Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 16
Það borgar sig að leita eftir til-
boðum þegar tryggja á fólksbíl
því verðmunurinn getur numið
tugum þúsunda. »18
fjármál
Auður Andrea Skúladóttir er
einungis sextán ára en opnaði
sl. laugardag sína fyrstu mynd-
listarsýningu. »20
daglegt líf
Töluvert er af ólöglegum gælu-
dýrum hér á landi, snákum, eðl-
um, skjaldbökum og framandi
kóngulóm. »20
gæludýr
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is
Það eru komnar fimm þús-und,“ hrópar Inga MaríaFriðriksdóttir, kennari 4.bekkjar yfir kennarahóp-
inn, sem stendur sveittur yfir pott-
unum í heimilisfræðistofunni í Rima-
skóla, steikjandi kleinur. ,,Foreldrar
eru búnir að kaupa af okkur hvorki
meira né minna en 9.000 kleinur en
við erum að afla fjár fyrir vænt-
anlegar skólaheimsóknir kennara og
starfsfólks til Liverpool síðar í febr-
úar,“ segir hún glaðbeitt um leið og
hún telur kleinur ofan í glæra plast-
poka, 20 í hvern.
Dagmar Jensdóttir, kennari 2.
bekkjar, lætur sitt ekki eftir liggja
enda höfðu foreldrar nemenda henn-
ar, eins og fleiri, keypt dágóðan
slatta og stutt þannig við endur-
menntun kennaranna. „Jú, eft-
irspurnin kom vissulega á óvart en
það er greinilegt að foreldrar hafa
trú á okkur,“ segir hún og hlær.
,,Við auglýstum kleinurnar fyr-
irfram til sölu í bekkjunum okkar og
erum sem sagt að steikja upp í pant-
anir. En við bjuggumst ekki við þess-
um viðbrögðum. Það er ljóst að orðs-
tír skólaeldhússins í Rimaskóla er
góður enda hafa Áslaug Helga
Traustadóttir heimilisfræðikennari
og nemendur skólans verið í sam-
starfi við hið virta matreiðslutímarit
Gestgjafann. Við svitnuðum nú svo-
lítið þegar við fórum að taka saman
heildarfjöldann af kleinum sem við
vorum búin að selja og þyrftum að
steikja – 9.000 kleinur. Gárungar
stungu upp á því að senda aftur bréf
heim til foreldra og segja að það
hefði verið prentvilla í fyrra bréfinu,
það ættu að vera 10 í hverjum poka
en ekki 20! En þetta er allt búið að
ganga mjög vel og við erum að ná
markmiðinu.“
Uppskriftin er Áslaugar og hún er
engin venjuleg kleinuuppskrift.
„Þær koma upprunalega úr Bárð-
ardal, fyrir 25 árum. Það sem gerir
þær svo sérstakar er að það er
óhrært skyr í þeim, ab-mjólk og lítill
sykur,“ segir hún.
Það er óhætt að segja að námsvilj-
inn sé til staðar hjá kennurum og
starfsfólki skóla þessa lands og að
hugmyndaauðgi sé mikil þegar kem-
ur að fjármögnun. ,,Mjög margir
kennarahópar fara til útlanda á
nokkurra ára fresti til þess að kynna
sér skólastarf í öðrum löndum enda
er það gífurlega lærdómsríkt. Við í
Rimaskóla ætlum nú að skoða sér-
staklega kynjaskiptan skóla og
stærðfræðikennslu,“ segir Inga
María. ,,Þetta er hluti af sí- og endur-
menntun okkar en kostar auðvitað
sitt. Við fáum styrk frá stéttarfélagi
okkar, Kennarasambandi Íslands, en
afganginn þurfum við að fjármagna
sjálf.“
Íþróttakennarinn og Liverpool-
aðdáandinn Hallgrímur Jónasson er
að steikja kleinur í fyrsta skipti og er
einn af sex karlmönnum í 37 manna
ferðahópnum. ,,Þetta er auðvitað úr-
valsstaðsetning hjá stelpunum en ég
fékk samt engu um hana ráðið. Það
er auðvitað verst að Liverpool verður
að spila við Barcelona í Barcelona á
þessum tíma en það verður ekki á allt
kosið. En það verður áhugavert að
skoða íþróttakennsluna hjá þeim.“
Eru fleiri Púlarar í hópnum? ,,Nei,
þetta eru ná hálfskrítnir menn
hérna, halda með Arsenal, Reading
og Leeds. En ég held að flestar stelp-
urnar haldi með Liverpool, þar eru
auðvitað flottustu leikmennirnir.“
En mega nemendur þá koma með
kennarakleinu í nesti þessa viku?
,,Nei, eiginlega ekki. Það má ekki
koma með kleinur í nesti en ætli það
verði ekki horft framhjá kenn-
arakleinunum í þetta sinn,“ segir
Inga María og brosir.
Kennarakleinur
1,1 kg hveiti
300 g sykur
5 tsk. lyftiduft
1 tsk. hjartarsalt
120 g smjörlíki
5 tsk. kardimommudropar
3 egg
4 dl óhrært skyr
4 dl ab-mjólk
Setjið þurrefnin í stóra skál og myljið
smjörlíkið saman við það með hönd-
unum. Hrærið eggjunum síðan létt
saman við deigið og blandið skyrinu
og ab-mjólkinni smátt og smátt
saman við. Hnoðið deigið en alls
ekki of mikið því þá verður það
seigt.
Kleinubakstursmet Hallgrímur íþrótta-
kennari og Áslaug heimilisfræðikennari eru
viss um að það hafi verið slegið kleinubakst-
ursmet, a.m.k. miðað við tíma.
Morgunblaðið/ÞÖKKleinukalt Er þetta ekki kleinukalt hjá okkur?
Kleinunudd Inga María gefur kollega sínu kleinunudd en Dagmar lítur ekki upp frá pottunum.
Seldu foreldrum
9.000 kennarakleinur
Kleinusteiking Kennarar hnoða í 9.000 kleinur í söfnun.
daglegtlíf
|mánudagur|5. 2. 2007| mbl.is