Morgunblaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 23
mælt með...
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 23
Útsölulok um helgina
Nú fer hver að verða síðastur til að gera reyfarakaup á útsölunum því
kaupmenn eru nú komnir í götumarkaðsgírinn. Götumarkaðir verða um
helgina í verslunarmiðstöðvunum Kringlunni og Smáralind með lágmarks
vöruverði og prúttglaðir geta kannski náð enn betri kaupum með því að prófa
sig áfram í prútttækninni.
Strákarnir okkar spila í Köln
Ekki verður um auðugan garð að gresja á íþróttasviðinu um helgina ef frá
er talinn síðasti leikur íslenska landsliðsins sem „strákarnir okkar“ koma til
með að spila í Köln á morgun. Það er þó engu að síður um að gera að styðja
strákana í leiknum gegn Spánverjum um 7. sætið á heimsmeistaramótinu.
Veiðisafnið á Stokkseyri
Veiðiglaðir gætu svo haft gaman af því að bruna til Stokkseyrar því fjöl-
breytt úrval skotvopna verður til sýnis í húsakynnum Veiðisafnsins um
helgina.
Sjónþing um Rúrí
Fyrir menningarþyrsta er upplagt að skella sér á Sjónþing um listakonuna
Rúrí í Gerðubergi sem verður kl. 13.30 til 16.00. Að því loknu verður opnuð
yfirlitssýning, sem spannar 33 ára listferil Rúríar. Sýningin stendur til 15.
apríl. Yfirskrift sýningarinnar „Tími, afstæði, gildi“ vísar til viðfangsefna
Rúríar á liðum 33 árum.
Bókakynning í Kórnum
Tilvalið er fyrir menningarvita að fá sér göngutúr í Kórinn í Bókasafni
Kópavogs um kl. 15 á morgun því þá ætla skáldin Eyvindur P. Eiríksson og
Ólöf Pétursdóttir að kynna og lesa úr nýlegum bókum sínum.
Bækur Eyvindar heita 3XÁST og Örfok. Ólöf ætlar að lesa upp úr bókinni
„Dimmir draumar“ sem hefur að geyma ljóð í þýðingu hennar, en ort eru á
Bretaníuskaga á tuttugustu öld.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem íslenskar þýðingar úr bretónsku koma
fyrir almenningssjónir.
Auk þess mun Eyþór Rafn Gissurarson lesa úr óbirtri smásögu sinni.
Bundið mál virðist henta vef-miðlum og bloggsíðum, enda
er stakan gjarnan innlegg í þjóð-
félagsumræðuna, stundum háðsk
og stundum hvöss. Oft vekur hún
hlátur, en ósjaldan er hún alvarleg
eða máluð fallegum litum. Það sem
gerir hagmælta aufúsugesti á Net-
inu er að geta brugðist skjótt við
málum sem upp koma, – þannig er
bloggið. Ekki amalegt þegar skáld
skjóta þar upp kollinum eins og
Þórarinn Eldjárn með bloggsíðuna
Ómerkilegar athugasemdir á
www.theld.blog.is. Frjálslyndi verð-
ur honum yrkisefni:
Ekki veit ég hvað er nú hvað
né hver vor örlög semur.
En hitt er víst að það er nú það
það sem er og kemur.
Og Þórarinn yrkir um „Frjáls-
lyndi“:
Hvert er Frjálslyndra frjálslyndi?
Fæst það gegn borgun?
Ef til vill haft sem hálsbindi
hálfrautt í dag, bláleitt á morgun?
VÍSNAHORNIÐ
Skáld sem
bloggar
pebl@mbl.is
-hágæðaheimilistæki
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
Miele S381 Tango Plus ryksuga
með 1800W mótor
Verð áður kr. 24.600
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
Hebafilter sem hreinsar loftið af
ofnæmisvaldandi efnum.
Kolafilter sem hreinsar óæskilega lykt.
Hentar vel fyrri þá sem eru með gæludýr.
Parketbursti úr hrosshárum sem skilar
parketinu glansandi.
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar. Þær eru með
stillanlegu röri og mikið úrval fylgihluta er innbyggt í vélina.
Verið velkomin í Eirvík og kynnið ykkur Miele heimilistækin
í einni glæsilegustu heimilistækjaverslun landsins.
AFSLÁTTUR
35%
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Kynning á því nýjasta í Hygeu
Kringlunni
í dag og á morgun, laugardag. Sérfræðingar
Kanebo bjóða uppá húðgreiningu og aðstoða við
val á Kanebo snyrtivörum. Vertu fyrst til þess að
kynnast nýju hreinsilínunni sem gerir hreinsun
húðarinnar að tilhlökkunarefni á hverjum degi.
www.kanebo.is
Kringlunni