Morgunblaðið - 24.01.2007, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
Heimsferðir bjóða allra síðustu sætin í ferð til
Jamaica 4. febrúar. Jamaica er ein fegursta eyja
Karíbahafsins og býður upp á stórkostlega náttúru-
fegurð og veðurfar. Gríptu tækifærið og tryggðu þér
einstaka 9 nátta ferð til Karíbahafsperlunnar
Jamaica á frábærum kjörum.
Aðeins 18 sæti í boði - fyrstur kemur fyrstur fær!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til
Jamaica
4. febrúar
frá kr. 39.990
Aðeins 18 sæti – fyrstur kemur fyrstur fær
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.39.990
Flugsæti báðar leiðir með flugvalla-
sköttum. Netverð á mann.
Gisting frá kr.3.300
M.v. gistingu í tvíbýli á Hotel
Sand Castles. Netverð á mann pr. nótt.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
FRUMVARP um Ríkisútvarpið ohf.
var samþykkt á Alþingi í gær og lög-
in taka gildi 1. apríl nk. Þingmenn
stjórnarandstöðuflokkanna greiddu
allir atkvæði gegn frumvarpinu og
óskuðu eftir að málinu yrði vísað frá.
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað-
ur Vinstri grænna, gagnrýndi harð-
lega í upphafi þingfundar að svar við
fyrirspurn hennar um fjárhagsstöðu
Ríkisútvarpsins frá 7. desember sl.
hefði ekki borist fyrr en í gær, þ.e.
eftir að umræðu um frumvarpið
lauk.
Í svarinu kemur fram að rekstr-
arhalli Ríkisútvarpsins hafi verið
420 milljónir í júní 2006 og 434 millj-
ónir króna, miðað við óendurskoð-
aða stöðu frá janúar og fram í nóv-
ember. Til samanburðar var
rekstrarhalli árið 2004 tæpar 50
milljónir og um 196 milljónir árið
2005. Heildarskuldir Ríkisútvarps-
ins voru tæplega 5,2 milljarðar
króna 30. júní sl. Þar af er skuld til
Lífeyrissjóðs starfsmanna vegna líf-
eyrisskuldbindinga um þrír milljarð-
ar en skuld við ríkissjóð tæplega 1,2
milljarðar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagði að upp-
lýsingarnar í svarinu væru ekki nýj-
ar og að öllum hefði verið ljóst að
fjárhagsstaða RÚV hefði ekki verið
góð í gegnum tíðina. Á fjáraukalög-
um væri hins vegar heimild til að
fella niður skuldir Ríkisútvarpsins
upp á 625 milljónir. „Ég vil einnig
geta þess að ríkisendurskoðandi fór
yfir málið með nefndarmönnum [í
menntamálanefnd],“ sagði Þorgerð-
ur. „Hann lýsti því sérstaklega yfir
að það væri afar vel staðið að allri
formbreytingu á rekstrarumhverfi
Ríkisútvarpsins,“ sagði hún og
áréttaði að Ríkisútvarpinu yrði skil-
að með 15% eiginfjárhlutfalli þegar
því yrði breytt í opinbert hlutafélag.
Kolbrún Halldórsdóttir sagði Al-
þingi ekki hafa samþykkt neina
beiðni um að eiginfjárhlutfall Rík-
isútvarpsins yrði 15%. „Þeir fjár-
munir eru ekki til reiðu fyrir hæst-
virtan ráðherra að lofa.“
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstri grænna, sagði grunntekjur
Ríkisútvarpsins hafa dregist saman
um 15% á árunum 1996–2004 og að
upplýsingarnar í áðurnefndu svari
væru grafalvarlegar. „Finnst mönn-
um það virkilega boðlegt að afgreiða
þetta mál núna, frumvarp um Rík-
isútvarpið ohf., án þess að þessar
upplýsingar séu ræddar,“ sagði Ög-
mundur og áréttaði að með réttu
hefði svar við fyrirspurn Kolbrúnar
átt að berast innan tíu daga.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
sagði að forseti þingsins hefði átt að
sjá til þess að upplýsingarnar lægju
fyrir áður en umræðu um RÚV lauk.
Ingibjörg sagði það alvarlegasta
vera að Ríkisútvarpið hefði safnað
upp tvöfalt meiri rekstrarhalla á
árinu 2006 en allt árið á undan.
„Maður hlýtur að spyrja hvað hefur
verið að gerast inni í Ríkisútvarpinu
sem safnar 420 milljónum í rekstr-
arhalla á fyrstu sex mánuðum árs-
ins?“ sagði Ingibjörg.
Svar við fyrirspurn um RÚV
barst eftir að umræðum lauk
Atkvæðagreiðslu um Ríkisútvarpið ohf. er lokið og lögin taka gildi 1. apríl
JÓNÍNA Bjartmarz umhverfisráð-
herra flutti í gær frumvarp til laga
um Vatnajökulsþjóðgarð þar sem
Vatnajökull og helstu áhrifasvæði
jökulsins eru friðlýst. Markmiðið
með lögunum er að vernda lands-
lag, lífríki, jarðmyndanir og menn-
ingarminjar svæðisins og gefa al-
menningi kost á að kynnast og
njóta náttúru þess og sögu.
Vatnajökulsþjóðgarður verður
ríkisstofnun, Umhverfisstofnun fer
með yfirstjórn mála en stjórn þjóð-
garðsins sér hins vegar um málefni
hans í samráði við ákveðin svæða-
ráð. „Þetta er heilmikið byggðamál
fyrir þau sveitarfélög sem eiga land
að þjóðgarðinum,“ sagði Jónína.
Mörk þjóðgarðsins ráðast end-
anlega af samningum við landeig-
endur en eitthvað af því landi sem
gert er ráð fyrir að tilheyri þjóð-
garðinum er í einkaeign. Náist það
samkomulag verður þjóðgarðurinn
13.400 km², eða um 13% af yfirborði
Íslands, og nær til átta sveitarfé-
laga.
Rannveig Guðmundsdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, gagn-
rýndi að frumvarpið væri aftengt
bæði náttúrulögum og umhverfis-
stofnun og spurði hvort það væri
nauðsynlegt. „Svo virðist líka sem
yfirstjórn þjóðgarðsins eigi að
koma í stað Umhverfisstofnunar.“
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað-
ur Vinstri grænna, gagnrýndi m.a.
að hugsanlega kæmi til fjárstuðn-
ingur frá Alcoa og Landsvirkjun
sem hafa lýst áhuga á að koma að
þjóðgarðinum. Jónína sagði að enn
sem komið er væri aðeins gert ráð
fyrir fjármagni frá ríkinu þótt ekki
væri útilokað að aðrir aðilar kæmu
að frekari uppbyggingu garðsins
síðar.
Frumvarpið verður í framhaldinu
sent til umhverfisnefndar Alþingis.
Rætt um Vatna-
jökulsþjóðgarð
Morgunblaðið/RAX
Vatnajökulsþjóðgarður Þjóðgarðurinn við Vatnajökul verður líklega yfir
13.400 km² að flatarmáli, eða um 13% af yfirborði Íslands.
„VIÐ BORGUM – þú spilar, er aug-
lýst í rúllettuspilum hjá Betsson.-
com,“ sagði Ögmundur Jónasson,
þingmaður Vinstri grænna, í utan-
dagskrárumræðum um auglýsingar
um fjárhættuspil á Alþingi í gær.
Ögmundur vakti athygli á starfsemi
vefsíðunnar www.betsson.com, sem
er meðal annarra tungumála á ís-
lensku, en þar er hægt veðja á
íþróttaleiki, heimsækja spilavíti og
spila póker upp á peninga. Ögmund-
ur sagði að hæglega mætti snúa áð-
urnefndri auglýsingu við því það
væru spilafíklarnir sem greiddu
gróða Betsson sem aftur gerði sér
sjúklega spilafíkn fólks að féþúfu.
Hann gagnrýndi jafnframt út-
breiðslu spilakassa og sagðist telja
mögulegt að stemma stigu við fjár-
hættustarfsemi á Netinu. „Ég tel að
við eigum að höfða til fyrirtækja,
ekki bara um lagalegar skyldur
heldur einnig um siðferðilega
ábyrgð,“ sagði Ögmundur og spurði
dómsmálaráðherra hvort kæmi til
greina að skipa nefnd með fulltrúum
frá Samtökum áhugafólks um spila-
fíkn og frá bönkum og kreditfyrir-
tækjum til að setja reglur til að
stemma stigu við ólöglegri starfsemi
á Netinu.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra sagði að 29. mars sl. hefði
dómsmálaráðuneytið ritað bréf til
lögreglustjórans í Reykjavík þar
sem óskað var eftir því að starfsemi
betsson.net yrði rannsökuð, m.a. þar
sem vefsíðan hefði ekki leyfi til happ-
drættisstarfsemi hér á landi en hefði
engu að síður auglýst starfsemi sína
á öðrum miðlum, s.s. á visir.is og fot-
bolti.net. „Ég tel að 11. grein happ-
drættislaganna banni slíkar auglýs-
ingar,“ sagði Björn og áréttaði að
verið væri að vinna að alþjóðlegu
samstarfi varðandi þessi mál, enda
erfitt að takast á við starfsemi á Net-
inu nema með alþjóðlegum reglum.
Björn sagði einnig að mikið
raunsæi byggi á bak við ákvarðanir
um hvaða félög gætu haldið úti
rekstri spilakassa og slíkri starf-
semi. Það væri betra að starfsemin
væri í landinu og að ágóðinn rynni til
stofnana á borð við Háskóla Íslands
og Rauða krossinn.
Gera sér fíkn að féþúfu
Ríkisútvarpið er í dag sjálfstæð stofnun í ríkiseign en breytist í opinbert
hlutafélag (ohf.), skráð á hlutafélagaskrá.
Afnotagjöld verða lögð af og í staðinn greiddur nefskattur sem nemur
14.580 kr. á hvern einstakling og lögaðila. Börn yngri en 16 ára og full-
orðnir eldri en 70 ára eru m.a. undanþegin skattinum.
RÚV mun jafnframt fá tekjur sínar af auglýsingum, eins og áður.
Aðalstarfsemi RÚV ohf. verður útvarp í almannaþágu en það má ekki
eiga hlut í fyrirtæki sem gefur út dagblað eða rekur útvarpsstöð.
Útvarpsráð verður lagt niður. Alþingi kýs stjórn hlutafélagsins.
Stjórnin kýs útvarpsstjóra. Hann ræður starfsmenn og er hæstráðandi
varðandi dagskrárgerð.
Hvað felur breytingin í sér?
● VINNUDAGUR alþingismanna er nú
orðinn með hefðbundnu móti en tölu-
verðar umræður spunnust þó um mál-
efni Ríkisútvarpsins í gær, einkum
vegna svars menntamálaráðherra við
fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur
um fjárhagsstöðu RÚV. Sigurði Kára
Kristjánssyni þótti heldur spaugilegt
að stjórnarandstöðuþingmenn væru
enn að ræða Ríkisútvarpið og sagðist
halda að þeir væru með fráhvarfs-
einkenni eftir málþófið í síðustu viku.
Fráhvarfseinkenni
eftir málþóf
Össur Skarphéðinsson | 21. janúar
Egill Helgason
í framboð?
Ritúal sunnudagsins felur líka í sér
að horfa með öðru á Silfur Egils.
Pistlar Egils eru stundum áhuga-
verðir, stundum ekki. Ég er alltaf
jafn undrandi á því hvað honum
tekst að gera lítið úr starfi stjórn-
málamanna. Ég spái því samt að
hann verði kominn í framboð um
þarnæstu þingkosningar því allt fas
hans og hjal í þáttunum beinlínis
geislar af óstjórnlegri löngun til að
verða einn af oss. Allir þáttastjórn-
endur eru fullir af þannig dag-
draumum.
Meira: http://ossur.hexia.net/
ÞINGMENN BLOGGA
ÞETTA HELST ...
● HART var sótt að
framsóknarmönnum
og þeir sagðir svíkja
eigin kjósendur þar
sem RÚV ohf. væri
fyrsta skrefið í átt að
einkavæðingu. Guðni
Ágústsson taldi þó að
alltaf yrði fyrir hendi
þjóðarvilji sem og
pólitískur vilji fyrir því að ríkið starf-
rækti þjóðarútvarp. „Ég ætla hér að
setja fram þann spádóm í lok þess-
arar löngu umræðu að Ríkisútvarpið-
sjónvarp verði aldrei einkavætt eða
selt.“
Spádómur Guðna
Guðni
Ágústsson
● ÞINGFUNDUR hefst kl. 10.30 í dag
með fyrirspurnatíma þar sem ráð-
herrar sitja fyrir svörum. M.a. verður
spurt um viðhald á þjóðvegum, að-
gerðir gegn mansali og loftslagsmál.
Dagskrá þingsins