Morgunblaðið - 06.12.2006, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 39
Atvinnuauglýsingar
Sérfræðingur með
viðskiptamenntun
Laus er til umsóknar staða sérfræðings hjá
sveitarstjórnarskrifstofu félagsmálaráðuneytis-
ins. Verkefni sveitar-stjórnarskrifstofunnar eru
einkum þau að vinna að stefnumótun í málefn-
um sveitarfélaga og fjalla um samskipti ríkis og
sveitarfélaga og verkaskiptingu þeirra. Skrif-
stofan fer jafnframt með húsnæðismál. Í því
felst stefnumótun bæði varðandi hið almenna
húsnæðislánakerfi og félagsleg úrræði á sviði
húsnæðismála.
Leitað er eftir einstaklingi með viðskipta-
menntun og haldgóða þekkingu á reiknings-
skilum og ársreikningum sem jafnframt er fær
um að sinna fjölbreyttum verkefnum í krefjandi
umhverfi. Starfsreynsla á sveitarstjórnarstigi er
kostur og áhugi og þekking á málefnum sveit-
arfélaga er skilyrði. Enn fremur er lögð áhersla
á vandvirkni í vinnubrögðum, hæfni í ræðu og
riti og almenna færni í ensku og a.m.k. einu
Norðurlandamáli. Góð almenn tölvukunnátta er
nauðsynleg og reynsla af notkun á Lotus Notes
æskileg.
Miðað er við að ráða í stöðuna sem fyrst. Um
kjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármálaráð-
herra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins. Ráðning miðast við fullt starf.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Bragason
skrifstofustjóri eða Ragnhildur Arnljótsdóttir
ráðuneytisstjóri í síma 545 8100, eða í tölvu-
pósti um netföngin gudjon.bragason@fel.stjr.is
eða ragnhildur.arnljotsdottir@fel.stjr.is
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf ásamt upplýsingum um
meðmælendur berist félagsmálaráðuneytinu,
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík,
eigi síðar en 20. desember 2006. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Vakin er athygli á því að starfið stendur opið
jafnt konum og körlum.
Reykjavík, 4. desember 2006
Félagsmálaráðuneytið
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um nýtt deili-
skipulag og breytingar á
deiliskipulagsáætlunum
í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru
hér með auglýstar tillögur að nýjum og breyttum
deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík.
Lýsisreitur
Tillaga að deiliskipulagi reits sem markast af
Grandavegi, Eiðsgranda, Hringbraut og Framnes-
vegi.
Tillagan gerir ráð fyrir stækkun gömlu Lýsislóðar-
innar sem skiptist í tvær lóðir, fjölbýlishúsalóð að
norðan og lóð undir hjúkrunarheimili að sunnan.
Lagt er til að heimilt verði að byggja fjölbýlishús
með allt u.þ.b. 100 íbúðum á 8-9 hæðum. Í fjög-
urra hæða byggingu hjúkrunarheimilis er gert ráð
fyrir allt að 90 vistmönnum. Bílastæði verða undir
lóðunum og að hluta ofanjarðar. Deiliskipulag
Bráðræðisholts sem er innan þessa reits er að
mestu leyti óbreytt, en þar verða leyfðar minni-
háttar breytingar og viðbyggingar eins og á rað-
húsum við Lágholtsveg og á JL húsi.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Gefjunarbrunnur – Iðunnarbrunnur
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals
(Hallar og Hamrahlíðarlönd) vegna sérbýlishúsa-
lóða við Gefjunar – og Iðunnarbrunn.
Breyting er gerð til að koma til móts við óskir
fjölmargra lóðarhafa um rýmri aðkomu og aukin
bílastæði við einstök hús í þyrpingum sérbýlis-
húsa við Gefjunarbrunn og Iðunnarbrunn. Auk
þess hafa byggingareitir verið stækkaðir lítillega
og færðir til innan einstakra lóða.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipu-
lags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að
Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15,
frá 6. des. 2006 til og með 17. janúar 2007. Einnig
má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, www.
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar
skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is,
til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulags-
fulltrúa) eigi síðar en 17. janúar 2007.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 6. des. 2006
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing
um deiliskipulag frístundabyggðar í
landi Kalastaða Hvalfjarðarsveit
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25. gr. Skipulags-
og byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst
eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipu-
lagi frístundabyggðar í landi Kalastaða, Hval-
fjarðarsveit.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðal-
skipulag Hvalfjarðarstrandarhrepps 2002-2014
og gerir ráð fyrir 49 lóðum frá 0,5 til 2,0 hektara
að stærð.
Tillagan ásamt skipulags- og byggingarskil-
málum liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðar-
sveitar, Innrimel 3, frá 6. desember 2006 til
3. janúar 2007 á venjulegum skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila á skrifstofu skipu-
lags- og byggingarfulltrúa Miðgarði fyrir
17.1.2007 og skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemd innan til-
greinds frests teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi.
Félagslíf
GLITNIR 60061206919 III
EDDA 6006120620 IFræðsluf.
kl. 20
I.O.O.F. 9187120671/2 Bh
I.O.O.F. 18 1871268
I.O.O.F. 7 1871267½ Jv. Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is
FRÉTTIR
AÐVENTUKVÖLD verður haldið í
Úthlíðarkirkju að Úthlíð í Bisk-
upstungum fimmtudaginn 7. des-
ember kl. 20. Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup flytur stutta bæn og
Karlakór Selfoss syngur nokkur
jólalög.
Kl. 21 hefst samkoma í Réttinni.
Kristinn Ólason rektor Skálholts-
skóla mun flytja jólahugvekju og
Karlakór Selfoss syngur létt jóla-
lög. Jólalegar veitingar í Réttinni
verða seldar á vægu verði.
Aðgangseyrir 1000 kr. og rennur
ágóðinn allur til Líknar- og menn-
ingarsjóðs Úthlíðarkirkju.
Aðventukvöld
í Úthlíð
SAGNFRÆÐINGURINN dr.
Andrea Petö frá Ungverjalandi
flytur fyrirlestur í stofu 101 í
Odda, á morgun, fimmtudaginn 7.
desember, kl. 12.15. Fyrirlest-
urinn ber heitið Ungverskar kon-
ur og stjórnmál eftir 1945.
„Þátttaka kvenna í ungverskum
stjórnmálum eftir lok síðari
heimsstyrjaldar er hluti hinnar
gleymdu sögu. Það kemur í ljós
þegar farið er að skoða þær fé-
lagshreyfingar sem voru mest
áberandi á árunum eftir stríð. Í
fyrirlestrinum verða rakin örlög
ungverskra kvennahreyfinga á ár-
unum 1945–1951, sem voru bæði
margar og margvíslegar,“ segir í
fréttatilkynningu.
Dr. Andrea Petö er sagnfræð-
ingur og dósent í kynjafræði við
Central European University í
Búdapest, dósent við Háskólann í
Miskole og gestaprófessor við
ELTE í Búdapest í þjóðernis- og
minnihlutafræðum.
Fyrirlestur
um ungversk-
ar konur
Vaxandi þörf
MEINLEG villa slæddist inn í fyr-
irsögn fréttar um gjöf Bónuss í
blaðinu í gær. Þar átti auðvitað að
standa Vaxandi þörf en ekki Vak-
andi þörf. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
SÓL í Straumi heldur almennan
fund með fulltrúum Alcan í dag,
miðvikudaginn 6. desember, kl. 20,
um stækkunarmálið í Straumsvík.
Fundurinn verður í Haukahúsinu
á Völlum. Fundarstjóri er Ásgrím-
ur Sverrisson.
Gestir fundarins eru Hrannar
Pétursson upplýsingafulltrúi og
Guðrún Þóra Magnúsdóttir leiðtogi
umhverfismála hjá Alcan.
Kynntar verða áætlanir Alcan
um stækkun og munu bæjarbúar fá
tækifæri til þess að spyrja gestina
spurninga og taka þátt í umræðum
um málið.
Opinn fundur
með Alcan
NÆSTA þemakvöld Félags þjóð-
fræðinga verður fimmtudaginn 7.
desember kl. 20.00. Fyrirlesarar eru
Svavar Sigmundsson og Kendra Will-
son. Þemakvöldið fer að venju fram í
húsi Sögufélagsins við Fischersund.
Svavar Sigmundsson er rannsókn-
ardósent á Stofnun Árna Magnús-
sonar í íslenskum fræðum og fyrr-
verandi forstöðumaður Örnefna-
stofnunar. Erindi hans nefnist:
Örnefni og þjóðtrú.
Kendra Jean Willson er dokt-
orsnemi í norrænum fræðum við
Kaliforníuháskóla í Berkeley og
vinnur nú að doktorsritgerð um ís-
lensk gælunöfn og hefur um þessar
mundir aðstöðu á Stofnun Árna
Magnússonar. Erindi hennar nefnist:
Sögur af ónöfnum. Frá Satan til Sat-
aníu. Nánari upplýsingar um starf
Félags þjóðfræðinga er að finna á
slóðinni http://www.akademia.is/
thjodfraedingar/
Þemakvöld
þjóðfræðinga
STUÐNINGSHÓPUR um krabba-
mein í blöðruhálskirtli og stuðnings-
hópur kvenna sem fengið hafa
krabbamein í eggjastokka verða
sameiginlega með aðventufund í
húsi Krabbameinsfélagsins að Skóg-
arhlíð 8, í dag, miðvikudaginn 6. des-
ember, kl. 17.
Ýmislegt verður á dagskrá, svo
sem upplestur, tónlistaratriði og
kynning á nýjum bókum. Heitt
súkkulaði og smákökur verða á boð-
stólum. Aðstandendur eru boðnir
sérstaklega velkomnir á þessa að-
ventusamkomu, segir í tilkynningu.
Aðventufundur
stuðningshópa
GRÆNI krossinn efnir á morgun,
fimmtudag, til sinnar fyrstu ráð-
stefnu um öryggis- og heilbrigðismál
á vinnustöðum og í samfélaginu.
Græni krossinn eru samtök sem
hafa það stefnumið að stuðla að
auknu öryggi og heilbrigði á vinnu-
stöðum og í samfélaginu.
Ráðstefnan verður haldin á Hótel
Nordica, í sal A og B, og stendur frá
kl. 9 til 16. Magnús Stefánsson fé-
lagsmálaráðherra flytur ávarp og
Gestur Pétursson kynnir Græna
krossinn. Síðan verða flutt tíu fram-
söguerindi og að þeim loknum verða
pallborðsumræður.
Ráðstefnan er öllum opin meðan
húsrúm leyfir og þátttakendum að
kostnaðarlausu. Boðið verður upp á
hádegisverð. Tilkynna þarf þátttöku
á skraning@inpro.is
Ráðstefna
um öryggi