Morgunblaðið - 02.02.2007, Side 47
Hvað segirðu gott?
Bara allt skínandi.
Hvað fékkstu mikinn pening í ferm-
ingargjöf? (Spurt af síðasta að-
alsmanni, Bjarna Lárusi Hall,
söngvara hljómsveitarinnar Jeff
Who?)
Ég fékk fulla kistu af gulli.
Kanntu þjóðsönginn?
Já, og svo kann ég líka undirspilið.
Svo get ég sungið allar raddirnar í
einu þegar best lætur.
Hvað talarðu mörg tungumál? Tala
nokkur en ekkert þeirra vel.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og
hvert?
Til Íslands á mánudaginn.
Uppáhaldsmaturinn?
Nokkurn veginn allt sem kemur úr
tilraunaeldhúsi mömmu.
Bragðbesti skyndibitinn?
Grænmetislasagne úr Whole Foods í
New York.
Hvaða bók lastu síðast?
Laugardag eftir Ian McEwan.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Amadeus í Borgarleikhúsinu.
En kvikmynd?
Volver eftir Almodóvar.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Mjög margar. Aðallega Meist-
arasöngvarana eftir Wagner og
svona 10 mismunandi diska með pí-
anókonsert nr. 3 eftir Rachmaninoff.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Pottþétt RÚV, Rás eitt. Ég hlusta
t.d. oft á Hlaupanótuna yfir Netið
frá New York.
Besti sjónvarpsþátturinn?
Tíu fingur og Tónlist er lífið.
Þú ferð á grímuball sem …?
Ljósastaur.
Elton John eða Billy Joel?
Billy Joel.
Helstu kostir þínir?
Ég gef mig allan í það sem ég tek
mér fyrir hendur.
En gallar?
Max-snjógallinn og Nike-jogg-
inggallinn.
Fyrsta ástin?
Þegar ég var fimm ára fór ég í ást-
arsorg vegna stelpu á Grænuborg.
Það er leyndó hvað hún heitir.
Besta líkamsræktin?
Að spila mjög hratt og sterkt á pí-
anó.
Algengasti ruslpósturinn?
Kemur frá Viagra.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Boss Selection og Armani White.
Hvar myndirðu vilja búa annars
staðar en á Íslandi?
New York, Berlín og París.
Ertu með bloggsíðu?
Jamm, ég blogga að meðaltali tvisv-
ar á ári.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda?
Hefurðu stundað hugleiðslu?
Íslenskur aðall | Víkingur Heiðar Ólafsson
Fimm
ára í
ástarsorg
Morgunblaðið/Ásdís
Smekkmaður Aðalsmaður vikunnar velur Billy Joel fram yfir Elton John.
Aðalsmaður þessarar
viku var valinn flytj-
andi ársins í sígildri og
samtímatónlist á Ís-
lensku tónlistarverð-
laununum í fyrrakvöld.
Hann stundar nám við
Juilliard-tónlistarskól-
ann í New York og er
án efa einn besti píanó-
leikari landsins.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 47
menning
ÓSKUM EFTIR FASTEIGNUM FYRIR A.M.K. 10 MILLJARÐA
Traustur fjárfestir hefur beðið Eignamiðlun ehf. að útvega góðar fasteignir
svo sem: skrifstofuhúsnæði, verslunarpláss, ýmiskonar atvinnuhúsnæði og
hótel. Eignirnar þurfa helst að vera í útleigu til traustra aðila.
Lágmarksfjárfesting í hverju tilviki væri um 100 milljónir króna.
Kaup á fasteignafélagi koma einnig til greina.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Hákon Jónsson lögg. fasteignasali.
IÐNAÐARPLÁSS ÓSKAST – KAUP EÐA LEIGA
Traustur aðili óskar eftir u.þ.b. 350 fm iðnaðarplássi til kaups eða
leigu. Lofthæð um 3,5 metrar.
Æskileg staðsetning: Kópavogur, Vogar (Rvk).
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Geir Sigurðsson lögg. fasteignasali.
Athugið!
Tryggðu þér miða í tíma!
Sem fyrr: stuttur
og þéttur sýningartími.
Aðeins sýnt á Akureyri!
Fim 1.feb ........................ UPPSELT
Fös 2.feb ........................ UPPSELT
Lau 3.feb ........................ UPPSELT
Sun 4.feb ........................ örfá sæti laus
Fim 8.feb ........................ aukasýning
Fös 9.feb ........................ UPPSELT
Lau 10.feb ........................ UPPSELT
Næstu sýn: 16/2, 17/2, 23/2, 24/2
Ath: Sýningin er ekki við hæfi barna!
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST
Viðskiptavin okkar vantar iðnaðarhúsnæði
miðsvæðis í Reykjavík, Kópavogi eða í Garðabæ.
Það sem óskað er eftir þarf að hafa góða lofthæð og vera
u.þ.b. 1000 – 2000 fm. Skilyrði er að til staðar séu innkeyrsludyr,
eða að hægt sé að setja slíkar dyr.
Einnig kemur til greina að kaupa lóð á þessum svæðum.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson
og Jason Guðmundsson lögg. fasteignasalar.
EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á SELTJARNARESI
ÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir 150-250 fm einbýlishús á einni hæð.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Geir Sigurðsson lögg. fasteignasali.