Morgunblaðið - 24.01.2007, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hafnaði í gær að-
alkröfu verjenda sakborninga
Baugsmálsins, að rannsókn ríkislög-
reglustjóra skuli dæmd ólögmæt.
Hann samþykkti hins vegar hluta
varakröfu verjendanna um að Har-
aldur Johannessen, ríkislögreglu-
stjóri, skuli vegna vanhæfis víkja
sæti við rannsókn málsins er varða
ætluðskattalagabrot og hegningar-
lagabrot sakborninga.
Er Haraldur dæmdur vanhæfur
vegna ummæla sem hann lét falla í
fréttatímum sjónvarspsstöðvanna í
október árið 2005 en í fréttum Stöðv-
ar 2 sagði hann m.a.: „Það er hægt
með rökum að halda því fram að rík-
islögreglustjóraembættið sé orðið of
innvolverað í þetta mál til þess að
geta litið hlutlaust á þær ákvarðanir
sem þarf að taka í framhaldinu.“
Verjendur ákærðu fóru einnig fram
á að allir starfsmenn ríkislögreglu-
stjóra vikju sæti, en á það féllst
Hæstiréttur ekki. Ólafur Börkur
Þorvaldsson hæstaréttardómari
skilaði sératkvæði þar sem hann rök-
styður þá skoðun sína að hafna eigi
öllum kröfum varnaraðila, þ.e.
Baugsmanna, í málinu. Áður hafði
Héraðsdómur Reykjavíkur komist
að þeirri niðurstöðu að auk Haraldar
bæri Jóni H.B. Snorrasyni saksókn-
ara að víkja sæti. Þar sem Jón hefur
látið af störfum telur Hæstiréttur
ekki þörf á því að taka sérstaklega
afstöðu til hæfis hans.
Báðir aðilar kærðu
til Hæstaréttar
Báðir málsaðilar skutu málinu til
Hæstaréttar. Ríkislögreglustjóri
krafðist þess að felld yrði úr gildi
niðurstaða héraðsdóms um að ríkis-
lögreglustjóri og saksóknari skyldu
víkja sæti en að úrskurðurinn yrði að
öðru leyti staðfestur. Varnaraðilar
kröfðust þess aðallega að dæmt yrði
að rannsókn ríkislögreglustjóra í
málinu væri ólögmæt. Til vara að úr-
skurður héraðsdóms yrði staðfestur
en jafnframt að allir aðrir starfs-
menn embættis ríkislögreglustjóra
skyldu víkja sæti.
Varnaraðilar byggðu aðal- og
varakröfur sínar á því að með um-
mælum ríkislögreglustjóra í fréttum
Stöðvar 2 og ríkissjónvarpsins og
ummælum sem höfð voru eftir hon-
um í Blaðinu í október 2005, hefðu
forsvarsmenn embættis ríkislög-
reglustjóra lýst sig vanhæfa til að
fara með málið. Ummælin voru sett
fram í tilefni af dómi Hæstaréttar 10.
sama mánaðar, en þar var 32 af 40
ákæruliðum samkvæmt ákæru rík-
issaksóknara gegn varnaraðilum vís-
að frá héraðsdómi. Af gögnum máls-
ins mætti ráða að þegar ummælin
voru viðhöfð hefði ríkissaksóknari
ákveðið að beiðni ríkislögreglustjóra
að taka þau gögn málsins, sem lágu
að baki ákæruliðunum sem vísað
hafði verið frá dómi, til athugunar í
því skyni að ganga úr skugga um
hvort efni væru til að höfða mál að
nýju á grundvelli þeirra.
Endurspegla huglæga afstöðu
Ríkislögreglustjóri hafnaði því að
með ummælunum hefði hann lýst yf-
ir vanhæfi sínu eða embættis síns til
að halda áfram meðferð málsins.
Hæstiréttur telur að ummæli rík-
islögreglustjóra í fréttatímum sjón-
varpsstöðvanna skírskoti með
ákveðnum hætti til sjónarmiða um
sérstakt hæfi. Verði að líta svo á að
þau endurspegli huglæga afstöðu
ríkislögreglustjóra til málsins. Þar
sem þau hafi verið viðhöfð opinber-
lega í fjölmiðlum verði sérstaklega
að líta til þess hvernig þau horfi við
almenningi og hvort varnaraðilar
geti í ljósi þeirra með réttu dregið
óhlutdrægni hans í efa. Verði um-
mælin ekki skilin á annan hátt en að
ríkislögreglustjóri telji að með réttu
megi álíta að embætti hans sé ekki
treystandi til að líta hlutlaust á mála-
vexti.
Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að
sé ríkislögreglustjóri talinn vanhæf-
ur skv. lögreglulögum beri dóms-
málaráðherra að setja sérstakan rík-
islögreglustjóra til að fara með
viðkomandi rannsókn. Víki ríkislög-
reglustjóri sæti beri honum að gera
allar ráðstafanir sem eru nauðsyn-
legar til að halda máli í réttu horfi
þar til sérstakur ríkislögreglustjóri
hefur verið skipaður. „Ákæra verður
ekki reist á rannsókn vanhæfs rík-
islögreglustjóra, en eftir að settur
ríkislögreglustjóri tekur við máli fer
rannsókn fram í skjóli valdheimilda
hans,“ segir í niðurstöðu Hæstarétt-
ar. Á settur ríkislögreglustjóri mat
um það að hvaða marki framhald
rannsóknarinnar verði reist á gögn-
um sem þegar liggja fyrir í málinu.
Aðrir starfsmenn hæfir
Hæstiréttur telur að vanhæfi Har-
alds Johannessen eigi að leiða til
þess að fallast eigi á þá kröfu varn-
araðila að rannsókn málsins sé ólög-
mæt. Þá hafnar dómurinn því að aðr-
ir starfsmenn ríkislögreglustjóra-
embættisins hafi orðið vanhæfir til
að rannsaka ætluð skatta- og hegn-
ingarlagabrot varnaraðila og eigi að
víkja sæti við rannsókn málsins og
geti ekki unnið áfram að henni undir
stjórn setts ríkislögreglustjóra. Þá
verði að leggja til grundvallar að rík-
islögreglustjóri hafi aðeins verið að
lýsa eigin afstöðu til málsins undir
sinni stjórn.
Sé því aðeins efni til að fallast á
varakröfu varnaraðila að því er lýtur
að hæfi ríkislögreglustjóra.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Gunnlaugur Claessen, Hjördís
Hákonardóttir, Hrafn Bragason,
Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur
Börkur Þorvaldsson.
Ríkislögreglustjóra ber
að víkja sæti við rannsókn
Morgunblaðið/Kristinn
Í HNOTSKURN
»Verjendur sakborninga íBaugsmálinu kröfðust þess
að rannsókn Ríkislögreglustjóra
á ætluðum skattalagabrotum
þeirra yrði dæmd ólögmæt en til
vara að allir starfsmenn embætt-
isins vikju sæti við rannsóknina.
»Talið var að með ummælumsínum hefði ríkislög-
reglustjóri orðið vanhæfur í mál-
inu og var því fallist á varakröfu
sakborninganna að því leyti.
»Ekki var hins vegar talið aðröksemdir sakborninganna
ættu að leiða til þess að að-
alkrafa þeirra næði fram að
ganga.
PÉTUR Rögnvalds-
son, fyrrverandi
frjálsíþróttamaður,
lést í Orange County í
Kaliforníu í Banda-
ríkjunum 16. janúar
síðastliðinn, 72 ára að
aldri. Hann fæddist á
Íslandi 22. apríl 1934.
Auk þess að vinna
til fjölmargra verð-
launa í tugþraut hér-
lendis keppti Pétur
fyrir hönd Íslands á
Ólympíuleikunum í
Róm árið 1960 í 110 m
grindahlaupi og var
jafnfram fánaberi íslenska ólymp-
íuliðsins.
Pétur fluttist ungur til Banda-
ríkjanna ásamt þremur börnum
sínum, þeim Lisa,
Peter Jr. og Kristine.
Hann lék í kvik-
myndinni A journey
to the center of the
earth, en hún var
sýnd í kvikmyndahús-
um snemma árs 1960.
Í framhaldi af sýn-
ingu kvikmyndarinnar
var honum boðinn
langtímasamningur í
kvikmyndaleik sem
hann hafnaði.
Í Bandaríkjunum
kvæntist Pétur eftir-
lifandi eiginkonu
sinni, Marie George. Þau eignuð-
ust tvo syni, Brian og Stephen,
sem nú eru búsettir í Suður-Kali-
forníu.
Andlát
Pétur Rögnvaldsson
VÉLAGEYMSLA við bæinn Fell í Strandabyggð gjör-
eyðilagðist í ofsaroki sem gekk yfir svæðið í gærdag.
Svo hvasst var um tíma að fólk sem gekk til gegninga á
nærliggjandi bæjum þurfti að ganga með girðingum
milli húsa.
Fell stendur í botni Kollafjarðar þar sem vegurinn
liggur yfir Steinadalsheiði. Á þessu svæði getur gert
fárviðri í sunnan- og suðvestanáttum eins og gerði
núna. Vélageymslan hefur þó staðið af sér öll vetr-
arveður á þessum slóðum í nær því hálfa öld. Á Felli er
ekki lengur stundaður hefðbundinn búskapur en þar er
nú rekið sumardvalarheimili fyrir börn og unglinga. Í
vélageymslunni sem fauk var dráttarvél auk ýmissa
verkfæra og tækja en ekki er vitað nákvæmlega hversu
mikið tjónið er.
Björgunarsveitin Dagrenning á Hólmavík var kölluð
út, skv. upplýsingum Landsbjargar. Fauk þakið af
skemmunni í heilu lagi og lenti um 150 metra frá.
Björgunarsveitarmenn fóru, ásamt bændum, í að
fergja niður hluti og rifu niður veggi sem eftir stóðu.
Vélageymsla fauk í fárviðri
Morgunblaðið/Arnheiður
Skemmdir Þak á skemmu að Felli í Kollafirði fauk af í heilu lagi og lenti um 150 metrum frá.
ÓLAFUR Börk-
ur Þorvaldsson
hæstaréttardóm-
ari skilaði sérat-
kvæði í málinu og
taldi að hafna
bæri öllum kröf-
um varnaraðila.
Ekkert lægi fyrir
um að ríkislög-
reglustjóri væri
vanhæfur í mál-
inu. Telja yrði að samskipti ríkis-
lögreglustjóra við fjölmiðla þar sem
greint var frá stöðu mála hefðu ver-
ið eðlilegur hluti starfs hans. Ólafur
Börkur segir í rökstuðningi sínum
að við athugun ummæla ríkislög-
reglustjóra í ljósvakamiðlum verði
ekki hjá því komist að líta til þess
frá hvaða sjónarhorni hann horfi á
málið og verði þau ekki skýrð öðru-
vísi en samkvæmt orðanna hljóðan.
„Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sagði
hann að það væri „hægt með rökum
að halda því fram“ að embætti hans
væri orðið „of involverað í þetta mál
til þess að geta litið hlutlaust á þær
ákvarðanir sem þarf að taka í fram-
haldinu“. Þar er hins vegar í engu
getið hvort ríkislögreglustjóri telji
sjálfur rétt að fallast á þau rök,“
segir í rökstuðningi Ólafs Barkar.
Þá segir m.a.: „Í hvorugu sjón-
varpsviðtalinu er ríkislögreglustjóri
í raun sjálfur að lýsa afstöðu sinni
til málsins heldur eru þar leiddar
líkur að því hvernig það horfi við al-
menningi og sakborningum ef sókn-
araðili héldi áfram meðferð þess í
kjölfar áðurnefnds dóms Hæsta-
réttar. Af þessum sökum geta þau
ekki verið til marks um að hann
hafi vantreyst sjálfum sér eða emb-
ætti sínu til að líta óhlutdrægt á
málið, auk þess sem samkvæmt
framangreindum dómum getur
rangt mat hans í þessum efnum
ekki ráðið úrslitum um hæfi hans.“
Liggi því ekkert fyrir um að rík-
islögreglustjóri sé vanhæfur og
þegar af þeirri ástæðu sé ekki fall-
ist á að undirmenn hans teljist van-
hæfir vegna títtnefndra ummæla
hans.
Hafna
ber öllum
kröfum
Ólafur Börkur
Þorvaldsson
LÖGREGLAN á höfuðborg-
arsvæðinu lýsir eftir Sigurði
Hólm Sigurðssyni, fanga
sem strauk af geðdeild á
Landspítalans í gær.
Sigurður, sem er 43 ára, er
grannvaxinn og stuttklippt-
ur. Hann er 184 sentimetrar
á hæð.
Sigurður var klæddur í
svartan, síðan leðurjakka,
dökkbláar buxur og svarta
skó þegar síðast sást til
hans um ellefuleytið í gær-
morgun við Landspítalann
við Hringbraut.
Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um ferðir Sigurð-
ar eru vinsamlegast beðnir
að hafa samband við lög-
regluna á höfuðborgar-
svæðinu í síma 444-1000.
Lýst eftir strokufanga
Sigurður Hólm
Sigurðsson