Morgunblaðið - 02.02.2007, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
BÓKAFORLAGIÐ Veröld
hefur gengið frá samningum
við útgáfufyrirtækið China
Times í Taívan um útgáfu á
skáldsögunni Þriðja tákninu
eftir Yrsu Sigurðardóttur.
Mun því Þriðja táknið koma út
á a.m.k. 26 tungumálum, auk
þess sem þýskur framleiðandi
hefur tryggt sér kvikmynda-
réttinn á henni.
Þá mun önnur glæpasaga
Yrsu, Sér grefur gröf, koma út á þrettán tungu-
málum en samningaviðræður standa nú yfir um
útgáfu á bókinni í fleiri löndum, að því er segir í
tilkynningu.
Bókmenntir
Þriðja táknið
kemur út í Taívan
Yrsa
Sigurðardóttir
Stúdentadansflokkurinn frum-
sýnir verkið Sannar sögur –
Dansleikhús í Tjarnarbíói í
kvöld. Verkið er eftir Helenu
Jónsdóttur í samvinnu við
dansara Stúdentaflokksins og
fjallar um hugtakið og tilfinn-
inguna ást í mörgum myndum.
Sýningar verða alls fjórar
dagana 2., 9., 11. og 16. febrúar
og hefjast allar kl. 20.
Hægt er að nálgast miða
með því að senda tölvupóst á dans@ru.is eða í
síma; 856-2446 og 856-2488 milli kl.12 og 16. Þá
verður miðasalan opnuð í Tjarnarbíói tveimur
tímum fyrir sýningu.
Danslist
Sannar sögur Stúd-
entadansflokksins
Helena
Jónsdóttir
Í DAG verður opnuð í Hafn-
arhúsinu sýning sem hingað er
komin frá París. Um er að
ræða 100 vatnslitamyndir eftir
Erró, margar hverjar frá síð-
ustu árum. Myndirnar eru
flestar í eigu Errós og hafa
ekki verið sýndar hér á landi
áður. Myndefnið er fjölbreytt
og byggist á klippimyndum
sem listamaðurinn vinnur upp
úr hinum ýmsu prentmiðlum
samtímans, aðallega myndasögum. Sýningarstjóri
er Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir. Sýningin stendur
til 29. apríl en sunnudaginn 11. mars kl. 15 annast
Þorbjörg leiðsögn um sýninguna.
Sýning
Vatnslitamyndir
eftir Erró
Eitt verka Errós
á sýningunni.
HINN 17 ára gamli Daniel Rad-
cliffe, sem frægastur er fyrir hlut-
verk sitt sem galdrastrákurinn
Harry Potter, mun leika í umdeildu
verki Peters Shaffers, Equus, sem
frumsýnt verður í Gielgud-
leikhúsinu á West End í London
hinn 27. þessa mánaðar. Þátttaka
Radcliffes í uppsetningunni hefur
farið fyrir brjóstið á mörgum sök-
um þess að hann kemur þar fram í
langri nektarsenu ásamt meðleikara
sínum Joanna Christie. Fjölmargir
foreldrar ungra aðdáenda Potters
hafa látið áhyggjur sínar í ljós, ekki
síst eftir að kynningarmyndum var
nýlega dreift til fjölmiðla.
Á einni mynd faðmar vöðvastælt-
ur Radcliffe Christie að sér og eru
báðir leikararnir berir að ofan. Á
annarri hallar hann sér aftur að
heystakk og horfir upp á bera
Christie. Á þeirri þriðju stillir hann
sér nakinn upp fyrir framan hvítan
hest.
Vonbrigði og ánægja
Samkvæmt breska dagblaðinu
Daily Mail hefur aðdáendasíðum
Harry Potters borist fjöldi bréfa
vegna myndanna. Þar sýnist sitt
hverjum.
„Sem foreldrum finnst okkur að
Daniel ætti ekki að koma nakinn
fram. Níu ára sonur okkar lítur upp
til hans. Við erum mjög vonsvikin
og munum sniðganga myndir hans í
framtíðinni,“ skrifaði eitt foreldri.
Annað sagði: „Mér leikur forvitni á
að vita hvers vegna foreldrar hans
leyfðu honum þetta.“
Fjölmargir aðdáendur eru hins
vegar ánægðir með framtakið og
ekki síst nýjan og karlmannlegri
vöxt Radcliffes.
Equus segir frá hestasveini,
leiknum af Radcliffe, sem nótt eina
tekur sig til og stingur augun úr
sex hestum.
Nakinn Daniel Radcliffe á kynning-
armynd fyrir leikritið Equus.
Daniel
Radcliffe
í Equus
SAMKVÆMT málgagni íslensku
kvikmynda- og sjónvarps-
akademíunnar munu alls sjö ís-
lenskar myndir taka þátt í Gauta-
borgarhátíðinni, stærstu
kvikmyndahátíð Norðurlanda, sem
stendur til 4. febrúar. Þetta eru
Börn, Foreldrar, Anna og skap-
sveiflurnar, Köld slóð og Astrópía
auk kvikmyndanna Hrafninn flýgur
og Börn náttúrunnar sem eru á 30
ára yfirlitssýningu hátíðarinnar.
Foreldrar tekur þátt í Nordic Com-
petition ásamt sjö öðrum myndum
þar sem keppt er um Drekann, að-
alverðlaun hátíðarinnar. Myndin er
einnig á Nordic Film Market
(NFM). Börn og Anna og skapsveifl-
urnar eru í Nordic Light hluta há-
tíðarinnar þar sem eru um tuttugu
nýjar myndir sem hátíðin telur
meðal þess athyglisverðasta sem
norrænir kvikmyndagerðarmenn
bjóða upp á um þessar mundir.
Köld slóð tekur þátt í NFM sem
er lokaður sölumarkaður tuttugu
nýrra mynda. Astrópía er einnig á
NFM, sem verk í vinnslu, ásamt
fleiri slíkum myndum.
Sjö íslenskar
myndir í
Gautaborg
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
HLJÓMSVEITIN Sigur Rós hefur
boðað til mótmælatónleika vegna
framkvæmda við tengibraut úr
Helgafellshverfi í Mosfellsbæ. Á
bilinu 50 til 60 manns mótmæltu
framkvæmdum við gömlu Álafoss-
ullarverksmiðjuna í fyrradag og
voru framkvæmdir stöðvaðar í kjöl-
farið.
„Til að byrja með er áin sem
rennur í gegnum kvosina á nátt-
úruminjaskrá og það segir í nátt-
úruverndarlögum að ekki megi
byggja neitt innan við 50 metra frá
þessari á. Þetta er einhverja 14 til
15 metra frá,“ segir Orri Páll Dýra-
son, trommuleikari Sigur Rósar, og
bætir því við að um lögbrot sé að
ræða. „Umhverfisráðuneytið hefur
sagt að þetta þurfi ekki að fara í
umhverfismat, sem við skiljum ekki,
og við erum búin að kæra það.“
Hljóðver í hættu
Orri segir vel hægt að fara aðrar
leiðir, ólíkt því sem haldið hefur
verið fram í fjölmiðlum. „Það er
hægt að fara yfir Löndin og niður á
Vesturlandsveginn hinum megin við
það hverfi. Það myndi taka kannski
hálfa mínútu í viðbót að aka þá leið.
Þeir í bæjarstjórninni vilja frekar
fórna þessu svæði,“ segir hann.
„Leiðin fer líka í gegnum trjálund
sem börn stofnanda Álafossverk-
smiðjunnar gróðursettu. Það er
meira að segja búið að taka helming
trjánna. Þetta er mjög merkilegur
staður sem átti sinn þátt í því að
byggja Mosfellsbæinn upp.“
Hljóðverið Sundlaugin, sem er í
eigu Sigur Rósar, er einnig á þessu
svæði og segir Orri ljóst að þeir
þurfi að flytja það ef af fram-
kvæmdinni verður.
„Við getum ekki unnið þarna ef
þessi vegur kemur. Það er gert ráð
fyrir 50 desíbela hljóðmengun allan
daginn. Við fluttum þangað út af
rónni, og það verður engin ró ef
vegurinn kemur.“
Mótmælatónleikarnir vegna
framkvæmdanna verða haldnir í
Verinu í Héðinshúsinu þann 18.
febrúar. „Við spilum, ásamt þeim
sem hafa verið að vinna í þessu
hljóðveri,“ segir Orri, sem vonar að
hætt verði við framkvæmdina.
„Maður getur ekki annað en vonað,
annars væri maður ekki að þessu.“
Merkilegt svæði
Sigrún Pálsdóttir, gjaldkeri
Varmársamtakanna, segir að Katrín
Theódórsdóttir, lögmaður samtak-
anna, hafi lagt inn kæru til úrskurð-
ar- og skipulagsnefndar vegna
framkvæmdanna. „Sagan segir að
þeir hafi ekki framkvæmdarleyfi, og
ástæða þess að menn fá ekki slíkt
leyfi er að þá er ekki búið að full-
hanna mannvirkið sem um ræðir.
En þetta eru bara getgátur, við vit-
um ekki af hverju framkvæmdir
voru stöðvaðar en það er greinilega
ekki allt eins og það á að vera,“ seg-
ir hún og bætir við að íbúum hafi
ekki verið gerð full grein fyrir áhrif-
um framkvæmdarinnar. „Það ber að
hafa samráð við íbúa þegar um
miklar framkvæmdir er að ræða.
Við höfum alltaf beðið um að þessi
framkvæmd færi í mat á umhverfis-
áhrifum vegna þess að þarna er
mjög viðkvæmt svæði náttúrufars-
lega séð,“ segir Sigrún. „Þetta er
vinsælasti áningarstaður ferða-
manna í Mosfellsbæ, það er talað
um að þangað komi 600 rútur með
ferðamenn á hverju ári, fyrir utan
allt útivistarfólkið sem fer þarna
um. Þetta er mjög vinsæl gönguleið
og sem dæmi má nefna að sjúkling-
ar á Reykjalundi leggja leið sína
þarna niður eftir. Svo er þarna
verndaður vinnustaður fyrir fatlaða,
stúdíó Sigur Rósar og Dieter Roth-
listaakademían. Þetta er líka eitt
stærsta hverasvæði á Íslandi og á
sér mjög merkilega jarðsögu.“
Sigrún segir það stríða gegn
hagsmunum íbúa að kynna ekki
heildaráhrif framkvæmdarinnar.
„Þar teljum við að þeir hafi staðið
sig mjög illa,“ segir hún og bætir
því við að bent hafi verið á aðrar
leiðir í málinu. „Við skoruðum á
bæjarstjórn og samgönguráðherra
að leiða þessa tengibraut í stokk
niður götu sem heitir Ásland. Þessi
stokkur yrði á bilinu 160 til 180
metra langur. Við ræddum við sér-
fræðinga og fórum með þeim á stað-
inn og þeim kom saman um að þetta
væri álitlegur kostur.“
Sigrún segir mikla óánægju hafa
verið með svör bæjaryfirvalda.
„Þeir létu ekki gera faglega úttekt á
möguleikanum og svöruðu með
ágiskunum. Þeir sögðu að það
myndi kosta hátt á annan milljarð
að setja þennan kafla í stokk, sem
er um það bil þreföld sú upphæð
sem gefin hefur verið upp í sam-
bandi við að leggja Miklubraut í
stokk. Verkfræðingarnir segja það
algjöra fjarstæðu,“ segir Sigrún að
lokum.
Hljómsveitin Sigur Rós mótmælir tengibraut úr Helgafellshverfi harðlega
Boðað til mótmælatónleika
Morgunblaðið/ÞÖK
Mótmæli Einn þeirra 50 til 60 sem mótmæltu framkvæmdum við gömlu Álafossverksmiðjuna í Mosfellsbæ.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sigur Rós Sveitin þarf að flytja hljóðver sitt ef af framkvæmdum verður.
Segja að um lög-
brot sé að ræða
Í HNOTSKURN
» Sigur Rós þarf að færa hljóð-ver sitt ef tengibrautin verð-
ur lögð úr Helgafellshverfi.
» Þeir segja umrætt svæði ein-staka náttúruperlu.
» Sigur Rós og fleiri tónlist-armenn koma fram á mót-
mælatónleikum í Verinu í Héð-
inshúsinu þann 18. febrúar.
» Varmársamtökin skora áfólk að mótmæla fram-
kvæmdum með því að setja kerti
milli trjánna í kvosinni.
» Landeigendur segja öll til-skilin leyfi fyrir fram-
kvæmdum til staðar.
♦♦♦