Morgunblaðið - 24.01.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 41
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Veltu fyrir þér nýju sambandi, helst
með einhverjum sem er erfitt að
reikna út. Tvíburi væri málið. Fersk-
leikinn sem það hefur í för með sér
myndi koma sköpunarkrafti þínum
upp á yfirborðið, þar sem hann á
heima.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Leggðu yngri samstarfsmönnum þín-
um lið. Þótt þeir kunni kannski ekki að
meta það núna, beinast jákvæðir
straumar að þér þegar helgin nálgast.
Fólk í meyjar- eða steingeitarmerki er
einstaklega móttækilegt fyrir þér.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Óskhyggja er dagskipunin. Tvíbur-
anum líður eilítið kjánalega - eins og
hann sé að nudda lampa Aladdíns, í
þeirri von að andinn láti á sér kræla.
Haltu því áfram, galdrar eru til í alvör-
unni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn verður beðinn um að end-
urtaka eitthvað. Ef hann gerir það,
skín ljós hans skærar en nokkru sinni
fyrr. Minniháttar skekkja í útreikn-
ingum gæti reynst meiriháttar vand-
ræði. Farðu vel yfir allar tölur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Settu saman lista yfir kosti og galla
þinnar núverandi vinnu. Taktu það
sem mælir með og spáðu í það hvort
nýr mælikvarði myndi ekki gera að-
eins minna úr því. Þú átt skilið að eyða
tímanum í eitthvað sem þú nýtur í
botn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan er vinur vina sinna, líka þegar
þeir hafa rangt fyrir sér. Hún hefur
náð tökum á því að elska syndarann,
ekki syndina. En stundum, eins og til
dæmis í dag, er betra að segja vinum
sínum að bæta ráð sitt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin veltir því fyrir sér hvers vegna
enginn hefur stokkið á tækifærið til
þess að sinna viðskiptum eða einkaer-
indum. Leiðin til þess að knýja þau
áfram er að labba í burtu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er einbeittur en lætur
slá sig auðveldlega út af laginu af vel
meinandi fólki sem er bara að leita að
félagsskap. Vertu á varðbergi gagn-
vart einhverjum indælum og þægileg-
um sem veit ekki hvað hann vill fá út
úr lífinu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ofurgáfur bogmannsins vinna með
honum. Það eina sem hann þarf að
gera, er að fá frið, ómerkja allar afsak-
anir og neita að trúa því sem hann vill
í stað þess sem er satt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Tíminn er auðlind sem steingeitin hef-
ur ekki ráð á því að sólunda. Taktu
stjórnina á honum í þínar hendur. Ef
forvitnar persónur spyrja hvað þú ert
að gera, er engin ástæða til þess að
ljóstra því upp.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu þig dreyma, áformaðu og finndu
upp. Nú er komið að þér að leggja í
púkk mannlegrar þekkingar. Það gerir
vatnsberinn best með því að leysa ein-
földu vandamálin í sínu eigin lífi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn hefur verið gerður að
verndardýrlingi erfiðra manneskja,
enda laðast þær að honum. Það er
vegna þess að hann er betri í því en
aðrir að fást við þá sem eru misskildir
og ekki viðbjargandi. Það er að
minnsta kosti ábatasamt.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Tungl í hrúti er engin
bekkjarrós - hún er meira
eins og þyrnótt skrautrós í
fullum og skærrauðum
blóma. Viðhorfið er
stingandi. Ef maður nálg-
ast fólk á rangan máta, kemur það hugs-
anlega illa við kaunin hvort á öðru. En
það er áhættan ef maður reynir að breyta
umhverfi sínu af dirfsku og til hins betra.
gas til Santa Barbara til þess að gefa
sig fram vegna ákæra er vörðuðu
misnotkun á börnum.
Lögmenn beggja aðila í málinu af-
söluðu sér réttinum á að kviðdóm-
endur myndu kveða upp dóm í mál-
inu. Í staðinn mun því dómari hjá
yfirdómi Los Angeles gera það.
Samkvæmt því sem fram kemur íslúðurtímaritinu People virðist
sem Cameron Diaz ætli að vera
nokkuð fljót að ná sér eftir að uppúr
slitnaði hjá henni og Justin Timber-
lake. Cameron slappar þessa dag-
ana af á ströndum Hawaii ásamt
brimbrettameistaranum Kelly Sla-
ter. Haft er eftir heimildarmanni
blaðsins: „Einhver sá Kelly með
virkilega flottri píu í bílnum hjá sér
og þegar við athuguðum málið betur
kom í ljós að það var hún. Þau voru
bara á rúntinum.“
Kelly er reyndar ekki óvanur því
að rúnta með frægum skvísum því
hann hefur áður sést í slagtogi með
Pamelu Anderson og ofurmódelinu
Gisele Bundchen.
MAÐUR er nefndur Stefán Hösk-
uldsson. Hann er flautuleikari og ekki
bara það: Hann er annar flautuleikari
Metropolitan-óperuhljómsveit-
arinnar í New York. Það eru engir
aular sem eru ráðnir í slíkar stöður,
og var það auðheyrt strax á fyrstu
tónum upphafsatriðis tónleika í Saln-
um í Kópavogi á föstudagskvöldið.
Það var einleikssónatan fræga í a-
moll eftir Carl Philip Emanuel Bach
og spilaði Stefán hana undurvel. Hver
einasti tónn var svo hreinn og vel
mótaður að unaður var á að hlýða.
Þetta er dramatískt verk sem krefst
allskonar litbrigða í túlkun og var
flutningur Stefáns göldrum líkastur,
fullur af blæbrigðum og skáldskap.
Í næsta atriði dagskrárinnar, són-
ötu í A-dúr eftir Fauré, kom píanó-
leikarinn Elizaveta Kopelman til liðs
við Stefán. Kopelman sannaði það ný-
verið að hún er frábær píanóleikari,
en þá flutti hún allar prelúdíur og
fúgur Sjostakóvitsj í tónleikum í
Salnum með glæsibrag. Ekki síðri
var leikur hennar nú, sem var í senn
silkimjúkur og nákvæmur. Sampil
hennar og Stefáns var líka fullkomið
og var útkoman einstaklega áhrifa-
mikil.
Forleikur að Síðdegi skógarpúkans
eftir Debussy var sömuleiðis dásam-
lega seiðandi í meðförum hljóðfæra-
leikaranna og sónatan op. 94 eftir
Prókofíev var stórfengleg, gædd fít-
onskrafti, án þess að sjarminn, sem
einkennir innhverfari þætti verksins,
glataðist.
Stefán hefur ekki verið sérlega
áberandi í tónlistarlífinu hérlendis, en
vonandi á það eftir að breytast. Ís-
lendingur sem spilar svona vel ber
beinlínis skylda til að halda tónleika
hér á landi með reglulegu millibili!
Jafnvel þótt hann sé í fullu starfi á er-
lendri grund.
Göldrum líkastur
TÓNLIST
Salurinn í Kópavogi
Tónlist eftir C. P .E. Bach, Fauré, Debussy
og Prókofíev í flutningi Stefáns Höskulds-
sonar flautuleikara og Elizavetu Kopelman
píanóleikara. Föstudagur 19. janúar.
Flaututónleikar
Fær Stefán Höskuldsson og Elizaveta Kopelman.
Jónas Sen
SEINNI helmingur 50. starfsárs
Kammermúsíkklúbbsins hófst
sunnudaginn 7. janúar við að venju
góða aðsókn. Dagskráin spannaði á
þriðju öld með verkum eftir síðbar-
okkhöfundana Georg Philipp Telem-
ann (1681–1767) og Jan Dismas Ze-
lenka (1679–1745) ásamt Dmitri
Sjostakovitsj (1906–75); dálítið í anda
Sumartónleika í Skálholti er sér-
kennzt hafa af svipaðri blöndu af
forntónlist og nútímamúsík.
Barokkverkin voru útvíkkuð af-
sprengi tríósónötunnar, höfuðkamm-
ergreinar síns tíma; hér fyrir 3 (í stað
2) laglínuhljóðfæri og „fylgirödd“
eins og kallað var í tónleikaskrá og
enn má heyra notað af gömlum vana í
kynningum Rásar 1. Því miður er
orðið vandræðaleg og jafnvel villandi
prentsmiðjuþýðing á „[basso] cont-
inuo“ – þ.e. sembal + bassahljóðfæri
(oftast selló) er barokkmenn litu á
sem eina rödd og væri betur þýdd
sem fylgibassa, enda miðuð við nó-
teraða bassalínu hljómsetta eftir tölu-
stöfum. Fylgiraddarheitið væri hins
vegar brúklegt fyrir obbligato eða
fyrirskrifaða aukasólórödd, sbr.
„flauto obbligato“.
En þó undirrituðum þyki mál að
hreinsa til í téðu hugtakarugli er ólík-
legt að það hafi staðið mörgum nær-
stöddum fyrir þrifum. Tónleikarnir
voru nefnilega glettilega vel heppn-
aðir, þrátt fyrir að nokkra nýgræð-
inga væri að finna meðal hljómlist-
armanna á þessum virta vettvangi í
tónlistarlífi höfuðborgarsvæðisins.
Hvort þær kringumstæður hafi sér-
staklega hvatt til vandaðs undirbún-
ings er ekki gott að segja. En vissu-
lega benti heyranleg útkoman til
þess, því í mínum eyrum hljómaði
flest afar frambærilegt, einkum þó
strengjakvartettinn í lokin.
G-dúr kvartett Telemanns (Fl./F./
Óbó/Fb.) úr bálki hans „Musique de
table“ frá 1733 var m.ö.o. „dinner-
tónlist“ að upplagi, og því á sinn hátt
skondið að hlýða á hann með jafn-
óskiptinni einbeitingu og þegar tón-
sköpunarhátindar seinni og athyg-
lifrekari tíma eru í boði. Miðað við
lygileg afköst þessa fjölskylduvinar J.
S. Bachs er lagrænn frjóleiki hans
með ólíkindum og því síður ótrúan-
legt að yfir 150 stef hans skyldu rata í
ýmis verk hins fjölþreifna Händels.
Camerarctica lék afþreying-
arverkið af hæfilegu áreynsluleysi, og
gilti það einnig um alvarlegri 3. són-
ötu hins bæheimska Zelenkas frá
1722 (F./Óbó/Fag./Fb.). Þótt kröf-
urnar til óbósins hafi hvatt óbósnill-
inginn Holliger til að vekja 6 sónatna
bálkinn frá gleymsku fyrir 30 árum,
vöktu ekki síður athygli linnulausu fa-
gottrúllöðurnar í II. þætti í furðu-
þjálli meðferð Kristínar Mjallar.
4. strengjakvartettinn í D-dúr frá
1949 kann e.t.v. að vera einn af með-
færilegri kvartettum Sjostakovitsjar,
m.a. fyrir hvað verkið útheimtir til-
tölulega litla hóprúbatótúlkun (að-
alhænginn á dæmigerðum íslenzkum
„ad hoc“ kammerleik) til að virka.
Það skýrði þó ekki alveg þau óvæntu
undur og býsn sem áheyrendur upp-
lifðu í þrælinnlifaðri túlkun fjórmenn-
inganna sem á köflum jaðraði við
heimsmælikvarða. Hér dugði feg-
urðin ekki til ein, heldur bættist líka
við aðkenning af hressandi sálarbót
sem tónhollustufrömuður á við Char-
les Ives hefði örugglega kunnað að
meta.
Undur og býsn
TÓNLIST
Bústaðakirkja
Verk eftir Zelenka, Telemann og Sjos-
takovitsj. Kammerhópurinn Camer-
arctica (Hildigunnur Halldórsdóttir &
Bryndís Pálsdóttir fiðla, Svava Bern-
harðsdóttir víóla, Sigurður Halldórsson
selló, Hallfríður Ólafsdóttir flauta, Eydís
Franzdóttir óbó, Kristín Mjöll Jak-
obsdóttir fagott og Guðrún Óskarsdóttir
semball). Sunnudaginn 7. janúar kl. 20.
Kammertónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson