Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 11

Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 11 VIÐSKIPTI Hreinn Haraldsson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Vega- gerðarinnar, sagðist hins vegar mega áætla að um 65 prósent slitsins á höfuðborgarsvæðinu ættu sér stað innan marka Reykjavíkur. Af þessu leiðir að heildarslit vega- kerfisins á höfuðborgarsvæðinu nemur um 15.385 tonnum eða sem svarar malbiki fyrir á fjórða hundrað milljónir króna á ársgrundvelli. Hreinn segir ekki hægt að bera saman aðstæður á höfuðborgarsvæð- inu og í dreifbýli en fullyrðir að vetr- ardekk séu að nálgast nagladekk að gæðum og öryggi. Hann tekur undir að aukningin í fjölda ökutækja muni leiða til meira slits og því megi allt eins búast við að kostnaðurinn sem af því hlýst muni fara vaxandi. Dýrt að hreinsa holræsin Hafsteinn Helgason er sammála því að almenningur þurfi að standa straum af kostnaði vegna vegslits. „Ætla má að hreinsun regnvatns- kerfisins í Reykjavík kosti allt að 50 milljónir á króna,“ segir Hafsteinn. „Megnið af sandinum og fína malbik- inu sem berst í kerfið má rekja til vegslits, sem kemur að langmestu leyti frá nagladekkjum. Sandurinn slítur vélbúnaði og leiðir til aukinna þrifa á bílaflotanum og mann- virkjum. Það þarf jafnframt að fjar- lægja graseyjar sem í raun eru fullar af spilliefnum. Stóra talan í þessu verður heilsufarsþátturinn en sam- kvæmt norskum heimildum er ljóst að hann getur skipt hundruðum milljóna kr.. Við þetta bætist verðfall á eignum þar sem sýnilegt ryk berst inn og það þarf að þrífa meira og ganga frá gluggum með sérstökum hætti.“ Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bif- reiðaeigenda, FÍB, tekur undir þau orð Hafsteins að nagladekkin eigi þátt í árlegum útgjöldum bifreiða- eigenda vegna þrifa. „Nagladekkin hafa klárlega einhver áhrif,“ segir Runólfur. „Slitið fer þó eftir stærð ökutækja og veðuraðstæðum. Fjöru- tíu tonna bíll slítur t.a.m. á við 20 til 30.000 fólksbíla.“ úrkomu og hálkueyðingu á akveg- unum. „Ég gerði á því athugun sunnu- daginn 21. janúar hversu mikið ryk mætti ætla að hefði borist frá há- lendinu dagana á undan, með því ein- faldlega að kanna hve hreinar snjó- breiðurnar við Sandskeið væru. Það kom mér á óvart að snjórinn var tandurhreinn en skammt frá heimili mínu í Grafarvogi mátti greina ryklög í köldum snjónum, ekki ósvipað öskulögum í jökli. Þetta er ein af mörgum vísbend- ingum um að upptaka jarðvegsryks- ins sé fyrst og fremst að leita í fram- kvæmdum á höfuðborgarsvæðinu. Við þetta má bæta að topparnir í svifryksmenguninni hafa verið hæst- ir á kyrrviðrisdögum þegar áhrifa frá særoki og sandfoki gætir ekki. Það þarf að verða hugarfarsbreyt- ing hjá verktökum, sem geta dregið úr rykmyndun með vatni. Það sama þarf að eiga sér stað hjá sveit- arfélögum sem gætu tekið þátt í að rykbinda malarvegi í nýjum hverf- um. Ágætt dæmi er að til eru gröfur sem notaðar eru við niðurrif húsa og sprauta vatni á svæðið umhverfis skófluna. Við sjáum þetta í úthverf- unum og í miðborginni, þar sem íbú- um í nágrenni framkvæmda er boðið upp á rykský langtímum saman.“ Fækkun nagladekkja ekki nóg Sú skoðun er útbreidd að nagla- dekk eigi mikinn þátt í myndun svif- ryks með því að tæta upp malbik á fjölförnum vegum. Þorsteinn telur hins vegar að niðurstöður frá Noregi bendi til að herferð gegn nagladekkj- um dugi ekki ein og sér til að draga úr rykmyndun. Nagladekk eigi stærstan þátt í sliti malbiksins en vandinn sé svo mikill að þeim þurfi að fækka stórkostlega til að ná um- talsverðum árangri. Máli sínu til stuðnings hefur hann sett fram nýja kenningu um söfnun ryks á vegum. „Rykið sem safnast saman á veg- um á milli vegkantanna nær ákveðnu hámarki. Bílaumferðin sér síðan um að dreifa rykinu niður í holræsin og yfir vegkantana á um- ferðareyjar og nærliggjandi um- hverfi. Svifryksmengun í Reykjavík og í sveitarfélögunum í kring nær há- marki þegar ryk sem safnast hefur saman í vætutíð þornar og þyrlast upp frá umferðinni. Þessu má líkja við fínefni á yfirborði malbiksins, sem er 95 prósent náttúrulegt berg og fimm prósent tjara, sem þornar, þyrlast upp og breytist í svifryk. Rannsóknir í nágrenni Óslóar benda til að fyrir hver tíu prósent sem dregið er úr notkun nagla- dekkja minnki magn svifryks í and- rúmsloftinu um sem svarar einum míkrómetra á rúmmetra andrúms- lofts. Til samanburðar fer rykið hæst í 400–700 míkrógrömm við mæling- arstöðina við Grensásveg, þar sem ársmeðaltalið er 19–37 míkróg- römm. Með þessu er ég ekki að mæla nagladekkjum bót, þvert á móti er öll minnkun á rykmynd- uninni góð.“ Telur saltpækil öflugt vopn Inntur eftir því hvaða leiðir kunni að verða árangursríkari bendir Þor- steinn á að nota mætti tankbíl með saltpækli – líkan þeim sem nú er not- aður á Reykjanesbrautinni – með góðum árangri. Þessa sömu bíla mætti nota til rykbindingar á þurr- um dögum en að hans sögn fara álagstoppar í hálkuvörnum og ryk- binding yfirleitt aldrei saman. Hann bendir einnig á að svokall- aðar frostþíðusveiflur, er hitastigið sveiflast upp og niður fyrir frost- mark, séu allt að 80–90 á hverjum vetri. Vatn er eins og kunnugt er eina efnið sem þenst út við frystingu og á vætan því þátt í sliti malbiksins. „Þótt slit ykist eitthvað örlítið með notkun pækils myndi rykbindi- geta hans vega það upp og rúmlega það.“ "#$ % $  ! &#  $  ! % $ !% $   ! Í HNOTSKURN » Þorsteinn telur þörf ábreyttu hugarfari verk- taka gagnvart frágangi við framkvæmdasvæði. » Hann segir svifryksmeng-un í Reykjavík stundum meiri á álagsdögum heldur en í stórborginni London. » Hann leggur áherslu árykbindingu. » Minnstu svifryksagnirnarkomast lengst inn í önd- unarveginn og eru því taldar skaðlegastar. YFIRTAKA pólska farsímafyrir- tækisins P4 á grísku farsímasmá- sölukeðjunni Germanos Polska hef- ur valdið mikilli ólgu á pólska símamarkaðinum, að því er segir í pólska fagblaðinu Telepolis. P4, dótturfélag, er í meirihlutaeigu Novators, fjárfestingarfélags Björg- ólfs Thors Björgólfssonar, en félagið tók upp nafnið Play í kjölfar samrun- ans. Germanos á stærstu farsímasölu- keðju í Suðaustur-Evrópu og rekur til að mynda 300 símasölustaði í Pól- landi. Telepolis líkir tíðindunum við jarðskjálfta enda er Germanos stærsti dreifiaðili á farsímabúnaði til almennings en samhliða viðskiptun- um sagði Germanos upp samningum sínum við pólska landssímann. Pólska fréttaveitan Poland A.M. seg- ir yfirtökuna mikið áfall fyrir lands- símann þar sem um þriðjungur af allri sölu félagsins hafi verið í gegn- um smásöluútibú Germanos. P4 eða Play hyggst bjóða þriðju kynslóðar farsíma í Póllandi innan tíðar og hefur fréttaveitan eftir And- rzej Piotrocwski, sérfræðingi við Adam Smith Center, að landssíman- um hafi með þessu verið kippt út úr samkeppninni. Segir Telepolis að staða Netia, móðurfélags P4, sé nú orðin mjög sterk og félagið kunni nú að veita landssímanum alvöru sam- keppni. Samruninn við Germanos muni styðja mjög við markaðssetn- ingu og sölu á þriðju kynslóðar far- símum. Þá segir að áhugi á fjárfesta á félaginu hafi aukist við þetta en margir telja að fyrirhugað sé að skrá Play á pólska markaðinn. Yfirtaka Novators skekur pólska símamarkaðinn BLAÐAMAÐUR tók Hafstein og Runólf á orðinu og varð sér úti um upplýsingar hjá Umferðarstofu um fjölda skráðra ökutækja. Þar kemur fram að fjöldi skráðra öku- tækja á Íslandi í árslok 2006 var 272.518, sbr. við 210.324 árið 2000 og 151.330 árið 1994. Til að setja þessar tölur í samhengi segir Eva Sunnerstedt, sem rannsakar um- hverfisvænar samgöngur í Stokk- hólmi, að skráðir bílar í miðborg- inni hafi verið 279.108 árið 2005. Af þessum fjölda voru 173.794 bifreiðar skráðar á höfuðborg- arsvæðinu 2006. FÍB áætlar að meðalútgjöld vegna þrifa á hverja nýja fólksbifreið á ársgrundvelli séu 16.600 krónur. Sé það varlega mat lagt fram að nagladekk eigi þátt í fimm pró- sentum útgjalda vegna þrifa þess- ara ökutækja – og þá ekki tekið tillit til þess að hluti þeirra er ekki í notkun – kemur í ljós að aukin útgjöld vegna naglanna nema tuttugasta hlutanum af 2.885 milljónum, eða sem svarar 144 milljónum króna. Ef sú upphæð er lögð saman við 300 milljónir vegna vegslits á höfuðborgarsvæðinu - ef hærri talan er valin - og 50 milljónir vegna þrifa regnvatns- og hol- ræsakerfisins í Reykjavík má áætla að beinn kostnaður vegna nagladekkja á höfuðborgarsvæð- inu nemi a.m.k. 494 milljónum. Um verulega fjármuni er því að ræða en til samanburðar kostar nýtt varðskip 2.674 milljónir króna á núvirði. Bílaflotinn fer ört stækkandi og sýnist því óhætt að áætla að slitið vegna naglanna á höfuðborgarsvæðinu kosti minnst hátt í ígildi nýs varðskips á fimm ára tímabili. Í þessari tölu er ekki tekið tillit til ýmiss konar óbeins kostnaðar, svo sem lækkaðs fasteignaverðs vegna loft- og hávaðamengunar, kostnaðar við þrif regnvatns- kerfis í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu eða þeirra útgjalda sem falla á samfélagið í formi aukins heilsufarskostnaðar og vinnutaps vegna svifryks- mengunar. Útgjöld vegna slits ígildi varðskips á fimm árum '    ()  $ **+ + , -  .$ /  $  0# 1   2 232 2 2 45 !    6  ! ##  $  ! ! ● Hlutabréf verslanakeðj- unnar Sainsbury hækkuðu um 14% síðastliðinn föstudag eftir að hópur einka- fjárfesting- arsjóða var þvingaður til að upplýsa um yfirtökuáform sín á fé- laginu. Mikil spákaupmennska var með bréf félagsins síðastliðna viku og í framhaldinu gekk breska yfirtökunefndin á fjárfestingarsjóð- ina, sem viðurkenndu að þeir væru að skoða fyrirtækið með yf- irtöku í huga. The Daily Telegraph segir Baug hafi byggt upp 2% hlut í Sainsbury á undanförnum vikum og segir blaðið kaupin hafa ýtt undir get- gátur um væntanlega yfirtöku. Blaðið segir þó sérfræðinga í City skiptast í tvo hópa um hvort yf- irtakan verði að veruleika. Baugur orðað við Sainsbury ● FL Group hefur að undanförnu aukið hlut sinn í danska brugghús- inu Royal Unibrew úr 20,5% í 24,4%. Íslenska félagið er stærsti einstaki hluthafinn í fyrirtækinu, sem er næststærsta bruggverksmiðja á Norðurlöndunum á eftir Carlsberg. Viðskiptablaðið Børsen segir kaupin hafa ýtt undir getgátur um að sam- runi á bruggmarkaðinum kunni að vera í bígerð. Fyrir um ári sagði Hann- es Smárason í viðtali við danska blaðið Direkt, að stór fyrirtæki á bruggmarkaðinum kæmu til með að verða stærri, og litlu fyrirtækin minni. Royal Unibrew væri fyrirtæki sem hann reiknaði með að tæki þátt í þessari þróun. FL Group eykur hlut sinn í Royal Unibrew ● VIÐSKIPTASENDINEFND Útflutn- ingsráðs, með Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra í broddi fylkingar, er á leiðinni til S-Afríku í lok mán- aðarins. Hátt í 15 íslensk fyrirtæki hafa þegar staðfest þátttöku í ferð- inni, m.a. Icelandair, Landsbankinn, Icexpress, Landsvirkjun, Loftleiðir Icelandic, Landsteinar Strengur, Marel, NordiceMarketing, OpenHand og Hópferðamiðstöðin Trex. Útflutningsráð hefur framlengt skráningarfrest til 7. febrúar nk. til að gefa fleiri fyrirtækjum færi á að taka þátt í ferðinni og nýta þannig tækifærið til að koma vöru sinni og þjónustu á framfæri við rétta aðila í S-Afríku. Lagt verður af stað frá Íslandi 24. febrúar og farið til Jóhannesarborg- ar, Pretoríu og Höfðaborgar. Fjöl- margir aðilar í S-Afríku taka þátt í verkefninu, til að mynda stærsta lög- fræðistofa landsins, Routledges, risafyrirtækið Old Mutual, verslunar- og viðskiptaráðið í landinu og sér- fræðingar sænska útflutningsráðs- ins í Jóhannesarborg. Íslensk viðskipta- sendinefnd til S-Afríku FJÁRFESTINGAFÉLAGIÐ Eyrir Invest ehf. skilaði 1.664 milljónum króna í hagnað eftir skatta á síðasta ári. Heildareignir félagsins voru í árslok 26,3 millj- arðar í árslok og jukust um nær 50% frá upphafi árs. Eigið fé nam um 12 milljörðum undir lok ársins en var 9,6 milljarðar í árs- lok 2005. Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Ivest, segir afkomu félagsins viðunandi, en arðsemi eiginfjár var 17,5% á árinu. Rekstrartekjur voru 2,1 milljarður króna en tekjur af hlutabréfum voru 2,9 milljarðar króna. Efnahagur félagsins er góður en eiginfjárhlutfall var 46% í árslok. Stærstu eignirnar í safni Eyris eru tæpur 30% hlutur í Marel og 16% hlutur í Össuri og var árið 2006 við- burðaríkt hjá báðum þessum fé- lögum. Marel festi kaup á félaginu AEW Delford síðastliðið vor og í ágúst festi félagið kaup á Scanvægt í Danmörku. Síð- astliðin tvö ár hefur Össur vaxið hratt með yfirtök- um á fjórum félögum í Evrópu og Bandaríkjunum. Aðrar eignir Eyris Invest eru einkum í stórum fjármála- fyrirtækjum sem skráð eru á Norð- urlöndum og hafa starfsemi í Mið- og Austur-Evrópu. Á aðalfundi félagsins 1. febrúar sl. var samþykkt að greiða 10% af hagn- aði eftir skatta í arð. Í tilkynningu frá félaginu segir að markmið félagsins til næstu fjögurra ára sé 20% árleg meðalarðsemi til samanburðar við yf- ir 60% arðsemi að meðaltali á árunum 2000–2005. Gott ár hjá Eyri Invest VIÐSKIPTI ÞETTA HELST ...

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.