Morgunblaðið - 24.01.2007, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ingunn Ólafs-dóttir fæddist í
Hafnarfirði 25.
ágúst 1928. Hún lést
á deild 11-E á Land-
spítala við Hring-
braut að kvöldi
fimmtudagsins 18.
janúar síðastliðins.
Foreldrar hennar
voru Ólafur Jónsson,
f. 3.3. 1904, d. 27.12.
1984, og Solveig
Magnúsdóttir, f.
22.1. 1907, d. 6.12.
1993. Systir Ing-
unnar er Auður, f. 7.3. 1934, gift
Stefáni Bjarnasyni.
Hinn 6. ágúst 1949 giftist Ing-
unn Pétri Þorgilssyni, f. 27.4. 1928,
d. 14.1. 2001. Foreldrar hans voru
Þorgils Sigtryggur Pétursson, f.
18.5. 1892, d. 9.1. 1979, og Guðný
Ingigerður Eyjólfsdóttir, f. 28.2.
1897, d. 11.12. 1943. Börn Ing-
unnar og Péturs eru: 1) Solveig, f.
28.8. 1949, dætur
Ingunn og Helga
Rúna. 2) Ólafur
Tryggvi, f. 16.8.
1951, maki Margrét
Þorgeirsdóttir, börn
Lewis Tryggvi, lát-
inn, Rakel Ýr og
Katrín Rós. 3) Guðný
Ingigerður, f. 28.2.
1955, dætur Helga
og Magnea Ingi-
björg. 4) Auður, f.
22.3. 1957, maki Rík-
harður Sverrisson,
börn Pétur, Rík-
harður Björgvin og Margrét.
Langömmubörnin eru sjö.
Ingunn var framan af heima-
vinnandi en eftir að börnin urðu
stálpuð vann hún samhliða hús-
móðurstörfunum við ýmis versl-
unarstörf.
Ingunn verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Fallin er frá elsku besta móðir
mín eftir erfið veikindi. Nú ert þú
mamma komin til pabba og þið haf-
ið sameinast á ný. Hluti af mömmu
dó þegar pabbi lést. Þegar ég hugsa
til baka og rifja upp þá er mér
minnisstæðust umhyggja mömmu
fyrir okkur systkinunum, alltaf var
hún að passa upp á að við fengjum
nóg og að við litum vel út. Ég hugs-
aði stundum hér áður fyrr: Ætli hún
mamma sofi aldrei? Hún var alltaf
síðust að fara að sofa og fyrst allra
á fætur, búin að pressa allt og
strjúka. Lét okkur alltaf ganga fyr-
ir. Umhyggja hennar fór stundum
yfir strikið að mér fannst, en auðvit-
að var þetta allt vel meint. Hún var
alltaf tilbúin að hjálpa eins og hún
gat.
Mamma var mikil skíðakona þeg-
ar hún var ung og vann til margra
verðlauna. Hún stundaði ekki skíði
meðan við vorum að alast upp en
byrjaði aftur eftir að hún varð
amma. Þá fóru hún og pabbi, sem
aldrei stundaði skíði, en var til í að
vera bílstjóri. Söfnuðu saman
barnabörnum og fóru yfirleitt
hverja helgi með hópinn á skíði.
Þetta elskaði mamma, að eiga
ömmubörnin út um allar brekkur.
Það var efst í huga hennar fram á
síðustu stundu að nú færi að snjóa
svo hún kæmist á skíði.
Þessar ljóðlínur langar mig að
gera að mínum og segja
Ó, – elsku hjartans mamma, þá minnist ég
best þín,
er minnist ég á sælustu lífsatvikin mín.
Hve amalaust og gleðiríkt átti’ ég bernskulíf,
þá undir þinni hjartnæmu móðurkærleikshlíf.
Já mamma, elsku mamma, hve man ég ávallt
vel,
þitt milda, kærleiksríka og blíða hugarþel.
Ég man þegar ég kúrði í kotinu hjá þér,
þú kysstir mig og last yfir bænirnar með mér.
Þú kenndir mér hið góða, sem grær í brjósti
mér.
þú gróðursettir stilkinn, sem lífsmagnið ber,
þú hefur dýrum fræjum í sálu mína sáð.
Hvort sérðu að þau dálitlum þroska hafa náð?
Sem ljúfa drauma vaktir þú lífsins von hjá
mér.
Ég lærði að þekkja hið milda og fegursta hjá
þér.
Í faðmi þínum óx ég, við brjóstið þitt, sem
blóm
í blíðviðri, sem hlustar á vorsins sigurhljóm.
Hve fátækleg er þökkin, sem færð þú nú hjá
mér,
ég finn ekki einu sinni þau orð, er sæma þér,
mér ljúfust er sú vissa, að ljóssins faðir sér
og launar best og metur það starf, sem göfugt
er.
(Ágúst Böðvarsson)
Ég vil þakka starfsfólki á deild
11-E á Landspítala við Hringbraut
kærlega fyrir frábæra umönnun í
veikindum mömmu. Og hlýju og
nærgætni við okkur systurnar.
Takk fyrir allt elsku mamma.
Þín dóttir
Auður.
Elsku amma mín. Það er ósköp
sárt að horfa á eftir þér, lífið mun
verða tómlegt án þín. Ég á ótal
minningar um þig og afa sem munu
hlýja mér það sem eftir er ævinnar.
Þið afi voruð mér svo miklu meira
en bara amma og afi, enda var ég
svo mikið hjá ykkur sem krakki og
vildi oft á tíðum ekki fara heim með
mömmu, hún þurfti að draga mig
öskrandi út frá ykkur. Þið afi eigið
mjög stóran sess í mínu hjarta sem
aldrei verður tekinn í burtu. Ég var
mikið ömmubarn enda vorum við
með „alveg eins augu“ eins og ég
var mjög dugleg að benda á. Það
var alltaf svo gaman að vera hjá
ykkur afa og þar leið mér alltaf svo
vel og þið voruð alltaf svo góð við
mig og áttuð heilmikið í mér. Ég
gat alltaf leitað til ykkar með hvað
sem er. Þú kenndir mér og Helgu
Rúnu á skíði og þó svo afi skíðaði
ekki kom hann alltaf í fjöllin með
okkur, við skíðandi þrjár saman og
hann fylgdist með okkur á jörðu
niðri. Sú minning er mér mjög kær.
Elsku amma mín, síðustu árin
varstu farin að gleyma ýmsu en þú
gleymdir aldrei persónum. Gabríel
Pétur fékk að kynnast þér og hann
var mjög hrifinn af ömmu Ingu og
vildi alltaf ólmur fara til þín eða fá
þig í mat til okkar. En nú ertu kom-
in til afa aftur og þar átt þú heima.
Þú varst aldrei sátt við að hann
væri farin frá þér og við getum alla-
vega huggað okkur við það að nú
líður þér vel í faðmi hans að nýju,
þó svo að helst vildi ég hafa ykkur
bæði hér enn hjá mér. Ég veit að
þið vakið yfir okkur og eruð alltaf
með okkur. Elsku amma mín nú
kveð ég þig í síðasta sinn, ég elska
þig elsku amma mín.
Þín
Ingunn.
Elsku amma, nú ertu farin frá
okkur og það er mjög erfitt að
sætta sig við. Ég hugga mig við að
afi hefur beðið eftir þér með opinn
faðminn. Ég vona að þú hafir vitað
að ég var hjá þér þegar þú fórst og
strauk hönd þína. Ég er ánægð að
vita að þjáningum þínum er lokið og
betri heimur tekinn við.
Þú hefur verið mér ómetanleg allt
mitt líf. Þegar ég rifja upp allt sem
við áttum saman fyllist ég gleði.
Þannig mun ég ávallt hugsa til þín.
Ég var hjá þér öll mín uppvaxtarár
og að alast upp hjá þér og afa í
Álftamýrinni voru forréttindi. Því
mun ég aldrei gleyma. Takk fyrir að
gefa mér svo stóran hluta af lífi
þínu.
Þú hefur alltaf staðið við bakið á
mér og kennt mér svo margt. Þú
kenndir mér á skíði og margar af
yndislegustu stundum okkar saman
voru í fjallinu í Hamragili þar sem
afi var líka með okkur. Ég minnist
líka stundanna okkar saman í Álfta-
mýrinni þar sem þú sagðir mér sög-
ur. Ég hafði unun af því að hlusta á
sögurnar þegar þú varst í sveit sem
barn, t.d. um vettlingana sem þú
týndir en fundust á svo skrýtinn
hátt aftur. Ég minnist líka stund-
anna þegar afi kom heim í hádeginu
að borða og við sátum öll saman við
eldhúsborðið áður en ég átti að fara
aftur í skólann. Þær stundir eru
ógleymanlegar og kenndu mér
hvernig lífið á að vera. Þú hugsaðir
svo vel um alla í kringum þig og
vildir allt fyrir alla gera. Þú og afi
voruð alltaf svo góð hvort við annað,
báruð svo mikla virðingu hvort fyrir
öðru og elskuðuð hvort annað. Þið
voruð líka bæði svo dugleg að sýna
mér hvað þið elskuðuð mig, takk
fyrir það elsku amma. Ég hugga
mig við að nú ertu komin aftur til
afa. Þú varst alltaf svo blíð og góð.
Væntumþykja þín í garð annarra
var ómetanleg og ekki annað hægt
en að virða konu eins og þig. Þú ólst
ekki aðeins upp þín eigin börn held-
ur einnig barnabörn. Þú settir aðra
alltaf í fyrsta sæti og fjölskyldan
var það sem skipti þig mestu máli.
Við erum öll betri manneskjur
vegna þín.
Ég sakna þín óendanlega mikið
elsku amma, en ég veit að þú ert nú
á góðum stað. Þú hefur átt stóran
þátt í að gera líf mitt ánægjulegt og
þegar ég minnist þín þá muntu
halda áfram að gera það. Ég vona
að þér líði vel þar sem þú ert núna.
Ég mun alltaf hugsa um yndisleg-
ustu ömmu sem til er í heiminum.
Ég elska þig.
Helga Rúna Péturs.
Ingunn Ólafsdóttir
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
✝
Minn ástkæri eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HALLDÓR JÓN VIGFÚSSON
atvinnurekandi og smiður,
Bústaðabletti 10,
Reykjavík,
lést föstudaginn 19. janúar.
Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 25. janúar kl. 13.00.
Gróa Magnúsdóttir,
Jón Trausti,
Katrín,
Soffía Dröfn, Garðar Sigurjón,
Jóhann Kristján,
Hjalti Þór, Guðný Vala
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts móður okkar,
HALLDÓRU GUÐLAUGAR
STEINDÓRSDÓTTUR,
Hverahlíð 20,
Hveragerði,
sem lést á hjúkrunardeild dvalarheimilisins Áss
sunnudaginn 7. janúar.
Við færum þakkir öllum þeim sem veittu Halldóru umönnun og aðstoð.
Eyjólfur Gestsson,
Sigrún Valgerður Gestsdóttir, Sigursveinn Magnússon,
Steindór Gestsson, Ólöf Jónsdóttir,
Guðríður Gestsdóttir, Kristján Gíslason,
Sigurbjörn Ármann Gestsson, Anna Sigríður Hjartardóttir
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu,
samúð og hlýhug við fráfall og útför elskulegs
bróður og mágs,
SÆVARS NÍELSSONAR
frá Melgerði,
Hlíðargötu 33,
Fáskrúðsfirði.
Aðalbjörg Níelsdóttir, Georg Einarsson,
Guðrún Níelsdóttir, Eiríkur Ólafsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
PÉTUR RÖGNVALDSSON (RONSON),
andaðist á sjúkrahúsi í Orange County í Kaliforníu
þriðjudaginn 16. janúar.
Bálför hefur farið fram.
Marie Ronson,
Brian Ronson,
Stephen Ronson,
Lísa Björg Hart,
Kristín Berg Ronson,
Pétur August Pétursson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
EINAR JÓNSSON
frá Drangsnesi,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn
18. janúar, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 26. janúar kl. 13.00.
Hólmfríður Pálmadóttir,
Steingrímur Einarsson,
Jón Einarsson, Ingibjörg Hjörvar,
Sigurður Pálmi Einarsson, María Teodóra Munoz,
Garðar Einarsson, Guðbjörg Bárðardóttir,
Smári Einarsson, Bára Reynisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
STEFANÍA GUÐLAUG STEINSDÓTTIR,
Huldugili 9,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn
26. janúar kl. 15.00.
Guðmundur Sigurjón Finnsson,
Lilja Sigríður Guðmundsdóttir, Baldur Snævarr Tómasson,
Steinunn O. Guðmundsdóttir, Björgvin Sveinn Jónsson,
Guðmundur Finnur Guðmundsson, Rósa Jennadóttir,
Kristín Björk Guðmundsdóttir, Guðmundur Jóhannesson,
Jón Birgir Guðmundsson, Þórunn Guðlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.