Morgunblaðið - 24.01.2007, Qupperneq 19
Skvísa með skart Litrík tíkar-
spenastelpa gerð með tússlitum.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
É
g ætla að verða lista-
maður,“ segir María
Ýr Leifsdóttir, átta
ára, alveg harðákveðin
þegar hún er spurð út í
framtíðina. „Að teikna og skrifa er
það skemmtilegasta sem ég geri. Ég
fer örugglega í Listaháskólann þeg-
ar ég verð eldri.“ María er öllum
stundum með blýanta og liti í hönd-
unum og undan fingrum hennar
renna myndir og sögur í löngum
bunum. Í gluggakistunni við eldhús-
borðið heima hjá henni er hár
stafli sem geymir afrakst-
urinn. „Hún situr
löngum stundum hér
við eldhúsborðið og
teiknar og skrifar.
Henni tekst meira
að segja stundum að
teikna mynd áður
en hún fer í skólann
á morgnana. Ég
grisja reglulega og
held til haga falleg-
ustu myndunum,“ segir Harpa
mamma Maríu. En María er ekki að-
eins flink að teikna, rithönd hennar
er einstaklega formfögur og
snyrtileg, sérstaklega þegar
haft er í huga að hún er aðeins
átta ára. Enda nota kenn-
ararnir í skólanum skrift-
arbækurnar hennar til að sýna
um Listaselið við Skólavörðustíg.
„María er oft hjá mér þar í vinnunni
og ef hún er ekki að föndra þá á hún
það til að teikna mynd fyrir við-
skiptavinina rétt á meðan þeir
staldra við og gefur þeim. Og þegar
ég fer í mína árlegu ferð í Hrafnagil í
Eyjafjarðarsveit til að selja hlutina
mína, þá kemur María alltaf með
mér og við komum við á æskuslóðum
mínum á Ólafsfirði. Þá tekur María
teiknidótið sitt alltaf með, enda fer
hún ekkert án þess, hvort sem það er
upp í sumarbústað eða til útlanda.“
Listamannseðlið virðist vera í
blóðinu hjá þessari fjölskyldu, því
bróðir Maríu, sem nú er orðinn átján
ára, var alltaf teiknandi og skrifandi
rétt eins og systir hans þegar hann
var yngri. Hann er ákveðinn í að
nýta hæfileikana og stefnir á nám í
arkitektúr.
Snillingur með
friðlausa fingur
Morgunblaðið/Ómar
Alltaf að María lætur enga stund ónotaða til að skapa listaverk, bæði sögur og myndir.
Jesúmynd Gleðin ríkir hjá Jósep, Maríu, englinum og vitringunum.
Skriftarbókin Vart má á milli sjá hvað er prentað og
hvað er skrifað þegar skólabækurnar hennar Maríu
eru skoðaðar og vandað er til myndskreytinganna.
eldri nemendum hvernig eigi að
draga fallega til stafs.
Maríu er í þriðja bekk í Folda-
skóla og eðli málsins samkvæmt nýt-
ur hún skólavistarinnar. „Mér finnst
gaman að búa til sögur og ég geri
mjög oft sögur með myndunum mín-
um eða myndir við sögur sem ég
skrifa. Ég nota stundum tréliti,
stundum tússliti, vatnsliti eða vaxliti
og ég hef líka prófað að mála með ol-
íulitum og það er alveg frábært,“
segir María sem á ekki langt að
sækja listamannshæfileikana því
mamma hennar er mikil hagleiks-
kona og smíðar meðal annars skart
úr silfri. Hún á og rekur ásamt fleir-
|miðvikudagur|24. 1. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Það er æskilegt að stunda
hreyfingu í að minnsta kosti
hálftíma á dag, líka á veturna
þó að kalt sé í veðri. » 20
heilsa
Æ fleiri nýta sér upplýsingar á
hvar.is þegar þeir vilja fletta
upp í heimildum eða afla sér
upplýsinga um tiltekin mál. » 21
menntun
Hrafnhildur Arnardóttir mætir í
herþjálfun klukkan rúmlega sex
á morgnana og svo lyftir hún
lóðum líka. » 20
hreyfing
HVÍTIR kjólar voru
áberandi á nýafstaðinni
Golden Globe-verð-
launahátíð og líklegt er að
sú tíska haldi áfram, ef
marka má sýningu Valent-
ino á hátískuviku í París.
Í vikunni sýna hönnuðir
hátísku komandi vors-
og sumars.
Valentino var með
léttleikandi kjóla vel
við hæfi rauða dregils-
ins. Þetta er þó ekki í
fyrsta skipti sem hann
leitar með þessum hætti í
hvíta litinn. Árið 1968 voru
eingöngu hvít föt í einni sýn-
ingu hans en það var árið
sem hann hannaði brúð-
arkjól Jackie Kennedy fyrir
brúðkaup hennar og Ari
Onassis.
Meðfylgjandi myndir voru
allar teknar á sýningunni,
sem fram fór í háborg tísk-
unnar á mánudag.
R
eu
te
rs
Vor í lofti hjá Valentino
Ívísnaþætti á Selfossi árið 1999var spurt um kventískuna.
Hafsteinn Stefánsson svaraði:
Þó að hylji fætur föt
freistingin mig kvelur.
Þarna er betra kálfakjöt
en kaupfélagið selur.
Þá Jói í Stapa:
Tískan þróast þétt og jafnt
af þekktu tækniliði,
en Evuklæðin eru samt
enn með sama sniði.
Loks Jóhannes Sigmundsson frá
Syðra-Langholti:
Stutta tískan stendur fyrir sínu,
stundum þó hún valdi kvöl og pínu.
En úr því konur fótum sínum flíka
mér finnst að karlar mættu þetta líka.
VÍSNAHORNIÐ
Af
kventísku
pebl@mbl.is