Morgunblaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 35
menning
Ég skellti mér í Regnbogannsl. laugardag á hina stór-skemmtilegu kvikmynd
Litlu ungfrú Sólskin (Little Miss
Sunshine). Þann sama dag var
myndin óvænt valin sú besta á síð-
asta ári af Samtökum bandarískra
sjónvarps- og kvikmyndaframleið-
enda og í gær var svo tilkynnt að
hún væri meðal þeirra fimm mynda
sem til greina koma þegar val
bandarísku kvikmyndaakademí-
unnar á bestu mynd síðasta árs
verður tilkynnt á Óskarsverðlauna-
afhendingunni í febrúar.
Það yrði saga til næsta bæjar ef
Litla ungfrú Sólskin myndi hreppa
það eftirsótta hnoss. Myndin er
ekki þessi týpíska stórmynd sem
þar koma jafnan til greina og var
frekar ódýr í framleiðslu á Holly-
wood-mælikvarða. En leikstjórar
myndarinnar hittu svo sannarlega
naglann á höfuðið þegar þeir í ný-
legu viðtali hér í blaðinu lýstu sköp-
unarverki sínu sem bráðfyndnu en
um leið með þunga og tilfinningar.
En það var ekki bara myndinsjálf sem var fagnaðarefni
þetta laugardagskvöld heldur einn-
ig sú staðreynd að ekkert hlé var
gert í henni miðri; myndin var ekki
stöðvuð í miðjum klíðum til að gefa
kvikmyndagestum tækifæri á að
létta á pyngjum sínum í sjoppu
kvikmyndahússins. Fyrir vikið
þurftu áhorfendur ekki að koma
sér aftur í réttu stemninguna að
hléi loknu heldur var upplifunin
samfelld frá upphafi til enda.
Myndir eru auðvitað hugsaðar
sem samfellt listaverk, skemmtun
eða afþreying, eftir því hvað lagt er
af stað með. Það er ekki gert ráð
fyrir hléi og ólíkt því sem mætti
heimfæra upp á t.d. leikhús eða
dans er engin þörf á hléi listamann-
anna vegna. Eftir því sem ég kemst
næst er líka hvergi í heiminum ann-
ars staðar en á Íslandi hlé gert á
myndum. Heimsóknir mínar í kvik-
myndahús erlendis virðast alla
vega benda til þess að sá siður sé al-
íslenskur. En þetta er ósiður og var
laugardagskvöldið enn frekari
staðfesting á því fyrir mér. Myndin
var smátíma að komast í gang en
náði svo skemmtilegu flugi þegar
líða tók á. Það hefði verið synd að
stöðva sýningu í miðju flugtaki.
Það er dreifingarfyrirtækiðGræna ljósið sem hefur séð til
þess að hægt er að njóta Litlu
ungfrú Sólskins án hlés á Íslandi.
Græna ljósið er dreifingarfyrirtæki
sem hefur náð samkomulagi við
hérlend kvikmyndahús um svokall-
aðar gullnar reglur Græna ljóssins.
Þeirra á meðal er sú regla að engin
hlé séu gerð á sýningum þeirra
mynda sem Græna ljósið dreifir.
Hinar reglurnar eru svo efni í ann-
an pistil: magn auglýsinga í upphafi
myndar er minnkað og miðasölu
lýkur um leið og sýning hefst, til að
koma í veg fyrir truflun.
En af hverju í ósköpunum eru
gullnu reglurnar ekki reglan held-
ur undantekningin í íslenskum
kvikmyndahúsum?
Myndir án hlés
Án truflunar Hægt er að sjá Litlu ungfrú Sólskin án hlés.
AF LISTUM
Flóki Guðmundsson
»Eftir því sem égkemst næst er líka
hvergi í heiminum ann-
ars staðar en á Íslandi
hlé gert á myndum.
floki@mbl.is
Það er ekki aðeins í heimaland-inu sem umhverfissáttmálifranska sjónvarpsmannsins
Nicolas Hulot vekur athygli. Fjöl-
miðlar grannlöndunum halda enn
áfram að fjalla um þessa þróun mála
í Frakklandi, nú síðast hið virta
þýska vikublað Der Spiegel. Það eru
líka mikil tíðindi að sigurstrangleg-
ustu frambjóðendur til forsetakosn-
inga í Frakklandi hafa skrifað undir
sáttmálann og skuldbundið sig þar
með til að fara eftir þeim mark-
miðum sem Hulot setur fram.
Sú spurning er þó enn opin hvort
Hulot þyki nóg að gert eða hvort
hann muni sjálfur bjóða sig fram.
Það mundi hrista rækilega upp í
kerfinu, því hann er samkvæmt
nýrri skoðanakönnum ástsælasta
persóna í frönskum stjórnmálum -
fyrir áttatíu og eitt prósent að-
spurðra.
Fordæmi Nicolas Hulot vekur
umhugsun um mátt og megin ein-
staklingsins gagnvart tregum
stjórnmálamönnum, sem virðast
eiga það ótrúlega sammerkt að vilja
helst ekki horfast í augu við Óþægi-
legar Staðreyndir (eins og loftslags-
breytingar af mannavöldum). Hug-
urinn hvarflar til Íslands þar sem
fjölmennur hópur með nokkra mjög
sterka einstaklinga í fararbroddi
hefur reynt að koma stjórnvöldum í
skilning um að meðferðin á náttúru
Íslands til að afla raforku fyrir
mengandi álver er frumstæð rán-
yrkja, óskynsamlegt gerræði.
(Loftslagsbreytingar virðast varla
komast á blað á Íslandi, þótt varla
verði minnna ólíft þar en annars
staðar ef svo heldur fram sem horf-
ir).
Og hver er svo árangurinn? Rík-
isstjórnin er ekki hræddari en svo
við þá sem er raunverulega annt um
náttúru Íslands (það er ósamrým-
anlegt að vera annt um náttúru Ís-
lands og heimsins - og vera líka
fylgjandi fleiri álverum á Íslandi,
hvað sem móðgandi áróðri stjórn-
valda líður um að eiga kökuna og éta
hana) að NORÐLINGAALDA er
enn á dagskrá. Í desember 2006 var
sá draugur vakinn upp, minna en
hálfu ári fyrir kosningar, sem sýnir
best hvað ríkisstjórnin er örugg um
sig þegar að náttúrueyðingu kemur.
Áfram er hugsað til þess að vega að
Þjórsárverum, dýrustu náttúruperlu
sem enn getur heitið ósnortin á Ís-
landi. Baráttan fyrir þessari nátt-
úruperlu hefur staðið áratugum
saman. Þar hafa sameinast heima-
menn, innlendir náttúruunnendur,
stórfrægir erlendir náttúruvernd-
armenn, svo aðeins Sir Peter Scott
sé nefndur. En hin gíruga hönd rík-
isfyrirtækisins Landsvirkjunar
heldur áfram að seilast inn í landið,
og það eftir að hafa sett upp risa-
vaxna eyðingarvél sem kennd er við
Kárahnjúka, í hjarta öræfanna - vél
sem eyðir ekki aðeins óviðjafn-
anlegri náttúru og gróðri í stórum
og hættulegum stíl, heldur einnig lífi
og heilsu manna. Fjögur mannslíf
hefur þessi eyðingarvél tekið til sín -
og hversu stór er fjöldi örkumla-
manna af völdum vinnuslysa við
þessa illræmdu framkvæmd? Halló
fjölmiðlar, er einhver heima?
Það að Norðlingaalda er enn á
dagskrá færir okkur heim sanninn
um að þeir sem stjórna Íslandi eru
óforbetranlegir þegar kemur að
málum sem varða umhverfi og nátt-
úru. Að þeir hlusta ekki á vinstri-
græna stjórnarandstöðu sem reynir
að koma viti fyrir þá, og að þeir urðu
eitthvað lítið varir við Laugavegs-
göngu síðasta haust til varnar nátt-
úrunni, undir forystu Ómars Ragn-
arssonar. Það voru nú ekki nema tólf
eða fimmtán þúsund manns sem þar
tóku til fótanna. En þeir sem stjórna
Íslandi eiga sér líka dygga stuðn-
ingsmenn í þagnarbandalaginu, sem
eru lúnir og veikir fjölmiðlar. Er það
virkilega satt að það hafi ekkert ver-
ið um Laugavegsgönguna í Sjón-
varpsannáli ársins? Ef eitthvað var,
var þetta frétt ársins á Íslandi. ( Í
Frakklandi eru það tíðindi sem
koma á öllum sjónvarpsstöðvum í
fréttum dagsins, ef tvö þúsund
manns safnast saman í Parísarborg).
Og þau stjórnvöld sem hafa ekki
tekið af skarið um stærra friðland í
Þjórsárverum og Norðlingaöldu út
af borðinu, en marsera áfram í stór-
iðjutakti, hafa heldur ekki heyrt um
Framtíðarlandið. Þessi hópur varð
til á mjög áhrifamiklum fundi 17.júní
2006, í Austurbæjarbíói. Kjarni hans
er öflugt framfarafólk sem á að
minnsta kosti það sameiginlegt að
sætta sig ekki við hvernig farið er að
því að taka ákvarðanir á Íslandi,
hversu illa ígrundaðar þær eru oft,
og einkennast af skammtímahugsun
- samanber þá ákvörðun sem mest
breytir Íslandi, í bókstaflegri merk-
ingu, ákvörðunin um Kára-
hnjúkavirkjun.
Úr því stjórnvöld eru svo full-
komlega skeytingarlaus um það sem
Framtíðarland og Laugavegs-
göngufólk með meiru hefur að segja,
þá getur það vel orðið niðurstaðan
að eina leiðin til að reyna að losa um
heljargreipar hins þrautnjörvaða
valdakerfis flokkanna verði sú að
gefa kjósendum kost á að velja ann-
að en kerfisverðina - gefa kjós-
endum kost á að teikna aðra mynd af
Íslandi en þá útbíuðu álmynd sem nú
blasir við á teikniborðinu.
Ég á heima á Ál-landi ... Ál-landi ... i ...
» Áfram er hugsað tilþess að vega að
Þjórsárverum, dýrustu
náttúruperlu sem enn
getur heitið ósnortin á
Íslandi.
steinunn@mac.com
FRÁ PARÍS
Steinunn Sigurðardóttir
Morgunblaðið/RAX
Þjórsárver „Gírug hönd Landsvirkjunar heldur áfram að seilast inn í landið.“
Ársalir - fasteignamiðlun Ársalir - fasteignamiðlun
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Símar 533 4200
og 892 0667
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar:
Ársalir ehf. - fasteignamiðlun
Höfum kaupendur að öllum stærðum og gerðum
atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Staðgreiðsla í boði.
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST!
Sérstakt tilboð til VISA kreditkorthafa í janúar:*
Miðinn í forsölu á 1.950 kr. í stað 2.900 kr.
*500 kr. afsláttur á miða eftir það.
LEIKRITBYGGTÁSÖGUSTEPHEN KING
VALDIMAR ÖRN FLYGENRINGÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR
FORSALA Á MISERY ER HAFIN
Sýnt á NASA við Austurvöll
Miðasalan er opin alla virka daga frá kl. 11 - 16
í síma 511 1302 eða á NASA.is
Frumsýning föstudaginn 26. janúar kl. 20 Uppselt
2. sýning sunnudaginn 28. janúar kl. 20
3. sýning laugardaginn 3. febrúar kl. 18
4. sýning sunnudaginn 4. febrúar kl. 20
Ath. breyttan sýningartíma
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111