Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 2

Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 2
2 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag mánudagur 5. 2. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir Stenson sýndi styrk sinn í Dubai gegn bestu kylfingum heims >> 12 MAN.UTD Á SIGLINGU Guðjón Valur skoraði 66 mörk, níu mörkum meira en Tékkinn Filip Jicha sem skoraði 57. Pólverjinn Kar- ol Bielecki varð þriðji með 56 mörk. Íslendingar áttu fimm leikmenn í hópi tíu markahæstu manna á mótinu. Snorri Steinn Guðjónsson og Ólafur Stefánsson urðu í 6.–7. sæti með 53 mörk hvor og þeir Logi Geirsson og Alexander Petersson urðu í 10.–12. sæti með 48 mörk. „Það var mjög gaman að þessu og ekki síst þar sem ég er fyrsti Íslend- ingurinn til þess að verða markakóng- ur á HM,“ sagði Guðjón Valur í sam- tali við Morgunblaðið síðdegis í gær þegar hann hafði tekið við viðurkenn- ingarskjali og tösku með ýmsum munum sem fylgja nafnbótinni. „Ég hef ekkert litið í töskuna og veit ekki hvað er í henni,“ svaraði Guðjón Val- ur, spurður um hvaða verðlaun fylgdu nafnbótinni að þessu sinni. „Þó að það sé vissulega gaman að verða markahæstur á HM er alveg ljóst að ég væri alveg tilbúinn að skipta á þeirri nafnbót fyrir verð- launapening með landsliðinu mínu á HM, hann hefði verið mér hjartfólgn- ari,“ sagði Guðjón Valur ennfremur. Markakóngstitillinn dugði Guðjóni Val ekki til þess að vera valinn í úr- valslið heimsmeistaramótsins en eng- inn íslenskur handknattleiksmaður hlaut náð fyrir augum dómnefndar mótsins að þessu sinni. Úrvalsliðið er þannig skipað: Markvörður: Henning Fritz (Þýskaland), vinstri hornamaður Eduard Koksarov (Rússland), vinstri skytta Nikola Karabatic (Frakkland), línumaður Michael V. Knudsen (Dan- mörk), leikstjórnandi Michael Kraus (Þýskaland), hægri skytta Marcin Lijewski (Pólland), hægri hornamað- ur Mariusz Jurasik (Pólland). Ivano Balic var valinn mikilvægasti leikmaðurinn fyrir sitt lið, Króatíu. Balic var ekki í Köln í gær og tók því ekki við viðurkenningu sinni. Fjórir af sjö leikmönnum liðsins léku með sínum liðum í úrslitaleikn- um í gær, á milli Þjóðverja og Pól- verja. „Það var gríðarleg stemning í Köln Arena eftir að Þjóðverjar unnu úr- slitaleikinn og því var mjög gaman að vera kallaður fram á völlinn á þeirri miklu hátíð sem haldin var, ekki síst þar sem um er að ræða annan heima- völl okkar hjá Gummersbach,“ sagði Guðjón Valur, sem nú fær örfárra daga frí áður en daglegt amstur held- ur áfram með Gummersbach. „Ég fæ frí frá æfingum fram á fimmtudag og síðan eigum við leik á föstudag. Keppnistímabilið er ekki nema hálfnað hér í Þýskalandi þannig að það er langur vegur í að við getum farið að slaka á. En næstu dagar verða kærkomnir til þess að slaka að- eins á,“ sagði markakóngur heims- meistaramótsins, Guðjón Valur Sig- urðsson. Brand heimsmeistari 1978 Þjóðverjar lögðu Pólverja í úrslita- leiknum í gær, 29:24. Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þýskalandi, varð þar með fyrsti maðurinn til þess að verða heimsmeistari bæði sem leikmaður og þjálfari. Brand var leikmaður í sig- urliði V-Þjóðverja á HM í Danmörku 1978. Þýskaland varð heimsmeistari í handknattleik og Heiner Brand skráði nafn sitt í söguna Vildi skipta á markakóngs- titli og verðlaunum á HM ÞJÓÐVERJAR urðu í gær heims- meistarar í handknattleik í þriðja sinn þegar þeir lögðu Pólverja, 29:24, í úrslitaleik í Köln Arena að viðstöddum tæplega 20.000 áhorf- endum þar sem mikið var um dýrð- ir. Eftir að Þjóðverjar höfðu tekið við verðlaunum sínum var Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsmaður í handknattleik, kallaður fram á gólfið og tilkynnt að hann væri markakóngur HM að þessu sinni en þetta er í fyrsta sinn sem Íslend- ingur er markakóngur á HM. Reuters Bestir í heimi Markverðir þýska landsliðsins, Johannes Bitter, Carsten Lichtlein ogg Henning Fritz fagna heimsmeistaratitlinum í Köln. Eftir Ívar Benediktsson í Köln iben@mbl.is ALFREÐ Gíslason er samningsbundinn Handknattleikssambandi Ís- lands sem landsliðsþjálfari til 1. júlí og er ákveðinn í að gefa ekki kost á sér til að vera með liðið áfram að þeim tíma liðnum. Í júní leikur Ís- land gegn Serbíu í umspili um sæti í Evrópukeppninni í Noregi á næsta ári og þeir leikir eru því innan samningstíma Alfreðs. Hann er hins- vegar tilbúinn til að standa upp úr stól sínum strax ef HSÍ vill að sá sem taki við af honum hefji strax störf með liðið. „Þetta er í höndum HSÍ og forráðamenn sambandsins ákveða hvaða stefnu þeir vilji taka í þessu máli. Ef þeir vilja að nýr maður taki við strax, er það ekkert mál af minni hálfu, en að öðrum kosti klára ég minn samning og verð með liðið í leikjunum gegn Serbíu, sagði Alfreð við Morgunblaðið. Sjá nánar viðtal við Alfreð á bls. » B 6 Hættir Alfreð strax með landsliðið? RAUÐU DJÖLFARNIR MEÐ SEX STIGA FORSKOT Á ENGLANDSMEISTARA CHELSEA Á TOPPNUM >> 9 „Ég kom að þessum þáttum árið 1986,“ segir Sigríður Hjartar fyrrum formaður Garðyrkjufélags Íslands. „Þá voru þættirnir endurvaktir í tilefni af 100 ára afmæli Garðyrkjufélags Íslands. Skrif þáttanna hóf- ust árið 1975. » 6 Morgunblaðið/ÞÖK Blóm vikunnar - 600 þættir og rúmlega það! mánudagur 5. 2. 2007 fasteignir mbl.is Stendur með þér í orkusparnaði Öryggi: skildu ekki eftir opinn glugga » 46 fasteignir SKULDIR HEIMILANNA HAFA AUKIST „SKULDIR HEIMILANNA HAFA AUKIST UM 35% AÐ RAUNGILDI FRÁ 2004,“ SEGIR MAGNÚS ÁRNI SKÚLASON, DÓSENT VIÐ HÁSKÓLANN Á BIFRÖST. >> 27 „Þetta er það listform sem hvað lengst hefur lifað með þjóðinni,“ segir Bjarni Þór Kristjánsson smíðakennara um út- skurð og tálgun sem hann hefur stundað í rösklega 30 ár með frá- bærum árangri. Hann kennir þetta viðfangsefni sitt fólki á námskeiðum » 2 Morgunblaðið/ÞÖK Útskurður - þjóðlegt listform Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 24 Staksteinar 8 Minningar 25/29 Veður 8 Leikhús 34 Viðskipti 11 Myndasögur 36 Úr verinu 12 Dagbók 37/41 Erlent 13 Bíó 38/41 Menning 14, 32/36 Staður og stund 38 Vesturland 15 Víkverji 40 Daglegt líf 17/21 Velvakandi 40 Forystugrein 22 Ljósvakar 38 * * * Innlent  Verð á aflahlutdeild hefur nú tvöfaldast á tveimur árum og meira en tífaldast síðan 1992. Síðustu kaupsamningar eru upp á 2.400 krónur fyrir kíló af þorski. Svipaða sögu er að segja af leigumark- aðinum þar sem verð á kílói af þorski er komið upp í 175 krónur. » Forsíða  Vegslit vegna nagladekkja kost- ar skattgreiðendur hundruð millj- óna króna á ári. Þá segja sérfræð- ingar að svifryk á höfuðborgarsvæðinu stafi að miklu leyti af notkun nagladekkja. Ráð- gjafar umhverfisráðherra leggja til að unnið verði gegn megnugninni með bættri skipulagningu og fræðslu. » 10  Nýr Kjalvegur myndi stytta vegalengdina milli Akureyrar og Reykjavíkur um 47 kílómetra. Fé- lagið Norðurvegur ehf. kynnti í gær hugmyndir um lagningu nýs Kjal- vegar í einkaframkvæmd. „Við telj- um þetta vera raunhæfan kost, bæði tæknilega og fjárhagslega,“ sagði Halldór Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri KEA. » 6  Höfnin við álverið í Reyðarfirði verður ein stærsta vöruflutninga- höfn landsins, þegar nýr samningur Alcoa Fjarðaáls og Eimskips tekur gildi. Samningurinn kveður á um að Eimskip sjái um alla uppbyggingu, þjónustu og flutninga á hafnarsvæð- inu. Forstjóri Eimskips segir að höfnin muni bæta flutningaþjónustu félagsins á landsbyggðinni. » Forsíða  Innbrotsþjófar hafa látið greipar sópa á Akureyri undanfarna daga og hefur lögreglunni verið tilkynnt um þjófnað fyrir milljónir króna. Rannsóknarlögreglan á Akureyri óskaði í gærkvöldi eftir gæslu- varðhaldi yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um nokkra þjófnaði um helgina. » 11 og Baksíða Viðskipti  Björgólfur Thor hefur með síð- ustu yfirtöku sinni á pólska síma- markaðinum kippt fótunum undan pólska landsímanum. Pólskir blaða- menn tala um jarðskjálfta á mark- aðinum, en þeir eru sammála um að farsímafélög Björgólfs hafi styrkt stöðu sína með yfirtökunni. » 11 Erlent  Minnst 20 létust og á fjórða hundrað þúsunda eru heimilislaus eftir mikil flóð í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, á síðustu dögum. Vatns- elgurinn í borginni hefur víða náð upp að húsþökum. » 13  Athygli bandarískra fjölmiðla á Michelle Obama, eiginkonu Baracks Obama, einnar helstu vonarstjörnu demókrata, fer vaxandi en hún þyk- ir styrkja pólitíska möguleika eig- inmannsins. Má segja að hún sé holdgervingur þeirrar þróunar vest- anhafs að útivinnandi, giftar konur þéni meira en karlarnir. » 13  Utanríkisráðherra Japans er einkar harðorður í garð bandarískra stjórnvalda vegna stefnu hersins í Írak í kjölfar innrásarinnar 2003. Jafnframt hefur japanski varn- armálaráðherrann gengið svo langt að fullyrða að innrásin hafi verið mistök af hálfu George W. Bush Bandaríkjaforseta. » 13 Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl.is MYND af álverinu í Reyðarfirði prýðir forsíðu sunnudagsútgáfu The New York Times frá því í gær. „Reykháfur í hvítum öræfum skiptir íslensku þjóðinni,“ er fyrirsögn fréttarinnar sem fjallar um Kára- hnjúkavirkjun, álver Alcoa í Reyð- arfirði og íslenska stóriðjustefnu. Í fréttinni segir að álversupp- bygging Alcoa á Austurlandi sé hluti af stærra verkefni sem sé að um- breyta öræfum landsins. Þá er vísað til bandalags þrýstihópa sem segja íslensku þjóðina vera að fórna dýr- mætustu eign sinni, hinu ósnortna landi, fyrir erlenda stóriðju. Á borð- inu séu tillögur um áframhaldandi álversuppbyggingu, sem geri ráð fyrir fjórum stíflum fyrir vatnsafls- orkuframleiðslu, allt að átta nýjum jarðvarmavirkjunum, tveimur nýj- um álverum og stækkun þeirra sem fyrir eru. Vitnað er í Ólaf Pál Sigurðsson frá samtökunum „Saving Iceland“, sem segir að ef tillögurnar gangi í gegn muni það þýða algjöra umhverfis- eyðingu íslenska hálendisins. Og Hjörleifur Guttormsson bendir í fréttinni á aukna mengun sem muni hljótast af framkvæmdunum. Alcoa segir hins vegar að fyrir- tækið hafi nú þegar mætt skuldbind- ingum um að draga saman losun á gróðurhúsalofttegundum um 25% miðað við losunina árið 1990. Tals- maður Alcoa, Kevin Lowery, segir að álverið muni losa um 1,8 tonn af koltvísýringi fyrir hvert tonn af áli, á meðan kolaknúin álver losi 13 tonn af koltvísýringi fyrir hvert tonn. Kárahnjúkavirkjun og álver á forsíðu NYT Á forsíðu. Fjallað um álver Alcoa í dagblaðinu New York Times í gær. „ÉG ER þeirrar skoðunar að menn verði að fara mjög var- lega við að byggja borgir úti á landfyllingum vegna þess að sjávarborð fer hækkandi, landið er að síga og borgir eru byggðar til svo langs tíma,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, pró- fessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Hugmyndir um 4.500 manna íbúðabyggð á landfyllingu við Örfirisey voru kynntar borg- aryfirvöldum í miðri síðustu viku og vonast framkvæmdastjóri Þyrping- ar, sem stendur að gerð tillagn- anna, til að framkvæmdir geti haf- ist innan tveggja ára. Magnús Tumi segist ekki hafa kynnt sér hverfið sem rísa á við Ör- firisey sérstaklega en telur að land- fyllingar séu óskynsamlegur kostur þegar aðrir betri séu fyrir hendi. „Því tel ég að landfyllingar séu eitt- hvað sem menn eiga að nota ef þeir hafa ekki aðra kosti. Ég held líka að það sé mikill munur á því hvort menn eru að byggja iðnaðarsvæði á landfyllingum eða íbúðabyggð,“ segir Magnús og vísar bæði til end- ingar húsnæðis á iðnaðarsvæðum auk þess sem fólk hefur þar ekki búsetu. „Ég veit ekki hversu hátt menn hafa þetta hverfi en ég tel að það verði að taka tillit til aðstæðna og hafa varúðarmörk, reikna t.d. með því að sjávarborð geti hækkað um 1–1,5 metra án þess að vand- ræði skapist í hverfinu. Það sem er í lagi í dag getur eftir 100–150 ár orðið vandræðastaður sem verja þarf með flóðvarnargörðum og öðru.“ „Taka verður til- lit til aðstæðna“ Magnús Tumi Guðmundsson Morgunblaðið/Ómar Una sér vel í alhvítum garðinum ÞRÁTT fyrir að snjór hafi hulið jörð gerðu margir sér ferð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í gærdag og óhætt að segja að börnin hafi unað sér vel í alhvítum garðinum, enda veður skaplegt. Systkinin Katla og Kópur voru al- sæl með vetrarríkið sem myndast hafði í garðinum þeg- ar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is RÉTT um það leyti sem nýr formað- ur Kraftlyftingasambands Íslands var kjörinn á föstudag, Jóhanna Ei- ríksdóttir, sem er jafnframt er fyrsta konan í formannssæti KRAFT, reið áfall yfir nýja stjórn sambandsins með því að fyrrverandi formaður þess var handtekinn með 30 þúsund steratöflur. Nýja ímynd þarf að byggja upp, að mati Jó- hönnu, og verður það verkefni nýrr- ar stjórnar. Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yf- irmanns fíkniefnadeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, sem stjórnar rannsókn málsins, var um að ræða eitt mesta magn sterataflna sem lagt hefur verið hald á í Reykja- vík. Hinum handtekna hefur verið sleppt að loknum yfirheyrslum. „Þessar töflur eru stórhættulegar og það er vitað mál að menn verða ofbeldishneigðari ef þeir nota þessar töflur og áfengi með. Þetta fer oft illa í menn,“ segir Ásgeir. Jóhanna Eiríksdóttir segir málið í heild koma sér mjög á óvart. Þegar málið komst í hámæli var stjórnin kölluð saman, á laugardag. „Við vit- um að steranotkun er því miður út- breidd víða en þetta hefur loðað meira við kraftlyftingamenn vegna þess að það fer meira fyrir þeim,“ segir hún. „Ég mæli þessu alls ekki bót og við viljum bæta ímynd KRAFTS. Fyrsta skrefið var að kjósa fyrsta kvenformann sam- bandsins og jafnframt höfum við sett á laggirnar nefnd sem mun fjalla um möguleika okkar á samstarfi við ÍSÍ.“ Í umræddri nefnd situr læknir, að sögn Jóhönnu. „ÍSÍ ekki kært sig um okkur“ „Jafnvel verða kannaðir mögu- leikar á inngöngu okkar í ÍSÍ en þeir hafa ekki kært sig um okkur hingað til. Það væri hins vegar miklu auð- veldara fyrir okkur að halda utan um lyfjapróf og annað ef tengsl við ÍSÍ yrðu að veruleika.“ Jóhanna bendir á að lyfjapróf fyrir einn einstakling kosti 60 þúsund krónur og lyfjapróf á innlendum mótum hafi ekki verið reglan. „En allir keppnismenn okkar sem keppa erlendis á alþjóðlegum mótum fara í lyfjapróf,“ tekur hún fram. „Þetta mál kemur upp á mjög óheppilegum tíma, einmitt þegar við erum að færa okkur í áttina til ÍSÍ fáum við þetta framan í okkur.“ Guðmundur Þorgeirsson, yfir- læknir á hjartadeild Landspítalans, segir stera hafa mjög víðtæk áhrif á líkamann og steralyf kynda undir ótímabærri æðakölkun og valda þykknun á hjartavöðva að ógleymd- um áhrifum á geðslag neytandans. „Misnotkun stera í íþróttaiðkun gengur út á að gefa gríðarlega skammta og þá koma þessi hættu- legu áhrif fram,“ segir Guðmundur. Ný kraftlyfingastjórn í skugga sterahneykslis Steralyf valda æðakölkun og þykknun á hjartavöðvanum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.