Morgunblaðið - 02.02.2007, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
BABEL kl. 8 B.i. 16
APOCALYPTO kl. 8 B.i. 16
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5:45 LEYFÐ
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK
BLOOD DIAMOND kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
FORELDRAR kl. 8 - 10 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
/ AKUREYRI
DREAMGIRLS kl. 6 - 9 - 10:20 LEYFÐ
BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 6 - 8 LEYFÐ
BABEL kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
CHILDREN OF MEN kl. 8 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 B.i. 16 ára
THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16 ára
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI RAIN MAN
OG GOOD MORNING VIETNAM
GÆTI ÞESSI MAÐUR ORÐIÐ
NÆSTI FORSETI?
Sjáið grínistann Robin Williams fara á
kostum sem næsti forseti Bandaríkjanna
EDDIE
MURPHY
BEYONCÉ
KNOWLES
JAMIE
FOXX
STÓRKOSTLEG MYND SEM
HLOTIÐ HEFUR EINRÓMA
LOF GAGNRÝNENDA. eeeDÖJ, KVIKMYNDIR.COM
Golden Globe
VERÐLAUN
m.a. besta myndin3
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
ÓSKARSTIL-
NEFNINGAR5
eeee
L.I.B. TOPP5.IS
eeee
S.V. MBL.
ÓSKARSTILNEFNINGAR2
SÝND Í
HÁSKÓLABÍÓI
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
RÁS 2
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
20% AFSLÁTTUR EF GREITT
ER MEÐ SPRON-KORTI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
eeee
H.J. MBL.
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. fyrir besta handrit ársins3
ÓSKARSTILNEFNINGAR8
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Hvaða vit er í að hvetja
ungt fólk til að keyra
tugi kílómetra á kvöldi,
algjöra erindisleysu?
Víkverji er sammála
því, sem hann las á
bloggi Stefáns Einars
Stefánssonar á Mogga-
blogginu, en hann
skrifar: „Á sama tíma
og Ómar telur sig um-
hverfissinna og jafnvel
holdgerving umhverf-
isverndar á landinu vill
hann stuðla að aukinni
bílanotkun, og notkun
sem margir myndu ef-
laust nefna hálfgerðan
„óþarfa“. Er ekki ein-
kennilegt að tala fyrir hreinni nátt-
úru en vilja á sama tíma stuðla að
aukinni notkun einkabílsins […]?“
x x x
Í Dagskránni, sem gefin er út áSelfossi, birtist fyrir nokkrum
dögum frétt um að bóndi einn á bæ
nálægt Flúðum hygðist gefa sveitar-
félaginu land undir íbúðir fyrir eldri
borgara. Fyrirsögn fréttarinnar
bendir til að kannski verði ekki
heppilegt að nefna eldriborgara-
hverfið eftir bújörð hins örláta
bónda, þegar það verður risið:
„Íbúðir fyrir eldri borgara í landi
Grafarbakka.“
Víkverja er minn-isstætt þegar fað-
ir hans reytti hár sitt
fyrir margt löngu og
spurði hvernig stæði á
því að það væru allt í
einu orðnir 35 kíló-
metrar úr Vest-
urbænum og austur í
Stjörnubíó. Víkverji
hváði og fékk þá nán-
ari útlistun. Kvöldið
áður hafði hann fengið
fjölskyldubílinn lán-
aðan til að fara í
Stjörnubíó. Þegar
heim var komið hafði
eknum kílómetrum á
mælinum fjölgað um
70!
Ástæðan var náttúrlega sú, að
Víkverji var 18 ára og fór á rúntinn
þegar hann var búinn í bíóinu. Ók
hring eftir hring með vinum sínum, í
fullkomnu tilgangsleysi. Það var
bara svo gaman að keyra bíl í þá
daga.
x x x
Ómar Ragnarsson, fréttamaðurog umhverfisvinur, hefur nú
lagt til að rúnturinn verði end-
urreistur. Í eyrum Víkverja hljóm-
aði þetta í fyrstu sem góð hugmynd.
En kannski hefur ýmislegt breytzt
frá því Víkverji var unglingur.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: Lækna mig Drottinn, að ég megi
heill verða; hjálpa mér, svo að mér verði hjálpað,
því að þú ert minn lofstír. (Jer. 17, 14.)
Í dag er föstudagur
2. febrúar, 33. dagur
ársins 2007
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Góðan dag!
6 til 10,7% hækkanir hjá heildsölum!
Fyrirhuguð lækkun á virðisauka-
skatti framundan, auðvitað má kenna
um utanaðkomandi aðstæðum. Þess-
ar hækkanir hjá ykkur sem og öðrum
heildsölum koma nú á færibandi, það
er alveg augljóst að þessar prósentur
enda í vasa ykkar en ekki hjá okkur
neytendum eins og „bláa höndin ætl-
aði eða hvað? Kannski á þetta að
enda hjá ykkur, þar sem margar af
heildsölum landsins hafa styrkt til-
veru stjórnmálaflokkanna sem nú
fara með völd. Er þetta þá þakklæti
til stórkaupmanna fyrir stuðninginn í
gegnum tíðina þ.e. ef núverandi
flokkar komast ekki til valda í næstu
kosningum. Komin er upp sú staða
hjá mér og mínum að sniðganga
vörur og veitingastaði og vera vel á
verði þar sem svona óæskilegar
hækkanir koma upp.
Kristófer Kristófersson.
Óhentug borðdagatöl
Mig langar að koma á framfæri
óánægju minni með borðdagatöl
Kaupþings og Landsbankans í ár.
Þessi borðdagatöl hafa verið þægileg
í notkun, fyrirferðarlítil og oft með
skemmtilegum myndum. Nú bregður
svo við á árinu 2007 að letrið smækk-
ar og prentið er svo dauft, að nú þarf
maður að setja upp gleraugu til að
lesa á þau. „Kauuuuupþings-
“dagatalið (leiðinleg auglýsing) er
með enn smærra letri en Lands-
bankadagatalið sem hefur verið
stækkað um 50%, en þó með engum
myndum á bakhliðinni, bara upplýs-
ingum um útibú bankans í erlendum
borgum ásamt fróðleikspunktum um
viðkomandi borg í staðreyndastíl. Ég
vildi óska að Landsbankinn léti taka
myndir af listaverkum í eigu hans og
léti prenta þær á næsta dagatal, þar
sem nú er kríthvítt svæði, sem trú-
lega er ætlað til nota sem minnisblað,
en gerir útlit dagatalsins flatneskju-
legt. Kaupþing er hér með vinsam-
legast beðið (bíðið nú við, er bankinn
orðinn hvorugkyns?) um að stækka
tölustafina. Það eru varla allir not-
endur með arnarsjón.
Ugla.
Góð samvinna
Ég varð fyrir því óláni að eldur
braust út í íbúð minni á Vesturgöt-
unni í vor og vil þakka öllum þeim
sem sýndu mér vinarhug og stuðning
vegna málsins.
Sérstakar þakkir til vinnufélaga á
Landakoti, bekkjarsystkina frá
Skógaskóla, ættingja og vina. Starfs-
mönnum TM-trygginga sem ég hafði
samskipti við vil ég þakka fyrir góða
samvinnu. Og auglýsingin þeirra er
ekkert skrum. Sem sagt, takk fyrir
mig.
Ragnhildur Árnadóttir.
Vélsleðamenn GPS-lok
Lok af GPS-skjá fannst á vegarslóð-
anum norðan við Dímon á Lyngdals-
heiði sunnudaginn 21. janúar sl. Eig-
andi vitji loksins í s. 847 8730.
Giftingarhringur tapaðist
Tapast hefur giftingarhringur með
plötu á. Inni í hringnum stendur
Margrét og á plötunni stafirnir EG.
Tilfinningalegt tap. Fundarlaun.
Sími: 898-1361.
Margrét Eiríksdóttir.
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Hlutavelta | Gyrðir Hrafn Guð-
brandsson kom og afhenti Hjálp-
arstarfi kirkjunnar tvo fulla söfn-
unarbauka til hjálparstarfs. Þegar talið
var úr kössunum komu í ljós 1.484
krónur. Baukarnir höfðu staðið á heim-
ili Gyrðis og fjölskyldan safnað í þá.
Framlagið dugar fyrir þremur hænum
og einni akurhænu í Malaví. Þær fara á
heimili munaðarlausra barna þar.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sín-
um að kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og mánudags-
blað. Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn ábyrgð-
armanns og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-1100 eða
sent á netfangið ritstjorn-
@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.