Morgunblaðið - 05.02.2007, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.02.2007, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING SIRRA Sigrún Sigurðardóttir heldur opinn fyrirlestur í myndlistardeild LHÍ í dag klukkan 12.30 í stofu 024. Þar mun hún fjalla um við- fangsefni sín undanfarin ár, sýningar og áhrif myndlist- arlegs umhverfis á listrænt ferli og vinnu. Sirra var stofn- andi og einn af rekstraraðilum Kling og Bang gallerísins og sömuleiðis Klink og Bank í Brautarholti. Hún lauk námi úr fjöltæknideild LHÍ árið 2001 og hefur síðan þá haldið nokkrar einkasýningar hér á landi og tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis. Fyrirlestur Sirra Sigrún í Listaháskólanum Sirra Sigrún Sigurðardóttir Í MARS verður leikverkið Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson tekið aftur til sýn- inga í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Mr. Skallagrímsson var frumsýnt við opnun setursins 13. maí síðastliðinn. Sýningin fékk víðast hvar góða dóma og var meðal annars valin athygl- isverðasta leiksýning ársins 2006 í Morgunblaðinu. Sýningum á Mýramanninum eftir Gísla Ein- arsson og skemmtunin Svona eru menn með þeim KK og Einari Kárasyni verður jafnframt haldið áfram á Landnámssetrinu. Leiklist Mr. Skallagrímsson snýr aftur Benedikt Erlingsson Á MORGUN, þriðjudag, er komið að þriðja hádegisfyr- irlestri Sagnfræðingafélagsins á þessu ári. Venju samkvæmt verður hann kl. 12:05–12:55 í fyr- irlestrasal Þjóminjasafns Ís- lands. Fyrirlesari að þessu sinni er Hannes Hólmsteinn Giss- urarson og mun hann ræða um heimildarþáttagerð. Frekari upplýsingar um fyrirlesturinn, sem og komandi fyrirlestra, má finna á heimasíðu félagsins, www.sagnfraedingafelag.net. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fyrirlestur Hannes um heimildarmyndir Hannes Hólm- steinn Gissurarson BJÖRK Guðmundsdóttir verður eitt aðalnúmerið á tónlistarhátíð- inni á Hróarskeldu í Danmörku í sumar. Þetta munu vera einu tónleik- arnir sem söngkonan heldur í Skandinavíu í ár. Á heimasíðu hátíðarinnar segir meðal annars að hátíðahaldarar hlakki mikið til að fá Björk aftur í heimsókn en hún lék á Hróars- keldu árið 2003 „þar sem hún flutti glæsilega lokatónleika hátíð- arinnar að viðstöddum rúmlega 50 þúsund manns.“ Á heimasíðunni segir jafnframt að tónleikar Bjarkar fyrir fjórum árum hafi verið með þeim allra flottustu í sögu hátíðarinnar. 150 hljómsveitir á fjórum dögum Hróarskelduhátíðin er ein virt- asta og mest sótta tónlistarhátíð í Evrópu. Á hverju ári koma þar fram yfir 150 hljómsveitir á sex sviðum á fjórum dögum. Hátíðin fer fram dagana 5. til 8. júlí næstkomandi. Miðasala er þegar hafin á midi- .is og kostar miðinn 19.500 kr. Auk Bjarkar hafa bandarísku rokkararnir í Red Hot Chili Pep- pers boðað komu sína en þeir eru einnig góðkunningjar Hróars- kelduhátíðarinnar. Morgunblaðið/ÞÖK Björk Það hlakka eflaust margir til að sjá söngkonuna aftur á Hróars- keldu í sumar. Björk á Hróars- keldu Talin eiga eina flottustu tónleika í sögu hátíðarinnar www.roskilde-festival.is SAMTÖK amer- ískra kvik- myndaleikstjóra (Directors Guild of America) verðlaunuðu um helgina leikstjór- ann Martin Scor- sese fyrir kvik- mynd sína The Departed, en tal- ið er að þetta muni auka líkurnar á því að hann muni hljóta Ósk- arsverðlaunin eftirsóttu. Scorsese, sem er 64 ára gamall, atti kappi við leikstjóra Dreamg- irls, Babel, Little Miss Sunshine og The Queen. Scorsese hefur verið tilnefndur til verðlaunanna sex sinnum áður en þetta er í fyrsta sinn sem þau falla honum í skaut. Verðlaunin þykja vera góð vís- bending varðandi það hver muni hljóta verðlaun fyrir bestu leik- stjórn á Óskarsverðlaunahátíðinni. Aðeins í sex skipti í 58 ára sögu leikstjórasamtakanna hefur sig- urvegarinn ekki unnið Óskarinn. Scorsese heiðr- aður af koll- egum sínum Martin Scorsese MEÐAN Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur í ströngu við undirbúning tónleikaferðar til Þýskalands, Króatíu og Austurríkis 11.–21. febrúar, berast hljómsveitinni boð um að spila í Japan síðar á árinu. Tónleikaferð til Færeyja verður farin í vor, og einnig hefur komið til tals að hljómsveitin leiki aftur í Þýskalandi í nóvember. Ef fram fer sem horfir verður þetta því metár í ferðalögum hljómsveitarinnar. Í dag þykir ekki einungis sjálfsagt, heldur líka nauðsynlegt að hljómsveitir af sömu gæð- um og Sinfóníuhljómsveit Íslands geri sig heyrinkunnar og séu í samanburðarfæri við aðrar góðar hljómsveitir. Segja má að tónleikaferðin nú hefjist innan- lands því fyrirhugaðir eru tvennir tónleikar hér á landi þar sem sama efnisskrá og erlend- um gestum verður boðið upp á í ferðinni verð- ur kynnt íslenskum áheyrendum. Fyrri tón- leikarnir verða á Akureyri annað kvöld, og þeir síðari í Háskólabíói á tónleikatíma á fimmtudagskvöld. Hljómsveitarstjóri verður Rumon Gamba sem hefur verið aðalhljóm- sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2002. Með í för verður einnig rússneski píanóleikarinn heimsþekkti Lilya Zilberstein sem kölluð hefur verið „seiðkona slaghörp- unnar“. Ragnheiður Gröndal og Eyvør Pálsdóttir syngja í Færeyjum Tónleikaferðir yfir hafið með heila sinfón- íuhljómsveit verða ekki hristar fram úr erm- inni og undirbúningur að ferðinni nú hefur tekið rúmt ár. Iðulega hafa liðið 3–4 ár milli tónleikaferða, til að mynda eru um það bil fjögur ár frá því hljómsveitin lagði síðast land undir fót, en þá hélt hún einnig til Þýskalands. Þegar hljómsveitin heimsækir frændur vora Færeyinga í vor mun hún leika fyrir þá valin íslensk dægurlög og þá munu tvær af skær- ustu söngstjörnum landanna tveggja koma fram með hljómsveitinni, þær Ragnheiður Gröndal og Eivör Pálsdóttir. Hljómsveit- arstjóri þar verður Bernharður Wilkinson sem var um árabil flautuleikari Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands og síðar aðstoðarhljómsveit- arstjóri en hann býr nú í Færeyjum. Hausttónleikar í Japan Japansferðin og haustferðin til Þýskalands eru enn á teikniborði hljómsveitarinnar. Unnið er að því að hægt verði að fara til Japans í lok október og aðilar í Þýskalandi hafa sýnt því áhuga að fá hljómsveitina þangað aftur næsta haust. Það er því ljóst að eftirspurnin eftir Sinfóníuhljómsveit Íslands er orðin mikil. Nánari dagsetningar og efnisskrár þessara tónleikaferða liggja ekki fyrir að svo stöddu. Þess má geta að Landsbankinn styður Sin- fóníuhljómsveit Íslands á tónleikaferðum hennar á erlendri grund en aðalstyrktaraðili hljómsveitarinnar er FL Group sem á dögun hlaut hvatningarverðlaun Samtóns fyrir fram- lag sitt til íslenskrar tónlistar. Metár í ferðalögum Sinfóníuhljómsveitar Íslands Sinfóníuhljómsveitin í útrás Morgunblaðið/ÞÖK Sinfóníuhljómsveitin Það stefnir í metár í ferðlaögum þessarar fjölmennustu hljómsveitar Íslands. Maestro Rumon Gamba hefur verið aðalhljómsveitarstjóri Sinfón- íuhljómsveitar Íslands frá árinu 2002. Hann stjórnar hljómsveitinni í tónleikaferðinni til Þýskalands, Króatíu og Austurríkis nú í febrúar. Nauðsynlegt að hljóm- sveitir geri sig heyr- inkunnar og séu í sam- anburðarfæri við aðrar góðar hljómsveitir ♦♦♦ 1977 – Færeyjar 1981 – Þýskaland og Austurríki 1985 – Frakkland 1987 – Grænland 1990 – Norðurlönd 1993 – München 1994 – Færeyjar 1994 – Washington 1996 – Bandaríkin 1996 – Kaupmannahöfn 1997 – Grænland 2000 – Bandaríkin 2003 – Þýskaland Utanlandsferðir Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands frá upphafi:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.