Morgunblaðið - 29.09.2006, Qupperneq 56
56 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
KOMDU
SNOOPY OG
LEYFÐU MÉR
AÐ TAKA
ÞESSA HÚFU
AF ÞÉR
SVONA! ROSALEGA ER ÉGÁNÆGÐUR AÐ ÞESSI
KJÁNALÆTI ERU BÚIN
ÉG VAR ORÐINN
HRÆDDUR UM AÐ
VERÐA SENDUR Á
MUNAÐARLEYSINGJAHÆLI
ÞÓ AÐ ÉG ELSKI
SYKURHÚÐUÐU SÚKKULAÐI-
BOMBURNAR MÍNAR! ÞÁ
FINNST MÉR BETRA ÞEGAR
MORGUN-
KORNIÐ ER
BÚIÐ...
OG BARA MJÓLKIN
ER EFTIR MEÐ ÖLLU
SÚKKULAÐINU OG
SYKRINUM SEM ÉG
BÆTTI ÚT Á
STUNDUM BORÐA
ÉG TVÆR EÐA ÞRJÁR
SKÁLAR AF ÞESSU
ÉG HEYRI
AÐ HJARTAÐ
ÞITT ER
FARIÐ AÐ
SLÁ HRAÐAR
ÞEIR FRAM-
LEIÐA ÞETTA
LÍKA MEÐ
SYKURPÚÐUM,
EN MAMMA
VILL EKKI
KAUPA ÞAÐ
HANDA MÉR
ÉG ER FARINN ÚT
AFTUR AÐ RÆNA OG RUPLA!
VANTAR ÞIG EITTHVAÐ?
JÁ
HVAÐ
VANTAR
ÞIG?
MANN SEM ER
EKKI ALLTAF ÚTI AÐ
RÆNA OG RUPLA!
HVAÐ ER NÍU
STAFA
ORÐ SEM
MAÐUR NOTAR
ÞEGAR MAÐUR
ER AÐ
SPILA GOLF?
ÞARNA KOMA KRAKKARNIR. ÉG
VONA AÐ ÞAU VERÐI EKKI HRÆDD
ÞEGAR ÞAU SJÁ Á MÉR HÁRIÐ
KRAKKAR. FINNST YKKUR ÉG EKKI BREYTT?
BREYTT? HVAÐ
ERTU AÐ
MEINA?
HÁRIÐ Á
MÉR
AUÐVITAÐ!
Æ
JÁ...
MÁ
ÉG FARA
ÚT?
Æ! ÉG VONA
AÐ ÉG HAFI EKKI
BROTIÐ RIF
ÞÚ MEINAR AÐ
ÞÚ VONAR AÐ
NASHYRNINGURINN
HAFI EKKI BROTIÐ Í
ÞÉR RIF
ÞETTA GERIR
ÚTSLAGIÐ. ÉG HEF
ÁKVEÐIÐ MIG
NÚ,
HVAÐ?
ÞÚ VERÐUR AÐ HÆTTA Í
ÞESSARI MYND!
Foreldrafélag ættleiddrabarna var stofnað í sept-ember á síðasta ári. Fé-laginu er ætlað að veita
ættleiddum börnum og kjörfor-
eldrum margvíslegan stuðning að
ættleiðingarferli loknu, en félagið
veitir ekki þjónustu eða hefur milli-
göngu um ættleiðingar: „Við
vinnum að því að koma réttinda- og
hagsmunamálum ættleiddra barna
og kjörforeldra á framfæri við
opinbera aðila og einkaaðila og
leggjum sérstaka áherslu á
fræðsluhlutverk samtakanna,“ seg-
ir Sigríður Ingvarsdóttir sem hefur
verið formaður félagsins frá stofn-
un.
Foreldrafélagið stendur í dag
fyrir námstefnu um tengslaröskun
og meðferð hennar. Þar munu dr.
Ronald Federici, tauga- og þroska-
sálfræðingur, og meðferðarsér-
fræðingarnir Nadya Molina og
Krystyna Biena veita leiðbeiningar
um meðferð tengslaröskunar.
„Tengslaröskun (attachment dis-
order) verður þegar tengsl móður
við barn raskast eða rofna á meðan
barnið er nýburi eða kornabarn.
Ýmsir þættir geta truflað eða rofið
þessi tengsl, s.s. áföll og vanræksla
eða ófullnægjandi gæsla á fyrstu
æviárum barnsins, sem eru þau ár
sem börn eru að þroska með sér
traust í garð annarra,“ útskýrir
Sigríður. „Að barn eigi í nánu sam-
bandi við móður á þessum aldri er
talið leika lykilhlutverk í því að
barnið nái seinna meir að eiga heil-
brigð og eðlileg sambönd við aðrar
manneskjur. Tengslaröskun getur
haft alvarleg áhrif bæði á vits-
munalegan og tilfinningalegan
þroska barnsins og afleiðingin með-
al annars verið að barnið sé fá-
skiptið gagnvart öðru fólki, eða
þvert á móti óeðlilega háð öðrum.“
Sigríður segir tengslaröskun
ekki eingöngu henda ættleidd börn,
þótt vissulega séu ættleidd börn í
meiri áhættuhópi þegar kemur að
skorti á tilfinningalegri örvun í
frumbernsku. „Með markvissum
aðgerðum má þó undantekninga-
laust bæta börnum upp þann
þroska sem þau hafa farið á mis við
og kenna þeim að mynda eðlileg til-
finningatengsl,“ segir Sigríður.
Ronald Federici er að sögn Sig-
ríðar einn helsti sérfræðingur
heims í meðhöndlun tengslarösk-
unar meðal ættleiddra barna:
„Hann leggur mikla áherslu á að
grípa sem fyrst inn í, svo snúa megi
við neikvæðum áhrifum tengsla-
röskunar og koma á öruggum og
góðum tilfinningatengslum milli
kjörforeldra og barns,“ segir Sig-
ríður. „Sérstaklega athyglisverð er
sú kenning hans að mörg börn með
tengslaröskum fái ekki rétta grein-
ingu og séu iðulega ranglega
greind með ofvirkni eða athyglis-
brest. Með réttri atferlismeðferð er
hægt að vinna bug á tengsla-
röskuninni og ganga þá neikvæð
einkenni til baka.“
Námstefnan hefst í dag kl. níu og
stendur til 16. Hún fer fram í
Bratta, sal Kennaraháskóla Ís-
lands. Námstefnan fer fram á
ensku og er öllum opin en þátttöku-
gjald er kr. 4.000 fyrir einstaklinga
og kr. 6.000 fyrir hjón.
Nánari upplýsingar má finna á
slóðinni www.aettleiding.is.
Börn | Foreldrafélag ættleiddra barna heldur
námstefnu í dag kl. 9 til 16 í Bratta, KHÍ
Tengslaröskun og
meðferð hennar
Sigríður Ingv-
arsdóttir fæddist
í Reykjavík. Hún
lauk BA-prófi í
stjórnmálafræði
frá HÍ 1983,
stundaði nám við
LSE og lauk MA-
gráðu í liststjórn-
un frá City Uni-
versity 1990. Sigríður var sett
deildarstjóri í samgöngumálaráðu-
neytinu 1985–1988, starfaði við
listaverkasölu hjá Sotheby’s í Lund-
únum 1990–2001. Hún hefur verið
formaður Karítas á Íslandi frá 1994
og formaður Foreldrafélags ætt-
leiddra barna frá stofnun. Sigríður
er gift Herluf Clausen og eiga þau
einn son.
SUÐUR-kóreskar námsmeyjar
íklæddar gömlum búningum komu
fram á minningarhátíðinni Seokj-
eonje við Sung Kyun Kwan í Seoul
síðastliðinn mánudag. Seokjeonje
er hátíð sem haldin er til heiðurs
Konfúsíusi sem var kínverskur
heimspekingur og siðfræðihöfund-
ur, en hann var uppi um 551 til 479
fyrir Krist.
AP
Hátíð til heiðurs heimspekingi