Morgunblaðið - 02.02.2007, Side 25
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 25
Eftir Sigrúnu Ásmundar
sia@mbl.is
Þessi fjölskylda er búin að vera í landbúnaði mjög lengi,“ segirKristinn Gylfi Jónsson, sem ásamtfleiri í fjölskyldunni rekur eggjabúið
Brúnegg á Teigi í Mosfellsbæ. Hann hefur
ásamt mágkonu sinni, Herdísi Þórðardóttur,
að mestu séð um daglegan rekstur fyrirtæk-
isins þó að flestir fjölskyldumeðlimir taki þátt í
vinnunni þegar það á við.
„Við þekkjum mjög vel til eggja-, svína- og
alifuglaræktar,“ heldur Kristinn áfram „og við
fundum fyrir því að áhugi var fyrir hendi hjá
neytendum um að vistvæn egg kæmu á mark-
aðinn.“ Framleiðslan á Teigi er vistvæn sem
lýsir sér í því að hænurnar ganga frjálsar um
gólf í stað þess að á venjulegum eggjafram-
leiðslubúum þurfa þær að kúldrast í örlitlum
búrum. Þegar hænurnar verpa stinga þær sér
inn í þar til gerð hreiður og skila af sér afurð-
unum á færiband, en það ber eggin á réttan
stað þar sem maður stendur tilbúinn og raðar
þeim í eggjabakka.
Tvær flugur í einu höggi
„Við sáum líka í nágrannalöndum okkar að
mikið af eggjum á markaðnum var brún egg og
neytendur gátu þannig valið um brún og hvít
egg. Stærstur hluti brúnu eggjanna í Evr-
ópulöndunum er undan hænum sem ganga um
frjálsar, hvort sem er utan- eða innandyra. Við
ákváðum að slá þessu saman; koma með brún
egg sem væru vistvæn,“ segir Kristinn. Af
skörungsskap var gengið í málið og haustið
2004 fluttu þau inn stofn af brúnum hænum.
Hafist var handa við að undirbúa framleiðsl-
una og fyrstu afurðirnar voru komnar á mark-
að í desember 2005.
Vistvæna framleiðslan þeirra á Teigi hefur
fengið góðar viðtökur, landinn hefur tekið af-
urðinni fegins hendi. Kristinn álítur að áhersla
þeirra á nýjar umbúðir undir eggin hafi þar
haft sitt að segja en þau eru í grænum eggja-
laga bökkum og á þeim er mynd af brúnni
hamingjusamri hænu. „Móttökurnar hafa ekki
síst verið góðar vegna þess að mjög aukinn
áhugi er fyrir vistvænum afurðum almennt,“
segir Kristinn og að neytendur láti sig fram-
leiðsluaðferðir og uppruna afurða varða.
Anna eftirspurn
Kristinn segir að þau hafi búið sig undir að
tíma myndi taka að skapa nafn á markaði af
því að Íslendingar eru aldir upp við hvít egg.
„Það var þess vegna ekkert sjálfgefið að vel
myndi ganga,“ segir hann. „Hins vegar kemur
það á móti að Íslendingar eru nýjungagjarnir
og búa nú orðið víða um lönd, auk þess að
ferðast mikið, sem gerir það að verkum að vel
hefur gengið.“
Kristinn upplýsir að náðst hafi að miklu leyti
að metta markaðinn … „eins og staðan er
núna og miðað við það sem við erum að fram-
leiða í dag. Í upphafi sáum við fyrir okkur að
þarna væri sylla sem við ákváðum að reyna að
fylla og það hefur gengið nokkurn veginn eftir.
Við höfum þannig náð að anna eftirspurn.“
Kristinn og Herdís hafa, eins og áður kom
fram, að mestu séð um daglegan rekstur
eggjabúsins. Herdís upplýsir þó að um helgar
og slíkt hjálpist fleiri að. „Þetta er fjöl-
skylduvænn búskapur,“ segir hún. „T.d. um
helgar hafa krakkarnir mjög gaman af því að
koma með okkur hérna uppeftir og hjálpa til.
Við erum með einn aðstoðarmann í starfi en
sjáum að öðru leyti um þetta sjálf. Hænurnar
vita líka ekkert hvaða dagur er, hvort það eru
jól eða páskar, og þeim þarf að sinna alla
daga,“ segir hún. „Það þarf líka að taka eggin
frá þeim alla daga, þannig að þetta er auðvitað
bindandi,“ viðurkennir hún „en fyrst það eru
tvær fjölskyldur í þessu skiptumst við dálítið á
og krakkarnir hafa gaman af því að koma og
umgangast hænurnar, þeir hafa áhuga á því,“
segir hún glettin.
Góðan húsakost þarf til
Stofninn sem notaður er til undaneldis er
annars staðar í húsi. Undan þeim stofni koma
hænur sem notaðar eru til að framleiða eggin.
Hænurnar byrja að verpa um 5 mánaða aldur
og lifa í 18–20 mánuði, en þær verpa í 12–14
mánuði. „Við þurfum að flytja inn nýjan stofn á
hverju ári frá Noregi,“ segir Kristinn „og hann
þarf að vera aðgreindur frá verpandi hæn-
unum. Farið er með hænur og hana á stofn-
ræktarbúið, þar verða til frjó egg sem ungað
er út. Þeir ungar eru aldir upp á enn einum
staðnum, sem er uppi í Kjós, og þegar hæn-
urnar eru orðnar nógu gamlar eru þær fluttar
á varpstað,“ útskýrir hann.
Það er því ljóst að góður og fjölbreyttur
húsakostur þarf að vera fyrir hendi í eggja-
framleiðslu, hvort sem um vistvænan rekstur,
eins og hjá þeim í Brúneggjum, er að ræða eða
ekki.
„Sylla sem við sáum færi á að fylla“
Morgunblaðið/Ásdís
Egg Herdís og Kristinn Gylfi við færibandið sem ber eggin úr hænsnahúsinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Ferlið Hænurnar ganga frjálsar um gólf en þegar þær verpa eggjum stinga þær sér í þar til gerð hreiður.
Til að koma í
veg fyrir að
egg springi
við suðu má
t.d. setja
salt í vatnið
ásamt því að
stinga með
nál í breiðari
enda eggs-
ins. Eggin
eru lögð var-
lega í sjóð-
andi vatn.
Eftir suðu
skal láta
renna á egg-
in kalt vatn,
til að stöðva
strax
suðuna.
Þegar linsjóða á eggið má bara láta renna á
þau í skamma stund svo að þau verði ekki
köld.
Linsoðin egg: Lítil eru soðin í fjórar mín-
útur, stór og meðalstór í fimm til fimm og
hálfa mínútu. Mjög stór egg á að sjóða í sex
mínútur.
Harðsoðin egg: Þau eru einfaldlega soðin í
9–10 mínútur.
Kúnstin að
sjóða egg
„Við byggðum bústaðinn frá grunni og förum í hann allan ársins hring. Þess vegna keyrir maður oft í gegnum ýmislegt sem
venjulegir fólksbílar ráða ekki við.“ Subaru eigendur vita að hann er allt öðruvísi en aðrir bílar. „Hann er hærri en venjulegur
jepplingur svo maður kemst út um allt. Sumir keyra jepplinga, ég keyri felujeppa.“ Það ætti enginn að kaupa sér bíl án þess
að koma fyrst og reynsluaka Subaru.
www.subaru.is
„Hey, þetta er Ísland“
Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is
Forester 2.490.000,- Forester PLUS 2.790.000,- Forester LUX 3.090.000,-
Subaru er á sérlega góðu verði þessa dagana og að sjálfsögðu
fylgja frí vetrardekk með. Komdu og reynsluaktu Subaru í dag!
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
S
ÍA
L
jó
s
m
.:
T
o
r
f
i