Morgunblaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LÍBANSKIR hermenn standa vörð fyrir framan
mótmælendur í Dora, austur af Beirút, höf-
uðborg Líbanons, í gær. Þúsundir mótmælenda
settu upp vegartálma úr brennandi hjólbörðum
og allskyns rusli í Beirút og víðar í landinu.
Flug raskaðist og dökkur reykjarmökkur lá
yfir borginni. Mótmælin eru hluti af almennu
verkfalli sem Hizbollah, hreyfing herskárra
sjíta, sem er studd dyggilega af Sýrlendingum
og Írönum, boðaði til. Krefst hún afsagnar Fuad
Siniora forsætisráðherra og að mynduð verði
þjóðstjórn þar sem hún hafi neitunaratkvæði.
Hóta liðsmenn hennar áframhaldandi aðgerðum
þar til ríkisstjórnin er fallin.
Stjórnarliðar telja aðgerðirnar, sem hafa stað-
ið yfir í nokkrar vikur, hins vegar tilraun til
valdaráns, sem lami samgöngukerfið. Þeir hafa
einnig hvatt stuðningsmenn sína til að sniðganga
verkfallið, sem hefur þegar sett allt atvinnulíf
landsins úr skorðum.
Hizbollah hefur allt frá því í desember sl.
reynt að koma ríkisstjórninni, sem nýtur stuðn-
ings Vesturlanda, frá með mótmælum og andófi.
Að minnsta kosti 133 manns hafa særst og þrír
týnt lífi í átökum mótmælenda og stjórnarsinna,
að sögn líbönsku lögreglunnar. Ráðstefna al-
þjóðlegra stuðningsaðila stjórnarinnar hefst í
París á morgun, þar sem rætt verður um leiðir
til að endurreisa efnahag landsins eftir átök Hiz-
bollah við Ísraelsher í fyrrasumar.
Reuters
Mótmælendur lama samgöngur í Líbanon
París. AFP. | Sego-
lene Royal,
fulltrúi sósíalista í
forsetakosning-
unum í Frakk-
landi í vor, varð á
í messunni að
loknum fundi með
Andre Boisclair,
leiðtoga flokks
sjálfsstæðissinna
í Quebec, í París á mánudag, þegar
hún sagðist styðja „sjálfstæði“ og
„frelsi“ héraðsins.
Íhaldsmaðurinn Stephen Harper,
forsætisráðherra Kanada, brást
ókvæða við tillögunni. „Reynslan
sýnir að það er einkar óviðeigandi
fyrir erlendan leiðtoga að blanda sér
í innanríkismál annars lands.“
Meirihluti íbúa Quebec, þar sem
býr vel á áttundu milljón manna, tal-
ar frönsku og eru samskipti þeirra
við aðra Kanadamenn afar viðkvæmt
málefni í stjórnmálum landsins.
Royal baðst afsökunar á ummæl-
unum í gær og sagði skoðanir sínar
ekki hafa hvikað frá þeirri gömlu
frönsku hefð að sýna hvorki „af-
skiptaleysi“ né „afskiptasemi“ gagn-
vart málefnum landsins.
Áður skömmuð fyrir mismæli
Þetta ekki í fyrsta sinn að Royal
vakti reiði á erlendri grund með um-
mælum um málefni annarra ríkja.
Þannig eru aðeins nokkrar vikur
liðnar frá því hún var sökuð um að
láta óátalin þau orð þingmanns Hiz-
bollah-samtakanna, að margt væri
sameiginlegt með fyrrum hernámi
Ísraela í Líbanon og veru nasista í
París í síðari heimsstyrjöldinni.
Þá sagði hún Frakka geta lært
margt af dómskerfi Kínverja, sem
hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir
fjöldaaftökur og réttarhöld yfir and-
stæðingum stjórnarinnar, fyrir utan
ofsóknir gegn minnihlutahópum.
Harper
svarar
Royal
Segolene Royal
Lýsti yfir stuðningi
við sjálfstæði Quebec
Washington. AFP, AP. | George W.
Bush Bandaríkjaforseti reyndi í nótt
að íslenskum tíma að snúa vörn í
sókn er hann flutti stefnuræðu sína
fyrir Bandaríkjaþingi en kannanir
sýna að stuðningur við forsetann er
með allra minnsta móti, raunar hefur
enginn forseti haft verri fylgistölur
síðan Richard Nixon flutti stefnu-
ræðu sína 1974, skömmu áður en
hann sagði af sér embætti vegna
Watergate-hneykslisins.
Repúblikanar hafa alla forsetatíð
Bush ráðið báðum deildum Banda-
ríkjaþings. Nú er hins vegar öldin
önnur, demókratar náðu meirihluta í
báðum deildum í kosningum í nóv-
ember og Bush flutti stefnuræðu
sína í nótt því við talsvert aðrar að-
stæður en hann hefur mátt venjast.
Öllum könnunum, sem teknar
voru við þetta tækifæri, ber saman;
forsetinn er óvinsæll meðal banda-
rísku þjóðarinnar um þessar mundir.
Könnun CBS sýnir Bush með 28%
fylgi og að 64% kjósenda séu
óánægðir með frammistöðu hans.
Könnun ABC/Washington Post sýn-
ir að 33% eru sátt við forseta sitt og
könnun NBC/Wall Street Journal
sýnir Bush með 35%, en Bush hefur
aldrei verið lægri í könnunum þess-
ara tilteknu miðla.
Ekki var gert ráð fyrir að Bush
ræddi Íraksmálin ítarlega í ræðu
sinni í nótt, þó að hann myndi verja
ákvörðun sína að fjölga í herliðinu í
Írak. Var því spáð að hann myndi
leggja áherslu á mikilvægi umbóta á
heilbrigðiskerfinu, orku- og mennta-
mál. Sem fyrr segir ráða hins vegar
demókratar nú ríkjum á þingi og
ekki víst að tillögur forsetans hljóti
þar mikinn hljómgrunn.
Stuðningur við Bush
í sögulegu lágmarki
Reuters
Dvínandi vinsældir George W. Bush Bandaríkjaforseta gengur ekki bein-
línis allt í haginn um þessar mundir. Hann flutti stefnuræðu sína í nótt.
Forsetinn flutti stefnu-
ræðu sína á þingi í nótt
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
KANADÍSKA þjóðin var slegin
óhug í fyrradag þegar saksóknari
skýrði frá því á fyrsta degi rétt-
arhaldanna yfir svínabóndanum Ro-
bert William Pickton að hann hefði
játað í samtali við lögregluþjón að
hafa orðið 49 konum að bana. Um
fátt hefur verið meira rætt í Kanada
að undanförnu en mál Picktons, sem
grunaður er um að vera versti
fjöldamorðingi í sögu landsins.
„Ég ætlaði að bæta við einu [fórn-
arlambi] til að hafa töluna slétta í
50,“ hefur lögregluþjónninn eftir
Pickton, sem var handtekinn 2002.
„Ég gróf eigin gröf með hroðvirkni.“
Dómari hlýddi á fleiri hryllilegar
lýsingar í réttarsalnum í Vancouver,
meðal annars lýsingu á því hvernig
Pickton hefði klofið höfuð tveggja
fórnarlamba sinna og geymt þau
ásamt afhöggnum útlimum þeirra í
frystigeymslu, þar sem þau upp-
götvuðust af lögreglu í leit hennar að
ólöglegri haglabyssu hjá honum.
Pickton, sem er
57 ára, er ákærð-
ur fyrir að hafa
myrt sex konur
sem voru vænd-
iskonur og eitur-
lyfjaneytendur.
Hann hefur lýst
sig saklausan af
ákærunum.
Í kjölfarið
munu svo fara
fram önnur réttarhöld þar sem hann
verður ákærður fyrir morð á 20 kon-
um til viðbótar, sem taldar eru hafa
horfið sporlaust frá rauða hverfinu i
í Vancouver. Lögregla hefur til-
kynnt um 65 konur sem er saknað á
svæðinu og er óttast að Pickton hafi
jafnvel myrt mun fleiri en þessar 26.
Grunaður um að hafa brytjað
fórnarlömbin í trjákurlara
Þótt reynt hafi verið að halda upp-
lýsingum um rannsóknina leyndum
fyrir almenningi, í því skyni að
tryggja sem hlutlausastan kviðdóm,
hafa fjölmiðlar sagt frá grunsemd-
um um að Pickton hafi brytjað fórn-
arlömb sín í trjákurlara og fóðrað
svínin á búi sínu á þeim.
Hann er sagður hafa boðið vænd-
iskonunum heim til 17 ekru svínabús
fjölskyldu sinnar, „Piggy Palace“,
þar sem hann hafi verið frægur fyrir
að efna til „villtra“ samkvæma.
Verði Pickton fundinn sekur á
hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi
en dauðarefsing var afnumin í Kan-
ada árið 1976. Búist er við að fyrsti
hluti réttarhaldanna muni taka um
ár og að vitnin verði alls 240 talsins.
Svínabóndi talinn hafa myrt tugi kvenna
Robert
Pickton
Bagdad. AFP. | UM 600 vígamenn og
16 hátt settir liðsmenn Mehdi-hers-
ins, 60.000 manna hers sjíta klerks-
ins Moqtada al-Sadr, hafa verið
teknir höndum að undanförnu af ör-
yggissveitum í Írak, að því er tals-
menn Bandaríkjahers skýrðu frá í
gær. Mennirnir voru teknir höndum
í 52 aðgerðum á 45 dögum en örygg-
issveitirnar hafa jafnframt handtek-
ið tugi öfgamanna úr röðum súnníta.
Frekari aðgerða er að vænta í höf-
uðborginni Bagdad, þar sem þær
undirbúa ásamt Bandaríkjaher
mikla sókn gegn vígamönnum.
Greint var frá fjöldahandtökunum
daginn eftir að á annað hundrað
manns létust í árásum í borginni og í
gær varaði erindreki Sameinuðu
þjóðanna við því, að landið væri að
sökkva í „hyldýpi“ átaka trúarhópa.
Handtökurnar eru taldar boða
frekari aðgerðir en Nuri al-Maliki
forsætisráðherra hefur verið sakað-
ur um að beita sér ekki gegn víga-
mönnum sjíta. Á sunnudag skýrðu
hins vegar tveir samstarfsmenn
hans frá því að hann hefði ákveðið að
herða aðgerðir gegn Mehdi-hernum
eftir að hafa sannfærst um réttmæti
leyniþjónustuupplýsinga um að
dauðasveitir lékju þar lausum hala.
Handtaka
600 víga-
menn í Írak
♦♦♦
Mogadishu. AFP. | Eþíópskar hersveit-
ir hófu í gær brotthvarf frá Mog-
adishu, höfuðborg Sómalíu, tæpum
fjórum vikum eftir að þær aðstoðuðu
stjórnarherinn við að hrekja vopnað-
ar sveitir íslamista úr borginni.
Sérstök kveðjuathöfn var haldin í
höfuðstöðvum flughersins í útjaðri
borgarinnar fyrir fyrsta hóp um 200
hermanna sem yfirgefur landið.
Við það tækifæri sagði embættis-
maður í varnarmálaráðuneyti Eþíóp-
íu, sem vildi ekki láta nafns síns getið,
að markmiðið hefði ávallt verið að
snúa aftur heim þegar sómalski her-
inn hefði aftur náð stjórn í borginni.
Hefja brott-
hvarf frá
Mogadishu