Morgunblaðið - 24.01.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 23. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
MEÐ LITI Í HÖNDUM
HIN ÁTTA ÁRA MARÍA ÝR ER HARÐ-
ÁKVEÐIN Í AÐ VERÐA LISTAMAÐUR >> 19
TILNEFNINGAR
KUNNGJÖRÐAR
ÓSKARINN
ALLAR LÍKLEGAR >> 34
FRÉTTASKÝRING
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
ÞAÐ eina sem getur komið í veg fyrir klofn-
ing Frjálslynda flokksins er að Margrét
Sverrisdóttir fái afdráttarlausa kosningu í
varaformannssætið. Margrét lýsti því yfir í
gærkvöldi að hún stæði við þau áform sín að
bjóða sig fram til varaformanns Frjálslynda
flokksins á laugardag og fara þannig gegn
Magnúsi Þór Hafsteinssyni varaformanni
flokksins. Margrét hefur hugleitt að bjóða
sig fram til formanns gegn Guðjóni A.
Kristjánssyni, frá því að hann lýsti yfir
stuðningi við Magnús Þór Hafsteinsson í
síðustu viku. Með kosningu Margrétar yrði
a.m.k. plástur settur á stærstu svöðusárin.
Á það er bent, að með Margréti sem vara-
formann dragi úr hinni karllægu einsleitni
sem einkenni forystusveit og þingflokk
Frjálslynda flokksins.
Margrét greindi frá þessu í gærkvöldi í
Kastljósi Sjónvarpsins þar sem hún og
Magnús Þór tókust á, en fyrr um daginn
höfðu þessi áform hennar þó kvisast út.
Margrét sagði í samtali við Morgunblaðið
í gærkvöld: „Ég treysti því að þetta verði til
þess að efla samheldni í flokknum og sam-
eina fylkingar.“
Mikil smölun hefur verið í gangi
Talið er að Margrét hafi mjög styrkt
stöðu sína í baráttunni um varaformanns-
sætið eftir að borgarstjórnarflokkur Frjáls-
lynda flokksins hét henni fullum stuðningi
til forystustarfa í flokknum í fyrradag.
Þetta er mat viðmælenda, jafnvel þótt það
liggi fyrir að Ólafur F. Magnússon, borg-
arfulltrúi Frjálslyndra, hafi ekki verið nema
hálfvolgur í stuðningi sínum. Eindreginn og
afdráttarlaus stuðningur Guðrúnar Ás-
mundsdóttur, Kjartans Eggertssonar, Ástu
Þorleifsdóttur og Önnu Sigríðar Ólafsdótt-
ur, er sagður gera gott betur en vega upp á
móti hálfvelgju Ólafs.
En ekki er þar með sagt að sigurinn sé
unninn, því mikil smölun hefur átt sér stað
að undanförnu, í báðum fylkingum. Flokks-
mönnum hefur fjölgað um eitthvað á fimmta
hundraðið á undanförnum þremur mánuð-
um, eða yfir 30%. Það eina sem þarf til þess
að fá að mæta og kjósa á landsþingi Frjáls-
lynda flokksins er að vera skráður félagi í
flokknum og er líklegt að smölun haldi
áfram fram á síðustu stundu. Fyrst verður
formannskosning kl. 15.00 á laugardag og
strax í kjölfar hennar verður kosið um vara-
formann.
Guðjón fullyrti í gær í samtali við Morg-
unblaðið, að enginn klofningur í Frjálslynda
flokknum væri í uppsiglingu, óháð því hver
niðurstaðan yrði í varaformannskosning-
unni. „Við sem erum kosin til forystu eigum
að vinna saman að kosningu lokinni. Það
liggur beint við og ég ætlast til þess að sú
verði niðurstaðan, hver sem í hlut á.“
Margrét Guðjón Magnús Þór
Klofnar
Frjálslyndi
flokkurinn?
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
NOKKUÐ hefur verið um það í vetur að kalla
hefur þurft á lögreglu vegna deilna um tölvu-
notkun. Síðast gerðist þetta í fyrradag þegar lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðaði fjöl-
skyldu sem var komin í hár saman vegna þess að
unglingarnir á heimilinu, tveir bræður, brugðust
illa við þegar átti að takmarka tölvunotkunina.
Unglingum sem hafa lengi, hugsanlega í nokk-
ur ár, haft nánast óheftan aðgang að tölvu og net-
sambandi gengur oft illa að sætta sig við þegar
foreldrarnir taka allt í einu upp á því að tak-
marka notkunina. Yfirleitt eru afleiðingarnar
einskorðaðar við rifrildi eða heiftarlegt fýlukast
en stundum kemur fyrir að unglingurinn missir
gjörsamlega stjórn á sér.
„Nú er komið nóg“
Haukur Haraldsson sálfræðingur segir að í til-
fellum sem þessum sé líklegt að vandamálið eigi
sér langan aðdraganda. Hann segir afar mik-
ilvægt að setja skýrar reglur allt frá fyrstu tíð og
það verði að vera ótvírætt að foreldrarnir ráði því
hversu miklum tíma börnin eyði við tölvuna og
hvað þau geri meðan á því stendur. Þegar börn
hafi náð unglingsaldri og hafi vanist því að eyða
miklum tíma í tölvunni og séu hugsanlega komin
á kaf í netleiki, s.s. World of Warcraft eða Eve
Online, sé erfitt að grípa inn í. „Svo þegar for-
eldrarnir fá upp í kok, eins og gerist og gengur í
uppeldi, þá grípa þeir til þess óyndisúrræðis að
slökkva á netsambandinu og segja: „Nú er komið
nóg.“ Og þá reiðist sá sem er í tölvunni því hon-
um finnst ekkert vit í þessu,“ segir Haukur.
Þetta sé að vissu leyti skiljanleg afstaða því að
gera megi ráð fyrir að viðkomandi sé orðinn góð-
ur leikmaður og jafnvel í liði sem treysti á hann.
Hið sama á við um netnotkun og tölvuleiki en
að mati Hauks er það beinlínis skylda foreldra að
vita hvað börnin aðhafast á Netinu, rétt eins og
þeir telji það jafnan skyldu sína að vita hverjir
eru leikfélagar barnanna og hvað þau geri í skóla
og frítíma.
Ef vandamál tengd tölvunotkun fara úr bönd-
unum geti foreldrar leitað sér hjálpar, m.a. hjá
Heimili og skóla eða hjá sálfræðingum.
Lögregla kölluð á heimili
vegna deilna um tölvunotkun
Mikilvægt að setja reglur um netnotkun frá fyrstu tíð og fylgjast vel með
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
KÓPAVOGSBÆR mun greiða eig-
anda jarðarinnar Vatnsenda 2,25
milljarða króna fyrir 1. febrúar nk.
fyrir samtals 863 hektara lands sem
bærinn tekur eignarnámi. Sátt hef-
ur náðst í málinu en viðræður hafa
staðið milli aðila í tæpt ár. Sam-
kvæmt henni mun landeigandinn,
Þorsteinn Hjaltested, ekki greiða
gatnagerðargjöld eða önnur tengd
gjöld til bæjarins vegna lóða sem
skipulagðar eru á landi hans og lóða
sem hann fær á landi Kópavogs-
bæjar og mun því heildarkostnaður
bæjarins vegna kaupanna nema um
3,2–3,5 milljörðum króna. Um tvö
þúsund íbúðir geta risið á svæðinu.
Tillögur varðandi málið voru
samþykktar á fundi bæjarstjórnar
Kópavogs í gærkvöldi. Samfylking
greiddi atkvæði gegn tillögunum.
Samkvæmt sáttinni er sam-
komulag um að undanskilja eign-
arnámi Elliðavatn ásamt kraga í
kringum vatnið, tæplega 72 hekt-
ara. Á hluta þess svæðis verða
skipulagðar minnst 300 lóðir undir
sérbýli. Landeigandinn leggur
Kópavogsbæ til land undir götur,
veitur og opin svæði sem bærinn
tekur á móti að sér að fullklára og
viðhalda, landeiganda að kostnað-
arlausu.
Einnig fær landeigandi 11% af
öllum íbúðum og atvinnuhúsnæði
sem úthlutað verður á hinu eign-
arnumda landi og mun ekki greiða
gjöld þeim tengd til bæjarins.
Kaupir Vatns-
enda fyrir um
3,5 milljarða
Í HNOTSKURN
»Vegna kvaða sem hvíldu ájörðinni var ekki hægt að
selja landið að hluta eða í heild
og því varð Kópavogsbær að
taka það eignarnámi.
»Samkomulagið fer nú tilumfjöllunar hjá matsnefnd
eignarnámsbóta.
»Gunnar Birgisson bæj-arstjóri telur samninginn
tryggja fjárhagslega afkomu
bæjarsjóðs.
Reuters
Á Indlandi Ólafur Ragnar Grímsson forseti sem verið hefur á Indlandi
undanfarna daga hefur þegið boð um sæti í þróunarráði Indlands. | 8
EFTIR vetrarhörkurnar síðustu vikur bregður
nú svo við að útlit er fyrir janúarhitamet á land-
inu í dag. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur
sagði í gærkvöldi á bloggsíðu sinni, Veðurvakt-
inni, að afar hlýtt loft yfir landinu gæti vegið að
janúarhitametinu frá árinu 1992 þegar hitinn á
Dalatanga mældist 18,8 gráður á Celcius.
Að sögn Einars var einkum búist við miklum
hita suðaustanlands og á sunnanverðum Austfjörðum. | 4
Horfur á janúarhitameti