Morgunblaðið - 02.02.2007, Qupperneq 22
Á ÞESSUM árstíma eru
tískuvikur haldnar víða
um heim þar sem hönn-
uðir koma fram með
fatalínur sínar sem eiga
að gefa til kynna það
sem koma skal næsta
haust og vetur. Það er
ekki borðleggjandi að
Íslendingar noti sjón-
varpsloftnet eða heyrn-
artól til að halda á sér
hita í kulda og trekki
næsta vetur en á tísku-
vikunni í Róm á Ítalíu og
Sao Paulo í Brasilíu var
hugmyndafluginu sleppt
lausu.
Öðruvísi Sjónvarpsloftnet er uppi-
staðan í þessu höfuðfati ítalska
hönnuðarins Susanna Liso.
Hugmyndaflug Sérstakt
höfuðfat sem ítalski
hönnuðurinn Susanna
Liso kynnti til sögunnar
á tískuvikunni í Róm.
Frumlegt Ítalski hönnuðurinn Fausto Sarli
á heiðurinn að þessum höfuðbúnaði sem
sýndur var á tískuvikunni í Róm.
Reu
ters
tíska
Frumleg
höfuðföt
|föstudagur|2. 2. 2007| mbl.is
Sjávarréttapasta með salati og
eplasæla var á borðum þegar
Björg Sæmundsdóttir bauð í
mat nýverið. » 24
matur
Gold er nafnið á nýlegum
veitingastað tískukónganna
Dolce og Gabbana í Mílanó á
Ítalíu. » 26
veitingahús
Vísindamaður hefur fundið út
að meðal verstu hljóða í heimi
eru ungbarnagrátur, æluhljóð
og falskur fiðluleikur. » 26
daglegt líf
Fólk sem leggur leið sína í versl-
unina Spútnik þessa dagana
borgar fyrir hvert kíló af fatnaði
sem það kaupir. » 27
tíska
Framleiðslan á eggjabúinu Teigi
í Mosfellsbæ er vistvæn og því
spígspora hænurnar frjálsar um
þar á bæ. »25
hænur
Áhugamálin snúast ummyndlist, mannlíf og al-heiminn og ef ég á að segjaalveg satt þá fer minn frí-
tími yfirleitt í myndlistina. Hinsvegar
reyni ég að ferðast þó nokkuð um
landið okkar til að njóta þess að vera
með náttúrunni. Svo er mjög mikils
virði að eiga góða fjölskyldu og rækta
fjölskyldutengslin, enda eigum við
maðurinn minn bæði börn og heilan
hóp af barnabörnum. Heimspeki-
tengd huglæg málefni eiga sömuleiðis
hug minn og skarast inn í listina
mína, líkt og fjölmörg önnur svið
gera, því hvert verk samtvinnar
marga þætti,“ segir listakonan Rúrí í
samtali við Daglegt líf.
Sjónþing verður haldið í menning-
armiðstöðinni Gerðubergi á morgun,
laugardag, kl. 13.30 til 16.00 þar sem
stiklað verður á stóru í gegnum feril
Rúríar. Laufey Helgadóttir, listfræð-
ingur, sem búsett er í París kemur til
landsins gagngert til að stjórna Sjón-
þinginu og munu þeir Gunnar J.
Árnason, listheimspekingur, og Hall-
dór Björn Runólfsson, listfræðingur,
verða henni til aðstoðar við að kryfja
verk og feril Rúríar til mergjar. Í
tengslum við Sjónþingið verður opn-
uð yfirlitssýning á verkum listakon-
unnar í Gerðubergi.
Með sleggju á gylltan Benz
Segja má að ferill listakonunnar
hafi hafist með táknrænum hætti í
ágúst árið 1974 þegar hún réðst með
sleggju á gylltan Benz, sem hún sýndi
á sýningu Myndhöggvarafélagsins á
Lækjartorgi sem táknmynd efn-
ishyggju og lífsgæðakapphlaups. Í
blaðaviðtali í kjölfar gjörningsins seg-
ist hún engan áhuga hafa á því að fást
við stofulist. Það er sá tónn, sem hún
gaf í upphafi. Æ síðan hefur hún verið
trú sínum lífsgildum og lífsviðhorfum
og reynt að koma þeim til skila í verk-
um sínum, að sögn Hörpu Björns-
dóttur, sýningarstjóra.
Rúrí segir að ekki sé til „týpísk"
helgi í heimi listakonunnar því allir
dagar séu jafnir, þegar hún er beðin
um uppskrift að góðri helgi. „Mér
finnst þó voða gott að skreppa úr
bænum og fá mér frískt loft, fara á
sýningar og fylgjast með menning-
unni. Barnabörnin koma í heimsókn
og halda að öll módel af verkum á
vinnustofunni minni séu dúkkuhús.
Um helgar er líka gott að sofa út,
sérstaklega ef maður er komin í
svefnskuld, sem ber gjarnan með sér
háa dráttarvexti. Mikilvægt er að
halda líkamanum í eðlilegu jafnvægi
og afskaplega gott er að vakna í ró-
legheitum og gefa sér tíma til að
vinna meðvitað úr þeim hugmyndum,
sem yfirvitundin hefur verið að vinna
með um nóttina."
Krefjast mismikillar athygli
Þegar hún er spurð hvort hún sé
ánægð með listamannsferilinn það
sem af er, segist hún enn hafa mikla
ánægju af myndlistinni enda sé listin
fagið hennar. „Það er hinsvegar ann-
arra að leggja mat á gæði þess starfs,
sem ég hef verið að vinna. Ég get
ómögulega svarað því hvaða verk
mér þykir vænst um enda gerir mað-
ur ekki upp á milli barnanna sinna.
Mér er aftur á móti minnisstætt svar,
sem margra barna móðir gaf, þegar
hún var spurð hvert barnanna hún
héldi mest upp á. Hún svaraði: „Það
barn, sem þarfnast mín mest þá
stundina“. Því er kannski svipað farið
með listina. Ég er núna að vinna verk
fyrir Kjarvalsstaði og það þarfnast
helst athygli minnar nú um stundir.“
Svefnskuld ber háa dráttarvexti
Morgunblaðið/ÞÖK
Myndlistin „Ég get ómögulega svarað því hvaða verk mér þykir vænst um enda gerir maður ekki upp á milli
barnanna sinna,“ segir listakonan Rúrí sem hér sést með eitt myndverka sinna í Gerðubergi.
Besti tími dagsins: Augna-
blikið, sem er að líða.
Uppáhaldsmatur:
Allur góður matur, sem er
eldaður af alúð og um-
hyggju.
Besta líkamsræktin: Göngu-
túrar í ójöfnu landi úti í nátt-
úrunni og fjallgöngur.
Uppáhaldssundstaður: Lítil
náttúruleg vík á Kjalarnesi
þar sem ég framdi gjörning
fyrir tuttugu árum með því
að synda út í sjóinn.
Uppáhaldsstaðir á Íslandi:
Ísafjarðardjúp, Flatey á
Breiðafirði, hálendið og sjáv-
arsíðan.
Rúrí mælir með…Listakonunni Rúrí finnst
gott að vakna í rólegheit-
um og gefa sér tíma til að
vinna meðvitað úr þeim
hugmyndum, sem yfirvit-
undin hefur verið að
vinna með um nóttina.
join@mbl.is
daglegtlíf