Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 21
SUÐURNES
Hellisheiði | Starfsmenn Ljósalands
ehf. og Vegagerðarinnar á Vopna-
firði opnuðu Hellisheiði eystri á
dögunum. Töluverður snjór var á
heiðinni og mynduðust stór göng
eftir snjóblásturinn. Á heiðinni
safnast jafnan fyrir mikill snjór og
oft ófært í nokkrar vikur að vetri
til. Þegar opnað var voru tæpar 12
gráður í plús á hæsta punkti veg-
arins sem er í 655 metra h.y.s. en
neðst niðri var 1 gráða.
Hellisheiði eystri
opin fyrir umferð
Ljósmynd /Steingrímur Páll Þórðarson
Snjógöng Blásarinn spænir sig upp
Hellisheiði eystri.
AUSTURLAND
Kárahnjúkavirkjun | Unnið er við
að steypa undirstöður lokumann-
virkja í aðrennslisgöngum Kára-
hnjúkavirkjunar á þeim stað þar
sem væntanleg göng Jökulsárveitu
úr Ufsarlóni tengjast aðalgöng-
unum úr Hálslóni niður í Fljótsdal.
Boruð var sérstök hola niður í
göngin til að koma steypunni beint
á áfangastað af yfirborði jarðar og
þannig verulega flýtt fyrir þessum
verkþætti. Ella hefði þurft að flytja
steypu á bílum áleiðis inn aðgöng 2,
þaðan áfram í vögnum eftir lest-
arteinum og aftur á bílum loka-
áfangann að steypumótunum.
Ljúka á fyrst steypuvinnu við und-
irstöður stálfóðringa lokubúnaðar-
ins og steypa síðan kringum lok-
urnar í framhaldinu.
Steypt að loku-
mannvirkjum
Reyðarfjörður | Bechtel, verktaka-
fyrirtækið sem byggir álver Alcoa
Fjarðaáls á Reyðarfirði, hefur meg-
inþorra alls gistirýmis á Mið-
Austurlandi á leigu. Um 1700
manns vinna að byggingu álversins,
þar af 1400 manns fyrir Bechtel og
er búist við 150 til 200 manns í við-
bót, en þess ber að geta að þá eru
að jafnaði um 200 manns í fríi.
Vinnuafl við álversbyggingu verð-
ur í hámarki næstu tvo til þrjá mán-
uði. Starfsmannabúðirnar á Haga í
Reyðarfirði eru nú með 1630 her-
bergi, eftir að nýlega var bætt við
vinnubúðum fyrir 108 manns frá
Kárahnjúkum. Sem dæmi um nýt-
ingu Bechtel á gistirými má nefna
að á Egilsstöðum leigir fyrirtækið
55 af 60 herbergjum Hótel Héraðs,
16 herbergi á Gistihúsinu Egils-
stöðum og öll 39 herbergi Hótels
Valaskjálfar. Á Reyðarfirði er
Bechtel með öll herbergi Fjarða-
hótels. Eru þá ótaldir sumarbú-
staðir og íbúðir víðsvegar sem fyr-
irtækið er með á leigu fyrir
starfsmenn sína. Allur gangur er á
hvort gisting er nýtt og hafa hótelin
heimild til að leigja þau herbergi
sem ekki eru nýtt frá degi til dags.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Framkvæmdahámark Næstu mánuði verða um 2.000 manns við byggingu
álvers Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði. Starfsmannabúðir taka 1.630 menn.
Nánast allt gisti-
rými leigt Bechtel
Morgunblaðið/Jónas Gunnlaugsson
Útleiga Gistihúsið á Egilsstöðum er
nánast allt leigt út til Bechtel.
Fáskrúðsfjörður | Hið árlega sólar-
kaffi Ungmenna- og íþróttafélagsins
Leiknis á Fáskrúðsfirði var haldið
um sl. helgi. Hilmar Freyr Bjart-
þórsson var valinn efnilegasti leik-
maður Leiknis árið 2006 og varðveit-
ir hann Valþórsbikarinn til næsta
sólarkaffis.
Hilmar er á leið í æfingabúðir hjá
Reading í Englandi. Íþróttamaður
ársins hjá Leikni er Almir Cosic og
var hann jafnframt valinn knatt-
spyrnumaður ársins hjá Leikni.
Hilmar Freyr og
Cosic bestir hjá Leikni
Morgunblaðið/Albert Kemp
Hilmar Freyr Bjartþórsson og Alm-
ir Cosic, knattspyrnumenn Leiknis.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Keflavíkurflugvöllur | „Yfirfærslan
hefur tekist vonum framar. Ég tel að
það megi segja að hún sé skólabók-
ardæmi um það hvernig svona hlutir
eigi að gerast,“ segir Björn Ingi
Knútsson, flugvallarstjóri á Kefla-
víkurflugvelli. Flugmálastjórn Kefla-
víkurflugvallar kynnti í gær starf-
semi stofnunarinnar eftir þær
breytingar sem orðið hafa við yf-
irtöku Íslendinga á þeim verkefnum
sem varnarliðið annaðist við rekstur
flugvallarins.
Öllu starfsfólki varnarliðsins var
sagt upp í mars á síðasta ári, eftir að
bandarísk stjórnvöld ákváðu að
flytja liðið á brott og loka herstöðinni
á Miðnesheiði. Þótt Íslendingar hafi
annast rekstur borgaralegs flugs á
Keflavíkurflugvelli og ýmsa þjónustu
hafði varnarliðið mikið hlutverk við
rekstur vallarins. Flugmálastjórn
Keflavíkurflugvallar sem starfar
undir stjórn Björns Inga Knútssonar
flugvallarstjóra fékk það verkefni að
taka við öllum rekstri flugvallarins
og starfsmönnum í slökkviliði, snjó-
ruðnings- og brautadeild, raf-
eindadeild, voltadeild og verk-
fræðideild varnarliðsins.
Byrjað að endurnýja tækjakost
Björn Ingi segir að lögð hafi verið
mikil vinna í að skilgreina þörf fyrir
tæki og búnað með tilliti til þess sem
Bandaríkjamenn voru tilbúnir að
skilja eftir. Samið var við Banda-
ríkjamenn um leigu á sérhæfðum
tækjum og þjónustu við þau. Mörg
tækjanna eru komin til ára sinna og
þarfnast endurnýjunar. Er þegar
byrjað að endurnýja búnað til flug-
brautahreinsunar.
Liður í yfirfærslunni var að kanna
ástand olíubirgðastöðvarinnar í
Helguvík og tveggja eldsneytisdreif-
ingarstöðva varnarliðsins á flugvall-
arsvæðinu. Helguvíkurstöðin hefur
nú verið tekin í notkun sem geymsla
fyrir þotueldsneyti olíufélaganna. Þá
var önnur eldsneytisdreifingarstöðin
á flugvellinum tekin í notkun ásamt
afgreiðslukerfi á flugvélastæðum
sem áður var í umsjá varnarliðsins.
Gagnaveitur og aðrir innviðir á
varnarsvæðinu voru órjúfanlegur
þáttur í rekstri flugvallarins þar sem
boðveitur, til dæmis frá slökkviliði
fóru um símstöð varnarliðsins sem
var tekin niður. Tókst að tryggja
órofa þjónustu símstöðvarinnar við
þessar breytingar með samningum
við Símann.
Björn Ingi segir að varnarliðið hafi
dregið hratt úr starfsemi sinni á síð-
asta ári og Flugmálastjórnin því orð-
ið að taka verkefnin að sér þótt form-
lega hafi það ekki gerst fyrr en 1.
október. Hann segir að þarna hafi
verið ákveðnir óvissuþættir en telur
að tekist hafi að ganga þessa leið til
þess að tryggja samfelldan og ótrufl-
aðan rekstur flugvallarins.
Starfsmannafjöldi þrefaldast
Umsvif Flugmálastjórnar Kefla-
víkurflugvallar stórjukust við þessar
breytingar. Starfsmönnum hefur
fjölgað þrefalt, þar eru nú 205 starfs-
menn í stað 60. Þá hefur veltan tvö-
faldast, áætlað er að hún verði 2,7
milljarðar kr. í ár. Þar af er rúmur
milljarður í sértekjur en liðlega hálf-
ur annar milljarður kemur af fjár-
lögum. Búast má við mikilli aukingu
á næstu árum, miðað við spár um
fjölgun í flugi á komandi árum.
Björn Ingi segir að starfsmanna-
málin hafi gengið ótrúlega vel. Gera
þurfti kjarasamninga við stéttarfélög
stórra hópa sem áður voru starfs-
menn varnarliðsins. „Það skildu allir
að þetta var sérstakt ástand og menn
lögðu sig fram um að ná saman. Þá
voru allir starfsmenn, hinir nýju
jafnt sem þeir sem fyrir voru, til-
búnir að leggja á sig ýmislegt erfiði
svo þetta gæti smollið saman,“ segir
Björn Ingi.
Hann segir að það hafi ýmsa kosti
að hafa allan rekstur flugvallarins
undir einum hatti. Hægt sé að bregð-
ast fyrr við ýmsum aðstæðum. Hann
telur einnig að unnt sé að reka flug-
völlinn á ódýrari hátt, þegar hann sé
ekki tengdur herstöð með þeim skil-
yrðum sem þeirri starfsemi fylgir.
Nefnir hann í því sambandi að ekki
sé lengur þörf á að vera með sólar-
hrings vakt rafeindavirkja yfir flug-
leiðsögubúnaði vallarins.
Færist til samgönguráðuneytis
Fyrir liggur sú ákvörðun að
stjórnun og rekstur Keflavík-
urflugvallar færist frá utanríkisráðu-
neytinu til samgönguyfirvalda, til
samræmis við rekstur annarrar flug-
þjónustu í landinu. Fimm manna sér-
fræðinganefnd vinnur nú að und-
irbúningi þessarar
stjórnkerfisbreytingar og er stefnt
að því að tillögur hennar um fram-
kvæmdina verði lagðar fram fyrir lok
þessa mánaðar.
Yfirfærslan
hefur tekist
vonum framar
Morgunblaðið/RAX
Gömul tæki Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar fékk snjóruðningstækin á leigu hjá Bandaríkjamönnum. Þau
gera sitt gagn þótt gömul séu orðin. Endurnýjun er hafin og fyrsta nýja tækið kom fyrr í mánuðinum.
Í HNOTSKURN
» Flugmálastjórn Keflavík-urflugvallar annast rekst-
ur flugvallarins og fer með
stjórnsýsluvald þar.
» Vallarsvæðið nær yfir 22ferkílómetra lands.
» Á síðasta ári lentu 13.250flugvélar á vellinum og um
hann fóru liðlega tvær millj-
ónir farþega.
» Hjá stofnuninni eru nú205 starfsmenn.
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
www.heimili.is
Endurnýjuð 2ja herbergja 60 fm útsýnisíbúð á efstu hæð með
suðvestursvölum og meðfylgandi 22 fm stæði í bílskýli. Húsið er
álklætt að utan og viðhaldslétt og öll sameign nýlega endurbætt ásamt
gólfefnum íbúðar og
baðherbergi. Afhending í apríl.
Verð 16,5 m. Áhv 13,0 m .
VÍKURÁS
Stórglæsileg 220 fm parhús á góðuútsýnisstað við óbyggt svæði. Húsið
er glæsilega innréttað og vel tækjum búið á allan hátt. Stórt
upphitað hellulagt bílaplan, stór sólpallur á baklóð, stórar svalir, mikil
lofthæð. Frábært hús á góðum stað.
Allar upplýsingar veitir Bogi Pétursson
á skrifstofu Heimilis Fasteignasölu.
SUÐURHLÍÐAR KÓPAVOGS