Morgunblaðið - 06.12.2006, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BRESKA söngkonan Petula Clark þenur hér radd-
böndin á stórtónleikum evrópsku dívanna í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi þar sem hún var gestasöngvari
ásamt Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni tenór.
Ásamt þeim sungu evrópsku dívurnar Eivör Páls-
dóttir frá Færeyjum, Eleftheria Arvanitaki frá Grikk-
landi, Sissel Kyrkjebo frá Noregi, Patricia Bardon frá
Írlandi og Ragnhildur Gísladóttir frá Íslandi.
Uppselt var á tvenna tónleika þeirra í gær, klukkan
níu um kvöldið og á aukatónleikana klukkan sex.
Umgjörð tónleikanna var glæsileg, strengjasveit
skipuð 50 meðlimum Sinfóníuhljómsveitar Íslands lék
og Drengjakór Reykjavíkur og Karlakórinn Fóst-
bræður sungu með dívunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glæsilegir dívutónleikar
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÚRSKURÐARNEFND almannatrygginga hefur
fellt niður endurkröfu Tryggingastofnunar rík-
isins á hendur eldri borgara vegna ofgreiddra
bóta upp á rúmar 916 þúsund krónur á árunum
2003 til 2004. Hefur nefndin vísað málinu aftur til
TR til endurútreiknings og eftir atvikum til að
taka nýja ákvörðun um endurkröfu vegna of-
greiddra bóta 2004.
Bætur tekjutengdar að lögum
Ákvörðun Tryggingastofnunar um endurreikn-
ing lífeyrisgreiðslna til eldri borgarans sem fædd
er árið 1935, var kærð til úrskurðarnefndar og
krafðist viðkomandi þess að ákvörðunin yrði
ómerkt. Var byggt á því að lagaheimild skorti fyr-
ir eftir á endurreikningi frá TR. Í kæru var því
mótmælt að tekjur maka eldri borgarans af sér-
eign væru taldar kæranda til tekna að hálfu leyti
við endurútreikning bóta.
Úrskurðarnefnd segir í úrskurði sínum að bæt-
ur lífeyristrygginga almannatrygginga séu að
lögum tekjutengdar og geti hvort tveggja tekjur
bótaþega sjálfs eða maka hans haft áhrif til
skerðingar bótaréttar. Þessi tekjutenging er að
mati nefndarinnar á málefnalegum rökum reist.
Nefndin leit ennfremur til þess að skv. hjú-
skaparlögum hvílir gagnkvæm framfærsluskylda
á hjónum. Telur nefndin að ákvæði reglugerðar
frá 2003 um útreikning, endurreikning og upp-
gjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags frá
TR hafi fulla lagastoð en þar sé kveðið á um að
fjármagnstekjum skuli ávallt skipt til helminga
milli hjóna við útreikning bóta. Með vísun til
gagnkvæmrar framfærsluskyldu hjóna telur
nefndin það ekki skipta máli hvort um sé að ræða
hjúskapareign eða séreign þegar tekjur séu kann-
aðar með tilliti til útreiknings tekjutengdra bóta.
Séreign maka hafi fyrst og fremst áhrif við slit
hjúskapar eða ákvörðun erfðaréttar. Þegar litið
sé til framfærslu hafi hún hins vegar engin áhrif
Samkvæmt þessari niðurstöðu var ekki grund-
völlur til að beita reglugerð frá 2004 um breyt-
ingu á fyrrnefndri reglugerð fyrr en frá gild-
istöku hennar 29. október 2004. Var því
nauðsynlegt talið að vísa málinu aftur til TR til
endurútreiknings bóta vegna ársins 2004 og til
endurákvörðunar endurkröfu hafi bætur verið of-
greiddar það ár.
Ákvörðun TR ómerkt
Eldri borgari kærir TR fyrir endurkröfu vegna ofgreiddra bóta um
916 þúsund krónur Málinu vísað aftur til TR til endurútreiknings bóta
Í HNOTSKURN
» Úrskurðarnefndin telur það ekkiskipta máli hvort um sé að ræða hjú-
skapareign eða séreign þegar tekjur séu
kannaðar með tilliti til útreiknings tekju-
tengdra bóta. Séreign maka hafi fyrst og
fremst áhrif við slit hjúskapar eða ákvörð-
un erfðaréttar. Þegar litið sé til framfærslu
hafi hún hins vegar engin áhrif.
» Nauðsynlegt var talið að vísa málinuaftur til TR til endurútreiknings bóta
vegna ársins 2004.
LÖGREGLAN í Keflavík hefur
tekið til rannsóknar alvarlega lík-
amsárás og húsbrot í fyrrakvöld
þegar tveir menn ruddust inn í
íbúð við Kirkjuveg í Keflavík og
misþyrmdu manni þar innandyra.
Maðurinn, sem fyrir árásinni varð,
var einsamall í íbúðinni þegar ráð-
ist var inn og beittu mennirnir
táragasi gegn honum. Einnig
veittu mennirnir honum skurð-
áverka með eggvopni. Að sögn lög-
reglunnar í Keflavík hlaut mað-
urinn einnig áverka á baki og
skarst að lokum illa á hendi þegar
hann braut rúðu í hurð til að reyna
að komast undan árásarmönnun-
um. Þeir yfirgáfu svæðið á bifreið
sinni en húsráðandinn náði bíl-
númerinu og hóf lögreglan leit að
þeim. Meintir árásarmenn voru
síðan handteknir í Reykjavík
skömmu fyrir miðnætti á mánu-
dagskvöld og er unnið að rannsókn
málsins.
Ekki er ljóst hver tilgangur
árásarinnar var en reikna má með
því að það upplýsist með yfir-
heyrslum. Húsráðandinn var færð-
ur til aðhlynningar á slysadeild.
Réðust
vopnaðir
inn á mann
Árásarmenn beittu
táragasi og eggvopni
ASÍ hefur farið þess á leit við þjóð-
skjalavörð að upplýst verði hvort
og þá hvenær símar á skrifstofu
sambandsins hafi verið hleraðir. Í
bréfi til þjóðskjalavarðar segir
m.a.: „Fram hefur komið í opin-
berri umræðu nýlega að gögn í
varðveislu safnsins geymi upplýs-
ingar um, að símar Alþýðu-
sambands Íslands og starfsmanna
þess hafi í einhverjum tilvikum ver-
ið hleraðir af stjórnvöldum.“ Upp-
lýst hafi verið að símtöl Hannibals
Valdimarssonar, fyrrv. forseta ASÍ,
voru hleruð. Skjöl sem Þjóðskjala-
safnið hefur birt beri ekki með sér
hvort, hvenær eða hversu lengi
símar ASÍ hafi verið hleraðir.
ASÍ óskar
upplýsinga um
símahleranir
LÖGREGLAN í Keflavík handtók
ökumann fólksbifreiðar í gær sem
skapaði hættu með ofsaakstri á
Reykjanesbraut og hlýddi ekki lög-
reglu um að stöðva bílinn fyrr en við
Leifsstöð þar sem hann ók upp að
flughlaði og reyndi að komast inn í
flugrana. Í ljós kom að maðurinn átti
við geðræn vandamál að stríða og
var læknir kvaddur á lögreglustöð
en þar var maðurinn yfirheyrður í
viðurvist verjanda, að sögn lögreglu.
Málið upphófst við Vogaveg er bíll
fór fram úr lögreglubíl á um 120 km
hraða og hófst þá eftirför. Ökumað-
ur stöðvaði ekki bílinn en jók hrað-
ann upp í 140–150 km við Voga-
stapa. Maðurinn ók öfugum megin
inn í hringtorg á leið sinni upp að
Leifsstöð og ók utan í sandbing við
vinnusvæði. Stöðvaði hann bílinn við
flugvél sem verið var að undirbúa
fyrir flug og náði lögregla honum.
Eftir yfirheyrslur var manninum
komið undir læknishendur.
Olli hættu
með ofsaakstri
BÆJARFULLTRÚAR Sjálfstæðis-
flokks í Árborg segja að engin óeðli-
leg vinnubrögð hafi átt sér stað við
vinnslu skipulagsmála í bænum.
Fulltrúar Framsóknarflokks segja
að samkomulag hafi verið svikið.
Eftir að upp úr slitnaði í meiri-
hlutasamstarfi Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks í Árborg hafa
ásakanir um óheiðarleika gengið á
víxl. Í yfirlýsingu bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks er því hafnað að
óeðlileg vinnubrögð hafi verið við-
höfð við þá beiðni Eðalhúsa að fá
auglýsta tillögu um deiliskipulag
svokallaðs Sigtúnsreit.
„Meirihluti B og D lista ákvað á
fundi sínum þann 23.október sl. að
deiliskipulagstillagan skyldi ekki
verða auglýst fyrr en frestur til að
leggja inn tillögur í svonefnt miðbæj-
arskipulag væri úti. Því var sam-
þykkt á áðurnefndum meirihluta-
fundi að haldinn yrði aukafundur í
skipulags- og byggingarnefnd þann
1. desember og þar yrði heimilað að
auglýsa deiliskipulagið. Síðan yrði
það staðfest í bæjarráði 7. desember
og samþykkt í bæjarstjórn 13. des-
ember 2006 og færi í auglýsingu eftir
það,“ segir í yfirlýsingu sjálfstæðis-
manna. Er svo skorað á bæjarfull-
trúa Framsóknarflokks að staðfesta
þetta, eða vera ella ekki merk orða
sinna.
Í yfirlýsingu frá bæjarfulltrúum
Framsóknarflokks er sagt frá fundi
sem haldinn hafi verið vegna Sig-
túnsreitsins, en fundinn hafi setið
fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks, formaður skipulags- og
byggingarnefndar, auk fram-
kvæmdastjóra Eðalhúsa.
„Ástæðan fyrir þessum fundi var
sú að fulltrúar D-lista vildu fá sam-
þykki okkar fyrir því að deiliskipulag
Eðalhúsa ehf. fengi afgreiðslu í
skipulags- og byggingarnefnd á
meðan samkeppni um miðbæjar-
skipulag væri enn í gangi. Við vorum
algjörlega á móti því, þess vegna var
haldinn fundur til að finna sáttaleið í
málinu,“ segir í yfirlýsingunni.
„Gert var samkomulag um að
deiliskipulag Eðalhúsa ehf. á Sig-
túnsreitnum fengi afgreiðslu á auka-
fundi 1. desember í skipulags- og
byggingarnefnd, ef fyrirtækið legði
fram samþykki allra eigenda lóða á
reitnum. Þar sem ekki lá fyrir sam-
þykki allra eigenda lóðanna var sam-
komulag um afgreiðslu málsins fallið
úr gildi.“
Ekki hefði átt að boða fundinn án
þess að gögnin lægju fyrir, þar með
hefði samkomulagið verið brotið.
Ásakanir ganga á víxl í
bæjarstjórn Árborgar
Átök um vinnubrögð fyrrverandi meirihluta í skipulagsmálum
FORMENN allra stjórnmálaflokka á
Alþingi hafa lagt fram frumvarp um
fjármál stjórnmálasamtaka og fram-
bjóðenda og um upplýsingaskyldu
þeirra. Í frumvarpinu segir m.a. að
tilgangur þess sé að kveða á um fjár-
framlög til stjórnmálasamtaka og
stjórnmálastarfsemi. Einnig að
draga úr hættu á hagsmuna-
árekstrum og tryggja gagnsæi í
fjármálum. Markmiðið er að auka
traust á stjórnmálastarfsemi og
auka lýðræði.
Frumvarp um
fjármál flokk-
anna lagt fram