Morgunblaðið - 24.01.2007, Qupperneq 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 24. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Vestlæg átt,
víða 8–15 metrar
á sekúndu. Súld
um landið vest-
anvert, annars skýjað og
þurrt.» 8
Heitast Kaldast
10°C 3°C
Ljósmynd/Günter Schröder
Eftir Ívar Benediktsson í Dortmund
iben@mbl.is
„LOGI er allur að koma til en hvort hann
verður með á morgun veit ég ekki, en
meiðslin eru ekki alvarleg að ég tel,“ sagði
Brynjólfur Jónsson, læknir íslenska lands-
liðsins í handknattleik, spurður um meiðsli
Loga Geirssonar landsliðsmanns.
Logi tognaði á ökkla eftir 19 mínútur í
viðureigninni við Frakka í fyrrakvöld á
heimsmeistaramótinu. Hann kom aftur við
sögu síðar í leiknum. Í leikslok sagðist Logi
vera mjög aumur í ökklanum. Hafði þá ís-
molapoki verið límdur um ökklann.
Logi æfði með íslenska landsliðinu í
íþróttahöllinni Halle Westfalen í gær-
kvöldi, átti reyndar aðeins að skokka létti-
lega og ekki taka sérstaklega á með liðinu.
Liðið æfði í gærkvöldi og sagðist Alfreð
Gíslason landsliðsþjálfari ætla með hópinn
á æfingu klukkan níu árdegis í dag. „Það
reyndist vel fyrir Frakkaleikinn að taka
hörkuæfingu að morgni leikdags og við ætl-
um að endurtaka leikinn núna,“ sagði Al-
freð. Ef Logi getur ekki leikið í dag kemur
Arnór Atlason inn í hópinn.
Fyrsta viðureign Íslands í milliriðla-
keppninni verður við Afríkumeistara Túnis
í Westfalen-íþróttahöllinni í Dortmund í
dag og hefst hún klukkan 15.30. | Íþróttir
og miðopna
Óvíst með
Loga í dag
Bólginn Svona leit ökklinn á Loga út.
Tognaði á ökkla en
læknir landsliðsins telur
meiðslin ekki alvarleg
STÆRSTA flugskýli varnarliðsins sem hafði aðsetur á Keflavík-
urflugvelli er aðeins ein af um þrjú hundruð byggingum sem Þróun-
arfélag Keflavíkurflugvallar mun á næstu fjórum árum reyna að færa frá
hernaðarlegri notkun til borgaralegrar. Um hundrað hugmyndir og er-
indi hafa þegar borist félaginu um nýtingu, allt frá einstökum byggingum
upp í þróun svæðisins, og er bæði um að ræða innlenda og erlenda aðila.
Húsnæðið á varnarsvæðinu er yfirleitt í mjög góðu ástandi, að sögn
Magnúsar Gunnarssonar, stjórnarformanns félagsins. | Miðopna
Morgunblaðið/RAX
Byggingar færðar til borgaralegra nota
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
NEFSKATTURINN sem verður lagður á til að
fjármagna rekstur Ríkisútvarpsins leggst ein-
göngu á þá einstaklinga og lögaðila sem greiða
tekjuskatt. Þeir sem aðeins hafa fjármagns-
tekjur sleppa því við nefskattinn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra segir að þetta verði tekið til skoð-
unar en nægur tími sé til stefnu því ekki verði
byrjað að innheimta nefskattinn fyrr en 2009.
Samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið ohf. sem
samþykkt voru í gær leggst afnotagjaldið af en í
staðinn verður innheimtur nefskattur, 14.580
krónur af einstaklingum og lögaðilum. Undan-
þegnir gjaldinu eru þeir sem ekki ber skylda til
að greiða gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra.
Þar með sleppa þeir sem aðeins hafa fjármagns-
tekjur undan skattinum því að gjaldið er ein-
göngu innheimt af tekjuskatti.
Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra
á þetta við um 2.200 manns hér á landi.
Á að ná til allra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra sagði að mál þeirra sem eingöngu
hafa fjármagnstekjur yrði að leysa með almenn-
um breytingum á skattkerfinu en það hefði þótt
of flókið að bæta úr þessu í gegnum einstök sér-
lög eins og um RÚV ohf. Það væri hins vegar al-
veg ljóst að nefskatturinn ætti að ná til allra og
það væri nægur tími til að laga skattkerfið til
þess að það mætti takast.
Á Alþingi í gær var deilt á menntamálaráð-
herra vegna þess að svar við fyrirspurn um fjár-
hagsstöðu RÚV barst of seint og eftir að um-
ræðu um frumvarpið um RÚV ohf. lauk. Í
svarinu kom fram að rekstrarhalli RÚV 1. júní
2006 var 420 milljónir og 434 milljónir frá janúar
fram í nóvember. Þorgerður Katrín sagði að
hallinn stafaði að mestu af óhagstæðri geng-
isþróun. Stjórnarandstaðan hefði lengi vitað af
hallanum því gögn um fjárhagsstöðuna á fyrri
hluta árs hefðu komið fram í skýrslu sem lögð
var fyrir menntamálanefnd á sínum tíma. Þetta
væri ekkert nýtt og kristallaði hræsni í mál-
flutningi stjórnarandstöðunnar. | 10
Um 2.200 fjármagnseig-
endur greiða ekki nefskatt
Nefskattur RÚV leggst eingöngu á einstaklinga og lögaðila sem greiða
tekjuskatt Menntamálaráðherra segir að skatturinn eigi að ná til allra
TOLLVERÐIR fundu á föstudag
um eða yfir 13.000 steratöflur í vöru-
sendingu sem hafði verið skipað í
land í Reykjavík. Viðtakandi send-
ingarinnar var verslunarmaður á
Suðurnesjum og voru efnin flutt inn
í nafni hans.
Að sögn Harðar Davíðs Harð-
arsonar, aðaldeildarstjóra hjá Toll-
stjóranum í Reykjavík, fundust töfl-
urnar við hefðbundið eftirlit og voru
þær faldar á vörubretti með vörum
sem fyrirtækið var að flytja inn. Bú-
ið er að frumgreina efnainnihald
taflnanna og bendir það til þess að
eingöngu sé um stera að ræða.
Þar sem fyrirtækið er á Suð-
urnesjum var rannsókn málsins falin
lögreglunni á Suðurnesjum. Að sögn
Eyjólfs Kristjánssonar, fulltrúa lög-
reglustjórans, var hinn grunaði
handtekinn á mánudag og við-
urkenndi við yfirheyrslur að eiga
töflurnar og hafa flutt þær inn.
Steratöflurnar munu vera upp-
runnar í Taílandi.
Magnið er mikið en það er þó ekki
einsdæmi að lagt sé hald á svo mikið
magn af sterum og sem dæmi má
nefna að í mars í fyrra lagði tollstjór-
inn hald á mikið magn af sterum á
líkamsræktarstöð í borginni. Í jan-
úar sl. komu tollverðir á Seyðisfirði
upp um tilraun til að smygla um 200
hylkjum af vaxtarhormón og um 40
hylkjum af sterum til landsins en
efnin voru falin í bifreið.
Þeim sem nota ólöglega stera eða
hugsa sér að gera það má m.a. benda
á að nýlega sýndu vísindamenn við
Yale-háskóla fram á að þeir sem
nota stera til að byggja upp vöðva-
massa eiga á hættu að heilafrumur
eyðist í stórum stíl.
Fundu 13.000 steratöflur
Morgunblaðið/Árni Torfason
Vörusending til verslunar á Suðurnesjum ekki öll þar sem hún var séð
Í HNOTSKURN
» Tollverðir í Reykjavíkfundu 13.000 steratöflur í
vörusendingu sem átti að fara
til verslunar á Suðurnesjum.
» Verslunarmaðurinn hefurjátað að hafa flutt töfl-
urnar inn.
» Telur lögregla að hannhafi ætlað að selja þær
enda bendir magnið tæpast til
þess að hann hafi ætlað að inn-
byrða þær allar sjálfur.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ, Þjóðviljinn, Tím-
inn og Dagur á Akureyri verða gerð
aðgengileg á vefnum á sama hátt og
Morgunblaðið, sem Lands-
bókasafnið hefur verið að skanna
inn, auk eldri íslenskra tímarita und-
ir nafninu Timarit.is. Þar er t.d.
Morgunblaðið leitarhæft frá síðustu
öld.
Ríkið leggur fram tæpan þriðjung
kostnaðar vegna landsaðgangs að
gögnum safnsins og bókasöfn auk
nokkurra fyrirtækja afganginn. | 21
Eldri dag-
blöð á Netinu