Morgunblaðið - 02.02.2007, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Caracas. AFP. | Hugo Chavez, forseti
Venesúela, efndi til blaðamanna-
fundar í Caracas í gær í tilefni þess
að hann myndi á næstu átján mán-
uðum framkvæma þjóðnýtingu á
mörgum stærstu fyrirtækjum lands-
ins. Chavez var stóryrtur að venju
og sakaði George W. Bush Banda-
ríkjaforseta um að vera „stríðs-
glæpamann“, sem ætti, ásamt John
Negroponte, næstráðanda í banda-
ríska utanríkisráðuneytinu, að rétta
yfir og fangelsa til lífstíðar.
Chavez undirritaði í fyrradag ný
lög sem hann nefnir „móður allra
laga“ og búist er við að hann muni
nýta til að afnema sjálfstæði seðla-
bankans og þjóðnýta fjarskipta- og
raforkufyrirtæki í landinu.
Andstæðingum Chavez þykir sem
hann sé að taka sér alræðisvald til
bráðabirgða en hann hefur heitið
kjósendum sínum að gera breyt-
ingar á stjórnarskrá landsins svo
forsetinn geti sóst eftir því að gegna
embættinu ótímabundið.
Chavez telur hins vegar aukin
völd forsetans og stóraukna mið-
stýringu í ríkisbúskapnum nauðsyn-
leg tæki til að hrinda sósíalískri bylt-
ingu sinni í framkvæmd og í gær gaf
hann stærstu erlendu olíu-
vinnslufyrirtækjunum í Venesúela
frest þangað til í maí til að láta af
stjórn olíuvinnsluverkefna í landinu,
í því skyni að greiða fyrir þjóðnýt-
ingu. Við sama tilefni lýsti hann yfir
þeirri ósk sinni að erlendu olíu-
fyrirtækin tækju áfram þátt í vinnsl-
unni sem minnihlutaaðilar.
Reuters
Stundvís byltingarmaður Hugo Chavez, forseti Venesúela, lítur á úr sitt
fyrir upphaf blaðamannafundarins í höfuðborginni Caracas síðdegis í gær.
Kunngerir „móður allra laga“
Bagdad, Washington. AFP, AP. | Minnst
70 manns féllu í Írak í gær og sögðu
embættismenn að alls hefðu nær
2.000 manns fallið í átökum trú-
flokka og þjóðarbrota í janúar.
Gröf með líkum allt að 250 Kúrda
fannst í eyðimörk í Mutanna-héraði
í sunnanverðu landinu í gær.
Mest var mannfallið í gær í borg-
inni Hilla þar sem tveir sjálfsmorðs-
sprengjumenn urðu 57 að bana á
útimarkaði. Flestir íbúar Hilla eru
sjítar.
Fjöldagröfin í Mutanna er gömul
og tæpan kílómetra frá fyrrverandi
fangabúðum og fannst hún eftir
ábendingu frá íbúum á svæðinu.
Voru þar lík bæði karla, kvenna og
barna.
Stjórnvöld í Bagdad lýstu í gær
yfir útgöngubanni að næturlagi í
borginni Najaf sem er ein af heil-
ögum borgum sjíta í Írak. Þar í
grennd kom fyrir nokkrum dögum
til mannskæðra átaka milli stjórn-
arhermanna og liðsmanna ofsa-
trúarsamtaka Himnahersins.
AP
Herfang Íraskur hermaður með
hatt leiðtoga Himnahersins.
Tugir manna
féllu í Írak
New York. AFP. | Tveir bandarískir karlar lýstu sig í gær
saklausa af ákæru um að hafa valdið skelfingu í Boston,
með því að koma fyrir „sprengjulaga“ ljósaskiltum um
borgina á miðvikudag. Skiltunum var ætlað að kynna
teiknimyndaþætti á sjónvarpsstöðinni Cartoon Network
en það vildi ekki betur til en svo að lögreglan hélt að um
sprengjubúnað væri að ræða og lét loka fyrir umferð um
brýr og vegi, auk þess sem lestarferðum var aflýst.
Hundruð lögreglumanna voru við öllu búin og sérsveit
var send til að sprengja upp eitt skiltið. „Það er fyrir
neðan allar hellur að fyrirtæki skuli beita slíkri mark-
aðssetningu eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september
[2001],“ sagði Thomas Menino, borgarstjóri Boston. Hét hann jafnframt
kjósendum að hann væri tilbúinn að fara í mál við eigendur sjónvarps-
stöðvarinnar vegna þess kostnaðar sem hefði fallið á borgaryfirvöld. Alls
var um fimm skilti að ræða, sem höfðu áður verið notuð í öðrum borgum.
Misheppnuð markaðssetning
Auglýsing Skiltin
gerðu litla lukku.
AÐ MINNSTA kosti 58 týndu lífi í
blóðugum átökum lögreglu og
kristinnar stjórnmálahreyfingar í
Lýðræðislega lýðveldinu Kongó í
gær, að sögn embættismanna.
Blóðugar skærur
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, var yfirheyrður í annað sinn
af lögreglu sl. föstudag í tengslum
við lánamálið svokallaða en skýrt
var frá yfirheyrslunum í gær.
Blair yfirheyrður
BRESK stjórnvöld skýrðu frá því í
gær að þau hygðust senda 800 her-
menn til S-Afganistans til viðbótar
þeim 4.700 sem þar eru nú. Heild-
arfjöldi breskra hermanna í land-
inu mun þó aðeins aukast um 300,
en 500 varða kvaddir frá Kabúl.
Fjölga í herliðinu
NORSKI þing-
maðurinn Börge
Brende tilnefndi
í gær demókrat-
ann Al Gore til
friðarverðlauna
Nóbels árið 2007
fyrir aðgerðir
sínar í loftslags-
málum. Ber þar
hæst heimild-
armynd hans „An Inconvenient
Truth“, sem tilnefnd er til Ósk-
arsverðlauna í ár.
Gore tilnefndur
Al Gore
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO,
tilkynnti í gær að tilraunum í fjór-
um löndum með gel sem ætlað er að
koma í veg fyrir eyðnismit hefði
verið hætt vegna lítils árangurs.
Tilraunum hætt
Moskva. AFP, AP. | Vladímír Pútín,
forseti Rússlands, neitaði í gær
ásökunum um að Rússar hefðu notað
olíu- og gasbirgðir sínar sem póli-
tískt vopn eða tæki til að ráðskast
með ríki sem eru háð þeim í orku-
málum.
Pútín sagði á árlegum fundi með
blaðamönnum í Kreml að nýlegar
verðhækkanir á olíu og gasi sem
Rússar selja til Hvíta-Rússlands,
Georgíu, Úkraínu og fleiri fyrrver-
andi sovétlýðvelda væru ekki af póli-
tískum rótum runnar. Skýringin á
þessum hækkunum væri einfaldlega
sú að Rússar vildu fá sannjarnt verð
fyrir olíuna og gasið eftir að hafa selt
grannríkjunum eldsneyti undir
markaðsverði í mörg ár.
„Okkur ber ekki skylda til að nið-
urgreiða eldsneyti annarra ríkja,“
sagði Pútín. „Enginn gerir það og
hvers vegna ætlast menn til þess af
okkur?“ Um 1.200 blaðamenn voru á
fundinum sem var sýndur beint í
tveimur sjónvarpsstöðvum í Rúss-
landi.
Pútín á að láta af embætti á næsta
ári þar sem stjórnarskráin kveður á
um að enginn geti gegnt því lengur
en í tvö kjörtímabil í röð. Hann
kvaðst ekki hafa valið eftirmann og
lagði áherslu á að þjóðin myndi velja
forseta í frjálsum og lýðræðislegum
kosningum 2. mars á næsta ári.
Hafði ekki aðgang að
ríkisleyndarmálum
Pútín kvaðst ekki trúa á samsær-
iskenningar þegar hann var spurður
um dauða Alexanders Lítvínenkos,
fyrrverandi njósnara rússnesku
leyniþjónustunnar. Lítvínenko hélt
því fram áður en hann dó að sér hefði
verið byrlað eitur að undirlagi Pút-
íns en rússneskir embættismenn
hafa sagt að óvinir forsetans hafi
verið að verki til að koma höggi á
hann. Pútín sagði að Lítvínenko
hefði ekki haft aðgang að ríkisleynd-
armálum þegar hann starfaði fyrir
rússnesku leyniþjónustuna.
Segir gasið ekki not-
að sem pólitískt tæki
Í HNOTSKURN
» Vladímír Pútín sagði aðRússland væri nú eitt af
öflugustu hagkerfum heims,
með mikinn hagvöxt – 6,9% á
síðasta ári – og minnkandi
verðbólgu.
» Forsetinn viðurkenndi þóað margir Rússar hefðu
ekki notið góðs af hagvext-
inum og sagði að rússnesk
stjórnvöld ættu langt í land
með að minnka lífskjara-
muninn milli ríkra og fátækra
landsmanna.
MAÐUR heldur í flugdreka með mynd af Níní, einu af
fimm lukkudýrum Ólympíuleikanna í Peking á næsta
ári, við ólympíuleikvang sem verið er að reisa í kín-
versku höfuðborginni. Stjórn landsins hefur skorað á
embættismenn að verða ekki landinu til skammar með
spillingu og ósiðlegri hegðun þegar leikarnir fara fram.
Reuters
Hvattir til siðvendni á Ólympíuleikum
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÍTALSKIR karlmenn eru sjaldan
sakaðir um að leyna hugsun sinni telji
þeir á annað borð nærstaddar konur
fagrar og aðlaðandi. En fagurgalinn
er misjafnlega viðeigandi eins og fjöl-
miðlakóngurinn Silvio Berlusconi,
fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu,
hefur fengið að reyna svo um munar á
síðustu dögum eftir að hann daðraði
opinberlega við unga þingkonu á gala-
kvöldverði fyrir skömmu.
„Ég færi hvert sem er með þér,
jafnvel á eyðieyju. Ef ég væri ekki
kvæntur myndi ég ganga að eiga þig
strax,“ var haft eftir Berlusconi þar
sem hann jós af djúpum brunni per-
sónutöfra sinna við þingkonuna Mara
Carfagna áður en hann sneri sér að
annarri ungri konu.
Þegar þessi orð bárust til eyrna
eiginkonu hans Veronicu var mælir-
inn hins vegar fullur og á miðvikudag
krafðist hún opinberlegrar afsökunar
á forsíðu dagblaðsins La Repubblica.
Krafan vakti gríðarlega athygli og
hafa margar þjóðþekktar ítalskar
konur lýst yfir stuðningi við Veronicu.
Meðal þeirra er Valeria Ajovalasit,
formaður kvenréttindasamtakanna
Arcidonna, sem sagði blíðmælgi auð-
jöfursins með tannkremsbrosið og
hárígræðsluna afhjúpa „óþolandi
ítalska karlrembu“.
Þekktar stjórnmálakonur og höf-
undar forystugreina dagblaðanna
gengu í lið með hinni fimmtugu Ver-
onicu sem þykir forðast sviðsljósið
með eiginmanni sínum.
Átrúnaðargoð femínista
„Veronica er skyndilega orðin
átrúnaðargoð femínista,“ skrifar
blaðakonan Maria Laura Rodota í
blaðið Corriere della Sera. Sagði hún
þetta eiga jafnvel við konur sem ekki
teldu sig femínista en
hefðu fengið sig full-
saddar af karlrembu.
Berlusconi er póli-
tískur sviðsleikari af
guðs náð og þess var
ekki langt að bíða að
hann sendi frá sér
hjartnæma afsökunar-
beiðni. „Vinsamlega
fyrirgefðu mér […]
sem vitnisburður um
ást mína. Dagskrá mín
eru geggjuð, eins og þú
veist. Vinna, stjórnmál,
vandamál, ferðalög
[…] líf undir stöðugum þrýstingi,“
segir í bréfi hins sjötuga leiðtoga
ítölsku stjórnarandstöðunnar, með
undirrituninni „Stór koss, Silvio“.
Berlusconi hefur áður komist í
sviðsljósið vegna framkomu sinnar
við konur og er skemmst að minnast
þess þegar hann olli spennu í sam-
skiptum Finna og Ítala eftir að hafa
upplýst að hann hefði þurft á „öllum
flagarabrögðum sínum“ að halda til
að fá Tarja Halonen Finnlandsforseta
til að gefa eftir í baráttu ríkjanna um
að fá til sín höfuðstöðvar Matvæla-
stofnunar Evrópusambandsins
(ESB).
„Óþolandi karlremba“
Leiðtogi ítölsku kvenréttindasamtakanna Arcidonna tekur
undir háværar gagnrýnisraddir vegna daðurs Berlusconis
Sjarmur Berlusconi er
fullur djúprar iðrunar.
Reið Veronica á þrjú
börn með Berlusconi.