Morgunblaðið - 29.09.2006, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 29.09.2006, Qupperneq 64
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 272. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  NA 10–15 m/s vestanl. og við SA-ströndina. Skýjað m/köflum á Vesturlandi, annars skýj- að, rigning eða súld.» 8 Heitast Kaldast 12°C 4°C Allir velkomnir! í Vetrargarðinum í Smáralind laugardaginn 30. september kl. 11–18, sunnudaginn 1. október kl. 13–18 Komdu, smakkaðu og upplifðu! FJÁRMÖGNUN íslensku viðskiptabank- anna þriggja er orðin mun dýrari en hún var í fyrra þegar bankarnir gáfu út mikið af skuldabréfum í Evrópu og greiddu þá 0,2– 0,3% ofan á millibankavexti (Libro). Endurfjármögnun bankanna vegna ársins 2007 lauk þegar Kaupþing banki gaf í vik- unni út skuldabréf fyrir samtals 210 millj- arða króna í Bandaríkjunum. Skuldabréf Kaupþings til þriggja ára voru seld vestra með 0,7% álagi ofan á millibankavexti, sem er sama álag og á þriggja ára skuldabréfum Landsbankns sem voru seld í Bandaríkj- unum. Ætla má því að álagið hafi um það bil þre- faldast frá því í fyrra, en 0,3–0,6% álag til eða frá er mikið í bankaheiminum og hefur veruleg áhrif á samkeppnisstöðu. Full ástæða er til að ætla að bankarnir muni að mestu eða öllu leyti velta auknum fjár- magnskostnaði yfir á viðskiptavini sína hér á heimamarkaði. Glitnir nýtur bestu lánskjar- anna af íslensku bönkunum. | 14 Fjármögnun bankanna mun dýrari FJÖLDI fólks safnaðist saman við Perluna til að rýna til himins þegar ljósin voru slökkt í gærkvöldi. Skýjað var að mestu svo ekki gekk vel hjá þeim sem hugðust skoða stjörnurnar. Sumir komu í Perluna með stjörnukíki með í för og rýndu til himins. Þótt ský hafi byrgt undar. „Þetta var mjög flott, en ég held það hafi skipt miklu máli hvar fólk var. Það má eiginlega líta á þetta sem nokkurs konar generalprufu, það gleymdist að slökkva ljósin í nokkrum fyrirtækjum niðri í bæ og líka í al- þingishúsinu,“ sagði Andri Snær. | 6 sýn að mestu tókst að miða út einhverjar stjörnur með aðstoð stjörnukorts og rauð- leitrar birtu frá vasaljósi. Myrkvunin var hluti af opnun Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, og er hugmynd Andra Snæs Magnasonar rithöf- Morgunblaðið/ÞÖK Skimað eftir stjörnum í myrkrinu TÍU ára drengur á Akureyri, Númi Kárason, var mjög hætt kominn í fyrradag þegar hann lenti í kvik- syndi. Númi var sokkinn upp undir hendur þegar tveir fílefldir karlmenn, sem fyrir tilviljun voru staddir í grenndinni, náðu að bjarga honum eftir að hafa reynt í 25 mínútur að ná drengnum úr leðjunni. Einar Sig- urðsson, vinur Núma, lenti í kvik- syndinu fyrst en náði að losa sig sjálf- ur. Vinirnir tveir voru á reiðhjólum í malarnámu skammt sunnan við bæ- inn Glerá ofan Akureyrar laust eftir klukkan fimm síðdegis á miðvikudag- inn. „Við vorum bara að hjóla þarna í leðjunni. Þetta virtist ekki vera neitt,“ sagði Númi þegar Morg- unblaðið hitti þá vinina að máli í gær. Hann var fljótur til svars þegar spurt var hvernig tilfinning það hefði verið að lenda í kviksyndinu: „Það var hræðilegt. Það var eins og skrattinn væri að toga mig niður í jörðina,“ sagði Númi. Þeir höfðu stigið af hjólunum og gengu um svæðið. Einar datt fyrst niður í leðjuna og festist. „Ég rétti honum hjálparhönd, togaði í hann en hann togaði mig þá ofan í og ég fest- ist,“ segir Númi. Mínútuspursmál Þorsteinn Hjaltason og Finnur Að- albjörnsson voru á ferð á mót- orhjólum skammt frá. „Ég hljóp inn á mótorhjólabrautina, stoppaði þá og bað þá að koma. Mótorhjólakarlarnir fara alltaf í stóran hring og þeir voru sem betur fer þarna í brautinni en ekki einhvers staðar hinum megin,“ sagði Einar, en talið er að aðeins hafi verið mínútuspursmál hvort hægt yrði að bjarga vini hans. Númi segir margt hafa farið í gegnum hugann meðan hann var fastur og gat enga björg sér veitt. „Ég hugsaði um það þegar ég var lít- ill,“ sagði hann. „Við fórum báðir að grenja. Það var líka svo kalt,“ sagði Númi, og Einar bætti við: „Við vorum alveg skíthræddir.“ Morgunblaðið náði ekki sambandi við björgunarmenn Núma í gær, en haft er eftir Finni Aðalbjörnssyni í Vikudegi, sem kom út í gærkvöldi, að aðkoman hefði verið hryllileg. „Þetta er eitthvað það erfiðasta sem ég hef komist í en það tók okkur tvo um 25 mínútur að ná drengnum upp og sjálfir vorum við Þorsteinn í drullu uppundir klof. Það mátti engu muna …“ segir Finnur í Vikudegi. „Eins og skrattinn væri að toga mig niður í jörðina“ Tíu ára dreng á Akureyri bjargað eftir að hann sökk upp að höndum í kviksyndi Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Glaðir Númi Kárason (t.h.) og Einar Sigurðsson í gær. Þeir lentu í miklum háska fastir í kviksyndi sunnan við bæinn Glerá ofan Akureyrar. Í HNOTSKURN » Einar og Númi segjast hafaverið samtímis fastir í leðj- unni í um það bil 15 mínútur, en Einar náði að losa sig sjálfur. » Númi segist hafa beðið tilguðs og hugsað um afa sinn, Skúla, sem lést fyrir fjórum ár- um, en þeir voru mjög nánir, að sögn Kristjönu, móður Núma. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is BJARNI Daníelsson óperustjóri segir fjár- hagsstöðu Íslensku óperunnar hafa batnað verulega síðustu ár þrátt fyrir að Óperan velti ekki meiri fjármunum nú en áður. „Rekst- urinn gengur út á það að nýta sem best rík- isstyrkinn, sem er langstærsta uppspretta fjár hjá okkur,“ segir Bjarni. Vegna bættrar fjárhagsstöðu tekst Óperunni að vera með óvenju fjölbreytta dagskrá í vetur sem ætti að höfða til flestra auk þess sem söngvari verður fastráðinn, en engin fastráðning hefur verið við Íslensku óperuna síðastliðin tvö ár. | 18 Fjölbreytni hjá Íslensku óperunni ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.