- um. Hæsta skor kvöldsins í N/S: Garðar Jónsson - Guttormur Vik 218 Unnar Guðmss. - Jóhannes Guðmss. 198 Þorl. Þórarinss. - Brynja Dyrborgard. 181 Austur-Vestur Jón Jóhannsson - Birgir Kristjánsson 213 Gunnar Guðmss. - Sveinn Sveinsson 204 Haukur Guðbjartss. - Sveinn Kristinss. 202 Sunnudaginn 1/10 verður spilaður eins kvölds tvímenningur.Sunn- udaginn 8/10 hefst svo fjögra kvölda tvímenningskeppni. Spilað er í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14 á sunnudögum kl. 19. Þrír Frakkar bikarmeistarar BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Bikarmeistararnir Talið frá vinstri: Steinar Jónsson, Ísak Örn Sigurðsson, Valur Sigurðsson, Kristján Blöndal og Ómar Olgeirsson. Með þeim í sveit- inni spilaði einnig Stefán Jónsson. FRÉTTIR SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykjavík- ur býður upp á fræðslugöngu um Einar Ben. laugardaginn 30. sept- ember kl. 11. Guðjón Friðriksson sagnfræð- ingur leiðir gönguna en hann skrif- aði á sínum tíma þriggja binda rit- verk um þjóðskáldið Einar Benediktsson. Elsti hluti Elliða- vatnsbæjarins, gamla hlaðan, verð- ur skoðuð og mun Guðjón lýsa lífi fjölskyldu Einars á þeim tíma þegar hann óx þar úr grasi. Gengið verð- ur umhverfis bæinn og fræðst um líf og störf þessa merka skálds sem Einar Ben var. Gangan tekur um klukkustund, er öllum opin og ókeypis. Nánari upplýsingar má finna á www.heid- mork.is Fræðsluganga um Einar Ben. Á KOMANDI vikum mun nýkjör- in forysta Framsóknarflokksins halda opna fundi um land allt. Þau Jón Sigurðsson, formaður, Guðni Ágústsson, varaformaður og Sæunn Stefánsdóttir munu hitta trúnaðarmenn flokksins og kjósendur auk annarra sem áhugasamir eru um starf flokks- ins og áherslur í einstökum mál- um. Fundirnir verða samtals 20 talsins. Fyrstu fundirnir verða haldnir sem hér segir: Laugardagur 30. september kl. 11.00 – Reykjanesbær, Framsókn- arhúsið, Hafnargötu 62 í Kefla- vík. Miðvikudagur 4. október kl. 20.30 – Reykjavík, Hvammur, Grand Hótel við Sigtún. Fimmtudagur 5. október kl. 20.30 – Selfoss, Hótel Selfoss. Þriðjudagur 10. október kl. 20.30 – Akranes, Framsókn- arhúsið, Sunnubraut 21. 20 fundir Fram- sóknar um allt land á næstunni SAMTÖK náttúrustofa á Íslandi (SNS) standa fyrir náttúrustofu- þingi á morgun, 30. september. Þetta er í annað skipti sem slíkt þing er haldið í tengslum við árs- fund félagsins. Samtök nátt- úrustofa (www.sns.is) voru stofnuð árið 2002 og eru aðilar að þeim Náttúrustofa Norðurlands vestra, Náttúrustofa Norðausturlands, Náttúrustofa Austurlands, Nátt- úrustofa Suðurlands, Náttúrustofa Reykjaness, Náttúrustofa Vest- urlands og Náttúrustofa Vest- fjarða. Tilgangur Náttúrustofuþinga er að vekja athygli og kynna starf- semi náttúrustofa og samvinnu þeirra við aðrar stofnanir í land- inu, svo sem Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Há- skóla Íslands, aðra háskóla og stofnanir í landinu. Dagskrá þingsins er fjölbreytt og hefst á ávarpi umhverfisráðherra. Gert er ráð fyrir að birta fyrirlestra þingsins á heimasíðu Náttúrustofu Norðurlands vestra (www.nnv.is) og heimasíðu samtakanna (www.sns.is) eftir þingið. Að þessu sinni sér Náttúrustofa Norðurlands vestra á Sauðárkróki um undurbúning þingsins og verð- ur það haldið á Bakkaflöt í Skaga- firði og hefst klukkan 12.30. Þing- ið er öllum opið, bæði á allt þingið eða einstaka fyrirlestra. Nánari upplýsingar er hægt að fá á www.nnv.is og www.sns.is. Þing náttúrustofa haldið á Sauðár- króki á morgun LANDSMÓT Samfés, samtaka fé- lagsmiðstöðva á Íslandi verður haldið í 16. sinn í lok september. Í ár verður mótið haldið í Reykjavík og verður þema þess Fjölmenning. Á Landsmótið mæta fulltrúar ung- lingaráða í félagsmiðstöðvum Samfés. Í ár er búist við því að þátttakendur verði um 350 talsins frá yfir 60 félagsmiðstöðvum úr öllum landshornum. Markmið landsmótsins er að koma þeim unglingum saman sem eru hvað virkust í félagslífinu í sínum heimahögum til að skiptast á hugmyndum, læra nýja og áhugaverða hluti sem nýta má í starfi vetrarins í félagsmiðstöðv- unum og til að hitta aðra unglinga og skemmta sér saman heila helgi á fjölbreyttan og heilbrigðan hátt. Á föstudagskvöldið verður opn- unarhátíð þar sem Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi og for- maður ÍTR mun bjóða þátttak- endur velkomna ásamt formanni Samfés og fulltrúa úr unglingaráði Ársels. Síðan tekur við fjölbreytt dagskrá. Landsmótið nær há- punkti á laugardeginum 30. sept- ember þegar öll ungmennin eyða heilum degi um allan bæ í margs- konar smiðjum. Um kvöldið verð- ur afrakstur smiðjanna sýndur öðrum þátttakendum. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heiðrar landsmótið með nærveru sinni á laugardaginn. Hann ætlar að fara á milli nokk- urra smiðja til að hitta þátttak- endur á landsmótinu og skoða hvað þeir eru að hafast við, segir í fréttatilkynningu. Fjölmenning á landsmóti Samfés MÁLÞING um Pólland eftir komm- únisma verður haldið í dag, föstu- daginn 29. september, kl. 12.30 í Háskólabíó, sal 2. Það eru Vináttufélag Íslendinga og Pólverja og Alþjóðamálastofnun sem bjóða til málþingsins Dag- skráin hefst kl. 12.30 með upplestri úr ferðabók Jóns Björnssonar. Dag- skrá málþingsins skiptist síðan í þrjá hluta. Í fyrsta hluta er fjallað um sögu Póllands og tengsl Íslands og Pól- lands í gegnum tíðina. Í öðrum hluta verða pallborðsumræður með pólskum og íslenskum þátttak- endum. Umræðuefnin verða m.a. reynsla Pólverja af kommúnisma, uppbygging lýðræðis eftir hrun kommúnismans og vandamál því fylgjandi, og leið Pólverja inn í Evr- ópusambandið. Í þriðja hluta munu svo pólskir nemar við Stofnun um pólska menningu við Varsjárhá- skóla kynna listtengda dagskrá. Málþingið er hluti af pólskri menningarhátíð sem stendur frá 28. september til 1. október. Málþing haldið um Pólland eftir kommúnisma ALMENNUR félagsfundur sjúkra- liða í Reykjavík og nágrenni sem haldinn var á miðvikudag gerir þá kröfu til viðsemjenda félagsins að gengið verði frá nýjum stofnana- samningi við sjúkraliða án frekari tafa. Í ályktun fundarins er gerð krafa um að við gerð stofnanasamn- inga verði tekið tillit til þeirra breyt- inga sem nýlega hafa verið gerðar á kjarasamningum annarra stétta inn- an félags- og heilbrigðisgreina. Fundurinn krefst þess að þeir stofnanasamningar sem þegar hafa verið gerðir verði teknir til endur- skoðunar og leiðréttir. Fundurinn vekur athygli stjórnvalda á þeirri staðreynd að nýútskrifaðir sjúkralið- ar geta fengið sig metna sem fé- lagsliða til að starfa utan heilbrigð- isþjónustunnar, þrátt fyrir þá alvarlegu staðreynd að verulegur skortur er á sérmenntuðum starfs- mönnum til hjúkrunarstarfa, segir í ályktuninni. Fundurinn krefst þess að kjör sjúkraliða verði endurskoðuð og metin með tilliti til menntunar, mik- illar hjúkrunarþyngdar, álags, und- irmönnunar og ofbeldis sem orðið er hluti af daglegri önn þeirra sem starfa við hjúkrun. Gengið verði frá nýjum stofnanasamningi við sjúkraliða án tafar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.